Morgunblaðið - 20.03.1992, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 20.03.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992 31 Minning: Sigurður Bergsson Fæddur 16. nóvember 1943 Dáinn 12. mars 1992 Sigurður Bergsson er látinn. Þegar þessi fregn barst um bank- ann í síðustu viku setti marga hljóða um stund. Við vorum enn minnt á hvað lífið sjálft er hverf- ult. Engan grunaði að Sigurður, karlmannlegur, kvikur og hreystin uppmáluð myndi falla svo sviplega fyrir sláttumanninum slynga. Sigurður fór víða í bankanum starfa sinna vegna. Hann var fé- lagsvera, vildi kynnast fólki og því sem það var að fást við. Hann gerði sér í daglegum störfum far um að kasta stuttri kveðju á sam- starfsmenn, koma með lauflétta athugasemd um atburði líðandi stundar eða litla gamansögu. Dag- urinn varð svolítið bjartari fyrir vikið. Þótt Sigurður leitaðist við að slá á létta strengi við þá var hann í raun mjög alvörugefinn. Lífsbar- áttan var hörð, fjölskyldan stór og áhyggjuefnin áreiðanlega oft mörg þótt hann bæri þau ekki á torg. Hann var með afbrigðum ósérhlíf- inn til vinnu, gekk að öllum störf- um af samviskusemi og dugnaði, bæði innan bankans sem utan hans og þá ástundum í aukavinnu með eiginkonu sinni. Hann var glað- sinna en þó engan veginn gefinn fyrir það sem við köllum gleðskap. Pjölskyldan var honum ákaflega mikils virði, hún var hans gleði- gjafi, hún var honum áreiðanlega lífsakkerið sjálft. Að vita sína nán- ustu örugga og heilsuhrausta, hugsunin ein gladdi hjarta hans. Nú þegar við kveðjum Sigurð rifj- ast upp andartaksleiftur úr spjalli okkar á förnum vegi, sem draga skýrt fram hve vel hann kunni að meta það sem mestu skiptir í lífi okkar allra en flest okkar meta seint að verðleikum. Ég þakka Sigurði samfylgdina og votta eiginkonu hans og börnum einlæga samúð mína. Björn Björasson. Sigurður Bergsson lést sviplega eftir heilablóðfall fimmtudaginn 12. mars síðastliðinn. Það er áfall að sjá á bak sterkum manni með ómælt lífsþrek, manni sem heilsaði hverjum degi með ný áfonn, ánægður með starf og fjölskyldu. Sigurður var fæddur þann 16. nóvember 1943 og ólst upp hjá fósturforeldrum, hjónunum Bergi Hallgrímssyni, Arnarbæli í Blesu- gróf, og Fanneyju Ingjaldsdóttur, móðursystur sinni. Bergur er látinn en Fanneyju sendi ég samúðar- kveðjur. Spnur Sigurðar fyrir hjónaband er Ágúst Þór, fæddur 1963, lög- fræðingur hjá Tryggingastofnun. Honum samhryggist ég sömuleiðis sem vinur föður hans og mágur. Ég kynntist Sigga fyrst sem eiginmanni systur minnar, Grétu Maríu Garðarsdóttur. Og þau hafa saman eignast stærsta barnahóp- inn í ijölskyldunni: Bergdísi, nema í stjórnmálafræði, fædd 1968, Garðar Héðin, bakaranema, fædd- ur 1970, Fanneyju, verslunar- mann, fædd 1972, og tvíburasyst- urnar Brynju og Drífu, fæddar 1980. Siggi var framan af starfsævi sjómaður en eftir að hann staðfest- ist í sambúð og síðan hjónabandi stundaði hann verkamannavinnu í landi, lengst af hjá Áburðarverk- smiðju ríkisins. Það er ekkert áhlaupsverk fyrir almennan verka- mann að ala upp stóran barnahóp en með þrautséigju, sem efldist með hverju barni, tókst þeim Grétu Maríu það sem þau ætluðu sér. Þau áttu barnaláni að fagna og lagði Siggi metnað sinn í að koma börnunum vel til manns og skapa þeim gott heimili. Börnin og heimilið voru honum lífið sjálft og ekki ætlun hans að deyja fyrir ald- ur