Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992
33
Kveðjuorð:
Ásgeir R. Jónasson
Fæddur 11. júní 1955
Dáinn 8. mars 1992
Kveðja:
Pálmi Pálsson bóndi
Besti vinur minn er dáinn. Hann
var raunar vinur allra sem hann
þekktu, þetta staka ljúfmenni sem
öllum reyndi að gera til hæfis og
kunni ekki að segja nei ef til hans
var leitað.
Það liti út sem oflof og skjall að
telja upp allt það góða og ljúfa í
fari hans, og því mun ég ekki reyna
að setja það allt á blað í stuttri grein
í minningu hans.
Það var ótrúleg harmafregn þegar
okkur var tilkynnt um lát hans
sunnudagskvöldið 8. mars. Einungis
rúmum sólarhring áður var hann við
vinnu sína og sló ekki slöku við frek-
ar en fyrri daginn, og kenndi sér
hvergi meins, eða þá að hann lét
ekki á því bera fyrr en í fulla hnef-
ana.
Hann var óvenjulega mikið
hraustmenni og seigur með afbrigð-
um og því kemur þetta ótímabæra
fráfall hans öllum gjörsamlega í
opna skjöldu.
Hans áhugamál voru íjölmörg,
allt frá ljóðum, tónlist og fleiri and-
ans málum, en þó var áhugi hans á
sjálfri náttúrunni, þ.e. ijöllunum,
gróðrinum og dýrunum, öðrum mál-
um yfirsterkari. Mér er það ákaflega
minnisstætt þegar við Geiri, ásamt
konum okkar og börnunum hans
tveimur, ákváðum fyrir tveim árum
að skreppa á fjöll eins og það er
kallað, að þegar upp á hálendið var
komið þá kom í ljós að hann hafði
í sínum gríðarlega áhuga lært nán-
ast öll fjallanöfn, örnefni pg ár sem
urðu á leið okkar þessa þijá daga á
fjöllum, áður en við lögðum af stað.
Við hefðum ekki þurft neitt kort,
hann var búinn að grandskoða það
og læra það heima.
Það lék flest í höndum hans og
hann gerði flesta hluti sjálfur hvort
sem var við heimilið sitt eða við
vélar og annað þess háttar. Hann
vann lengst af hjá Kaupfélagi Ey-
firðinga, en hafði þó unnið ýmis störf
til sjávar og sveita áður.
Frá áramótum síðustu starfaði
hann hjá Bæjarverki, fékk frí hjá
KEA sér til tilbreytingar um tíma.
Sá er þetta ritar var svo lánsamur
að fá að kynnast Geira vel, við vor-
um svilar, og ég verð að segja að
alltaf sat spaugilega hliðin í fyrir-
rúmi hjá okkur félögum, það var svo
auðvelt að vera í góðu skapi þegar
hann var nálægur, því hann hafði
ómælt skopskyn. Hann var ótrúlega
þolinmóður og góður faðir, það var
nánast ekki til það verkefni sem
börnin fengu ekki að taka þátt í,
og þá sér í lagi sonurinn ungi, sem
hafði ómældan áhuga á öllu því sem
pabbi hans tók sér fyrir hendur. Fjöl-
skyldan var samhent og hamingju-
söm.
Eftirlifandi konu hans, Höllu
Ániadóttur, og börnunum þeirra
tveim, þeim Silleyju Hrönn, sem á
að fara aj) fermast nú um páskana,
og Fannari Geir á tólfta ári, verður
fráfall hans gífurlegur missir, og það
er höggvið stórt skarð í fjölskylduna
í Steinahlíð 5i og ég vona að Guð
gefi þeim kraft til að sigrast á mót-
lætinu og vinna bug á sorginni.
Manni finnst á svona stundum að
T
ekkert réttlæti sé til í þessum heimi
eða hjá almættinu, en það er erfitt
að skilja gang lífsins hérna megin
móðunnar miklu, en ef til er fram-
hald hinum megin er víst að Ásgeir
starfar við hlið hinna bestu.
Elsku Halla, Silley og Fannar, við
samhryggjumst ykkur af heilum
hug.
