Morgunblaðið - 20.03.1992, Page 11

Morgunblaðið - 20.03.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992 11 Burt með Menningarsjóðinn! eftir Pál Magnússon Uppá síðkastið hafa nokkrir kvikmyndagerðarmenn risið upp til varnar fyrir óbermið Menningarsjóð útvarpsstöðva. Þetta ágæta fólk virðist ekki hafa komið auga á þá grundvallar- staðreynd, sem gerir þenna sjóð jafn afleitan og raun ber vitni: Sjóðnum er ætlað að auka og bæta íslenska dagskrárgerð út- varpsstöðvanna, en vinnur í raun þvert gegn þessu meginmarkmiði sínu, því framleiðsla á innlendu dagskrárefni er bæði minni og verri en raunin væri ef þessi sjóðsómynd væri ekki til. Þannig tapa allir á tilvist sjóðs- ins; — bæði útvarpsstöðvar og kvik- myndagerðarmenn, — en þó einkum og sér í lagi sjónvarpsáhorfendur og hljóðvarpshlustendur. Til að rökstyðja þessa fullyrðingu nægir að skoða rekstraráætlun sjóðsins fyrir 1992. Þar kemur fram, að tekjur sjóðs- ins eru áætlaðar 85 milijónir króna. Af þessum tekjum er áætlað að ein- ungis 33 milljónir króna nýtist í styrki til dagskrárgerðar, eða 39%. Hins vegar fara 52 milljónir króna, eða 61% í eitthvað allt ann- að, langmest, eða_48 milljónir, í Sinfóníuhljómsveit íslands. Eftir stendur að á þessu ári verð- ur varið 52 milljónum minna fé til innlendrar dagskrárgerðar, en gert yrði, ef sjóðurinn væri ekki til. Aðrar lausnir betri Nú geta kvikmyndagerðarmenn og aðrir ef til vill sagt sem svo: Það er engin trygging fyrir því að út- varpsstöðvarnar noti þetta fé til dagskrárgerðar þótt sjóðurinn yrði lagður niður. Því er þá til að svara, að það þarf enginn að efast um metnað og vilja stöðvanna á þessu sviði — þetta er aðeins spurning um fjár- hagslega getu. Ef menn hins vegar treysta stöðvunum alls ekki til að sjá um þetta sjálfar, má hugsa sér einfalt laga- eða reglugerðarákvæði, sem skyldar þær til að veija þessari upphæð, 9,1% af auglýsingatekjum, til íslenskrar dagskrárgerðar, fyrir utan fasta þætti á borð við fréttir o.þ.h. Og ef menn vildu ganga enn lengra, t.d. til að tryggja hagsmuni kvikmyndagerðarmanna, mætti þessu til viðbótar kveða á um að stöðvarnar skuli veija ákveðnum hluta þessara tekna til dagskrár- gerðar í samvinnu við þá. Ég, fyrir mitt leyti, er á móti slíku reglugerðarfargani og forsjár- hyggju, en það er allt betra en sá vanskapnaður sem Menningarsjóð- urinn er í núverandi mynd; sjúg- andi blóð úr íslenskri dagskrárgerð útvarpsstöðvanna. Útvarpsstöðvar blæða Það eru ýmsir, þeirra á meðal þeir kvikmyndagerðarmenn sem hafa látið í sér heyra, slegnir þeirri blindu að það séu auglýsendur sem fjármagni Menningarsjóðinn, en ekki útvarpsstöðvarnar. Þetta er alrangt. Stöðvarnar geta ekki hækkað auglýsingaverð sem gjaldinu nem- ur, því auglýsendur snúa sér þá einfaldlega í auknum mæli til þeirra miðla, sem ekki bera þetta gjald, svo sem dagblaða og tímarita. Ut- varpsstöðvarnar verða að bera þetta gjald sjálfar til að missa ekki við- skiptavini til annarra auglýsinga- miðla — svo einfalt er það. Ef talið er rétt, að ríkið inn- heimti skatt til þess að styrkja kvik- myndagerðamenn, hvers vegna eiga þá eingöngu útvarpsstöðvar að greiða þennan skatt? Raunár má telja fullvíst að reglu- gerðin, sem veitti kvikmyndagerð- armönnum aðgang að Menningar- sjóðnum, stangist á við sjálf út- varpslögin. Umboðsmaður Alþingis hefur það mál nú til meðferðar, að beiðni íslenska útvarpsfélagsins. Afleiðingarnar fyrir Stöð 2 og Bylgjuna Ur því að ég