Morgunblaðið - 07.03.1992, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 07.03.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992 17 Norrænt gigtarár 1992: Slitgigt eftir Helga Jónsson Slitgigt er algengasti liðasjúk- dómurinn og má segja að allir sem lifa fram á efri ár fái þessa gigt. Miðað við reynslu annarra þjóða má reikna með því að hægt sé að greina slitgigt með röntgenmynd- um hjá að minnsta kosti 40% íslend- inga. Slitgigtareinkenni eru þó ekki jafn algeng en talið er að um það bil 15% af þjóðinni hafi einkenni sjúkdómsins. Einkennin eru algeng- ari hjá konum. Oftast leggst slit- gigtin á hryggjarliði, hné, hendur og mjaðmarliði. Sjúkdómseinkenni Einkenni sjúkdómsins eru fyrst og fremst verkir í liðum, oft tengd- ir áreynslu, en bóiga og morgun- stirðleiki eru ekki eins áberandi og við iktsýki. Einkennin eru oftast sveiflukennd og í byijun er oft um að ræða væg köst tengd áreynslu hjá miðaldra fólki. Kvöld- og nætur- verkir eru algengir og einnig finna sjúklingar oft fyrir veðurbreytingum. Smám saman vilja einkennin þó verða meira samfelld en andstætt iktsýki er þetta hægfara sjúkdómur og horfur sjúklinga eru almennt betri. Svokölluð Heberd- ens-slitgigt í hönd- um er sérstaklega algeng hjá konum um og eftir miðj- an aldur en hún einkennist af rauð- um og aumum hnútum við ystu fingurliði. Þessu fylgja oft einkenni frá þumli og veiklað grip. Orsakir slitgigtar Stundum eru ástæður slitgigtar í einstökum liðum augljósar, t.d. við meðfædda galla í stoðkerfi, eft- ir áverka eða bólgur sem valdið hafa ójöfnum á liðflötum. Mun al- gengara er þó að orsakir slitgigtar séu óþekktar. Þó er vitað að auknar líkur eru á því að fólk fái slitgigt eftir því sem aldurinn færist yfír, Drengjakór Laugarneskirkju, Tónleikar Drengja- kórs Laugameskirkju „SYNGJA eins og englar, hegða sér eins og herrar, leika sér eins og börn.“ Þannig hljóða emkunnarorð Drengjakórs Laugarnes- kirkju, eina drengjakórsins á íslandi. Kórinn, sem er tæplega tveggja ára gamall, heldur tónleika sunnudaginn 8. mars kl. 17.00 í Laugar- neskirkju. Aðgangur er ókeypis. Á efnisskrá eru m.a. lög eftir Costantini, J.S. Bach, Gabriel Faure, Egil Hovland og ýmis íslensk tónskáld. Stjórnandi kórsins er Ron- ald Vilhjálmur Turner. Undirleik annast David Knowles. Guðrún Sig- ríður Birgisdóttir leikur einieik á flautu og Kristján Stephensen leik- ur einleik á óbó. Drengjakórinn er meðlimur í „Federation Intemationale des Cho- eurs d’Enfants“. Tónleikarnir eru lokaáfangi í undirbúningi kórsins fyrir þátttöku í alþjóðlegu drengja- kóramóti sem haldið verður í Flórida dagana 17.-23. mars. GEFÐU DOS TIL HJALPAR! Á laugardögum söfnum við einnota umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli kl. 11.00 og 14.00 og við sækjum. ÞJÓÐÞRIF UMMUO bUNSUU BUu KJEí5S2r LANDSBJÖRG Dósakúlur um allan bæ. Helgi Jónsson „Slitgigt er algengasti liðasjúkdómurinn og má segja að allir sem lifa fram á efri ár fái þessa gigt. Oftast leggst slitgigtin á hryggjarliði, hné, hendur og mjaðmarliði. Á síðustu árum hefur þekking á orsökum henn- ar og meðferð stóraukist." ef nánir ættingjar eru með slíka gigt, ef líkamsþyngd er óeðlilega mikil og einnig ef fólk stundar vissa tegund erfiðrar líkamlegrar vinnu. Meðferð Meðferð sjúkdómsins er marg- þætt. Hægt er að draga úr einkenn- um með lyfjameðferð, hjálpartækj- um og sjúkra- og iðjuþjálfun. Auk þess hafa skurðaðgerðir gjörbreytt horfum sjúklinga með slæma slit- gigt í mjöðmum, hnjám og öxlum en gerviliðaaðgerðir á þessum liðum eru nú algengar. Stórauknar rannsóknir Á síðustu árum hefur þekking á orsökum slitgigtar og meðferð stór- aukist. Liðspeglanir og segulómun- artæki gefa betri möguleika til að fylgjast með gangi sjúkdómsins en hægt er með röntgenmyndum. Rannsóknir á dýrum og lifandi bijóskfrumum hafa leitt í ljós að liðbijósk hefur mun meiri hæfíleika til að endurnýja sig en talið hefur verið. Þetta gefur vísbendingar um að hafa megi áhrif á gang slitgigt- ar með lyfjum. Nýlega hafa borist hingað til lands lyf frá Mið-Evrópu en þau eru talin geta aukið nýmynd- un á liðbijóski og hamlað niður- broti þess. Miklar vonir eru bundn- ar við meðferð með þessum lyfjum en hópur sjúklinga með hratt vax- andi slitgigtareinkenni fær nú slíka meðferð á göngudeild Landspítala. Höfundur er doktor í gigtarlækningum og starfar sem sérfræðingur & lyflækningadeiid Landspítala. Eitt verka Önnu Guðjónsdóttur. Anna Guðjóns- dóttir sýnir í Gerðubergi Myndlistarsýning á verkum Önnu Guðjónsdóttur verður opnuð í menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi mánudaginn 9. mars kl. 20.00. Anna fæddist 1958 og nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1981-1983 en frá 1986 hefur hún stundað nám við Listaháskólann í Hamborg. Anna hefur tekið þátt í fjölda sýninga og núna síðast Kunst, Europa-Island, Kölnischer Kunstve- rein. Anna er búsett í Þýskalandi og er þetta fyrsta einkasýning hennar hér heima.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.