Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 26
Í6 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992 Hjónaminning: * * Asta Olafsdóttir * og Olafur Bjarna- son í Brautarholti Fædd 16. mars 1892 Dáin 8. apríl 1985 Fæddur 19. september 1891 Dáinn 13. febrúar 1970 Um þessar mundir höldum við jifkomc'ndur Ólafs Bjarnasonar og Astu Ólafsdóttur frá Brautarholti upp á aldarafmæli þeirra. Margs er að minnast og þótt liðin séu rúm 20 ár frá andláti afa míns og ég þá aðeins unglingur get ég enn séð hann ljóslifandi fyrir mér og endur- upplifað ýmsar samverustundir okk- ar. Styttra er síðan amma dó og við áttum margar og ógleymanlegar stundir saman. Allar góðu stundirn- ar, þegar ég var barn, og ekki síður stundimar, sem við áttum saman eftir að afí dó. Það var uppörvandi að eiga tiltrú hennar og aðdáun, þegar ég var að fullorðnast. Afí var fæddur í Steinnesi í Sveinsstaðahreppi. Foreldrar hans vom Bjarni Pálsson prófastur í steinnesi og kona hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir. Afí var þriðji í röð- inni af 11 systkinum. Hugur hans mun snemma hafa hneigst til bú- skapar og ungur stjómaði hann stóm búi föður síns. Hann fór í Bændaskólann á Hólum og útskrif- aðist þaðan 1912. Á ámnum 1916-17 var hann í verklegu námi á búgarði í Danmörku. Árið 1918 keypti afi jörðina Akur í Torfulækj- arhreppi, þar sem hann bjó til ársins 1923. Um þær mundir var að heij- •—ast mikil vélvæðing í jarðrækt í ná- grenni Reykjavíkur og hélt afi því suður. Amma var fædd í Lundi í Lundar- reykjadal en fluttist ung að Hjarðar- holti í Dölum. Foreldrar hennar vom Ólafur Ólafsson prófastur þar og skólastjóri og kona hans, Ingibjörg Pálsdóttir Mathiesen. Hún var yngst 6 systkina. Ólafur langafi stofnaði unglingaskóla í Hjarðarholti 1910. Þar vann hann merkt brautryðjanda- starf, sem ég kynnti mér, þegar ég skrifaði sögu skólans í lokaritgerð minni við Kennaraháskóla íslands. Þar hlaut amma menntun sína. Hún aðstoðaði föður sinn við skólahaldið, svo sem með söng- og handavinnu- ^ennslu og einnig aðstoðaði hún móður sína við störf á hinu mann- marga skólaheimili. Skólinn var lagður niður 1917 vegna fjárskorts og fluttist amma ásamt foreldrum sínum til Reykjavíkur. Árið 1923 keypti afí Brautarholt- ið ásamt Páli bróður sínum og Ólafí föður ömmu og Páli bróður hennar. Þannig kynntust afí og amma og giftust 30. maí 1925 í Reykjavík. Afí var fyrst bústjóri í Brautarholti en keypti síðan jörðina alla. Frá upphafí rak afí umfangsmikinn bú- Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið ölt kvöld til kl. 22,- einnig umhelgar. Skreytingar við öll tllefni. Gjafavörur. skap í Brautarholti og ræktaði og stækkaði túnin á hverju ári. Hann tók virkan þátt í félagsstörfum, bæði í sveitinni og innan bændasam- takanna, og sinnti mörgum trúnað- arstörfum um ævina. Hann var hreppstjóri frá 1932 til æviloka eða í tæp 40 ár. Alltaf var margt fólk í Brautar- holti og munu þau afí og amma hafa verið sérlega hjúasæl. Böm þeirra voru 5. Elstur var Bjarni sem lést á 22. aldursári. Það varð þeim ákaflega þungt áfall. Hin börnin eru: Ingibjörg, móðir undirritaðrar, hjúkrunarfræðingur, Ólafur land- læknir, Páll og Jón bændur í Braut- arholti. Meðan börnin voru lítil hafði amma alltaf hjálparhellu til að ann- ast þau. Á engan er hallað þótt Vil- borgar Pálsdóttur frá Sjávarhólum sé getið eða Villu eins og hún var alltaf kölluð. Afí og amma voru ákaflega sam- hent og samheldin hjón. Þau áttu mörg sameiginleg áhugamál. Vel- ferð barnanna settu þau ofar öllu og fluttist fjölskyldan um tíma til Reykjavíkur, svo að þau gætu hlotið menntun. Saman ferðuðust þau bæði um landið og til útlanda, en m.a. var afí í stjóm bændasamtaka á Norðurlöndum. Kirkjan í Brautar- holti var þeim báðum hjartfólgin og lögðu þau