er farinn að skrifa um þetta endemis fyrirkomulag, get ég ekki látið hjá líða, að benda á hvernig það snýr að íslenska út- varpsfélaginu hf. Stöð 2 er stundum legið á hálsi fyrir að framleiða ekki nógu mikið af eigin dagskrárefni. Þetta er rétt- mæt gagnrýni — svo langt sem hún nær. Það hefur hins vegar reynst nauðsynlegt að draga tímabundið saman seglin á þessu sviði á meðan verið er að koma rekstrinum í viðun- andi horf. Það skal enginn velkjast í vafa um að vilji okkar og metnaður stendur til að gera miklu meira og betur þegar okkur vex fiskur um hrygg. En lítum á hlut Menningarsjóðs- ins í þessum samdrætti: Árið 1990 greiddi Stöð 2/Bylgjan 23,6 milljónir króna inn í sjóðinn og fékk til baka í styrkjum til dag- skrárgerðar 18,7 millj. króna, eða 79,2% af framlaginu. Árið 1991 greiddi Stöð 2 28,2 milljónir og fékk til baka 8,0 millj- ónir króna, eða 28,4%. Á þessu ári má ætla að Stöð 2/Bylgjan greiði um 32,0 milljónir króna, en fái 3,5 milljónir til baka, miðað við síðustu úthlutun, eða 11%. Bara breytingin á hlutfalli inn- og útgreiðslna úr sjóðnum þýðir að Stöð 2/Bylgjan hefur á þessu ári 25,4 milljónum króna minna til ís- lenskrar dagskrárgerðar en á árinu 1990. Ég get fullyrt hér, að ef Menn- ingarsjóðurinn væri ekki til (með eða án fyrrnefndra laga- eða reglu- gerðarákvæða, sem kæmu í stað- inn) myndi Stöð2/Bylgjan veija yfir 30 miiljónum króna meira í íslenska dagskrárgerð á þessu ári, en unnt er að gera að óbreyttu. Hagsmunaárekstrar Að lokum til að bíta höfuðið af skömminni og fullkomna farsann í kringum þennan sjóð, er dagskrár- stjóri Ríkissjónvarpsins gerður að formanni sjóðsstjórnar! Stöð 2 er sem sagt gert að kynna dagskrárstjóra keppinautarins allar hugmyndir og áætlanir um dag- skrárgerð heilt á? fram í tímann! Og árangurinn af stjórnarfor- mennsku dagskrárstjórans lét ekki á sér standa: Við síðustu úthlutun úr sjóðnum fékk Ríkisútvarpið 17,2 milljónir króna i sinn hlut, en Islenska út- varpsfélagið hf. 3,5 milljónir króna. Var einhver að tala um hagsmun- árekstra? Það er sama hvernig á málið er litið — allt ber að sama brunni: Það er ekki hægt að bíða eftir heildarendurskoðun útvarpslaga. Það verður að leggja þennan hörm- Páll Magnússon „Það er ekki liægt að bíða eftir heildarendur- skoðun útvarpslaga. Það verður að leggja þennan hörmungarsjóð niður strax, áður en hann vinnur enn frek- ari skemmdarverk á ís- lensku sjónvarpi og hljóðvarpi.“ ungarsjóð niður strax, áður en hann vinnur enn frekari skemmdarverk á íslensku sjónvarpi og hljóðvarpi. Höfundur er útvarpsstjóri Islenska útvarpsfélagsins hf. . *: fmitíSs. SÝNING UM HELGINA. OPIÐ LAUGARDAG KL. 11-16 OG SUNNUDAG KL. 13-17 nn —J' i-- —rr f-rrsssjat ^ Peugeot 106 ber höfundum sínum fagurt vitni, listasmiðunum sem lögðu alla hæfileika sína, metnað og hugvit í að gera þennan glæsilega bíl sem fullkomnastan. Hnitmiðuð hönnun gerir Peugeot 106 lipran, lifandi og rúmgóðan borgarbíl. íslendingar gera þá kröfu til bíla að þeir standist erfiða prófraun á misjöfnum vegum. Meistara- smiðir Peugeot höfðu að leiðarljósi að finna sem næst fullkomið samræmi milli stærðar hans og þyngdar og þess hversu kraftmikill bíllinn er. Niðurstaðan er sú að Peugeot 106 hefur reynst afbragðs vel úti á vegum og með eindæmum sparneytinn. Peugeot 106 er ekki stór bíll, en hann hefur marga stóra kosti. Verð frá 672.500 kr. JÖFUR NÝBVLAVEGI 2 • SÍMI 42600

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.