Morgunblaðið - 07.03.1992, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
Málverkauppboð á
á Hótel Sögu 10. marz
GALLERÍ Borg heldur listmunauppboð í samvinnu við Listmunaupp-
boð Sigurðar Benediktssonar hf. næstkomandi sunnudagskvöld. Upp-
boðið fer fram í Súlnasal Hótel Sögu og hefst kl. 20.30, Haraldur
Blöndal býður upp.
Að þessu sinni verða boðin upp
um 90 verk og eru þau flest eftir
okkar þekktustu listamenn. Af yngri
höfundum má nefna Kristján Dav-
íðsson, Hring Jóhannesson, Hafstein
Austmann, Jóhannes Geir og Jón
Reykdal.
Þá verða boðin verk eftir Þorvald
Skúlason, Nínu Tryggvadóttir, Jón
Engilberts, Louisu Matthíasdóttur,
Valtý Pétursson, Mugg, Snorra
Arinbjamar, Kristínu Jónsdóttur,
Svavar Guðnason, Þórarinn B. Þor-
láksson, Akureyrarmynd frá 1901
eftir Einar Jónsson frá Fossi, tvær
bronsstyttur eftir Tove Ólafsson og
módelmynd eftir Gunnar Blöndal,
málaða í París 1930.
Einnig verður boðin til sölu upp-
stoppaður Gjóður eða Fiskiöm sem
er flökkufugl hér á landi og er ekki
vitað til þess að fleiri eintök finnist
uppstoppuð hér á landi.
Uppboðsverkin verða til sýnis í
dag, föstudaginn 6. mars, laugar-
daginn 7. og uppboðsdaginn 8. mars
í Gallerí Borg við Austurvöll frá kl.
14 til 18 alla dagana.
Mynd Gunnlaugs Blöndals, eitt verkanna sem verður boðið upp.
305 ný kynferðisleg ofbeldismál til Stigaméta 1991:
Helmingxir þolenda
er yngri en 10 ára
Sifjaspell 56% nýrra mála
í ÁRSSKÝRSLU Stígamóta, Samtaka kvenna gegn kynferðislegu
ofbeldi, kemur fram að sifjaspellsmáj eru langalgengust þeirra mála
sem samtökin hafa haft afskipti af. í fyrra voru nýjar komur Stíga-
mót vegna kynferðislegs ofbeldis 305. Stígamót hófu starfsemi 1990
og á þessum tveimur starfsárum hafa 556 einstaklingar leitað til
samtakanna vegna þessa. Tæp 50% þolenda kynferðislegs ofbeldis á
síðasta ári voru á aldrinum 0-10 ára. 78,5% ofbeldismanna eru nánir
ættingjar eða kunnugir þolendunum, þar af feður í 11,5% tilfella.
í 151 ofbeldismáli af 305 voru skýri það hvers vegna ofbeldismenn
þolendur kynferðislegs ofbeldis tíu
ára og yngri, þegar ofbeldið átti sér
stað. I 76 tilfellum voru þolendur á
aldrinum 10-15 ára.
Þolendur kynferðislegs ofbeldis
voru í 94% tilfella konur. 6% karl-
kyns þolenda höfðu orðið fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi af hendi annarra
karla. Guðrún Jónsdóttir hjá Stíga-
mótum sagði að samtökin vísuðu
fullorðnum karlmönnum sem orðið
hefðu fyrir kynferðislegu ofbeldi
yfirleitt til karlahóps sem væri starf-
andi á þessu sviði.
Af nýjum málum sem bárust
Stígamótum voru 56% vegna sifja-
spells, 25% vegna nauðgunar, 12%
vegna gruns um sifjaspell, 2% vegna
gruns um nauðgun og 5% vegna
kynferðislegrar áreitni. Þegar
endurkomur á síðasta ári eru skoð-
aðar kemur í ljós að af 757 málum
voru um 66,6% vegna sifjaspells,
23,3% vegna nauðgunar, 5,5%
vegna gruns um sifjaspell, 0,1%
vegna gruns um nauðgun og 4,5%
vegna kynferðisiegrar áreitni.
Guðrún sagði að enginn saman-
burður væri til við önnur Norðurlönd
um hlutföll mismunandi þátta kyn-
ferðislegs ofbeldis. Engin sambæri-
leg samtök væru starfandi á Norð-
urlöndunum sem héldu utan um
þessar tölur.
416 ofbeldismenn komu við sögu
nýrra mála sem bárust Stígamótum
á síðasta ári, þar af 5 konur og 411
karlar. 27 þeirra voru á aldrinum
10-15 ára, 47 á aldrinum 16-20
ára, 49 á aldrinum 21-30 ára, 38 á
aldrinum 31-40 ára, 14 á aldrinum
41-50 ára, 14 á aldrinum 51-60 ára
og 29 voru 61 árs og eldri. Óvíst
var um aldur 198 ofbeldismanna.
