Morgunblaðið - 20.03.1992, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.03.1992, Qupperneq 10
11 10 S6<?t N’HAM ,0£ jrUDACIUTBO'-í GKlA.IffM'JOíIOM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992 Hvers eiga aldraðir Reykvíkingar að gjalda? eftirSvölu Jónsdótt- ur, Aslaugu Björns- dóttur og Onnu Stef- ánsdóttur Nú er verið að taka heilbrigðis- kerfið til endurskoðunar á nokkrum mánuðum. Við endurskoðun á svo flóknu og dýru kerfi er nauðsynlegt að skoða innviði þess vel. Tillögur um breytingar þar á ber að leggja fyrir heilbrigðisstéttir og hagsmuna- aðila sjúklinga áður en ákvarðanir eru teknar. Vanhugsaðar tillögur hefur aftur og aftur orðið að taka til endurskoðunar á undanfömum mánuðum. Þannig framkvæmdir hljóta að kosta peninga og rýra til- trú á þeim. Skilningur á mikilvægi öldrunar- lækninga og hjúkrun aldraðra virðist ekki mikill hjá þeim sem ákvarðanir taka í heilbrigðismálum í dag. Heistu ráð á niðurskurðartímum virðast vera að loka öldrunardeildum, s.s. B-álmu Borgarspítalans og Hvíta- bandinu, og líkur eru á samdrætti hjá öðrum öldrunarstofnunum vegna niðurskurðar á fjármagni. Með því er vandanum velt yfír á aðstandendur, heimahjúkrun og heimaþjónustu svo og yfírfullar deildir bráðasjúkrahúsanna. Vita- hringur skapast, sem í raun eykur kostnað. Tökum dæmi: Aidraður las- burða einstaklingur veikist heima og er lagður inn á vakthafandi sjúkrahús, fær viðeigandi meðferð og fer aftur heim. Veikist aftur að einhveijum tíma liðnum og lendir þá á öðru sjúkrahúsi vegna vakta- skipulagsins. Sú staða gæti komið upp að hinn aldraði leggist inn á öll þtjú bráðasjúkrahúsin jafnvel oftar en einu sinni á sama árinu. Þetta er mikið álag og öryggisleysi fyrir hinn aldraða, sem í raun er of las- burða til að vera í heimahúsi, en kemst ekki inn á hjúkrunarheimili. Nú bíða 423 aldraðir eftir hjúkr- unarplássi á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík, þar af eru 100 einstaklingar með vistunarmat upp á brýna innlögn. Það þýðir að þeir eru ósjálfbjarga í heimahúsum eða liggja í dýrum plássum á sjúkrahús- unum. Álagið sem hlýst af því að vera með ósjálfbjarga einstakling í TÖLVUK I dag og á moplin veröur kynning í versfun okkar á ATARI1040 STE Einkatölvu sem gefur fjölbreytta möguleika í námi, leik, tónlist, grafík og fleira. Tölvan er einföld í notkun því henni fylgir - íslenskt stýrikerfi - íslensk ritvinnsla - íslensk handbók - íslenskt kennsluforrit - mús og sjónvarpstengi. Fermingartilboö 49.900 st.gr. Ýmis skemmtileg pakkatilboö í gangi. VERIÐ VELKOMIN A ATARI MEÐ ATARIINN í FRAMTÍÐINA IbLVULAND Borgarkringlunni Sími (91) 688819 heimahúsi í lengri tíma getur leitt til uppgjafar hjá fjölskyldum og lagt heimilin í rúst. Meðalaldur sjúklinganna á hjúkr- unarheimilinu Skjóli er 86-87 ár og þriðjungur þeirra yfír 90 ára. Því má fullyrða að þar er ekki um mis- notkun á plássum að ræða. í dag er þörfín í heilbrigðisþjón- ustunni mest á hjúkrunarrými fyrir aldraða því má alls ekki loka lang- legudeildum eða öldrunarlækninga- deildum né fækka hjúkrunarplássum á nokkurn hátt. í tillögunum um sameiningu Borgarspítala og Landakots var lagt til að gera Landakot að hjúkrunar- heimili fyrir aldraða Reykvíkinga og húsnæði í B-álmu yrði tekin fyrir bráðasjúkrahús. í B-álmu Borgar- spítala er rými fyrir allt að 150-160 sjúklinga, sem ætlað er