Morgunblaðið - 20.03.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992
21
Sænsk bókavika í
Norræna húsinu
SÆNSK bókavika verður í Norræna húsinu 21. til 29. mars. Dag-
skrá vikunnar verður fjölbreytt; bókakynning- og fyrirlestrar um
bókmenntir, kvikmyndasýningar og kvöldvaka með tónlist og upp-
lestri. Vikan hefst kl. 15.30 á laugardag 21. mars og þegar sýning
á barna- og unglingabókum í Svíþjóð í 401 ár verður opnuð í
anddyri hússins. Sýningin er eins konar saga barnabókmennt-
anna. Hún var gerð fyrir grunnskólanemendur í Svíþjóð og hefur
verið sett upp í bókasöfnum og stofnunum víða þar í landi.
Kl. 16.00 á laugardag verður
bókakynning sem Gunnel Persson
sendikennari annast. Hún segir frá
bókaútgáfunni í Svíþjóð 1991 og
sænski rithöfundurinn Inger Edel-
feldt segir frá ritstörfum sínum
og les upp.
Inger Edelfeldt er rithöfundur,
teiknari og myndskreytir bækur.
Hún var aðeins 21 árs gömul er
fyrsta skáldsagan „Duktig pojke“
kom út 1977. Bókin segir frá
þroskasögu ungs manns og með-
vitund hans um samkynhneigð
sína. Inger Edelfeldt hefur skrifað
fleiri bækur um ungt fólk sem er
í tilvistarkreppu. Inger er einnig
góður smásagnahöfundur og til
vitnis um það er smásagnasafnið
„I fiskens mage“ (1984) og „Rit“
sem kom út síðastliðið haust og
fékk mikið lof gagnrýnenda. Inger
Edelfeldt er einnig teiknari og um
tíma birtist daglega teiknimynda-
saga eftir hana um „Hondjuret" á
teiknimyndasíðunni í Dagens Ny-
heter.
Sunnudaginn 22. mars kl. 14.00
verður sögustund fyrir börn með
Elísabetu Brekkan og fer hún fram
á sænsku. Klukkan 15 verður sýnd
kvikmyndin „Astrid Lindgrens
Smáland" um Astrid Lindgren og
heimabyggð hennar. Klukkan 16
verður tveir fyrirlestrar á dagskrá:
Jan Hanson frá sænsku barnabók-
astofnuninni nefnir fyrirlestur sinn
Dagskrá
tengd
þjóðsögum
ÞRIÐJI bekkur Leiklistarskóla
Islands hefur á undanförnum
vikum unnið að dagskrá tengdri
þjóðsögum, þulum, söngvum og
sálmum og hefur verið leitast við
að vekja upp tíðarandann sem
ríkli á baðstofutímanum. Dag-
skráin hefur hlotið nafnið „Að-
fangadagur dauða míns“.
Leiðbeinandi verkefnisins er Kári
Halldór. Einnig aðstoðar Njáll Sig-
urðsson, námsstjóri tónlistar-
fræðslu, við leit og val á ýmsum
þjóðlegum fróðleik. Um æfingar og
val tónlistar sá Arni Harðarson tón-
skáld.
Dagskráin verður í Listasafni
Siguijóns Ólafssonar á Laugarnesi
föstudaginn 20. mars kl. 21.00,
uppselt, sunnudaginn 22. mars kl.
21.00, fimmtudaginn 26. mars og
föstudaginn 27. mars kl. 21.00.
(Úr frcttatilkynningu.)
-----»-♦ ♦----
A
Ihugunar-
stund í Laug-
arneskirkju
KYRRÐAR- og íhugunarstund
með söngvum frá Taizé verður í
Laugarneskirkju nk. föstudag 20'.
mars og hefst kl. 21.00. Tónlist
verður leikin frá kl. 20.30.
Form kyrrðar- og íhugunarstund-
anna í Laugarneskirkju er komið frá
Taizé. Söngvarnir sem eru stuttir,
einfaldir og auðlærðir, eru endur-
teknir aftur og aftur og verða þann-
ig að bæn og lofsöng til Guðs.
Eftir stundina verður kaffí í safn-
aðarheimilinu. Allir eru velkomnir.
„Frán Jungfruspegel till omoral.
Ett historiskt och pedagogiskt
perspektiv“ og Christina Engblom
kennari fiytur yfirlit um barnabók-
menntir í Svíþjóð 1991.
Dagskrá vikunnar heldur síðan
áfram þriðjudaginn 24. mars að
sýnd verður kvikmynd Ingmars
Bergmans, Fanny og Alexander.
Sýningin hefst kl. 19.30. Að-
gangur er ókeypis.
Samkór Trésmiðafélags Reykjavíkur.
Kór Trésmiðafélags Reykjavíkur 20 ára
SAMÍKÓR Trésmiðafélag
Reykjavíkur er 20 ára um þessar
mundir og mun að því tilefni
taka á móti velunnurum sínum
í afmælisfangað 21. mars klukk-
an 13,30 í Fóstbræðraheimilinu
við Lángholtsveg.
Kórinn hefur starfað samfellt
frá árinu 1972 og haldið operin-
bera tónleika frá árinu 1975. Hann
er aðili að norrænu samstarfi á
vegum verkalýðsfélaga, en þessi
samtök halda mót til skiptis á
Norðurlöndunum. í sumar verður
slíkt mót haldið í Reykjavík, dag-
ana 1. til 5. júlí.
