Morgunblaðið - 07.03.1992, Side 12

Morgunblaðið - 07.03.1992, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992 Um ábyrgð sjónvarps og Menningarsjóð útvarpsstöðva eftir Eirík Thorsteinsson Sjöunda febrúar síðastliðinn birt- ist grein í Morgunblaðinu eftir Dav- ið Stefánsson, formann SUS, undir fyrirsögninni „Óþurftarsjóður", og er þar átt við Menningarsjóð út- varpsstöðva. í þessarí grein leggur Davíð til að sjóðurinn verði lagður niður og nefnir hann helstu ástæður fyrir þessari skoðun sinni. Sjón- •varps- og kvikmyndaiðnaður er margslungið fyrirbæri þar sem margir ólíkir, en samvirkandi þætt- ir, mynda flókið kerfi. Ég lái það engum, sem ekki hefur sérþekkíngu á þessu sviði, þótt óskyld efnisatriði ruglist saman, á kostnað heildar- myndar. En þar sem höfundur greinarinnar gengur jafnframt út frá röngum forsendum, er mér ekki stætt á öðru en að gera nokkrar athugasemdir við þessi skrif. Það fyrsta sem glöggur lesandi hlýtur að staldra við, ef hann hefur á annað borð kynnt sér þetta mál, er sú rangfærsla sem kemur fram í orðum Davíðs að í lögum um menningarsjóð sé . kveðið á um sérstaka tíund, menningarsjóðs- gjald, sem allir aðilar er standa í útvarps- og sjónvarpsrekstri þurfa að greiða af auglýsingatekjum sín- um..." Hið rétta í málinu er eftirfar- andi: Tekjur Menningarsjóðs eru 10% gjald ofan á auglýsingatekjur (en ekki af auglýsingatekjum). Sjónvarpsstöðvarnar gegna, með öðrum orðum, innheimtuhlutverki. Þessi misskilningur Davíðs er skilj- anlegur í Ijósi þeirrar villandi um- ræðu sem ýmsir andstæðingar sjóðsins hafa haft í frammi á undan- fömum mánuðum og árum. En lítum nánar á þennan „óþurft- arsjóð“. í grein sinni vill Davíð minna á „þá gagnrýni sem hug- myndin að baki sjóðnum sjálfum hefur fengið síðastliðin ár“. I þess- ari setningu er ekki allt sem sýn- ist. Það er rétt að sjóðurinn hefur sætt mikilli gagnrýni á undanförn- um árum, ekki síst af háífu kvik- myndagerðarmanna, en það er vegna þess að hugmyndin að baki sjóðnum hefur ekki verið fram- kvæmd. Tildrög málsins eru þessi: Menningarsjóður útvarpsstöðva var settur á stofn árið 1985 að fmm- kvæði Félags kvikmyndagerðar- manna. Sjóðurinn var hugsaður sem mótvægi við mjög aukið erlent sjón- varpsefni (tilkoma STÖÐVAR 2 var þá á næsta leiti) en einnig sem mótvægi við óeðlilega hlutdeild sjónvarpsins í framleiðslu á inn- lendu dagskrárefni. Afgreiðsla málsins fór þó á annan veg. Kvik- myndagerðarmönnum var meinað- ur aðgangur að sjóðnum en sjón- varps- og útvarpsstÖðvum var falin stjórn hans. Fulltrúar þeirra aðila sem innheimtu fyrir sjóðinn tóku síðan ákvarðanir um úthlutanir sér til handa. í stað þess að úthluta fé á grundvelli þeirra umsókna sem lágu fyrir hveiju sinni var megin- reglan sú að fénu var skipt á milli stöðvanna í sama hlutfalli og þær höfðu innheimt fyrir sjóðinn. Jafn- framt var sjóðnum gert skylt að standa, að stórum hluta, undir rekstri Sinfóníuhljómsveitar ís- lands. Þessi hringavitleysa hélt áfram til áprílmánaðar 1991, en þá stóð þáverandi menntamálaráð- herra, Svavar Gestsson, fyrir reglu- gerðarbreytingu" sem gerði kvik- myndagerðarmönnum kleift að sækja um framleiðslufé til sjóðsins. Jafnframt skipaði núverandi menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson, kvikmyndagerðarmann í stjórn sjóðsins í nóvember síð- astliðnum, en það er í fyrsta sinn, sem kvikmyndagerðarmenn fá þar fulltrúa. Það er fyrst núna, að menn eygja von um að sjóðurinn geti gegnt upphaflegu hlutverki sínu