Morgunblaðið - 07.03.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
5
Mor.gunblaðið/PPJ
Ný flugvél í ísing-
arleit við Island
FRUMGERÐ nýjustu farþegaflugvélar frá bresku flugvélaverk-
smiðjunum British Aerospace, BAe Jetstream 41, er nú í ísingar-
leit við ísland. Nýja vélin kom til Reykjavíkur 28. febrúar ásamt
hópi sextán flug- og tæknimanna og verður væntanlega hér við
ýmsar tilraunir næstu tvo mánuði. Þessar tilraunir eru liður í viða-
mikilli reynsluflugsáætlun sem mun væntanlega ljúka með tegund-
arviðurkenningu flugmálayfirvalda í september nk.
BAe Jetstream 41 er tuttugu
og níu farþega skrúfuþota ætluð
til notkunar á styttri flugleiðum.
Frumgerð vélarinnar fór sitt fyrsta
flug 25. september sl. Vélin er
knúin tveimur 1.500 ha. Garrett-
skrúfuhverflum Og er farflugshraði
vélariúnar um 540 km/klst. Flug-
drægi Jetstream 41 með fullfermi
er um 1.000 km. Hönnun Jetstre-
am 41 byggir á gömlu 18 farþega
Jetstream-skrúfuþotunum sem
Handley Page-verksmiðjnrnar
bresku hönnuðu um miðjan sjö-
unda áratug, en þessar vélar voru
síðan endurbættar svo um munaði
af British Aerospace snemma á
níunda áratugnum og fengu þá
heitið Jetstream 31. Þessar flug-
vélar hafa reynst afar vinsælar
meðal flugfélaga, einkum vestan
hafs þar sem þær eru víða notaðar
á stuttum flugleiðum til þess að
mata stærri flugvélar á aðalflug-
völlum í Bandaríkjunum og
Kanada. British Aerospace bindur
miklar vonir við þessa nýju flugvél
en þegar hefur verið samið um
sölu 114 Jetstream 41. Fyrstu vél-
arnar verða væntanlega afhentar
kaupendum í september nk. um
leið og tegundarviðurkenning hef-
ur fengist.
ísland hefur nokkrum sinnum
verið vettvangur ísingartilrauna
British Aerospace þegar verið er
að reynslufljúga nýjum flugvéla-
tegundum. Er þess skemmst að
minnast að fyrir ári var nýjasta
gerð smáþota British Aerospace,
BAe 125-1000, hér í um þijár vik-
ur við ísingartilraunir. Þar áður
hafa Bretarnir reynt ýmsar aðrar
tegundir farþegaflugvéla hér svo
sem hina hljóðlátu fjögurra hreyfla
þotu BAe 146 og BAe ATP-skrúfu-
þotuna.
Frestun á beinum greiðslum til umræðu á Búnaðarþingi:
Stéttarsambandið höfði skaðabóta-
mál verði greiðslum frestað til 1993
f ÁLYKTUN sem kom til fyrri
umræðu á Búnaðarþingi í gær
er skorað á Stéttarsamband
bænda að standa fast á rétti
sauðfjárbænda um að ríkisstjórn
standi að fullu og öllu við búvöru-
samninginn frá 11. mars 1991.
Brjóti ríkisstjórn ákvæði samn-
ingsins, t.d. með því að fresta
beinum greiðslum til ársins 1993,
þá höfði Stéttarsambandið þegar
í stað skaðabótamál á hendur
ríkissjóðifyrirhöndbænda.
Gunnar Sæmundsson beindi því
erindi til Búnaðarþings að mótmæla
því að frestað verði til 1993 að
greiða sauðfjárbændum hluta af
beinum greiðslum og bijóta með
því búvörusamninginn frá liðnu ári,
og komu tvær ályktanir allsheijar-
nefndar um þetta mál til fyrri um-
ræðu á Búnaðarþingi í gær.
í annarri þeirra skorar Búnaðar-
þing á landbúnaðarráðherra að
standa að fullu og öllu við búvöru-
samninginn, og minnir sérstaklega
á ákvæði í 5. grein hans um greiðsl-
ur ríkissjóðs, en þar segir meðal
annars að tilhögun beinna greiðslna
skuli tryggja framleiðendum
áþekka fjármögnun og verið hefur,
og fullnaðaruppgjör fari fram ekki
síðaren 15. desember. Búnaðarþing
bendir á að sauðfjárbændur taki á
sig verulegar skuldbindingar með
fækkun bústofns, og þar með, þeg-
ar til lengri tíma sé litið, að draga
úr útgjöldum ríkisins. Því sé verið
að ráðast á garðinn þar sem hann
sé lægstur ef ekki verði staðið við
áðurnefnt ákvæði, og því verði
reyndar ekki trúað fyrr en á reyn-
ir. Telur Búnaðarþing því ekki koma
til greina að fresta fyrsta hluta af
beinum greiðslum bænda til ársins
1993.
Flugsljóri BAe Jetstream 41 vél-
arinnar, Tim Allen, er hér að
skoða flugvélina fyrir flug. Fimm
blaða loftskrúfur eru af nýjustu
gerð, sem m.a. gera það að verk-
um að vélin verður hávaðaminni
á flugi sem og á jörðu niðri.
