Morgunblaðið - 20.03.1992, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992
29
\
Norræna upplýsingaskrifstofan:
Flyst frá Akur-
eyri til Isafjarðar
Morgunblaðið/Rúnar Þór
„Hádegissyndarar“ sleikja sólina
„Hádegissyndarar“ sleiktu sólina í Sundlaug Akureyrar og létu fara vel um sig á sólpöllum, nýkomnir
úr heitu pottunum. Veðrið lék við þá í gær og ekki laust við að menn freistuðust til að segja vorið á næsta leiti.
NORRÆNA upplýsingaskríf-
stofan á Islandi flytur á næst-
unni frá Akureyri til ísafjarðar,
en þar hefur hún verið í fjögur
ár eða frá árinii 1988. Að sögn
Sigurðar R. Símonarsonar,
framkvæmdastjóra Norræna
félagsins, verður skrifstofan á
Isafirði næstu fjögur árin en
verður þá aftur flutt á annan
stað. Auk þess hefur Norræna
Skandia opn-
ar skrifstofu
ARNAR Birgisson hefur verið
ráðinn markaðsfulltrúi Skandia
Island á Norðurlandi. Hann tók
til starfa í gær, en skrifstofa
félagsins er á Ráðshústorgi 7 á
Akureyri.
„Viðbrögð fólks
hér á Norðurlandi
hafa verið góð,
fjölmargir hafa
verið að spyrjast
fyrir um trygging-
ar hjá félaginu og
við höfum sent til-
boð, en fólk hefur |HL j|L M
verið að bíða eftir |Hk JS
að því hvaða þjón- Hffll ni-iiffl
ustu fyrirtækið Arnar Birífisson
ætlaði að bjóða og hvort hér yrði
starfsmaður á vegum þess,“ sagði
Arnar.
Höldur hf. á Akureyri mun sjá
um tjónaskoðun fyrir Skandia á
Norðurlandi. Skrifstofan við Ráð-
hústorg 7 verður opin alla virka
daga frá 9 til 17, en svarað verður
í síma fram til kl. 10 á kvöldin fyrst
um sinn.
félagið ákveðið að reka svæðis-
skrifstofu áfram á Akureyri
með stuðningi Akureyrarbæjar.
„Upplýsingaskrifstofur eru
starfandi á öllum Norðurlöndunum
fyrir Norðurlandaráð og Norrænu
félögin og samkvæmt ákveðnum
reglum verða skrifstofurnar að
vera staðsettar einhvers staðar í
landinu fjarri höfuðborg. Þar sem
við höfum aðeins eina skrifstofu
miðað við tvær í hinum löndunum
var ákveðið að hún færðist á milli
staða,“ segir Sigurður.
Hann segir að hér á landi sé
Norræna félagið ábyrgðaraðili fyr-
ir rekstri upplýsingaskrifstofunnar
en hins vegar séu skrifstofumar á
hinum Norðurlöndunum reknar
sjálfstætt. Hlutverk upplýsinga-
skrifstofunnar er að veita upplýs-
ingar og kynna starfsemi Norður-
landaráðs og Norræna félagsins.
Eyjafiarðarsveit:
Ríkissjóður sparar milljón
á ári við sameininaru skóla
Ytri-Tiörnum. ^ J
*i-Tjörnum.
Á FUNDI hreppsnefndar Eyja-
fjarðarsveitar í gær var frestað
ákvörðunartöku varðandi skóla-
mál, en nú eru reknir fjórir skólar
í sveitarfélaginu. Lögð var fram
á fundinum skýrsla vinnuhóps sem
verið hefur að skoða þessi mál að
undanföru. Niðurstaða nefndar-
innar var, að leggja niður skóla-
starf á Laugalandi og færa allt
grunnskólastarf að Hrafnagili.
Afram yrði þó starfrækt skólasel
í Sólgarði fyrir yngstu bekkina
úr fremsta hluta sveitarinnar.
Vinnuhópurinn taldi vænlegan
kost að kjallari núverandi íþróttahúss
Margar fyrirspurnir um Stefaníu
ENGIN formlega tilboð höfðu í gærdag borist í Hótei Stefaníu, sem
Ferðamálasjóður og Byggðastofnun auglýstu til sölu fyrir nokkru.
Frestur til að skila inn tilboðum í hótelið rennur út í dag, föstudag.
Snorri Tómasson framkvæmda-
stjóri Ferðamálaráðs sagði að 13-14
fyrirspumir hefðu borist vegna sölu
á hótelinu og þar af hefðu 2-3 aðil-
ar rætt af alvöru um kaup á hótel-
inu.
Ferðamálasjóður og Byggða-
stofnun keyptu Hótel Stefaníu á
uppboði á um 52 milljónir króna
og sagði Snorri að hugmyndin væri
að reyna að selja það fyrir á bilinu
55 til 60 milljónir króna, vegna
kostnaðar sem eignaraðilar yrðu að
bera á meðan þeir ættu eignina.
Ferðamálasjóður á 65% hlut í hótel-
inu og Byggðastofnun 35%.
Á hótelinu eru 24 herbergi og
sagði Snorri að húsnæðið væri í
góðu ásigkomulagi, fyrri eigendur
hefðu skilið mjög vel við eignina.
yrði innréttaður og þar fengist nægi-
legt kennslurými að viðbættum
gamla grunnskólanum Hrafnagili.
Olafur Vagnsson talsmaður vinnu-
hópsins og sveitarstjómarmaður
taldi að þessi breyting myndi leiða
til um eins milljón króna spamaðar
fyrir ríkissjóð á ári og einnig mundi
sveitarfélagið sþara fjármuni við
rekstur mötuneyta, sem yrði eitt í
stað tveggja nú.
Ólafur taldi það miður að ef starf-
semi Laugalandsskóla yrði lögð af
lægi ekki fyrir á hvern hátt húsið
yrði nýtt, en þar kæmi margt til
greina. Sveitarstjórnarmenn voru
flestir á einu máli um það að fýrir
hafí legið að um leið og hrepparnir
þrír voru sameinaðir kæmi samþjöpp-
un kennslu í kjölfarið og vildu jafn-
vel samþykkja þessar breytingar
strax, en oddvitinn, Birgir Þórðarson
vildi fara vægar í hlutina og sagði
að hér væri um mjög róttækar breyt-
ingar að ræða og kom fram í máli
hans á fundinum að 25 milljónir
króna hefðu verið lagðar í Lauga-
landsskóla á undanförnum árum og
þar væri nú mjög gott kennsluhús-
næði. Taldi hann eftirsjá að þeim
skóla, spuming væri hversu hratt
ætti að fara í þessu máli auk þess1-
sem ljóst væri að leggja þyrfti fram
fjármuni vegna breytinga á Hrafna-
gilsskóla.
Mikil umræða var um þetta mál á
fundi hreppsnefndar í gær og greini-
legt að margir hafa á því mikinn
áhuga, því áheyrendur fylltu fundar-
salinn og kennarar áberandi I þeim
hópi.
Beniamín
NÝR OG STÆRRI FJÖL SKYLDUBÍLL
AD
Þessi bill er 20 cm lengri en hin
hefðbundna SAMARA og rúmbetri.
Bíllinn hentarþví vel fjölskyldufólki. LADA
SAMARA stallbakur er fimm manna og
með lokaðri farangursgeymslu (skotti).
BIFREIBAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
Ármlila 13, 108 Reykjavik, simar 68 12 0013 12 36