Morgunblaðið - 20.03.1992, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992
43
GRÝL UKERTI
Grýlukertin verða stór og mikil í frosti
eins og verið hefur að undanförnu.
Krossinn við Kúagerði
Frá Einari Ingva Magnússyni:
Á Keflavíkurveginum við Kúagerði
hafa orðið mörg dauðaslys á undan-
förnum árum. Þarna er beygja á
veginum og auk þess myndast hálka
þarna, sem gerir það að verkum að
bílstjórar missa farartæki sín útaf
með fyrrgreindum afleiðingum, því
miður allt of oft. Þarna væri því
ekki úr vegi að lækka hámarkshraða
með tilheyrandi umferðarskiltum
rétt á meðan verið er að keyra þarna
um, því svo var mér kennt í meira-
prófí að ökuhraðinn væri oftast or-
sök slysa á vegum úti.
Við Kúagerði var settur upp lítill
kross til minningar um þá sem dáið
hafa á þessum stað en einnig til að
minna ökumenn á hættuna og þá
ábyrgð sem þeir hafa er þeir fara
þennan fjölfama þjóðveg. Leið mín
hefur legið um þennan veg undan-
farið, og þá oftar í myrkri en dags-
ljósi enda dagurinn búinn að vera
stuttur í skammdegismyrkri. Þá hef
ég litið eftir krossi þessum sem
hvergi er að sjá. Nú vil ég beina
orðum mínum til þeirra, sem settu
upp þetta umhugsunarverða tákn,
hvort ekki sé hægt að setja á kross-
inn endurskinsplötur svo vegfarend-
ur komi frekar auga á hann. Það
væri ef til vill hollt heilsu þeirra að
fá að sjá krossmerkið lýsa til sín í
myrkrinu.
EINAR INGVI MAGNÚSSON
Heiðargerði 35 Reykjavík
VELVAKANDI
KERRA
EMMALJUNGA kerra gleymd-
ist til móts við Kolaportið, föstu-
daginn 6. mars. Vinsamlegast
hringið í síma 687059 ef hún
hefur fundist.
PÁFAGAUKUR
BLÁR og hvítur páfagaukur
tapaðist 4. mars. Vinsamlegast
hringið í síma 78338 ef hann
hefur einhvers staðar komið
fram.
ÁBYRGÐAR-
LEYSI?
Jón Pálsson
HVAÐ eru þessir menn að hugsa
sem alltaf er verið að leita að
upp um fjöll og firnindi? Er þetta
ekki ábyrgðarleysi? Er nokkur
þörf á því að vera á ferð um
hálendið um hávetur þegar allra
veðra er von? Það eru sendar
út flugvélar og þyrla til að leita
að þeim og fjölmennar björgun-
arsveitir eru einnig kallaðar út.
Kostnaðurinn er auðvitað mjög
mikill og björgunarmenn hætta
lífinu eins og flugmaður og
áhöfn þyrlunnar sem bjargaði
manninum á Langjökli. Ér ekki
mál að þessu linni?
KÖRFUBOLTA-
SKÓR
HINN 10. mars voru nýlegir
Reebok körfuboltaskór nr. 38
teknir en skildir eftir slitnir skór
af sömu tegund nr. 36.5 í karla-
klefa Sundlaugar Kópavogs. Sá
sem í hlut á er vinsamlegast
beðinn að skila skónum í af-
greiðslu Sundlaugar Kópavogs.
VESKI
SEÐLAVESKI með skilríkjum
tapaðist í Bláfjöllum, sunnudag-
inn 1. mars. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að skila því heim
til eiganda (heimilisfang á skil-
ríkjum) eða skila því á skrifstof-
una í Bláfjallaskála.
ÚR-
BINDISNÆLA
SEIKO úr og silfurnæla með
gullrönd tapaðist laugardaginn
14. mars. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í Þor-
kel í síma 685633. Fundarlaun.
Kynnið
dagskrá
Alþingis
Frá Erlu Kristjánsdóttur:
Það er talið sjálfsagt að fjölmiðlar,
sjónvarp útvarp og dagblöð upplýsi
þjóðina um hvað eina sem á döf-
inni er hverju sinni, enda eru þeir
kostaðir og styrktir með almanna-
fé: En hvernig er staðið að þessari
upplýsingaskyldu í reynd?