fram, síst frá systrunum ungu án þess að sjá þær vaxa úr grasi. í ársbyijun 1990 söðlaði Siggi um, „á miðjum aldri“ eins og við mágarnir kölluðum það, og réðst sem húsvörður hjá Alþýðubankan- um og síðan sem starfsmaður hjá rekstrardeild íslandsbanka. Þar var hann ánægður. Þar fann hann starf sem hann ætlaði sér til fram- búðar. Sigurður var hreinskiptinn mað- ur og traustur í viðkynningu. Hann var hjálpsamur og raungóður í hveiju sem á gekk en glettnin var aldrei langt undan þegar við átti. Hann heiðraði okkur íjölskyiduna með nærveru sinni öll sín full- orðinsár. Fyrir það viljum við þakka. Við kveðjum Sigga með Virðingu okkar og sárum söknuði. Sigurður Bergsson lifði of skammt. Við það fær enginn ráðið. En hann skilaði sínu dagsverki. Við vottum Grétu Maríu og börn- um hennar dýpstu samúð okkar. Við þekkjum samstöðu þeirra og vitum að þau styrkja hvert annað í sameiginlegri sorg eftir góðan föður og eiginmann. Brynjar Víborg. Hvert ferðinni er heitið er lýðnum ei ljóst því enginn veit áttir né tíð og lífið er gáta sem lokkar en aldrei ræðst. Orð Jóhannesar úr Kötlum komu upp í huga okkar er við fréttum að Siggi væri látinn. Margs er að minnast eftir margra ára kynni. Það sem efst er í huga eru fundir okkar í sumar. Þá komum við ferðalang- arnir úr útlöndum heim, heim til fjölskyldu okkar. Siggi, Gréta Mæja og tvíburarnir komu í Sólheimana til að hitta „útlendingana". Það var auðsætt að lífið lék við þau. Með glettni í augum og sól í sinni gaf Siggi af sér og tók á móti. Þannig munum við Sigga. Við kveðjum kæran mág og svila með sorg í hjarta og þökkum sam- fylgdina hér á jörðu. Elsku Gréta Mæja, Dísa, Garðar, Fanney, Brynja og Drífa, við send- um ykkur okkar innilegustu samúð- arkveðjur við fráfall ástkærs eigin- manns og föður. Hugur okkar er með ykkur. Garðar, Fanny, Njörður, Tómas og Margrét. Sigurði kynntist ég fyrir 12 árum síðan þegar við urðum ná- grannar og við ásamt næstu ná- grönnum ákváðum að standa sam- an við að girða kringum húsið okkar. Þessi fyrstu kynni mín af Sigurði urðu mjög eftirminnileg. Hann var rammur að afli ákaflega stilltur og geðgóður og með mikla kímnigáfu. Girðingarvinnan sóttist því mjög vel með mann eins og Sigurð innanborðs. Kynni okkar héldu áfram og urðu það margar samverustundirnar með Sigurði og öðrum nágrönnum úti á bílaplani að skeggræða og gera að gamni sínu. Sigurður var þannig nágranni að maður gekk ekki fram hjá hon- um öðruvísi en að láta hann vita hvernig maður hefði það eða að skrafa við hann að öðru leyti og láta einhvern léttan fjúka. Dætur Sigurðar urðu góðar vinkonur dætra minna og því tengdust fjöl- skyldur okkar góðum böndum. Sigurður var heilsugóður og stundaði reglulega íþróttir og því kom fregnin um fráfall hans eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég hitti hann tveimur dögum áður og spurði hann hvenær ég ætti að taka tvíburðadætur hans með mér í sveitina. Hann þáði boðið hið snarasta og Sagði að við skildum ræða nánar um það á sumri kom- anda. Nú þegar Sigurður er genginn finnum við nágrannar hans.hversu mikils við höfum misst. Við hjónin vottum eiginkonu hans, Grétu Garðarsdóttur, Fanneyju, Bergdísi, Garðari og tvíburunum Brynju og Drífu okkar dýpstu samúð. Leyf mér að gista í garði þínum því ég næ ekki háttum hjá sumarnóttinni þegar þú vaknar verð ég á braut en skil eftir lága rodd í