Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992
35
Gunnar Andrésson
Fæddur: 28. nóvember 1970
í Reykjavík.
Starf: Nemandi í MH og
starfsmaður hjá Reykjavíkur-
borg.
Félag: Fram.
Landsleikir: 6 unglinga-
landsleikir í knattspymu. Hef-
ur leikið fjölmarga leiki með
16 ára og 21 árs landsliðinu
í handknattleik, en hann var
fyrirliði liðsins sem varð í
fímmta sæti í HM í Aþenu
1991. 13 a-landsleikir.
4
Tími breytinga aö renna upp
Fjögur efstu sætin í Austurríki
gefa farseðil til Svíþjóðar 1993, þar
sem heimsmeistarakeppnin fer
fram, en síðan verður HM hér á
la- .di 1995. Það eru margir þeirrar
skoðunar að eftir keppnina í Aust-
urríki eigi strax að hefja uppbygg-
ingu á nýju landsliði, sem á að
halda merki íslands á lofti 1995.
Sér Gunnar Andrésson fyrir sér
mikíar breytingar á landsliðinu eft-
ir B-keppnina? „Já, ég hef trú á
að uppbyggingin fyrir heimsmeist-
arakeppnina hér á landi hefjist
strax eftir B-keppnina. Það er til
stór hópur af ungum og efnilegum
leikmönnum hér á landi, sem þurfa
að öðiast reynslu með því að fá
tækifæri til að spreyta sig í sterkum
mótum eins og til dæmis heims-
meistarakeppninni f Svíþjóð. 21 árs
landsliðið hefur staðið sig vel und-
anfarin ár og þá varð 18 ára liðið
Norðurlandameistari. Framtíðin er
þjört, áhuginn mikill hjá yngri leik-
mönnunum og við eigum stóran hóp
af góðum íslenskum þjálfurum. Við
eigum eftir að eignast lykilmenn á
nýj á borð við Kristján Arason og
Alfreð Gíslason."
Með tilboð frá Spáni
Gunnar Andrésson vakti athygli
á Spánarmóti sl. sumar með 21 árs
landsliðinu og þá fékk hann tilboð
um að gerast leikmaður með fé-
lagsliði í Alicante. Það boð stendur
Gunnari enn opið. „Ég er ekki tilbú-
inn til að fara út og leika strax.
Það er nægur tími til stefnu og ég
þarf að öðlast meiri reynslu með
Fram.og, landsliðinu. Að Jara úLer.
meira en að segja það. Ég er þeirr-
ar skoðunar að ungir leikmenn eigi
að herða sig upp hér heima áður
en þeir fara út þar sem óvissan
bíður. Leikmenn verða að vera bún-
ir að öðlast mikinn styrk áður en
þeir halda út í hinn harða heim
handknattleiksins. “
Vantar meiri fjölbreytni
íslenskur handknattleikur er orð-
inn mjög kerfisbundinn og hann
gleður ekki auga áhorfandans eins
og á árum áður. Margir leikmenn
hér á landi eru mjög einhæfir og
eru ragir eða hafa ekki kunnáttu
til að fara sínar eigin leiðir. Skyttur
eru mjög einhæfar í skotum og fjöl-
breytileg skot eru sjaldséð. Hvað
segir Gunnar um þetta og hvað er
til ráða til að gera bót á?
„Það er rétt að það vantar meiri
fjölbreytni í skot. Leikmenn hér eni
mjög einhæfir í skotum og það er
auðvelt að lesa leikmennina og veij-
ast þeim. Leikmenn verða að auka
tækni sína í skotum og sendingum.
Það er erfiðara nú en áður fyrir
leikmenn að vera með séræfingar
þar sem þeir leika nú fleiri leiki og
það er miklu meira um æfingar en
áður. Þó að áhuginn hjá leikmönn-
um sé mikill að bæta sig vantar oft
aðstöðu. Það eru ekki öll félög eins
vel stödd og til dæmis Stjarnan -
þar sem leikmenn geta æft í tveim-
ur lyftingasölum. Við hjá Fram bíð-
um spenntir eftir nýju íþróttahúsi
Fram, sem verður mikil lyftistöng.
Annað sem kemur í veg fyrir að
leikmenn fari eigin leiðir er að al-
varan er orðin of mikil. Það vantar
oft léttleikann. En það er einu sinni
svo að agaður handknattleikur ræð-
ur ríkjum í alþjóðlegum handknatt-
leik, þannig að menn verða að ná
tökum á öguðum leik til að ná
árangri.“
Góður efniviður hjá Fram
Gunnar Andrésson byijaði að
leika með Framliðinu 17 ára, 1987,
og lék hann þá við hlið Atla Hilm-
arssonar og Hannesar Leifssonar.
Gunnar var þá yngsti leikmaðurinn
hjá Fram, en nú er hann einn elsti
leikmaður Framliðsins aðeins 21
árs. „Það hefur orðið geysileg
breyting hjá Fram. Við erum með
stóran hóp af ungum og efnilegum
leikmönnum, en reynsluleysið hefur
háð liðinu. Fram þarf að fá einn til
tvo reynda leikmenn til að ná
lengra, en ég hef trú á því að eftir
eitt til tvö ár verði liðið orðið öflugt.
Það mun ekki skemma fyrir að við
erum að fá okkar eigin heimavöll,
sem á eftir að verða mikil lyfti-
stöng. Það verður allt annar andi í
herbúðum okkar þegar við förum
að leika heimaleiki okkar á félags-
svæði Fram.