Og fyrir þeirra hönd var ég beðinn
að flytja öllu því fólki sem hefur
verið þeim innan handar síðustu
daga alúðarþakkir. Sérstakar þakkir
til starfsfólks gjörgæsludeildar FSA
og til læknanna Jóns Þórs, Girish,
Friðriks og Péturs Péturssonar, sem
gerðu allt sem mögulegt var að gera
og til þeirra séra Birgis og Gunn-
laugs Garðarssonar sem studdu þau
ómetanlega í sorg þeirra.
Megi Guð blessa ykkur fyrir
gæsku ykkar allra.
F.h. fjölskyldunnar í Eikarlundi 1,
Krislján Gunnarsson.
Hinn 19. febrúar sl. lést á heim-
ili sínu elskulegur tengdafaðir
minn, Pálmi Pálsson, bóndi á
Hjálmsstöðum.
Pálmi fæddist að Hjálmsstöðum
6. júní 1911, ólst þar upp og hefur
alltaf átt þar heima. Hann giftist
Ragnheiði Sveinbjörnsdóttur 3. júlí
1942 og hefðu þau því átt 50 ára
hjúskaparafmæli í sumar.
Fjölskyldan er stór og sérstak-
lega samhent, hvort sem er í leik
eða starfi. Á heimili Pálma og
Rönku var oft margt um manninn
og mikil gestakoma enda heimilið
vinamargt.
Pálmi var skemmtilegur maður
og laðaði að sér fólk, ekki hvað
síst ungt fólk. Hann var glaðsinna,
hafði gaman af að skreppa þangað
sem svolítið líf var og hitta góð-
vini, en staldra stutt við, því heima
leið honum best. Hann hafði
ánægju af fallegum söng, og átti
gott með að setja saman vísur.
Pálmi var glettinn og dálítið stríð-
inn, hann gat stundum verið
óþægilega hreinskilinn, en var líka
réttsýnn maður og tilfinninga-
næmur.
Margar notalegar stundir hef
ég átt við eldhúsborðið hjá Pálma
og Rönku, að spjalla eða spila og
oft stríddi hann okkur á því að við
værum svo tapsárar.
Nú röltir hann ekki oftar til mín
með stríðnisglampa í augunum að
færa mér „heimspekina", en það
kallaði hann Morgunblaðið gjarn-
an, spyija frétta eða kíkja í pott-
ana og gá hvað ég væri að elda.
Það er erfitt að sætta sig við að
sjá hann ekki oftar á vappi á fjós-
hlaðinu, við skúrinn sinn, að bóna
bílinn eða að dytta að netunum
sínum.
Pálmi var vinnusamur maður og
eru ekki ófá handtökin sem hann
hefur rétt okkur bæði við húsbygg-
inguna og búskapinn. Hugur hans
og hönd hefur verið okkur mikið
leiðarljós í upphafi búskapar á
Hjálmsstöðum.
Sá tími er ómetanlegur og má
kalla það forréttindi, að börnin
okkar hafi átt þess kost að alast
upp í sveitinni í næsta húsi við afa
og ömmu. Elstu barnabörnin hafa
bytjað sína fyrstu vinnu hjá afa
og lært af honum handtökin, hvort
heldur var við heyskap, girðingar-
vinnu, hirðingu á skepnunum eða
legja net og vitja um svo eitthvað
sé nefnt.
Pálmi var ekki bara tengdafaðir
minn, heldur einnig besti vinur sem
nú er sárt saknað af heimilinu.
Elskulegri tengdamóður minni
votta ég mína dýpstu samúð og
veit að við eigum eftir að eiga
saman góðar stundir héðan í frá
sem hingað til.
Blessuð sé minning góðs vinar.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem)
Fanney Gestsdóttir.
/■//////Stffo
■///■■■■\-///r//////////jWy.-
S K I
DÁGAR
20-50
afsiáttur
skíðavorum
20. MARS - 5. APRÍt
ISðTbÍndÍngÁrTskÍðÁskóR-
SK'S.r,skíðafatnaður,
cwíf>\GLERAVJGVJ. _
Vertu velkominn á skíðadagana.
*staðgreitt
SNORRABRAOT 60 SÍMH2045