til öidrunar- lækninga og hjúkrunar aldraðra. Á Landakoti var ætlað íými fyrir ein- ungis 111 hjúkrunarsjúklinga. Þann- ig hefði orðið fækkun sem nemur 50 rúmum. Hvers eiga aldraðir að gjalda að fram skuli koma hugmyndir um að taka það húsnæði sem þeim er ætlað fyrir aðra þjónustu? Húsnæðið á Landakoti má heita óha:ft til hjúkrunar aldraðra, stofur og gangar þröngir og sameiginlegt rými takmarkað. Öll hreinlætis- og salernisaðstaða er ófullnægjandi, t.d. eru einungis þijú salerni sem hjólastólar komast inn á. Á hjúkrunarheimilum fyrir aldr- aða þarf mikið rými, enda margir í hjólastólum og aðrir þannig á sig komnir að hjálpartæki þarf við hjúkrunina. Einnig þarf borðstofur og góða félagsaðstöðu. Hjúkrunar- forstjóri Landakots hefur varað við í Morgunblaðinu 23. febrúar sl. að reynst geti erfitt að manna hjúkrun- ardeildir með faglærðu starfsfólki í ófullnægjandi húsnæði. í B-álmu Borgarspítalans, sem er að stærstum hluta byggð fyrir fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra, eru deildir sérstraklega hannaðar með þarfir aldraðra í huga. Á meðan þessar deildir eru annaðhvort hálf- Hlúð að öldruðum sjúklingi. „Við skorum á borgar- fulltrúa og þingmenn Reykvíkinga að taka af alvöru á málefnum sjúkra aldraðra. Látið ekki aftur og aftur taka það húsnæði sem þeim var ætlað fyrir önnur verkefni í heilbrigðis- þjónustunni." tómar eða ókláraðar liggja sjúkir aldraðir Reykvíkingar í heimahúsum eða á bráðadeildum sjúkrahúsanna, oft langtímum saman þar sem ekki er hægt að finna hjúkrunarrými nokkurs staðar. Öll aðstaða á þess- um deildum er óvinveitt öldruðum enda mikill hraði og erill. Því horfir verr en áður í málefnum aldraðra Reykvíkinga. Hvað er þá til ráða? Hvers vegna er ekki lokið við að fullgera B-álmu Borgarspítalans? Sennilega er það ódýrasti kosturinn í málefnum aldraðra hjúkrunarsjúkl- inga í Reykjavík. Hugsanlega mætti án mikils tilkostnaðar flytja Grens- ásdeild Borgarspítalans i hluta af húsnæði B-álmu og nota húsnæði Grensásdeildar sem hjúkrunarheim- ili. Það húsnæði var upphaflega ætlað öldruðum Reykvíkingum. Þetta hjúkrunarheimili má síðan reka sem sjálfstæða stofnun. Öldrunarlækningadeildir Borgar- spítalans mætti einnig gera að sjálf- stæðri rekstrareiningu. Þær má nýta betur til að mæta þörfum bráðveikra aldraðra einstaklinga, t.d. með því að sérgreinaskipta þeim. Aldraðir einstaklingar eru lengur að ná sér eftir veikindi og iiggja því lengur í rými á bráðadeildum en yngra fólk. Með því að efla endurhæfíngar- og öldrunarlækningadeild B-álmu Borgarspítalans rýmkuðust plássin á bráðadeildunum. Til að draga úr kostnaði á að fela hjúkrunarfræðingum að reka hjúkr- unarheimili fyrir aldraða eins og t.d Skjól, Hvítabandið og Heilsuvemd- arstöðina. í Noregi hafa hjúkrunar- fræðingar séð um rekstur slíkra heimila til margra ára. Þegar heil- brigðisþjónustan var endurskipulögð á tímum Thatcher í Bretlandi var hjúkrunarfræðingum gefinn kostur á að taka að sér rekstur minni hjúkr- unarheimila og hefur reynslan þar verið góð. Áður hefur verið bent á að með því að sameina heimahjúkrun og heimilishjálp undir eina yfírstjórn má minnka kostnað og bæta skipu- lag í þjónustu aldraðra í Reykjavík. Við skorum á borgarfulltrúa og þingmenn Reykvíkinga að taka af alvöru á málefnum sjúkra aldraðra. Látið ekki aftur og aftur taka það húsnæði sem þeim var