mikla alúð við umsjón hennar og umhirðu. Afí og amma em samofín nær öllum mínum minningum frá bam- æsku. Ég var elsta barnabamið þeirra og var ein í „ríki mínu“ í nokkur ár. Bræður mömmu vora þá ógiftir og ég leit á mömmu, pabba, afa, ömmu, Labba, Palla og Nonna sem mína fjölskyldu. Á jólum og öðram hátíðum komu allir í Brautar- holt. Amma bar kræsingar á borð, ég fékk ótal jólapakka og páskaegg- in entust fram á sumar. Allt það fyrsta sem ég man eftir mér tengist þeim ömmu og afa á einhvern hátt. í minningunni er ég vakin upp seint um kvöld. Afi er kominn frá útlöndum. Einhvem veginn hefur orðið misskilningur og hann er kom- inn, degi fyrr en við höfðum haldið. Engar móttökur. Afí er reiður og sár. Mömmu dettur þá í hug að bjóða honum mig sem förunaut uppeftir. Ég vakna strax og afi tekur gleði sína á ný. Ég mun hafa verið þriggja ára þegar þetta var. Enn man ég þegar við læddumst inn í Brautar- holti og vöktum ömmu, sem ekki átti von á neinum. Já, ég fór margt með honum afa. Ég fylgdi honum náttúrlega að sinna kindum, hænum og hestum. Hversu oft fórum við ekki með brauðpoka út í haga til hestanna? Ég sat hjá honum þegar hann hjó haus og vængi af lundanum. Ég fór með honum á bæina, já, ég fór meira að segja með honum á fundi. Ég man sérstaklega eftir fundum í Mjólkur- félagi Reykjavíkur, þar sem ég sat álengdar með kók og súkkulaði. Ég fékk að leika mér við skrifborðið hans, fékk jafnvel lánaðan kjörkassa hreppsins. Þá eru ógleymanlegar allar sögumar, sem afí sagði mér og samdi jafnóðum. Alltaf var hægt að bæta einum kafla í Guddusög- una. Afí sá um að kenna mér bæn- irnar og kenndi mér svo óendanlega margt sem ég bý enn að. Það var siður hans að iáta ullarlagð á bijóst- ið á mér áður en ég fór að sofa, þegar ég var kvefuð. Alltaf fann ég mun daginn eftir. Enn set ég á mig og bömin lítinn trefil í sama til- gangi. Það kemur margt upp í hug- ann þegar þessi ár era rifjuð upp. Mig furðar hvað hann hafði mikinn tíma fyrir mig og hvað hann hafði mikinn skilning á athafnasemi bamsins og tilfínningum. Fyrstu al- vöra gúmmístígvélin vora mér afar kær og þegar þau fóra að slitna vora þau bætt. Þar kom að ekki var hægt að bæta þau meira. Ég gat ekki hugsað mér að henda stígvélun- um. Afí sagðist þá vita um góðan stað í Músamesinu, sem við gætum sett þau á. Þegar út í Músarnesið kom fór hann með mig að tóftum sem þar vora. Stígvélin voru sett undir stóra hellu við mikla hrifningu mína. Og alltaf var jafn gaman að heimsækja stígvélin og það lá við að ég yrði sár þegar ég stálpaðist og tóftirnar vora jafnaðar. Við fór- um ekki ósjaldan í fjöruna, þar sem margt spennandi var að fínna. Eitt- hvað hefur það sem á fjörar rekur breyst síðan þá. Ég var ábyggileg ekki gömul þeg- ar ég fór að velta fyrir mér hvernig það yrði þegar afí dæi. Mér fannst ég gæti alls ekki afborið það. Svo kom að því að afí var fluttur veikur á spítala. Hann hafði þá kennt sér lasleika nokkra áður, en hafði lítið gert með það. Hafði haldið sínu striki og hafði verið að eltast við hesta skömmu áður en hann veikt- ist. Ég vonaði fyrst að þessi veikindi væru eins og áður og að afí jafnaði sig. Þetta var um kvöld og amma gisti hjá okkur. Áður en ég fór í skólann næsta morgun kvaddi ég ömmu og mér brá, og innst inni vissi ég að hveiju dró. Það var erfítt að koma heim þennan dag og sjá bíla bræðranna fyrir utan heima og fá staðfestingu á láti afa. Sorg og sökn- uður helltist yfír mig. Dagurinn sem afí var jarðaður var ákaflega falleg- ur, sól og kyrrt vetrarveður. Athöfn- in hafði sterk áhrif á mig og mynd- aði fallega umgjörð um minningar mínar um hann. Ég man aldrei til þess að afí skammaði mig, en hann hafði held ég sérstakt lag á að fá menn á sitt band. Hann var stjómsamur án þess að vera með yfirgang. Ég man