þótt enn eigi eftir að móta framtíð- arstefnu sjóðsins og festa hana í lög. Nú vík ég máli mínu aftur að grein Davíðs Stefánssonar þar sem hann segir að með stofnun Menningarsjóðs útvarpsstöðva sé „... gefið í skyn að útvarps- og sjón- varpsstöðvum sé ekki treystandi til að standa að gerð menningarlegs dagskrárefnis“. Höfundur er hér í virðingarverðu en misskildu vemd- arhlutverki fyrir íslenska ljós- vakamiðla. Hlutverk Menningar- sjóðs snýst ekki um traust eða van- traust til sjónvarps- og útvarps- stöðva heldur um peningaflæði, markaðslögmál og hagsmunaá- rekstra milli „útsendingarstöðva" og framleiðsluaðila. Hvað kvik- myndaframleiðslu snertir , eru það fyrst og fremst áhrif sjónvarps, sem skipta máli, og mun ég einskorða þessa umfjöllun við það svið. Ahrif sjónvarps á kvikmyndaiðn- að eru alkunn og koma fram með þeim hætti að sjónvarpsstöðvar, sem nærast að verulegu leyti á kvikmyndaiðnaði (kvikmyndir af ýmsu tagi eru eitt vinsælasta sjón- varpsefnið), em á sama tíma að höggva stórt skarð í þann markað sem kvikmyndagerðin byggir til- veru sína á. Nærtækt dæmi er 30. septémber 1966, daginn sem RÚV hóf sjónvarpsútsendingar, en á þeim degi hvarf sá markaður sem íslensk heimildarmyndagerð hafði áður byggt á. Frá og með þeim degi hefur greinin ekki náð að þró- ast eðlilega. Hér er ekki verið að setja spurningarmerki við tilverurétt sjónvarps, heldur einungis að benda á vel þekkt lögmál sem tekið er mið af í stjórnun sjónvarps- og kvikmyndamála annars staðar í heiminum. Aðrar þjóðir hafa fyrir löngu komið til móts við þessi áhrif með ýmsu móti, og í langflestum tilvikum eru þessar ráðstafanir bundnar í lög. Hér skulu nefnd nokkur dæmi: í Frakklandi greiða sjónvarpsstöðvar allt að því 5% af heildarveltu í kvikmyndasjóð (CNC) þar sem sjónvarpsmenn hafa lítil sem engin ítök; I Noregi er starf- ræktur voldugur sjónvarpskvik- myndasjóður sem er fjármagnaður að hálfu leyti af norska sjónvarpinu (og að hálfu leyti .af menntamála- ráðuneyti); í Bretlandi er ríkisreknu sjónvarpsstöðinni BBC skylt að kaupa 25% af öllu dagskrárefni frá kvikmyndafyrirtækjum (utan sjón- varps); í Danmörku (TV2), Bret- landi (CH4), Frakklandi (CANAL+) og víðar er einkastöðvum skylt að kaupa 100% af dagskrárefni utan frá (og víða eru jafnframt ákvæði um að stór hluti af öllu útsendu efni skuli vera innlendur). Það skal Eiríkur Thorsteinsson „Það er rétt að sjóður- inn hefur sætt mikilli gagnrýni á undanförn- um árum, ekki síst af hálfu kvikmyndagerð- armanna, en það er vegna þess að hug- myndin að baki sjóðn- um hefur ekki verið framkvæmd.“ tekið fram að hér er einungis verið að tala um hlutdeild sjónvarps- stöðva í kvikmyndaiðnaði þessara landa en ekki heildarijármögnun. Eftir er að telja opinbera kvik- myndasjóði þessara landa. Þýska- land er nokkuð sér á parti þar sem þarlendur kvikmyndaiðnaður er fjármagnaður, að langstærstum hluta, af þýskurp sjónvarpsstöðv- um. í öllum þessum löndum eru gerð- ar fjölmargar aðrar ráðstafanir en þær sem hér hafa verið nefndar. Allar þessar aðferðir miða að því að flytja peninga frá sjónvarps- stöðvunum til kvikmyndaiðnaðar- Stóriðja í lagmetisiðnaði eftir Grím Karlsson Hér í Keflavík - Njarðvík hefur verið aflagður allskonar atvinnu- rekstur. Má nefna til dæmis gúanó- verksmiðju í Innri-Njarðvík sem brann og var ekki endurreist. Einn- ig í Keflavík verksmiðju, sem var orðin miðsvæðis í bæjunum, og ekki heldur endurreist. Einnig var hætt við verksmiðju á Reykjanesi. Stærsti hluti