Fjölmiðlar færa okkur fréttir af
liðnum atburðum, bæði innlendum
og erlendum. Þeir færa okkur
ýmislegt afþreyingarefni, misjafn-
lega gott eins og gengur, að
ógleymdum auglýsingunum sem
eingöngu þjóna markaðinum. Svo
eru það veðurfregnirnar sem eru
auðvitað nauðsynlegar og kynn-
ingar á dagskrárliðum fjölmiðl-
anna, útvarps og sjónvarps. Er
upplýsingaskyldunni fullnægt með
þessu? Ég tel ekki svo vera meðan
almenningur fær ekki kynningu á
dagskrárliðum Alþingis. 4^ v'su
er hægt að fara í Alþingishúsið
og fá afrit af dagskránni hveiju
sinni en hitt væri ólíkt þægilegra
að geta fylgst með hanni daglega
í íjölmiðlum. Ég beini eindregnum
tilmælum til allra fjölmiðlana að
kynna með nægum fyrirvara dag-
skrá þingsins á auðskiljanlegu
máli svo við, þegnar þessa lands,
getum á auðveldan hátt farið að
fylgjast betur með störfum Alþing-
is og fáum tækifæri til að láta
skoðanir okkar í ljós áður en kjörn-
ir fulltrúar okkar taka miklvægar
ákvarðanir fyrir okkar hönd. Ef
fjölmiðlarnir taka fljótt við sér í
þessu efni þurfum við varla að bíða
lengi eftir að fólk almennt meti
það, finni til ábyrgðar og geri sér
grein fyrir mismuninum á forræði
og lýðræði.
ERLA KRISTJÁNSDÓTTIR
Hjallalandi 22 Reykjavík
Aðalfundur
var hald-
inn 1991
Frá Dagbjarti Sigurðssyni:
Vegna greinar sem ég skrifaði í
Morgunblaðið 25. febrúar sl., vil ég,
að gefnu tilefni, biðja blaðið að birta
eftirfarandi útskýringar til að koma
í veg fyrir misskilning.
I grein minni stendur m.a.:
„Stjórn Veiðifélags Mývatns hefur
brugðist. Hún hefur aldrei boðað
til fundar í félaginu um þessi mál
og reyndar e_kki haldið aðalfund í
ein tvö ár. Út á við gefur hún í
skyn að starfsemi Kísiliðjunnar
muni vera hættuleg og lætur sem
hún geri það í umboði félagsins.
Það er alveg fráleitt, þar sem mik-
ill meirihluti félagsmanna hefur
undirritað álit sem er gagnstætt
stjórn félagsins. Hvort er marktæk-
ara, 2/a hlutar félagsmanna eða
umboðslaus stjórn sem ekki boðar
félagsfundi."
Hægt er að misskilja þessa máls-
grein og því rétt að fram komi, að
aðalfundur var haldinn í veiðifélag-
inu í marsmánuði árið 1991, en tvö
næstu ár þar á undan var ekki
haldinn aðalfundur í félaginu. Sú
stjóm er nú situr er því réttilega
kjörin á þessum síðasta aðalfundi
félagsins.
Þegar ég tala um umboðslausa
stjóm í lok málsgreinarinnar er ég
að draga í efa að eðlilegt geti talist
að stjóm félags hafi umboð til að
túlka stefnu félagsins út á við þeg-
ar 2A hlutar félagsmanna hafa und-
irritað yfirlýsigu um að þeir séu
stefnu stjórnarinnar andvígir.
DAGBJARTUR SIGURÐSSON,
Álftagerði 2, Skútustaðahreppi.
Þessar dömur héldu hlutavetu fyrlr allöngu og söfnuðu 2628 krónum
sem þær gáfu hjálparsjóði Rauka krossins. Þær heita Ester Anna
Pálsdóttir, Lilja Björk Sigurdórsdóttir, Nína Þórunn Sigurdórsdótt-
ir, Birna Pálsdóltir og Sigríður Kolbrún Jóhannesdóttir.
STÆRSTA BIOIÐ,
ÞAR SEM BEST FER UM ÞIG,
BREYTIR UMÁSÝND!
HÁSKOLABÍO
Nýtt fyrirtækismerki - minnir þig á gæðabíóið
Góð stund verður betri!
Nýtt kaffihús - staðurinn fyrir stefnumót
Fyrir auga og eyra!
• Hljóökerfi í hæsta gæðaflokki!
® Stærstu bíótjöld landsins!
® Hvergi þægilegri og rýmri sæti!
• Næg bílastæði!
PAÐ ER SAMA í HVAÐA SAL PÚ SITUR
- SÆTI, TJALD OG HLJÓÐ ER ALLS STAÐAR
FYRSTA FLOKKS, OG EYKUR PANNIGÁ
GÓÐA UPPLIFUN!
HASKÓLABIÖ
SÍMI22140