Morgunblaðið - 07.03.1992, Side 43

Morgunblaðið - 07.03.1992, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992 43 KORFUKNATTLEIKUR MorgunblaÖið/KGA Dæmigerð mynd fyrir leikinn í gærkvöldi: Njarðvíkingurinn Teitur Örlygsson á undan Valsmanni með knöttinn — að þessu sinni er það Franc Booker sem verður að láta í minni pokann. Teitur og Rondey Robinson, sem er í baksýn, léku frábærlega í liði Njarðvíkinga í gærkvöldi. Góður gætur voru hins vegar hafðar á Booker, sem skoraði óvenju lítið. Grissom í stað Baers hjá KR STJÓRN Körfuknattleiksdeildar KR ákvað í gær að láta Banda- ríkjamanninn Jon Baer, sem leikið hefur með liði félagsins í vetur, fara. David Grissom, Bandaríkjamaðurinn sem lék með Reyni í Sandgerði og Val á sínum tima leikur með KR-liðinu í hans stað, en Grissom hefur æft með liðinu undanfarið. Ingólfur Jónsson, formaður Körfuknattleiksdeildar KR, sagði við Morgunblaðið í gær- kvöldi að stjómin hefði talið tíma- bært að fá „nýtt og ferskt blóð í liðið. Hegðan Baers inni á vellin- um hefur ekki verið nógu góð. Hann hefur þurft að tjá sig of mikið við dómarana, og við viljum meina að hann hafi átt stóran þátt í því að við duttum út úr bikarkeppninni í gærkvöldi [fyrra- kvöld] gegn Haukum. Hann fékk fimmtu villu sína, tæknivillu, fyrir að tuða í dómurunum er fjórai mínútur og fjörutiu sekúndur voru eftir og við átta stigum yfir. Liðið brotnaði við þetta." David Grissom, sem er búsettur hér á landi, hefur æft með KR, að undanfömu og í gær var geng- ið frá því að hann geti leikið með liðinu strax á sunnudag. Þá fá KR-ingar Njarðvíkinga í heim- sókn á Seltjamamesið. Leikurinn er afar þýðingarmikill, því KR- ingar mega alls ekki tapa ef þeir ætla sér að komast í úrslitakeppn- ina um íslandsmeistaratitilinn. Viðureign liðanna hefst kl. 20 Frágengið fyrir hlé! „NJARÐVÍKINGAR léku frábærlega vel í fyrri hálfleik, gerðu nán- ast út um leikinn með því að ná 27 stiga forskoti og það var stórkostlegt að sjá til þeirra Teits og Rondeys. Teitur setti þá fimm 3ja stiga körfur í sex tilraunum, varði ein 5 skot auk þess sem hann komst nokkrum sinnum inn í sendingar Valsmanna og þessi munur var meira en Valsmenn réðu við,“ sagði Torfi Magnússon landsliðsþjálfari í körf uknattleik um leik Njarðvíkinga og Valsmanna í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ í Njarðvík í gær- kvöldi. Leiknum lauk með 18 stiga sigri Njarðvikinga, 94:76, enn einn stórleikinn og saman skor- uðu þeir félagar 56 stig. Valsmenn voru því ekki öfundsverðir þegar þeir hófu síðari hálfleikinn, en þó útlitið væri dökkt vom þeir ekki á því að gefast upp og eftir 12 mínútna leik hafði þeim tekist að minnka muninn í 10 stig, 71:61 og síðan 75:65. En þá brast úthaldið og Njarðvíkingar náðu að auka for- skotið að nýju á síðustu mínútunum. „Ég veit ekki hvað fór úrskeiðis hjá okkur í fyrri hálfleik en við misstum þá boltann hvað eftir annað til Njarðvíkinga sem svöruðu jafn- skrifarfrá Keflavík Leikur liðanna var jafn til að byrja með og flestir áttu von á tvísýnni viðureign. En Njarðvík- ■■■■■■ ingar voru greini- Bjöm lega ekki á sama Blöndal rriáli því þeir hrein- lega yfirspiluðu Valsmenn síðustu 12 mínútur hálfleiksins og skoruðu þá 34 stig gegn aðeins 9, og gestim- ir vissu vart sitt ijúkandi ráð á köflum. Friðrik Ragnarsson gætti Franc Bookers ákaflega vel og náði hann aðeins að skora 3 stig í fyrri hálfleiknum. Teitur og Rondey áttu harðan með hraðaupphlaupum og 27 stig voru of mikið fyrir okkur gegn Jiðj eins og Njarðvík," sagði Tómas Holton þjálfari og leikmaður Vals. „Ég er auðvitað ánægður með sigur í leiknum og að vera kominn í úrslit. Við lékum vel í fyrri hálf- leik og það er alltaf erfitt að halda utan um mikið forskot. Valsmenn börðust vel í síðari hálfleik enda höfðu þeir engu að tapa. Þeim gekk þá vel um tíma en við vorum einfald- lega sterkara liðið að þessu sinril," sagði Friðrik Rúnarsson þjálfari Njarðvíkinga. Hjá Njarðvíkingum voru þeir Rondey, Teitúr, Friðrik, Kristinn og ísak allir með góðan leik, en hjá var Val voru þeir Magn- ús Matthíasson, Tómas Holton, Svali Björgvinsson bestir. Booker skoraði aðeins 16 stig að þessu sinni sem ekki þykir mikið þegar hann á í hlut. ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Landsliðið lá í KA-húsinu SIGURÐUR Sveinsson, fyrrum landsliðsmaður og nú leikmaður Selfoss, tryggði styrktu liði KA sigur á fslenska landsliðinu í æfingaleik á Akureyri f gærkvöldi. Sigurður gerði síðasta mark- ið, 32:31, eftir að KA hafði fengið aukakast 3,2 sekúndum fyrir leikslok. Tfminn var stöðvaður, gefið á Sigurð og hann þrumaði knettinum í netið f þann mund er leiktíminn rann út. UMFN-Valur 94:76 íþróttahúsið í Njarðvík, bikarkeppnin í körfuknattleik, undanúrslit, föstudaginn 6. mars 1992. Gangur leiksins: 0:3, 6:3, 7:7, 13:14, 19:17, 30:19, 34:24, 37:25, 48:25, 53:26, 60:38, 66:44, 69:56, 71:61, 78:68, 84:70, 92:74, 94:76. Stig UMFN: Rondey Robinson 30, Teitur Örlygsson 26, Friðrik Ragnarsson 15, Krist- inn Einarsson 15, Sturla Örlygsson 2, Jó- hannes Kristbjömsson 2, Ástþór Ingason 2, Gunnar Örlygsson 2. Stig Vals: Magnús Matthíasson 21, Franc Booker 16, Tómas Holton 13, Svali Björg- vinsson 12, Ragnar Jónsson 7, Símon Olafs- son 5, Matthías Matthíasson 2. Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi Bragason sem dæmdu vel. Áhorfendur: Um 400. 1. DEILD KARLA Breiðablik - Höttur.........99:7 5 KA - landsliðið 32:31 KA-húsið Akureyri, æfmgaleikur í hand- knattlei, föstudaginn 6. mars 1992. Gangur leiksins: 2:2, 4:4, 4:7, 7:10, 9:15, 11:18, 13:19, 16:21, 19:25, 21:27, 22:28, 29:28, 30:29, 31:31, 32:31 Mörk KA: Sigurður Sveinsson 7/2, Stefán Kristjánsson 7/3, Sigurpáll Árni Aðalsteins- son 5/2, Alfreð Gíslason 3, Pétur Bjarnason 3, Þorgils Óttar Mathiesen 2, Ámi Stefáns- son 2, Erlingur Kristjánsson 2, Jóhann Jó- hannsson 1. Varin skot: Iztok Race 12, Axel Stefánsson 1. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Landsliðsins: Valdimar Grímsson 9/2, Konráð Olavson 7/2, Bjarki Sigurðsson 4, Geir Sveinsson 4, Sigurður Bjarnason 3, Birgir Sigurðsson 2, Jón Kristjánsson 1, Patrekur Jóhannesson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 6, Guðmundur Hrafnkelsson 5/2. Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Stefán Amaldsson og Guðmund- ur Lárusson. Áhorfendur: Um 1.000. Knattspyrna ÞÝSKALAND Orvalsdeildin í gærkvöldi: Dynamo Dresden - Gladbach ......1:2 Hansa Rostock - Duisburg........0:0 Schalke - Wattenscheid........1:1 Eftir jafna byijun náði landsliðið góðri forystu og hafði undir- tökin í leiknum. Liðið hafði leikinn ■■■■■ í hendi sér í 50 mín- Anton útur, en tíu mín. fyr- Benjamínsson jr leikslok — er stað- sknfar an var 22;28 - styrktist KA-vörn- inn til muna, markvörðurinn Race fór að veija eins og berserkur auk þess sem klaufaskapur landsliðs- manna í sókninni varð mikill. „Ég notaði alla sextán leikmenn mína og það kom auðvitað að sök. Hins vegar var ég nokkuð ánægður með það framan af leiknum að kerf- in gengu vel upp og við skoruðum mörg falleg mörk eftir þau,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari, við Morgunblaðið að leiks- lokum. „Þetta var mjög góð æfing, bæði leikurinn og að fá svona áhorfendur á móti sér — sérstaklega eins og þeir voru í lokin. Svona stemmning á móti okkur er einmitt það sem við þurftum," sagði Þorbergur. Landsliðið stakk KA af í fyrri hálfleiknum, náði mest átta marka forystu. Heimamenn klóruðu svo í bakkann og minnkuðu muninn í þijú mörk fyrir hlé. Framan af seinni hálfleik benti ekkert til þess að nein spenna yrði í leiknum því landsliðið hafði örugga forystu — allt þar til tíu mín. voru eftir er gangur leiksins breyttist heldur betur, eins og áður segir. Valdimar Grímsson var mjög frískur í landsliðinu; lauk nokkrum kerfum og var geysilega fljótur fram í hraðaupphlaup að vanda. Þá gerði Bjarki einnig falleg mörk og Konráð stóð sig vel. Geir var traustur á línunni. Vömin var þokkaleg og markvarslan einnig í fyrri hálfleik, en slök í þeim síðari. Þess má geta að Birgir Sigurðs- son, sem meiddist á æfingu á dög- unum, lék hluta síðari hálfleiks með landsliðinu. KA-menn vom ekki nógu ákveðnir framan af leiknum. Helst að gesturinn Sigurður Sveinsson væri ógnandi, eins og Stefán Krist- jánsson. Undir lokin tóku allir leik- menn liðsins sig verulega á og sýndu skemmtileg tilþrif. Morgunblaðið/Rúnar Pór Gestirnir í KA-liðinu, Þorgils Óttar Mathiesen og Sigurður Sveinsson, t.v., í baráttu við landsliðsmanninn Jón Kristjánsson, sem lék á yngri árum með KA. Þorbergur bjartsýnn Leikirnir gegn Portúgal leggjast vel í mig. Ég hef trú að við sigrum í þeim báðum, en til þess verða menn auðvitað að einbeita sér allar 60 mínúturnar," sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari eftir leikinn á Akureyri 5 gærkvöldi, en íslendingar mæta Portúgölum á Selfossi í dag og í Laugardalshöll á morgun. „Frá og með leikjunum gegn Portúgal mun ég stíla mest inn á að nota þá leikmenn sem ég kem til með að nota í B-keppninni,“ sagði Þorbergur. Síðustu leikir landsliðsins fyrir B-keppnina verða gegn Slóveníu í Reykjavík og Keflavík eftir helgina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.