Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992 Sölustarf Framleiðslufyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða starfsmann til frambúðar í fullt sölu- starf. Starfið er krefjandi og mikils sjálfstæð- is og krafts er þörf. Umsækjandi verður að hafa bíl til umráða. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf skilist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir miðvikudaginn 18. mars merktar: „I - 7925“. Fóstrur - þroskaþjálfar Við leikskólann Glaðheima, Sauðárkróki, er laust til umsóknar 100% afleysingarstarf í eitt ár. Starfið felur í sér stuðning. Aðeins fóstru-, þroskaþjálfa- eða hliðstæð uppeldis- menntun kemur til greina. Umsækjandi þarf að geta hafið störf um miðjan maí Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Nánari upplýsingar veita Helga leikökóla- stjóri, í síma 95-35496 og Matthías, félags- málastjóri í síma 95-35133. Félagsmálaráð Sauðárkróks. Hugbúnaðar- fyrirtæki Okkur vantar hressan og jákvæðan starfs- mann í símavörslu og til að sinna tilfallandi störfum. Um er að ræða framtíðarstarf á reyklausum vinnustað. Umsækjendur leggi inn umsóknir sína á aug- lýsingadeild Mbl. merktar: „H - 12268" fyrir 20. mars. Ekki verða veittar upplýsingar í síma. Sölumaður - tæknimaður Sæplast hf. á Dalvík óskar að ráða sölu- og tæknimann. Sæplast hf. er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á fiskikerum og trollkúlum, auk annarra af- urða úr plasti til notkunar í sjávarútvegi og fiskvinnslu. Sæplast hf. flytur um helming framleiðslu sinnar á erlenda markaði og fer útflutningur vaxandi. Við leitum að manni með þekkingu á sviði plastiðnaðar, auk góðrar tæknimenntunar. Einnig er æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af sölu- og markaðsmálum. Starfssvið sölu- og tæknimanns er m.a að taka þátt í aukinni markaðssókn fyrirtækisins, þróun nýrra framleiðsluafurða, auk annarra verkefna, sem snerta áframhaldandi upp- byggingu og daglegan rekstur fyrirtækisins. Farið verður með allar umsóknir og fyrir- spurnir sem trúnaðaramál og öllum umsókn- um verður svarað. Skriflegum umsóknum, ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skila á skrifstofu Sæplasts hf., Gunnars- braut 12, 620 Dalvík, fyrir 15. apríl nk. sœplast PÓSTHÓLF 50. 620 DALVÍK, SlMI: 96-61670. PÓSTFAX: 96-61833 Sölustjóri Verslun, með fjölbreytt úrval af alhliða heim- ilisvörum, vill ráða sölustjóra. Hér er um að ræða starf sem krefst söluhæfi- leika og reynslu af verslunarstörfum. Mikil- vægt er að viðkomandi hafi haldgóða þekk- ingu af markaðsmálum og góða samstarfs- eiginleika. Eiginhandarumsóknir, með upplýsingum um m.a. fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 23. þ.m. merktar: „Sölustjóri - 13“. Starfsmaður Verslun í miðbænum óskar eftir starfsmanni í ca 60% starf, eftir hádegi (1kl. 3-18). Ein- hver laugardagsvinna. Aðeins reyklaust fólk með haldgóða reynslu af verslunarstörfum kemur til greina. Lág- marksaldur 25 ár. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 19. mars nk. merktar: „Hlutastarf - 7500“. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYRI Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður á skrifstofu hjúkrunarforstjóra við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri: - Starfsmannastjóri hjúkrunar, sem jafn- framt er staðgengill hjúkrunarforstjóra. - Fræðslustjóri hjúkrunar. - Sýkingavarnastjóri. - Verkefnisstjóri hjúkrunar. Um er að ræða heilar stöður og/eða hluta úr stöðum, en samtals er um 3 heilar stöður að ræða. Ráðið er í stöðurnar frá 1. maí nk. eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 31. mars 1992. Við ráðningu verður tekið tillit til menntunar, faglegrar þekkingar og reynslu umsækjenda. Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða. Á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri eru skráð 170 legurúm. Starfsmenn sjúkrahúss- ins eru um 500 en nálægt 200 starfsmenn eru innan starfsmannahalds hjúkrunar. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, Ólína Torfadóttir, í síma 96-22100. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist hjúkrunarforstjóra Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri, pósthólf 380, 602 Akureyri. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Deildarstjóri HAGKAUP óskar eftir að ráða deildarstjóra yfir matvörudeild í verslun fyrirtækisins á Akureyri. Deildarstjóri stjórnar matvörudeild og ber ábyrgð á rekstri hennar gag'nvart verslunar- stjóra. Við leitum að einstaklingi, sem getur unnið sjálfstætt og skipulega og á auðvelt með að vinna með öðrum. Æskilegt er að viðkom- andi hafi reynslu af verslunarstörfum og stjórnun. Upplýsingar um starfið veitir Þórhalla Þór- hallsdóttir, verslunarstjóri HAGKAUPS á Akureyri, í síma 96-23965 mánudag og þriðjudag milli kl. 14 og 16. Umsóknum þarf að skila til verslunarstjóra HAGKAUPS á Akureyri eða starfsmanna- halds HAGKAUPS, Skeifunni 15, Reykjavík, fyrir föstudaginn 20. mars. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaða- mál og öllum svarað. HAGKAUP Aðalskrifstofa Norðurlandaráðs í Stokkhólmi auglýsir eftir starfsfólki Norðurlandaráð auglýsir lausar til umsóknar stöður ritara efnahagsmálanefndar, ritara laganefndar, ritara félagsmálanefndar og rit- ara umhverfismálanefndar á skrifstofu for- sætisnefndar Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. Eftirgreind skilyrði gilda um allar stöðurnar: Umsækjendur hafi háskólapróf, góða tungu- málakunnáttu og reynslu af ritvinnslu. Þeir þurfa að vera vel máli farnir og eiga auðvelt með að tjá sig skriflega. Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu á norrænu og öðru alþjóðlegu samstarfi og að þeir geti sýnt frumkvæði í starfi. Jafnframt er æskilegt að umsækjendur hafi þekkingu á starfssviði þeirrar nefndar, sem þeir sækjast eftir að starfa fyrir. Störfunum fylgja ferðalög, aðallega um Norð- urlönd. Launakjör eru samkomulagsatriði og skulu umsækjendur geta um launakröfur sínar í umsóknum. Auk fastra launa er öllunrí starfsmönnum skrifstofunnar greidd skatt- frjáls launauppbót. Norðurlandabúum, öðr- um en Svíum, sem flytja til Svíþjóðar til að taka við störfum á skrifstofunni, er auk þess greidd skattfrjáls staðaruppbót. Kjör fara að öðru leyti eftir sérstökum norrænum reglum. Ráðningartími er fjögur ár og hefst sumarið eða haustið 1992. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á launalausu leyfi á ráðningartímanum. Nánari upplýsingar veita í síma 90 46 8143420: Jostein Osnes, ritari forsætisnefndar Norðurlandaráðs, Henrik Wichmann, ritari efnahagsmálanefndar, Ellen Torvö, ritari laganefndar, Eric Hultén, ritari félagsmálanefndar, Tómas H. Sveinsson, ritari umhverfisnefndar, Ove Caspersen, formaður starfsmannafélagsins. Einnig veitir Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofu- stjóri íslandsdeildar Norðurlandaráðs upp- lýsingar í síma 11560. Umsóknum skal beint til forsætisnefndar Norðurlandaráðs (Nordiska rádets presi- dium) og þurfa að berast til skrifstofu forsæt- isnefndarinnar (Nordiska rádets presidie- sekre tariat), Box 19506, S-10432 Stock- holm, eigi síðar en 30. mars 1992. Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þjóðþinga og ríkisstjórna Norðurlanda. Milli þinga ráðsins sinnirforsætisnefnd daglegum störfum þess með aðstoð skrifstofu forsæt- isnefndar. Við Norðurlandaráð starfa sex fastanefndir. Efnahagsmálanefnd fjallar m.a. um efna- hagsmál, Evrópumál, orkumál, viðskiptamál og mál varðandi þróunaraðstoð. Laganefnd fjallar m.a. um löggjafarmál, neyt- endamál, jafnréttismál og málefni flótta- manna. Félagsmálanefnd fjallar m.a. um félags- og heilbrigðismál, vinnumarkaðsmál og mál varðandi vinnuumhverfi. Umhverfismálanefnd fjallar m.a. um um- hverfismál, samgöngumál, landbúnaðarmál, sjávarútvegsmál og byggðamál. Ritarar nefndanna undirbúa fundi þeirra og semja m.a. drög að ályktunum um öll þau mál og tillögur, sem vísað er til viðkomandi nefndar. Á skrifstofunni er unnið á dönsku, sænsku og norsku. Forsætisnefnd Norðurlandaráðs hvetur kon- ur jafnt sem karla til að sækja um stöður þessar, sem eru auglýstar í öllum norrænu löndunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.