Það eru stórhuga menn hjá Fram
og ný stjórn undir stjórn Halldórs
Lúðvíkssonar hefur gert mjög góða
hluti í vetur. Þá erum við með góð-
an þjálfara sem Atli Hilmarsson er,
en hann og Jón Ámi Rúnarsson liðs-
stjóri hafa haldið vel á málunum.
Atli kom með æfingar sem hafa
veitt okkur mikla skemmtun og það
hefur enginn leiði verið í hópnum,
eins og oft áður eftir miklar æfing-
ar.
Árangurinn hefur verið ágætur
og við náðum þvi sem við ætluðum
okkur - einu af átta efstu sætunum
í 1. deild, sem gaf okkur rétt á að
leika í úrslitakeppninni."
Þið mætið Víkingum, sem flestir
spá öruggum sigri gegn ykkur.
Verðið þið auðveld bráð fyrir Vík-
inga?
„Nei, það ætlum við okkur ekki
að vera. Við erum kannski sýnd
veiði, en ekki gefin. Þó að Víkingar
hafi unnið okkur stórt f síðasta
leiknum segir það ekki alla söguna.
Við veittum Vikingum harða keppni
í Reykjavíkurmótinu og í fyrri leikn-
um í 1. deildarkeppninni - í Vík-
inni, þar sem við vorum klaufar að
tapa. Það verður ekkert gefið eftir
gegn Víkingum. Við höfum allt að
vinna en engu að tapa,“ sagði
Gunnar Andrésson, sem var með í
hvorugum landsleiknum gegn Slóv-
eníu í vikunni þar sem hann lá í
flensu.
Nýborg #
Ármúla 23, sími 83636.
Stærðir 36-41.
Verð kr. 6.900,-
Staðgreiðsluafsl. 5% - Póstsendum samdægurs
KRINGLAN 8-12 SÍMI 888345
J-b~úof+
MILANO
LAUGAVEQI81S 10655
Jt
Fjárhagsöryggi til framtídar:
TAKTU SKATTAFSLÁTTINN
OG LIFEYRINN ÞINN
MEÐ í REIKNINGINN!
BÚSTÓLPI
HUSNÆÐISREIKHINGUR
Bústólpi, húsnæðisreikningur
Búnaðarbankans, er kjörinn
fyrir þá sem vilja safna í varasjóð og
hyggja sér fjárhagslegt öryggi
í framtíðinni. Há ávöxtun, 25% skatt-
afsláttur og húsnæðislán gerir
húsnæðisreikning Búnaðarbankans að
einum besta sparnaðarkosti sem völ
er á. Taktu 25% skattafslátt og lífeyrinn
þinn með í reikninginn.
BESTU ÁVÖXTUNARKJÖR
Húsnæðisreikningur er verðtryggður spari-
reikningur og ber ávallt hæstu vexti almennra
innlánsreikninga bankans hverju sinni.
25% SKATTAFSLÁTTUR
Húsnæðisreikningur Búnaðarbankans veitir
rétt til skattafsláttar sem nemur einum fjórða
af árlegum innborgunum á reikninginn. Við
álagningu skatta kemur afslátturinn til
lækkunar á tekju- og eignarskatti eða útsvari
álagningarársins. Um skattafsláttinn gilda
sömu reglur og um persónuafslátt.
SVEIGJANLEGUR BINDITÍMI
- EIGIN LIFEYRISSJÓÐUR
Binditími húsnæðisreiknings er að lágmarki 3
ár og að hámai'ki 10 ár. Heimilt er að taka út af
húsnæðisreikningi þremur árum eftir að
sparnaður hefst ef eigandi reiknings ráðstafar
inneigninni til byggingar, kaupa eða verulegra
endurbóta á eigin íbúðarhúsnæði. Einstakling-
ar sem orðnir eru 67 ára eða eru 75% öryrkjar
geta tekið út af reikningnum í heild til frjálsrar
ráðstöfunar eftir 5 ára sparnaðartíma. Eftir 10
ára sparnaðartíma er innstæðan laus til útborg-
unar án skilyrða. Þannig nýtist húsnæðisreikn-
ingur sem eins konar Iífeyrissjóður.
Um húsnæðisreikning gilda lög nr. 49/1985. Nánari
upplýsingar fást í næsta útibúi Búnaðarbankans.
Kynntu þér Bústólpa!
DÆMI UM SPARNAÐ OG ÁVÖXTUN Á HÚSNÆÐISREIKNINGI
Forsendur:
1. Lagðar eru inn 10.000 kr. i lok hvers mánaðar.
2. 6.75% raunvextir sem leggjast við höfuðstól í árslok.
3. Fast verðlag.
4. Skattafsláttur 25%
Sparnaðartfmabil 3 ár 5 ár 10 ár
Samtals innborqað 360.000 600.000 1.200.000
Vextir 36.752 107.898 489.216
Samt. innborgað + vextir 396.752 707.898 1.689.216
Skattafsláttur 90.000 150.000. 300.000
Meðal raunávöxtun 21.85% 15.76% 10.76%
RETTUR TIL LANTÓKU
Sparnaðartími Margfeldi af höfuðstól Hámarksupphæð láns
3 ár 2 1.000.000
4 ár 3 1.500.000
5 - 8 ár 4 2.000.000
9 - 10 ár 4 2.500.000
Innborgun á hverjum ársfjórðungi er nú að lágmarki kr. 10.790 og að hámarki kr. 107.090.
BUNAÐARBANKINN
- Traustur banki