Morgunblaðið - 07.03.1992, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.03.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARfJAGÖR 7. ISIAJtZ IÍ192 7 Morgunblaðið/RAX Ram Chandra Biswas við hjólið sitt. Fullvirðisréttur í leigusamningum: Greiðslumark fellur niður hefjist framleiðsla ekki innan tveggja ára SAMKVÆMT nýútgefinni reglugerð um greiðslumark sauðfjára- furða á lögbýlum og beinar greiðslur til bænda á verðlagsárinu 1992-93 fellur greiðslumark þeirra lögbýla niður, sem eiga fullvirð- isrétt bundinn í leigusamningum við Framleiðnisjóð, verði fram- leiðsla sauðfjárafurða ekki hafin á lögbýlinu að liðnum tveimur árum frá setningu reglugerðarinnar, eða þegar tvö ár eru liðin frá lokum leigusamningsins. Samkvæmt reglugerðinni er handhafa leigusamnings við Fram- leiðnisjóð landbúnaðarins heimilt að hefja framleiðslu við lok leigu- tíma og nýta rétt til greiðslumarks að uppfylltum ákveðnum skilyrð- um. Hann verður að tilkynna stjórn Framleiðsluráðs landbúnaðarins með tilskyldum fyrirvara hvort hefja eigi framleiðslu, og verður framleiðslan aðeins'hafin á því lög- býli sem fullvirðisrétturinn var leigður af. Framleiðandi verður að hafa lögheimili á lögbýlinu, og þar verður að vera fullgild framleiðslu- aðstaða fyrir hendi. Þá skal bú- stofn vera á vetrarfóðrum á lögbýl- inu og skráður í forðagæsluskýrsl- ur, eða sannanlega keyptur áður en nýting hefst. Maki, börn, barna- börn, kjörböm, fósturbörn, systkini eða foreldrar handhafa leigusamn- ings geta vakið og samnýtt greiðsl- umarkið á samliggjandi lögbýli sem viðkomandi hefur umráðarétt yfir. Frá 15. september næstkomandi verða heimil aðilaskipti að greiðslumarki verðlagsársins 1993-94 á milli lögbýla með ákveðnum takmörkunum. Hvað varðar greiðslumark byggt á full- virðisrétti sem leigður var Fram- leiðnisjóði, þá má því aðeins selja það ef það hefur verið í fram- leiðslu hjá viðkomandi framleið- anda næstliðin tvö ár fyrir sölu. Heimilt er að selja allt greiðslu- markið þegar framleiðsla á lögbýl- inu hefur náð 80% greiðslumarks- ins að meðaltali í tvö ár, en að öðrum kosti í hlutfalli við nýtingu þess. Nær takmörkun þessi við svonefndra opinna leigusamninga sem framleiðendur gerðu við sjóð- inn. Hefur hjól- að 242.355 kílómetra á 10 árum INDVERJINN Ram Chandra Biswas hefur undanfarin tíu ár varið tíma sínum í að hjóla um heiminn og er nú staddur á Is- landi, en það er áttugasta landið «em hann heimsækir á þessum tíma. Með þessu ferðalagi vill hann m.a. mótmæla ofbeldi og óréttlæti í heiminum og hann ferð- ast á milli staða til að boða frið. Hann á nú eftir að fara til 65 landa, en hann ætlar að ljúka þessu ferðalagi sínu eftir fimm ár. Nú þegar hefur hann hjólað 242.355 kílómetra. Á hveijum stað reynir hann að hitta ýmsa ráðamenn og afhendir þeim skjal, sem skýrir ætlan hans með þessu ferðalagi auk þess sem hann biður um plagg því til staðfest- ingar að hann hafí hitt viðkomandi svo að hann geti haldið því til reiðu er yfír lýkur. Hann hefur nú þegar hitt Markús Örn Antonsson borgar- stjóra og Böðvar Bragason lögreglu- stjóra, og fengið plögg því til stað- festingar. „Ég sendi öll gögnin svo heim til Indlands þar sem þau eru geymd því ég ætla að skrifa bók um ferðalagið þegar ég sný aftur til Ind- lands,“ segir Ram Chandra, en hann starfaði m.a. sem blaðamaður áður en hann hóf ferðina. Hann segir eitt markmið ferða- lagsins vera að kynnast og skilja fólk frá mismunandi löndum og hann segist trúa því að fólk úr mismun- andi löndum geti lifað í sátt við hvert annað. „Fólkið sjálft býr til sín eigin vandamál. Stríð t.d. eyðileggja og mynda hatur og óeiningu og þeim fylgir mikill sársauki. Ég ætla ekki að reyna að breyta heiminum en ef mér tekst að hjálpa tveimur mann- eskjum þá er ég ánægður," segir hann. ----♦------- Ráðstefna EB á íslandi RÁÐSTEFNA á veguni Evrópu- bandalagsins um nýskipan mála í Evrópu í framhaldi af Maastricht- samkomulaginu verður haldin hér á landi næstkomandi föstudag. Á ráðstefnunni flytur Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra ávarp, og er- indi flytja Stanley Crossick forstjóri Belmont Institute í Brussel, Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ, Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ. og Fraser Cameron frá fram- kvæmdastjórn EB í Brussel. Aneurin Rhys Hughes sendiherra EB á ís- landi flytur samantekt og lokaorð en hann er jafnframt ráðstefnustjóri. Ráðstefnan, sem haldin verður í samvinnu við Iðnþróunarsjóð verður á Hótel Sögu og hefst klukkan 12 með hádegisverði. MITSUBISHI BÍLLINN SEM ALLIR V1L|A EIGA □ Öryggisbitar í hurðum □ Bensín/Diesel fireyfiíl □ Þrívirk stilling á fiöggdeyfum □ Sjálfskiptur/fiandskiptur □ Læsivörn á fiemlum (fáanleg) □ 100% læsing á afturdrifi □ Hvarfakútur (mengunarvörn) □ Þriggja ára ábyrgð Verðfrá kr. 2.363.520 (styttrí gerð) 1. Hágír- Afturdrif virkt, framdrifsbúnaður óvírkur. 2. Hágír - Aldrif sítengt gegnum mismunadrif og seigjutengsli. 3. Hágír - Aldrif sítengt með millilæsingu. 4. Lággír - Aldrif sítengt með millilæsingu. 5. Lággír - Aldrif sítengt með millilæsingu og 100% læsingu á afturdrifi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.