hann blíðan og hlýjan en samt ákveðinn. Amma og ég voram ákaflega nánar alla tíð, en þó ekki síst eftir að afí dó. Þau höfðu alltaf verið sem eitt og það var mjög erfítt fyrir ömmu að missa hann. Hún hélt þó sínu striki. Hún hélt áfram að vera í íbúðinni sinni og naut stuðnings barna og tengdabarna. Síðustu árin dvaldist hún við góða umönnun á öldrunardeild í Hátúni. Amma var mikil húsmóðir. Hún var sérlega gestrisin ogþótti gaman að gera gestum vel. Ég hygg að þeir séu fáir sem komu í Brautar- holt og fengu ekki nýbakaðar pönnu- Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf umi i fi S.HELGASON HF SKBWWUVB3148 SIMI 76677 kökur hjá henni. Litlar hendur fengu ýmislegt að prófa í eldhúsinu hjá henni. Amma unni tónlist, spilaði á orgel og var söngelsk. Hún var víð- lesin og svaraði óþreytandi öllum spumingum um lífíð og tilverana. Hún elskaði gróður og lagði sig fram við ræktun á litlum garði við húsið. Sérstaklega dáðist hún að tijá- gróðri, en ekki var auðvelt að rækta tré á vindasömu nesinu. Aldrei minn- ist ég svo á Akureyri, en þar bjuggu hin amma mín og afí, en að hún dásamaði ekki tijágróðurinn þar. Amma var ákaflega blíð og mild og alltaf var stutt í kímnina. Hún átti auðvelt með að sjá skoplegu hliðarnar á öllu, líka á sjálfri sér. Sterkastur í fari hennar held ég að hafí verið sá hæfileiki að gera gott úr öllu. Ég man aldrei eftir henni reiðri, þvert á móti man ég glað- værð hennar. Man hana slá á lær sér og gera að gamni sínu. Hún hafði einstakt lag á að hrósa og til- trú hennar á sínu fólki var óbilandi. Amma bar aldurinn vel. Ég minn- ist allra búðar- og bæjarferðanna okkar. Sérstaklega man ég ferð nið- ur allan Laugaveginn fyrir jólin, en þá var hún orðin áttræð. Hún naut þess að taka þátt í lífinu af fullum krafti, sjá fólk, skoða fallega hluti og kaupa sjálf það sem hana van- hagaði um. Og auðvitað enduðum við á kaffíhúsi og mér fannst amma hreint ekkert gömul. Aldrei fór ég svo í burtu að amma skrifaði mér ekki bréf. Þar vora ævinlega fréttir af allri fjölskyld- unni, veðurfari og einhveijar sögur af „elliglöpum" hennar eins og hún kallaði. Síðasta bréfið fékk ég aust- ur á Stöðvarfjörð sumarið 1978, nokkra áður en hún heimsótti mig þangað. Þá var hún 84ra ára og óx ekki í augum að ferðast þvert yfír landið, en gerir að gamni sínu og skrifar: „Er ekki best ég komi með hjónunum? Ég held ég sé orðin of gömul til að ferðast ein míns liðs.“ Og austur kom hún með mömmu og pabba og ég fylltist stolti að sýna henni nýstofnað heimili mitt. Mér fannst alveg nauðsynlegt að hafa ömmu sem gest þar. Ég var þá nýorðin móðir og ákaflega stolt og glöð yfír syni mínum. Amma tók innilega þátt í þessari gleði minni og hrósaði honurn á hvert reipi. Ekki þótti ungri móður það verra. Ég get aldrei fullþakkað að fá að vera í svo nánu sambandi við afa og ömmu í Brautarholti. Njóta leið- sagnar þeirra, ástar og hlýju. Eiga tiltrú þeirra og aðdáun. Ég held -dfr þau hafí manna mest látið mig fínna hvað ég skipti miklu máli. Mér fannst ég alltaf mikilvæg persóna í návist þeirra. Ég held kannski að það gleymist oft nú orðið í uppeldi barna að þau fínni tiltrú og virð- ingu. Ég veit að börnin, við barna- börnin, sem orðin eram 20, og bamabarnabörnin vorum það dýr- mætasta sem þau áttu. Blessuð sé minning afa_ og ömmu. Ásta Gunnarsdóttir. Er horft er um öxl rifjast oft upp á góðum stundum atburðir úr æsku. Bræður tveir, rétt fermdir, sveita- menn úr Hrafnagilshreppi, mæta með farteski fyrir klukkan sjö árdeg- is á Bifreiðastöð Akureyrar. Eigand- inn, Kristján Kristjánsson bílakóng- ur, fylgist grannt með öllu á gang- stéttinni. Hann er snöggklæddur og glaður og hress að vanda. Sól og sunnan vindur og ferðahugur í svein- um. Haldið skal í tveimur áföngum til Ólafs frænda og Ástu í