Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992
7
UNDUR HEIMSINS1992
Ferskleikinn í ferðavali ársins er hjá
HEIMSKLÚBBI INGÓLF
8 sérhannaðar
ferðir í 4 heimsálfum
- vandaðar ferðir á ótrúlega hagstœðu verði
í máli og myndasýningum
SUÐUR AMERIKA:
CHILE-ARGENTINA-BRASELÍA
Toppurinn á litríku og glaðværu mannlífi rómönsku
Ameríku í fegurstu borgunum, Santiago, Buenos
Aires, Rió. 500 ára afmælisveisla Nýja heimsins um
páska. 4 viðbótarsæti óseld, 10.-26. apríl.
LIST, SAGA OG MENNING
EVRÓPU:
HEILLAR MIG SPÁNN Á HÁTÍÐARÁRI.
Heimssýningin i Sevilla, heimsborgin Madrid, menn-
ingarhöfuðborg Evrópu, auk annarra frægustu borga
Spánar, Granada, Cordova, Toledo, E1 Escorial. Ferð
í sérflokki á besta tíma ársins, 10.-26. maí.
Angan, litir og hljóinar vorsins í (
BERLÍN - PRAG - BÚDAPEST - VÍN.
Bestu hótel og listfjársjóðir Mið-Evrópu. Ný, heill-
andi áætlun. 4.-19. júní.
TÖFRAR ÍTALÍU.
Sérhönnuð lista-, óperu- og sælkeraferð, frægustu
borgir og listaverk ítaliu, Milanó, Veróna, Garda-
vatn, Feneyjar, Pisa, Flórens, Siena, Perugia, Assisi,
Róm. Gist á bestu hótelum i miðju listaborganna.
Umsögn hrifins þátttakanda: „Þessi ferð ætti að fá
Óskarsverðlaun." - 17.-30. ágúst.
LÖND MORGUNROÐANS
- AUSTURLÖND FJÆR
FILIPPSEYJAR - JAPAN
- TAIWAN - THAILAND
Dularmögn, tækni og töfrar Austur-
landa, lífsgleði og fegurð Filippseyja,
spennandi og magnað tækniundur
Japans, hámenning Kína á Formósu
og Ijúft líf og listir Thailands. Gisting
og þjónusta i sérflokki.
6.-27. september.
FEGURÐ OG FURÐUR
SUÐUR-AFRÍKU
Heill heimur í einu landi með óendanlegri fjölbreytni
náttúrunnar í einu fegursta landi heimsins á aðal-
blómatið ársins. Borgir gulls og demanta frábær hót-
el, matur og vín. Jóhannesarborg, Pretoria, safarí í
Kruger garðinum, tign Drekafjalla, \júft strandlif á
besta hóteli Durban, blómaleiðin fræga til Cape Town,
einnar fegurstu borgar heims undir Borðfjallinu.
Óspillt gósenland fyrir ferðamenn á lágu verði. 8-26.
október.
NÝ HEIMSREISA
- ÞAÐ BESTA í SUÐAUSTUR-ASÍU
TÖFRAR MALAYSÍU - BORNEÓ - SIN-
GAPORE - PENANG
Kuala Lumpur - besta verslunarborg í Asíu, heill-
andi náttúruparadis á Borneó, Singapore, háþróuð
og hreinleg með glæsilegan varning, Penang, perla
austursins með einu besta hóteli heimsins. Þægileg
ferð i hæsta gæðaflokki. 5.-23. nóvember.
KYNNING:
SÚLNASAL HOTEL SOGU kl. 13.30 og kl. 15.00 í dag
Njótið góðra veitinga og kynnið ykkur spennandi valkosti í glæsilegum ferðum Heimsklúbbsins
í 4 heimsálfum. Með 10 þúsund króna sparnaði á mánuði kemstu í heimsreisu annað hvert
ár! Bestu ferðakaupin miðað við gæði. Þú finnur ekki sambærilega ferð fyrir lægra verð!
Gestir á kynnningunni fá ókeypis lukkumiða Heimsklúbbsins, sem hljóðar upp á 150.000,-
króna ferðavinning í happdrætti. Veldu þér trausta ferð, sem byggir á sérþekkingu og
milliliðalausum samningum þér í hag, ferð í TAKT VIÐ NÝJA TÍMA.
SííSSSÍ'*-*-
EIMSKLUBBUR INGOLFS
AUSTURSTRÆTI17,4. h®4 101 REYKJAVÍK*SÍMI 620400*FAX 626564