tijánum. (Höf.: Sigvaldi Hjálmarsson). Jón Egill Unndórsson og Ólöf Elfa Sigvaldadóttir. Það er ekki ósjaldan að maður er minntur harkalega á að ekkert skal tekið sem gefið í lífinu. Þegar kvaðst er að kvöldi er ekkert sem segir að við munum hittast að morgni. Enginn veit hver annan lifir, þar ræður ekki aldur, þar ræður annar för. Þessi hugsun sækir að okkur vinnufélögum Sigurðar, nú þegar hann er kvadd- ur. Hann gerði sér ætíð far um að skilja við samskipti dagsins með bros á vör og var sérlega glaður að kvöldi síðasta vinnu- dags. Það gætir ætíð spennu þegar maður hefur störf á nýjum vinnu- stað. Hvernig verður mér tekið, fell ég inn í hópinn? Allir starfs- menn þeirra fjögurra banka er sameinuðust í Islandsbanka upp- lifðu þetta hver á sinn hátt. Við starfsmenn rekstrardeildar bank- ans komum úr öllum bönkunum íjórum. Spenna var í mönnum. Vitað var að mikið starf væri framundan. Hvernig myndi það ganga? Hvernig eru væntanlegir vinnufélagar? Myndi hópurinn ná saman? Þessar spurningar og margar fleiri vöknuðu. Nú tæpum þrem árum seinna vitum við að allt gekk mjög vel. Mikil samstaða skapaðist. Énginn var að velta sér upp úr fortíðinni, allir sameinuðust við að leysa verkefni líðandi stund- ar._ Á stundu sem þessari, við frá- fall eins úr þessum samhenta hópi, minnumst við þess hve þáttur Sig- urðar var stór í að skapa það góða andrúmsloft er ríkir hjá okkur í rekstrardeildinni. Aldrei féll styggðaryrði af hans vörum, alltaf leitað að því jákvæða eða vanda- málum slegið upp í grín. Ef ekki vildi betur var kastað fram góðri stöku. Sigurður hafði sinn „stíl“ og verður okkur eftirminnilegur fyrir það. Jafnvel í hinum mestu önnum gaf hann sér tíma til að spjalla og velta fyrir sér lífinu og því sem hæst bar hverju sinni. Hversu alvarlegt sem málefnið var lauk samræðum ætíð með því að Sigurði tókst að fá viðmælanda sinn til að brosa. Við minnumst þessa og vonum að jákvætt lífsvið- horf Sigurðar veiti aðstandendum hans stuðning, nú þegar sorgin sækir að, því minningin um þann sem kveður er okkur dýrmæt. Starfsfélagar í rekstrardeild íslandsbanka. * ! DAG ' Reykt laxagjöf með spergilkálmús (fyrir 8-10 manns) Reyktur lax i sneiðum, 1 kg, 1/2 lítri af spergilkálsmauki ásamt soði 5 matarlímsblöð, bætt útí meðan maukið er heitt, 3dl rjómi, þeyttur MaukiíS sett í kæli og látið kólna, sí5an er stífþeyttum rjómanum bætt útí. Reykti laxinn er settur í form sem búi5 er a5 þekja a5 innan me5 álpappír. Laxasneiðarnar þurfa a5 ná vel yfir brúnina á forminu til a5 þekja vel yfir 1 1 J spergilkálsmaukið þegar það er komið í formið. Álpappírnum er vafið yfir og formið \ sett í kæli til að músin nái að stífna. Eftir að músin er orðin stíf er laxinn tekinn úr forminu og skorinn í sneiðar, skorið er á ská. Borið fram með salati, vinaigrette sósu og blönduðum kavíar. Geymið uppskriftina og hlustið á meislurakokkana í þæltinum "Rokk og rólegheit" efTtir hádegi í dag. Hringið með spurningar og spjall um rétt dagsins við kokkana. Shniim er 67 11 11. Heppnum hlustendum er boðið í mat á Setrinu, Holiday Iim. ^YVKV RETTUR DAGSINS FRA MEISTARAKOKKUM HOLIDAY INN ✓ A þriðjudögum og föstudögum í mars verða meistarakokkar Holiday Inn hjá Sigurði Ragnarssyni á Bylgjunni kl. 12:30 og leiða hlustendur í gegnum uppskrift dagsins. Fylgist með á Bylgjunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.