fiskveiðiflotans hef- ur verið tekinn af svæðinu. Hér standa ónotuð frystihús og tugþús- unda fermetra iðnaðarhús, allt ónotað sem einskisnýtir hlutir. Þið stjórnmálamenn sem horfið yfir verkin á Suðurnesjum hljótið að sjá eins og aðrir, að þetta geng- ur ekki öllu lengur. Það verður eitt- hvað að korrth í staðinn fyrir það sem tekið hefur yerið af Suður- nesjasvæðinú. T þeim efnum verður ekki hægt að stoppa með hálfnað verk. Við sem búúrfi á svæðinu vilj- um fara að sjá seinni hlutann, hvernig sem þið hafið hugsað ykkur að hafa hann. Mig langar að varpa þeirri spum- ingu fram, hvort ekki sé löngu tíma- bært að Síldarverksmiðja ríkisins, SR, komi inn í málið og þá með lagmetisiðnað, en dragi þá lítillega úr endurbyggingu gömlu gúanó- verksmiðjanna. Ef SR byggði í staðinn eina stóra lagmetisverksmiðju á Suðumesjum þyrfti hún að vera nýtískuleg, með mörgum vinnslulínum, en þó sér- staklega fyrir sfld og loðnu. Það er alls ekki sjálfgefið, að við getum endalaust mokað ferskum matfiski í gúanó. Þörf fyrir þennan físk til manneldis fer vaxandi. Við höfum heldur ekki efni á því að landa ferskri sfld og loðnu í þessa verð- minnstu afurð í því magni sem gert er. Það má ekki koma okkur á óvart ef einn góða veðurdag verði gerðar athugasemdir við þessa meðferð á úrvals ferskum matfiski. Margir framsæknir hugsjóna- menn hafa unnið gífurlegt braut- ryðjendastarf í lagmetisiðnaði. Að vísu eru þeir, að því er virðist, mis- jafnlega á vegi staddir, en þeim hefur öllum tekist að gera íslenskt lagmeti að lostæti, og ekki síst loðnu og síld. Þessir brautryðjendur hafa bók- staflega leyst allt sem í þeirra valdi stendur, við hin erfiðustu og frum- stæðustu skilyrði. Nú er eins og komið sé að þeim punkti þar sem vantar sterkan að- ila í forystusveit lagmetis. Ekki viljum við láta sterka er- lenda aðila hirða af okkur vaxtar- brodd þjóðarinnar, sem er aukin matvöruframleiðsla úr íslenskum sjávarafla. Er það ekki einmitt núna sem SR, með reynslu í stórrekstri og „Hér í Keflavík - Njarðvík er flest til staðar og óskaskilyrð- um fullnægt, til stóriðju í lagmetisiðnaði eða hverskonar annarri stóriðju sem veitti fólk- inu atvinnu og skapaði þjóðinni verðmæti og kaupendum eftirsóttar vörur og heilsusamleg matvæli.“ markaðsmálum, þyrfti að koma til skjalanna? Tímarnir breytast, og SR má ekki endalaust einskorða sig við framleiðslu á síðasta og verð- minnsta vinnsluþrepi fiskafurða. Mér hefur verið sagt að ef við gætum framleitt lagmeti á sam- keppnishæfu verði, myndum við aldrei geta annað eftirspurn. SR þekkir og hefur um langan aldur leyst þann markaðsvanda og staðið af sér allar verðsveiflur. Ef SR kæmi inn þarf að vanda stað- setningu verksmiðjunnar vel með tilliti til útflutnings með skipum og flugi. Verksmiðjan þarf að vera í þéttbýli en hafa samt mikið land- rými. Það þarf góða birgðastöð og hráefnisgeymslur fyrir saltsíld, frysta síld og loðnu, hrogn og ann- að hráefni. Verksmiðjuna þarf að starfrækja á vöktum allan sólarhringinn allt árið, rétt eins og aðrar verksmiðjur SR í rekstri. Nú á bara að framleiða ljúffeng matvæli úr hluta af sama hráefni, á auðseljanlegu verði til útflutnings. Frumkvöðlar lagmetis myndu í staðinn fyrir vöruþróun njóta góðs af birgða- og hráefnisgeymslu SR og markaðsöflun og kynningar- starfi eða eftir öðru samkomulagi. í Svíþjóð þykir íslenskt lagmeti það langbesta af sambærilegum vörum sem þar eru á boðstólum, en verðið þykir of hátt. Enda er framleiðslan hjá okkur hálfgerður