Seljum ekki listaverk
- segir forstöðu-
maður Silkeborg
Kunstmuseum
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Tro-
els Andersen safnstjóra Silke-
borg Kunstmuseum:
„I frétt í Morgunblaðinu þann
6. mars er haft eftir starfsmanni
hjá Gallerí Borg í Reykjavík, að
Silkebörg Kunsmuseum hafi und-
anfarin ár selt myndir í sinni eign
til að eignast önnur listaverk.
Silkeborg Kunsmuseum vísar
þessari staðhæfingu algerlega á
bug. Eins og öllum öðrum opin-
berum söfnum, sem lúta danskri
safnalöggjöf, er Silkeborg Kuns-
museum óheimilt að selja eða
gefa listaverk í sinni eigu. Við
teljum þessa ófrávíkjanlegu reglu
vera meginforsendu þess að söfn
rísi undir nafni sem menningar-
stofnanir.
Kaup safnsins á hinni stóru
trémynd Manni og konu frá
1939-14 eftir Siguijón Ólafsson,
sem voru tilefni ofangreindrar
staðhæfingar frá Gallerí Borg,
voru fjármögnuð með styrk frá
Statens Museumsnævn, sem heyr-
ir undir danska menntamála-
ráðuneytið.
Maður og kona er fyrsta högg-
myndin sem safnið eignast eftir
íslenskan myndhöggvara og hún
er veigamikil viðbóta við íslensk
Silkeborg Kunstmuseum/Lars Bay.
Trémyndin Maður og kona eftir Siguijón Ólafsson var meðal
verka sem sýnd voru á yfirlitssýningunni Sigurjón Ólafsson,
Danmörk-ísland 1991. Sýningin var m.a. á Silkeborg Kunstmuse-
um en þar er myndin tekin.
listaverk frá 4. og 5. áratugnum
sem fyrir eru í Silkeborg Kunst-
museum, m.a. eftir Svavar
Guðnason og Þorvald Skúlason.
Silkeborg, 6. mars 1992.
Troels Andersen safnstjóri."
M
*
Ovönduð vinnubrögð við prent-
un íslenskra peningaseðla
- segir Ragnar Ingimarsson forstjóri HHÍ
RAGNAR Ingimarsson forstjóri Happdrættis Háskóla íslands segir
að sér virðist sem vinnubrögð við prentun íslenskra peningaseðla
séu óvönduð. Hann hefur gert samanburð á prentun peningascðla
og komist að þeirri niðurstöðu að oft og tíðum skeiki nokkrum
millimetrum að myndirnar á tveimur seðlum fyrir sömu upphæð
séu eins. Hann sýndi blaðamanni Morgunblaðsins dæmi þess að með
því að leggja afrit tveggja seðla, hvort heldur er tveir 5.000 króna
seðlar, tveir 1.000 króna seðlar eða tveir 500 króna seðlar, og skorti
2-3 millimetra á að myndirnar á seðlunum stæðust á.
Einnig var greinilegur munur á lenskum peningaseðlum væri hins
litum í munstri frá seðli til seðils.
Ragnar sagði að eins og sjálfsagt
allur almenningur hefði hann talið
að prentun peningaseðla væri
vandasamasta og mesta nákvæmn-
isvinna sem um gæti í prentverki.
Niðurstaða sín eftir skoðun á ís-
vegar sú að þeir erlendu aðilar sem
prentuðu seðla fyrir Seðlabanka
Islands skiluðu vinnu sem ekki
þætti viðunandi ef til dæmis um
prentun á bók væri að ræða.
Hann sagðist ekki hafa gert
samanburð að þessu leyti á íslensk-
um peningaseðlum og seðlum ann-
arra Evrópuþjóða en sagði þó ljóst
að íslensku seðlamir stæðust eng-
an samanburð við bandaríska doll-
araseðla.
Eins og fram kom hjá Ragnari
Ingimarssyni í Morgunblaðinu á
þriðjudag hafa þessir gallar á ís-
lenskum peningaseðlum valdið
HHÍ erfiðleikum við að taka í notk-
un sjálfsala fyrir happaþrennur og
happó-miða en stjórntölvur sjálf-
salanna hafna seðlum sem frá-
brugðnir eru frummyndinni að ein-
hveiju leyti. Svipuð vandamál hafa
komið upp í tengslum við bensín-
sjálfsala.
SAMKVÆMT LÖGUM NR.10
SAMKVÆMT LÖGUM NR
29.MARS1S
SEÐLABAN
ÍSLANDS
Við fljótlega yfirferð í skúffu hjá gjaldkera Morgunblaðsins fundust tveir þúsund króna seðlar
og tveir fimmþúsund króna seðlar sem talsvert vantar á að séu eins. Á myndinni hér að ofan
hafa filmur gerðar eftir seðlunum verið lagðar hvor yfir aðra, þannig að önnur er prentuð í rauð-
um lit en hin í bláum. Tölurnar lengst til vinstri eru látnar standast á en glöggt sést skekkja í
prentuninni, sem birtist til dæmis þannig að sjá má rauðan eða bláan lit í seðlinum.
Frumgerð
nýrrar
farþegaflug-
vélar,
British
Aerospace
Jetstream
41, er nú i
tilraunaflugi
hér á landi.
Verið er að
reynslu-
fljúga vél-
inni i ísing-
arskilyrðum.
f áSrs