ætlað fyrir önnur verkefni í heilbrigðisþjón- ustunni. Höfundar eru hjúkrunwfræðingar og starfa í nefnd um hagræðingu í heilbrigðisþjónustunni á vegum Hjúkrunarfélags íslands. Háskólakórinn 20 ára Tónlist Jón Asgeirsson Þessa dagana heldur Háskóla- kórinn upp á 20 ára starfsafmæli og af því tilefni er efnt til tónleika þar sem eldri og yngri félagar koma fram. Á tónleikum kórsins sl. miðvikudag var tónlist Hjálm- ars H. Ragnarssonar viðfangsefn- ið og kynnti tónskáldið og sagði lítillega frá tilurð þeirra verka sem flutt voru. Tónleikamir hófust á þvi að Háskólakórinn, undir stjóm Ferenc Utassy, söng fjórar skemmtilegar þjóðlagaraddsetn- ingar. Það sem sérstaklega ein- kennir þessar raddsetningar, er að íslensku þjóðlögin eru aldrei kæfð í flóknum umbúnaði en miklu oftar sungin einrödduð og þá lögð áhersla á að lífga upp á hljóðfall þeirra. Kórinn söng lögin ágætlega. Þijú lög fyrir klarinett og píanó vom leikin af Rúnari Óskarssyni, nemanda í klamettuleik, og Þóm Fríðu Sæmundsdóttur. Þetta verk er frá þeim tíma er Hjálmar var í námi og þá að glíma við framúr- stefnur þess tíma. Verkið er vel samið og var flutt af þokka. Öll tónlistin var flutt af félögum í Háskólakórnum, utan það sem Þóra Fríða hjálpaði til með, svo og framlag Ámar Magnússonar, Kolbeins Bjarnasonar og Páls Eyjólfssonar, en Kolbeinn og Páll fluttu fímm bagatellur fyrir flautu og gítar. Einkenni tónleikanna í heild var sú togstreita sem flestir tónsmiðir Hjálmar H. Ragnarsson nú til dags þurfa að ganga í gegn- um en það er að þora að viður- kenna sjálfa frumþörf mannsins til að skapa og upplifa þann list- leik í einfaldleika sínum og svo aftur á móti, að þóknast kunn- áttukröfum og stefnumarkandi viðhorfum hinna „skriftlærðu". Hjálmar hefur bæði svarað kalli hinna „skriftlærðu" og svo þeim innri tóni, sem upphaflega rekur menn af stað, og um leit hans að jafnvægi miili þessara þátta má lesa í efnisskrá. Þar má sjá að Hjálmar er bæði skáld og heim- spekingur og í hjarta hans hefur verið sáð efasemdum, þar sem forskrift og markmiðssetning kunnáttunnar ein nægir ekki sem veganesti þeim sem ætlar sér að ná fundi listagyðjanna. í bagatellunum og nokkrum söngvum, sem Gunnar Guðnason og Hanna Dóra Sturludóttir fluttu mjög fallega, gat að heyra berg- mál upprunans og í tveimur prelúdíum fyrir píanó, sem Öm Magnússon flutti mjög vel, má segja að Hjálmar svari bæði kröf- um hinna „skriftlærðu“ og þess- um innri tóni, sem ef til vill er hin guðlega vitjun skáldsins, mannsins sem enn kann að hlusta á þögn eilífðarinnar. Alvörunni fylgir gamansemin, eins og skugginn ljósinu, svo sem heyra mátti í Dofrakvartettinum úr Pétri Gaut og í smá gríni um konsert fáránleikans, sem ber heitið Gjömingur á jökli og Arnar Jóns- son leikari las upp. Þessi galdur kunnáttunnar og hin óskilgreinda listþörf kom fram í síðasta viðfangsefni tónleikanna, en það er samið við kvæði Hann- esar Hafstein, Skarphéðinn í brennunni. Þetta er áhrifamikið verk og var ágætlega flutt af Háskólakórnum undir stjóm Fer- enc Utassy. Háskólakórinn er ágæt stofnun og hefur ekki aðeins haldið tónleika með góðum söng, heldur og átt þátt í auðgun ís- lenskrar tónlistarsögu og notið þess, að nokkrir stjórnendur kórs- ins hafa einnig verið tónskáld og samið verk sem kórinn hefur fmmflutt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.