í skýrslu Stígamóta segir að sum-
ir þolendur hafi orðið fyrir barðinu
á fleiri en einum ofbeldismanni og
eru fleiri en íjöldi þolenda. Skýring-
in geti einnig verið sú að sami þol-
andi verði fyrir sifjaspelli af hendi
fleiri en eins ofbeldismanns eða fyr-
ir nauðgun síðar á ævinni.
M.C. Ciurlionis kvartettinn.
Strengjakvartett
frá Litháen hjá
Tónlistarfélaginu
M.K. CIURLIONIS strengjakvartettinn heldur sunnudaginn 8.
mars tónleika á vegum Tónlistarfélagsins í Reykjavík og hefjast
þeir kl. 20.30.
Félagamir í M.K. Ciurlionis
kvartettinum hafa leikið saman
síðan þeir vom við nám í Tónlist-
arskólanum í Litháen, undir hand-
leiðslu Eugenijus Paulauskas. Árið
1969 lá leiðin í Tónlistarháskólann
í Leningrad, þar sem kvartettinn
fékk tilsögn hjá Dmitri Shebalin,
víóluleikara Borodin kvartettsins,
og síðan til Búdapest þar sem hann
naut leiðsagnar fiðluleikarans V.
Tatrai úr samnefndum kvartett.
Árið 1977 tók kvartettinn upp
nafnið Mikalojus Konstantinas
Ciurlionis, eftir frægum málara og
tónskáldi og frumhetja í lithá-
enskri tónlistarmenningu.
Síðan hefur M.K. Ciurlionis
kvartettinn haldið yfír 2.000 tón-
leika um alla Evrópu, fyrmm Sov-
étríkin og Kanada og einnig verið
gestur margra helstu tónlistarhá-
tíða Evrópu.
M.K, Ciurlionis kvartettinn hef-
ur ekki einungis unnið til verðlauna
heldur einnig vakið mikla athygli
tónlistamnnenda og gagntýnenda
fyrir afburða samspil og ríkuleg
blæbrigði í tónmyndum og styrk.
Árið 1990 var kvartettnum veitt
æðsta viðurkenning litháíska lýð-
veldisins.
Kvartettinn kemur nú til íslands
í tilefni af Baltneskum menningar-
dögum sem Reykajvíkurborg
stendur fyrir.
M.K. Ciurlionis strengjakvart-
ettinn skipa Rimantas Siugzdinis,
1. fiðla, Jonas Tankevicius, 2. fiðla,
Aloyzas Grizas, víóla, og Saulius
Lipcius, selló.
Á efnisskránni á sunnudag
verða Strengjakvartett í d-moll op.
34 eftir Dvorák, Strengjakvartett
í F-dúr eftir Ravel og Passacaglia
eftir Hándel. Aðgöngumiðasala
verður við innganginn.
Um hundrað
læknar end-
anlega sest-
ir að erlendis
SAMKVÆMT félagaskrá Lækna-
félags Islands eru um 100 ís-
lenskir læknar endanlega sestir
að erlendis. Þetta kemur fram í
nýjasta tölublaði Læknablaðsins.
Flestir þeirra lækna sem nú eru
búsettir erlendis eru fæddir á
árunum 1956-1960 en athygli
vekur að af 106 læknum sem
fæddir eru 1958 og 1959 eru 80
erlendis eða 75,5%.
Alls em nú 376 íslenskir læknar
erlendis en í grófum dráttum má
áætla að læknar fæddir 1950 eða
fyrr þ.e. eldri en fertugir séu sestir
að erlendis en þeir em sem fyrr
segir um 100 talsins. íslenskir
læknar sem búsettir eru erlendis
búa að stærstum hluta annaðhvort
í Svíþjóð eða Bandaríkjunum. Virð-
ist sem þeir hafi skiptst nokkuð
jafnt milli þessara landa fram til
1975 en síðan þá hafa áberandi
fleiri þeirra sótt til Svíþjóðar eða
2/3 þar til á síðustu fjórum ámm
að þetta hlutfall hefur jafnast út.
♦ ♦ ♦
Samsýning
í Hlaðvarpanum
í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3,
Reykjavík, verður opnuð samsýning
á verkum eftir Lilju Egilsdóttur,
Elvu Jónsdóttur og Lind Völundar-
dóttur laugardaginn 7. mars.
----»-♦-♦---
Selfoss:
Fundur for-
sætisráðherra
Selfossi.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra verður frummælandi á
fundi Sjálfstæðiskvennafélags
Árnessýslu þriðjudaginn 10.
mars kl. 20.30 í félagsheimili
sjálfstæðisfólks, Óðinsvéum, við
Austurveg á Selfossi.
Á fundinum mun Davíð ræða
horfur í íslenskum stjórnmálum og
aðgerðir ríkisstjómarinnar til að ná
tökum á fjármálum ríkisins.
- Sig. Jóns.