Brautar- holti á Kjalamesi. Síðla kvölds er gist í Grænumýrartungu í Hrúta- fírði. í bítið daginn eftir er ekið í suðrænni súld yfír Holtavörðuheiði. Frá þjóðleið að stórbýlinu, Braut- arholti, er þó nokkur spölur. Brátt var hann að baki og ferðaþreyta gleymd eftir forkunnar góðar mót- tökur frænda og staðgóða máltíð hjá konu hans, Ástu Ólafsdóttur, próf- asts, Hjarðarholti í Dölum. Þá hófst vistin í Brautarholti. Yfír sumartímann voru þar um og yfir þrjátíu manns í heimili og því mörgu að sinna sem nærri má geta. Allt með myndarbrag, búskapur og viðurgerningur allur. Móðurbróður mínum Ólafí Bjarnasyni frá Stein- nesi og Akri í Húnaþingi, var í ríkum mæli gefíð að stjórna án nokkurra átaka. Ásta, húsmóðirin, annaðist heimilið af röggsemi og nærfæmi, sem engum brást. Orðin vora sjaldn- ast mörg hjá húsfreyjunni í Brautar- holti en vógu þeim mun þyngra á metaskálum. Ráð hennar og ábend- ingar reyndust mörgum holl. Fjölmennt sveitaheimili á íslandi hefir á öllum öldum verið heimur út af fyrir sig. Einskonar smækkuð mynd af stóram stað, með kostum hans og löstum. í Brautarholti nut- um við Bjarni bróðir, lífsins í leik með börnum húsbændanna, en okk- ur voru ekki ætluð ákveðin heimilis- störf. í Brautarholti var vélakostur meiri en á flestum öðrum jörðum. Samtímis okkur dvöldu þar einnig dætur Vilmundar Jónssonar land- læknis og konu hans Kristínar lækn- is, sem var systir Ástu húsfreyju, Guðrún og Ólöf. Þær voru á líkum aldri og við Bjarni. Frændsystkinin í Brautarholti voru: Bjarni, sem dó ungur, hvers manns hugljúfi, Ingi- björg, Ólafur, Páll og Jón. í þessum hópi voru allir samhentir og nutu hverrar stundar. Brautarholtsland er mikið og fag- urt. Við sendna strönd skerast inn víkur. Þar fórum við í sjóinn og fund- um lítt fyrir svala sjávarseltunnar, enda blóðið heitt. Eftir buslið var oft í björtu veðri gengið á Borgina. Þaðan sást til Reykjavíkur í suðri og skip á siglingu um flóann. Ólafur frændi, stjórnaði fólki sínu við heyskapinn. Fyrir haustið varð að ná undir þak miklum heyjum til þess að fóðra eitt, ef ekki stærsta, nautgripabú á íslandi, áður en bú- skapur hófst að Korpúlfsstöðum í sömu sveit vegna framtaks Thors Jensens. Stórbýlum á íslandi hafa flestum fylgt hlunnindi. Fyrr á öldum hefir sjósókn án efa verið stunduð frá Brautarholti. Þar hefir reka borið að landi og æðarvarp skilað arði. Enn í dag hreiðrar lundinn sig í Andríðsey. Á búskaparárum Ástu og Ólafs var hann nytjaður. Fyrir unga fólkið var það meiri háttar til- breyting frá heyönnunum allt um kring að fylgjst með úrvinnslu lunda- tekjunnar. Þau vinnubrögð eru nú að hverfa eins og svo margt annað. Éjg kom oft í Brautarholt til Ástu og Olafs, til skemmri og lengri dval- ar. Þau hjónin komu og til foreldra minna í Kristnes. Ég minnist þess með ánægju að Ólafur frændi taldi Eyfírðinga góða bændur. Ólafur í Brautarholti var einstak- ur heimilisfaðir og hann naut góðrar konu. Að sitja við borð þeirra Ástu og Ólafs, hvort sem var í eldhúsi eða stássstofu, hverfur ekki úr minni. Þau bára umhyggju fyrir öðram og elskan milli þeirra sjálfra leyndist engum. Olafur i Brautarholti sóttist ekki eftir mannaforráðum. Hafði raunar í önnur horn að líta. Það féll þó í hans hlut að gegna flestum þeim störfum, sem til falla í einu héraði svo sem heimildir um hann greina. Hann var og einn af helstu for- göngumönnum bænda í þeirra sam- tökum og sinnti atvinnumálum, er til hans var leitað. Hann var tví- mælalaust einn af mestu áhrifa- mönnum Sjálfstæðisflokksins í Gull- bringu- og Kjósarsýslu, síðar Reykjaneskjördæmi. Nú, þegar liðin eru hundrað ár frá fæðingu þeirra Brautarholts- hjóna, Ástu og Ólafs, minnumst við þeirra beggja með kærleika, þökk og virðingu. Jónas. G. Rafnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.