Morgunblaðið - 20.03.1992, Page 30

Morgunblaðið - 20.03.1992, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992 STÚLKAN MÍN Kvikmyndir Amaldur Indriðason Stúlkan mín („My Girl“). Sýnd í Stjörnubíói. Leikstjóri: How- ard Zieff. Handrit: Laurice Elehwany. Aðalhlutverk: Dan Aykroyd, Jamie Lee Curtis, Anna Chlumsky, Macaulay Culkin, Richard Masur, Griffin Dunne. Stúlkan mín er ljúfsárt gaman- drama um unga stúlku (Anna Chlumsky) sem er gersamlega gagntekin af dauðanum. Það er reyndar ekkert skrítið því um- hverfið sem hún býr í er heldur drungalegt. Hún missti móður sína þegar hún fæddist og býr hjá föður sínum sem er útfarar- stjóri og er með reksturinn heima hjá sér. Kistur og lík um allt hús. Hún leikur sig gjarna dauða og telur sig dauðvona á hverjum degi og hleypur til læknisins sem tekur henni orðið af hæfilegum hátíð- leik. Hún er með dauðann á hei- lanum. Myndin gerist sumarið 1972 og stúlkan er sögumaður hennar, sem lítur til baka orðin þroskaðri. í miðpunkti.er vinskapur hennar og stráks í hverfinu sem mætir grimmum örlögum en það hjálpar á endanum stúlkunni að ná sér af dauðaóttanum og sætta sig við dauðann sem part af lífinu. Leikstjórinn, Howard Zieff, færir þroskasögu stúlkunnar í þekkilegan og einlægan búning endurminninganna. Sögusviðið er lok hippatímans í vinalegum smábæ þar sem allir þekkja alla og taka þátt í sorgum og gleði samborgarans. Leikurinn er ágætur. Jamie Lee Curtis leikur blómabarn sem tekur að vinna á útfararstofunni hjá pabbanum, leikinn af Dan Aykroyd, og dreg- ur hann á endanum úr einangrun- inni sem fylgdi konumissinum. Griffin Dunne leikur bókmennta- kennara sem stúlkan litla er bál- skotin í og síðast en ekki síst fer litla stórstjarnan Macaulay Culkin úr Aleinum heima með hlutverk vinar stúlkunnar. Það er reyndar aðeins aukahlutverk sem dýrasta barnastjarna heimsins fer með hér en hann er kómískur vel sem örlagavaldurinn ungi í lífi stúlk- unnar. Stúlkan mín er ekta klútamynd með vænum skammti af tilfinn- ingasemi í lokaatriðunum, jafnvel svo manni finnst nóg um. En hún er lika gamansöm og það er létt yfir henni miðað við að umijöllun- arefnið er eitthvað sem er eins drungalegt og dapurlegt og dauð- inn og vinamissir. Þetta er ekki mynd mikilla átaka heldur lág- stemmdra lýsinga á leiðinni til þroska í gegnum vináttu og missi. Félagsráðgjafi Félagsráðgjafi óskast til starfa á vegum Vopnafjarðarhrepps. Nánari upplýsingar um starístilhögun veitir sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps í síma 97-31113 á skrifstofutíma. Nauðungaruppboð á eftirtöldum eignum fer fram í skrif- stofu embættisins, Hörðuvöllum 1, þriðjudaginn 24. mars ’92 kl. 10.00: Eyjarlandi, Laugardalshr., þingl. eigandi Laugarlax hf. Uppboðsbeiðandi er Jón Kr. Sólnes, hrl. Heildverslun Lítil heildverslun á matvælasviðinu óskar að ráða ungan mann til skrifstofu- og sölu- starfa. Reynsla af verslunarstörfum og toll- skýrslugerð æskileg. Umsóknir skilist til auglýsingadeildar Mbl., fyrir 25. mars, merktar: „KP - 12945“. Fræðslufundur í Kársnessókn: Úr heimi framtíðarinnar „Úr heimi framtíðarinnar" er yfirskrift erind- is, sem dr. Sigmundur Guðbjarnason, próf- essor, heldur á þriðja fræðslufundi fræðslu- nefndar Kársnessóknar á þessum vetri. Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimilinu Borgum, Kastalagerði 7, miðvikudaginn 25. mars nk. og hefst hann kl. 20.30. Allir velkomnir. Fræðslunefnd Kársnessóknar. Stýrimannaskólinn íReykjavík Kynningardagur 1992 laugardaginn 21. mars 1992 kl. 13.00-18.00 Fjölþætt kynning á starfsemi skólans. Nemendur og kennarar sýna gestum tæki skólans og kennslugögn. Stofnanir sjómanna og fyrirtæki í þágu sjávarútvegs og siglinga kynna starfsemi sína og þjónustu. Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar lendir við skólann kl. 13.30. Sveitir Slysavarnafélagsins mæta á svæðið. Kvenfélagið Hrönn verður með kaffisölu í matsal Sjómannaskólans. Siglingar og sjósókn er nauðsyn. Allir velkomnir. Klapparstígur Til leigu 3 skrifstofuherbergi á 6. hæð í lyftu- húsi við Klapparstíg. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „K - 7929". Hjallabraut 5, Þorlákshöfn, þingl. eigandi Hólmfríður Georgsdóttir. Upboðsbeiðandi er Tryggingastofnun ríkisins. Lambhaga 4, Selfossi, þingl. eigandi Trausti G. Traustason. Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson, hrl., Jón Ólafsson, hrl., Ingólfur Friðjónsson, hdl. og innheimtumaður ríkissjóðs. Annað og síðara miðvikudaginn 25. mars '92 kl. 10.00: Birkilundi, Laugarvatni, þingl. eigandi Laugalax hf. Uppboðsbeiðandi er Jón Kr. Sólnes, hrl. Gróðurmörk 5 v/Suðurlandsv., Hveragerði, þingl. eigandi Árni Rúnar Baldursson. Uppboðsbeiðendur eru Stofnlánadeild landbúnaðarins og Ævar Guð- mundsson, hdl. Heiðarbrún 68, Hveragerði, þingl. eigandi Ólafía G. Halldórsdóttir. Uppboðsbeiðandi er Sigurður A. Þóroddsson, hdl. Kambahrauni 29, Hveragerði, talinn eigandi Friðrik Karlsson. Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson, hdl., Ólafur Björnsson, hdl., Baldvin Jónsson, hrl. og Tómas H. Heiðar, lögfr. Miðengi 9, Selfossi, þingl. eigandi Ingvar Benediktsson. Uppboðsbeiðendur eru Byggingasjóður rfkisins, Landsbanki (siands, lögfræðingad., Jón Ólafsson, hrl., Guðjón Ármann Jónsson, hdl., Helgi V. Jónsson, hrl. og Ásgeir Magnússon, hdl. Votmúla I, Sandvíkurhreppi, þingl. eigandi Albert Jónsson og Freyja Hilmarsdóttir. Uppboðsbeiðandi er Jnnheimtustofnun sveitarfélaga. Votmúla II, Sandvíkurhreppi, þingl. eigandi Albert Jónsson og Freyja Hilmarsd. Uppboðsbeiðendur eru Innheimtustofnun sveitarfélaga og Jakob J. Havsteen, hdl. Sýslumaðurínn í Árnessýslu. Bæjarfógetinn á Selfossi. Námskeið í félagsstörfum Ungmennafélagar í Reykjavík og nágrenni og þið, sem eruð við nám í Reykjavík: Félagsmálafræðsla fer fram í Þjónustumið- stöð UMFÍ, Öldugötu 14, Reykjavík. Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 2. apríl kl. 20.00 og verður tekið fyrir efnið: Uppbygging foreldrastarfs f félögum. Látið skrá ykkur sem fyrst í síma 12546, því aðeins 12 komast að á hvert námskeið. Félagsmálaskóli UMFÍ. Útgerðaraðilar athugið Vantar einhvern að láta veiða fyrir sig þorsk? Getum tekið að okkur að veiða fyrir aðra. Erum á netum á 76 tonna bát frá Grindavík. Upplýsingar í símum 985-21078 og 92-68325. SJÁLFSTJEDISFLOKKURINN Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Borgar- og vara- borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins verða í vetur með fasta viðtalstíma í Valhöll á laugardög- um milli kl. 10.00 og 12.00. Á morgun, laugar- daginn 21. mars, verða þessir til við- tals: Varaborgarfulltrúarnir: Ingólfur Sveinsson, í stjórn heilsugæslumdæmis austurbæjar nyrðra, heilbrigðisnefnd og Haraldur Blöndal, formaður umferðarnefndar. I.O.O.F. 1 = 1733208'/z = I.O.O.F. 12s1733208'/z = 9.0 St.St.59923214 VIII Sth. kl. 16.00 I.O.O.F. 1 = 1733208’/z = x, I > íU Aðalsafnaðarfundur Nessóknar í Reykjavík verður haldinn sunnudaginn 22. mars kl. 15 í safnaðarheimil- inu. Dagskrá: Venjuleg aðalfund- arstörf. Sóknarnefnd. 'fcfttfpdt H ÚTIVIST Hallveigarstíg 1, sími 14606 Dagsferðir sunnudag- inn 22. mars kl. 13.00: Afmælisganga Útivistar á Keili. Kirkjugangan 6. áfangi. Skíðaganga og skíðakennsla á Hellisheiði. Sjáumst! Útivist. s Samvera fyrir fólk á öllum aldri í kvöld í Suöurhólum 35. Bæna- stund kl. 20.00. Samveran hefst kl. 20.30. Stuðningur við vini okkar. Er sálusorgun eingöngu hlutverk prestsins? Séra Sig- finnur Þorleifsson. Tónlistar- at riöi. Ungt fólk á öllum aldri velkomið. Frá Guöspeki- fólaginu Ingólfsstrnti 22. Áskriftarslml Ganglera sr 39673. [ kvöld kl. 21.00 ræðir Einar Aðalsteinsson um fræðslu kínverska Zen-meistarans Hu- ang Po í húsi félagsins, Ingólfs- stræti 22. Áður auglýst spjall Marinós Ól- afssonar fellur niður af óviðráð- anlegum orsökum. Á laugardag er opið hús frá kl. 15.00 til kl. 17.00. Kristín Krist- insdóttir fjallar um áhrif lita. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS OLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Sunnudagsferðir 22. mars Kl. 10.30 Kjalarnesgangan, loka- á fangi: Kollafjörður - Sjálfkvíar - Brimnes - Kjalarnestangar. Mjög skemmtileg ganga með undirhliðum Esju og ströndinni út á Kjalarnestanga. Sérkennileg- ar bergmyndanir. Verð 1000,- kr. Kl. 13.00 Fjölskylduganga: Hofsvík - Kjalarnestangar. Kynnist hollri útiveru með Ferða- félaginu. Ganga fyrir unga sem aldna. Það er margt forvitnilegt að skoða á þessari strandlengju. Heimkoma er kl. 16.00 úr báðum ferðunum. Kynningarverð kr. 800,- frítt f. börn m . fullorðnum. Atburðir Kjalnesingasögu tengj- ast þessu svæði, en einstakt tækifæri til að kynnast sögusviði hennar er á kvöldvöku Ferðafé- lagsins í Sóknarsalnum næst- komandi miðvikudagskvöld. Kl. 13 Skíðaganga. Við förum á skíðaslóðir í Bláfjöll- um eða annars staöar, þar sem hægt er að komast i góðan skíðasnjó. Verð 1.100,- kr. Brottför í ferðirnar er frá BSÍ, austanmegin (stansað við Mörk- ina 6 á leiðinni). Verið með! Ferðafélag íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.