Rafmagnsframleiðsla til útflutnings:
Hvorki bjargvættir Evrópubúa né
Bandaríkjamanna um hreina raforku
- segir Ingvar Birgir Friðleifsson, forstöðumaður Jarðhitaskóla SÞ
INGVAR Birgir Friðheifsson, forstöðumaður Jarðhitaskóla Sameinuðu
þjóðanna (SÞ), segir að íslendingar verði hvorki bjargvættir Evr-
ópubúa né Bandaríkjamanna um hreina raforku, þar sem sú umfram-
orka sem hægt væri að fá hér á landi með fullri nýtingu auðlinda
væri ekki nema brot af því sem þessar þjóðir nota. í Morgunblaðinu
á miðvikudaginn var greint frá hugmyndum bandarísks raforkufyrir-
tækis um að beisla jarðhita á íslandi til rafmagnsframleiðslu í stórum
stíl til útflutnings, aðallega til austurstrandar Bandaríkjanna en einn-
ig til Evrópu. „Það er vissulega gott þegar forystumenn erlendra
fyrirtælya hugsa hlýtt til jarðhitans á íslandi, en það er þó nauðsyn-
legt að halda áttum þegar stórhuga menn eru að tala, og ætíð verður
að líta til þess hve mikla orku viðkomandi lönd þurfa,“ sagði Ingvar
Birgir í samtali við Morgunblaðið.
Ingvar Birgir sagði að hér á landi
væru í dag framleiddar liðlega fjórar
TWh af rafmagni á ári, eða fjögur
þúsund milljón kílówattstundir. Talið
væri hugsanlegt að framleiða til við-
bótar 30 TWh af óbeisluðu vatnsafli
á markaðshæfu verði og án þess að
ganga of nærri náttúrunni. Til raf-
orku í jarðhitanum væri þessi tala
hins vegar ekki eins þekkt, en gisk-
að væri á 10-20 TWh, þannig að
umframorkan væri um það bil 40
TWh.
„Það er það sem við værum af-
lögufærir með varðandi raforku-
framleiðslu ef við myndum virkja
allt. Bandaríkin nota hins vegar
2.800 TWh af rafmagni, og þar af
eru um 1.600 TWh framleiddar með
kolum, sem eru jú mjög mengandi,
og síðan um 500 TWh með kjam-
orku. Hvað nærliggjandi lönd varðar
þá er raforkuframleiðslan í Bretlandi
um 320 TWh á ári, og af því eru
um 200 TWh framleiddar með kolum
og 60 TWh með kjarnorku. í Svíþjóð
er raforkunotkunin um 140 TWh á
ári, og þar af er um helmingur fram-
leiddur með vatnsafli og hinn helm-
ingurinn með kjamorku. Með þess-
um samanburði vil ég alls ekki gera
lítið úr íslenskum orkulindum, en
hins vegar er alveg ljóst að við verð-
um hvorki bjargvættir Evrópubúa
né Bandaríkjamanna um hreina raf-
orku. Ef öll umframorka okkar væri
flutt til Bretlands þá mætti að visu
slökkva þar á fimmta hverju kola-
orkuveri, og vissulega myndi það
draga úr mengun. Þetta væri auðvit-
að engin allsheijariausn, og því mið-
ur er engin allsherjarlausn í augsýn
varðandi hreina raforkuframleiðslu,"
sagði hann.
Ingvar Birgir sagði að jarðhitinn
sjálfur kæmi að mjög miidu gagni
í vissum löndum. Það væru um 19
lönd í heiminum sem framleiddu
raforku með jarðhita, og fengu þau
verulegan hluta af raftnagni sínu
úr jarðgufu. Þarna væri til dæmis
um að ræða E1 Salvador, Nicaragua,
Filippseyjar og Kenya, en þessi lönd
fengju um og yfir 20% af sinni raf-
orku úr jarðhita. „Það eru hins veg-
ar miklu fleiri lönd, eða um 35 tals-
ins, sem nýta jarðhitann til upphit-
unar. Þar er mun meiri orkufram-
leiðsla með jarðhita heldur en í raf-
orkunni, og þar er auðvitað líka ver-
ið að draga úr mengun. Framtíð
jarðhitans sem orkugjafa er því ekki
síður í þessari beinu nýtingu en í
raforkunni," sagði Ingvar Birgir
Friðleifsson.
-:--» ♦ ♦--
Tónleikar í
Norræna
húsinu
GUÐBJÖRN Guðbjörnsson
óperusöngvari og Þórarinn Stef-
ánsson píanóleikari halda tón-
leika í Norræna húsinu þriðju-
daginn 10. marz klukkan 20,30.
A efnisskrá eru verk eftir ýmsa
höfunda, m.a. Grieg, Peterson-
Berger, Mendelsohn, Haydn og ís-
lensk tónskáld.
Guðbjörn hefur nýlega endurnýj-
að samning sinn við óperuna í Kiel
til eins árs og Þórarinn Stefánsson
er nú í framhaldsnámi hjá Eriku
Haase í Hannover.