Kórstjóri Samkórs TR er Kjart-
an Ólafsson og formaður kórsins
Magnús Ólafsson.
Hugleikur frumsýnir
„Fermingarbarnamótið “
HUGLEIKUR frumsýnir á morg-
un kl. 20.30 að Brautarholti 8,
leikverkið Fermingarbarnamót-
ið. Um er að ræða gleðileik með
mörgum söngvum en alvarlegu
ívafi og skarpri þjóðfélagsgagn-
rýni. I verkinu er svipt hulunni
af framtíð nágrannalandanna á
þessum umbrotatimum. Sagan
fær þó farsælan endi þar sem
hinum verðugu hlotnast ómæld
hamingja en hiiiir fá makleg
málagjöld.
Leikstjóri er Viðar Eggertsson,
Lára Stefánsdóttir hannaði dans:
hreyfingar. Margrét Pálmadóttir
stjórnaði söng, Ólafur Thoroddsen
sér um lýsingu.
Höfundar verksins eru Ármann
Guðmundsson, Þorgeir Tryggva-
son, Sævar Siggeirsson, Sigrún
Óskarsdóttir, Árni, Hjördís og Ingi-
björg Hjartarbörn. Næstu sýningar
verða 24., 26. og 28. mars.
(Ur fréttatilkynningu)
Hafdís Ólafs-
dóttir sýnir
HAFDÍS Ólafsdóttir opnar grafík-
sýningu í Norræna húsinu á morg-
un, laugardag, kl. 14.00.
Hafdís er fædd í Reykjavík 1956.
Hún stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Islands frá 1975-
1981, lauk prófí úr kennaradeild
1979 og úr grafíkdeild 1981.
Þetta er önnur einkasýning Haf-
dísar en hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga bæði hér heima og er-
lendis. Á sýningunni eru u.þ.b. 60
tréristur og er viðfangsefnið form
og litir jökla, fjalla og eyja.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
14.00-19.00 og lýkur 5. apríl.
Caput-hópurinn á æfingu
Morgunblaðið/Einar Falur
Hádegistónleikar
í Norræna húsinu
CAPUT-nútímatónlistarhópurinn heldur tónleika í Norræna húsinu
laugardaginn 21. marz klukkan 12,30. Tónleikarnir eru haldnir í sam-
vinnu við „Italíu“ vináttufélag Islands og ítaliu og verða þar leikin
tónverk ýmissa þekktustu núlifandi tónskálda Ítalíu.
Á efnisskrá eru verk eftir Borrad- mundsson, lágfiðla, Bryndís Halla
Hafdís Ólafsdóttir
ori, Donatoni, Scelsi, Beerio, Tadini,
Anzaghi og Atla Ingólfsson, en verk
hans verður frumflutt á tónleikunum
hér á landi, en það var fyrst flutt í
Milanó í desember síðastliðnum.
Flytjendur á tónleikunum eru:
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Sean
Bradley, fiðla, Guðmundur Krist-
Gylfadóttir, selló, Valur Pálsson,
kontrabassi, Elísabet Waage, harpa,
Eggert Pálsson, slagverk, Örn
Magnússon, píanó, Kolbeinn Bjarna-
son, flauta, Guðni Franzson, klari-
nett og Guðmundur Óli Gunnarsson,
stjórnandi.
—
MEÐ
HYBREX
FÆRÐU GOTT SÍMKERFI
OG ÞJÓNUSTU
SEM HÆGT ER
AÐ TREYSTA.
HYBREX AX er eitt fullkomnasta tölvustýrða sím-
kerfið á markaðnum í dag. Auðvelt er að koma
því fyrir og það er einfalt í notkun. HYBREX er
mjög sveigjanlegt í stærðum.
DÆMI: (AX 8)1- 4bæjarlínur-Alltað8símtæki
(AX32) 1-32bæjar1ínur—Allt að 192símtæki
Möguleikarnir eru ótæmandi.
HELSTU KOSTIR HYBREX
•íslenskur texti á skjám tækjanna.
•Beint innval.
and»*u*
s»m
•Hægt er að fá útprentaða mjög nákvæma sundurliöun
þ.e. tími, lengd, hver og hvert var hringt osfr.
•Sjálfvirk símsvörun.
•Hægt er að láta kerfiö eða tæki hringja á fyrirfram-
ákveðnum tima.
• Hjálparsími ef skiptiborðið annar ekki álagstímum.
•Sjálfvirk endurhringing innanhúss sem bíður þartil númer
losnar.
•Mjög auðvelt er að nota Hybrex fyrir símafundi.
•Hægt er að tengja Telefaxtæki við Hybrex án þess að það
skerði kerfið.
• Hægt er að loka fyrir hringingar I tæki ef menn vilja frið.
•Innbyggt kallkerfl er í Hybrex.
Heimilistæki hf 55
Tæknideild,Sætum8SÍMI6915 00 WttM
C SCMUUtUfMK' Hn
•Langlinulæsing á hverjum og einum síma.
OKKAR STOLT ERU ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR
Borgarieikhúsið Morgunblaðiö, augl.
Gatnamálastjöri Samband islenskra
Reykjavíkur sveilartélaga
Gúmmivinnustofan Securilas
islenska óperan Sjóvá-Almennar
Landsbrét hL ofl. otl. ofl.
\s^fuZmbaw