heimilisiðnaður, og þar sem best gegnir má segja að verið sé að prufukeyra daglega. Allt sett á stað að morgni, og allt stöðvað að kveldi. Gæti SR hafið vinnslu til mann- eldis úr einhverju broti af því hrá- efni sem fyrirtækinu berst, þá er miklum áfanga náð. í lagmeti skipta umbúðir miklu máli og raunar alltaf þegar mat- væli eiga í hlut. Það nýjasta er að nota álblöndu í einnota ílát. En það er sama spurningin, viljum við flytja þessar umbúðir inn? Eða aðrar kannski löngu úreltar? Eða viljum ins, og skapa þannig eðlilega hring- rás á fjármagni. ( Tekjur sjónvarps- stöðva eru að hluta til á kostnað kvikmyndaiðnaðar ) Allar þessar aðgerðir helgast af sama grunvall- arlögmálinu: Ábyrgð sjónvarps gagnvart kvikmyndaiðnaði. Þessi ábyrgð er óumdeilanleg og viðurkennd um heim allan. Sú regl- ugerðarbreyting í lögum Menning- arsjóðs sem áður er minnst á, svo og skipun kvikmyndagerðarmanns í stjórn sjóðsins, eru fyrstu skrefin sem Stigin hafa verið á íslandi í heilan aldarfjórðung sem miða að því að rétta hlut kvikmyndaiðnaðar gagnvart sjónvarpi. Að hverfa frá þessari þróun núna væri stórkostleg afturför. Andstæðingar sjóðsins hafa haldið á lofti vafasömum rök- semdum, og m.a. reynt að spyrða sjóðinn við hugtök eins og „óeðlileg ríkisafskipti“ og „vinstristefnu". En reyndin er allt önnur. Það sést best ef ábyrgðarhlutur Ríkissjónvarpsins er skoðaður sérstaklega, en opinber sjónvarpsrekstur, sem ekki tekur mið af kvikmyndaiðnaði í landinu (og hér er verið að tala um annað og meira en geðþóttaákvarðanir dagskrárstjóra), er hrein valdníðsla ríkisins á einkaframtaki. - O - Með þessu harkalega orðalagi er ég ekki að kasta rýrð á Ríkissjón- varpið, fólkið, sem þar starfar né það uppbyggingarstarf sem sann- anlega átti sér stað hjá RÚV á sín- um tíma. Ríkissjónvarpið hefur látið margt gott af sér leiða og spjarað sig furðuvel miðað við þær fjár- þrengingar sem stofnunin hefur búið við í árarðir. Hér er einungis verið að benda á að það hefur skort yfirsýn í stjórnun sjónvarps- og kvikmyndamála á undanförnum árum. Sá tími er vonandi á enda. Skilningur Ólafs G. Einarssonar á málefnum Menningarsjóðsins kom berlega í ljós á málþingi Félags kvikmyndagerðarmanna í nóvem- ber síðastliðnum, þar sem Ólafur sagði m.a.: „ Ýmsir vilja leggja nið- ur Menningarsjóð útvarpsstöðva, sem ljármagnaður er af auglýsend- um í útvarpsstöðvum með 10% álagi á auglýsingagjöld, en ekki af al- mennu rekstrarfé stöðvanna eins og margir virðast halda. Með því að breyta til muna laga- og reglu- gerðarákvæðum um þennan sjóð og framkvæmd þeirra hef ég þá trú að enn megi freista þess að hann geti þjónað upphaflegum tilgangi sínum.“ En gagnrýnendur sjóðsins halda áfram að láta í sér heyra með kröf- Grímur Karlsson við vinna frekar úr álinu okkar, og gera þetta sjálf, og flytja seljan- legri vöru út. Við þurfum að komast upp úr því fari að vinna sjávaraflann að- eins að því marki að hann sé flutn- ingshæfur milli staða. Eigi að síður er best að frumvinnsla fari fram sem næst veiðisvæðum hér eftir Sem hingað til, en flytjist síðan í birgðageymslur. En hvort við vinnum hráefnin frekar hér á landi, er stóra spurn- ingjn. Hér í Keflavík - Njarðvík er flest til staðar og óskaskilyrðum full- nægt, til stóriðju í lagmetisiðnaði eða hverskonar annarri stóriðju sem veitti fólkinu atvinnu og skapaði þjóðinni verðmæti og kaupendum eftirsóttar vörur og heilsusamleg matvæli. Höfundur er skipstjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.