Morgunblaðið - 20.03.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992
45
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN
ff
Flugeldasýning" í Unz
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
frá Linz
ÍSLENDINGAR voru með hálf-
gerða flugeldasýningu í Linz,
þar sem þeir skoruðu mörk í
öllum regnbogans litum gegn
slökum Hollendingum og unnu
öruggan sigur, 30:20. Sigurinn
hefði hæglega getað orðið
stærri. íslendingar voru seinir
í gang og, náðu síðan mest 12
marka forskoti, 17:15, en slök-
uðu síðan á undir lokin.
Bergsveinn Bergsveinsson varði
vel í markinu og þá var Geir
Sveinsson mjög sterkur í vöm og
sókn, en það var
skemmtilegt að sjá
samvinnu hans og
Sigurðar Sveinsson-
ar í sókninni, þegar
Sigurður átti ótrúlegar sendingar
inn á línuna til Geirs, sem greip
örugglega og skoraði.
Allir leikmenn íslenska liðsins
fengu að spreyta sig og kunnu þeir
svo sannarlega að meta það að
hafa náð góðum tökum á Hollend-
ingunum. Strákarnir þurftu stund-
um að hafa lítið fyrir hlutunum og
skiluðu allir hlutverkum sínum vel.
Mörkin skiptust þannig að 8
mörk voru skoruð með langskotum,
sex eftir gegnumbrot, sex eftir
hraðaupphlaup, fímm af línu, þrjú
úr vítaköstum og tvo úr hornum.
Fjögur vítaköst Islendinga nýttust
ekki í leiknum.
Sóknarnýtingin var 46,1% í fyrri
hálfleik — tólf mörk vora skoruð
úr 26 sóknarlotum, en 18 mörk
voru skoruð úr 29 sóknarlotum í
seinni hálfleik, sem er 62% nýting
og þrátt fyrir nokkurt kæraleysi á
köflum. Alls var sóknamýtingin
54,54% í leiknum — þijátíu mörk
voru skoruð úr 55 sóknarlotum.
Auglýsingar mátlu
ekki vera á ermum
Þórður Sigurðsson, ritari HSÍ, var ekki ánægður á fundi
forráðamanna landsliðanna sem leika hér í Linz með
mönnum frá Alþjóða handknattleikssambandinu, IHF. Þórð-
ur barði í borðið og mótmælti þegar honum var tilkynnt
að íslenska liðið mætti ekki leika með auglýsingu frá Lands-
bankanum á ermum keppnistreyjanna.
„Þeir hjá IHF eru sv^kktir eftir að þeir gátu ekki sjálfir
selt auglýsingar á ermar liðanna og á bak búninganna.
Þeir hafa látið það bitna á þeim þjóðum sem leika hér,“
sagði Þórður. Auglýsingarnar voru teknar af emiunum í
gær og færðar á hliðar keppnisbuxnanna.
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska liðsins, lék mjög vel gegn Hollendingum. Var sterkur í vörn og samvinna hans
og Sigurðar Sveinssonar í sókninni var góð.
Spörum mörg leikkerfi
þar til gegn IMorðmönnum
- sagði GeirSveinsson, íyrirliði íslenska liðsins
Island-Holland30:20
íþróttahöllin í Linz. B-keppnin i
handknattleik í Austurríki, fimmtu-
dagur 19. mars 1992.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:6, 6:6,
7:7, 9:7, 12:8, 12:9. 13:9, 16:11,
21:11, 23:15, 27:15, 27:16, 28:18,
30:20.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson
6/2, Sigurður Sveinsson, 5/1, Jonráð
Olavson 4, Héðinn Gilsson 4, Geir
Sveinsson 4, Gunnar Gunnarsson 3,
Sigurður Bjarnason 2, Kristján Ara-
son 1, Bjarki Sigurðsson 1, Birgir
Sigurðsson.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveins-
son 17, Guðmundur Hrafnkelsson.
Utan vallar: 2 mín.
Mörk Hollands: Veerman 7/1,
Schuurs 4, Fiege 3/2, Jaccbs 2, Gro-
ener 1, Nijdam 1, Hagreize 1.
Varin skot: Mastenbreck 7/2.
Utan vallar: 4 min.
Áhorfendur: Um 500.
Dómarar: Vorderleitner og Wille
Helmut frá Austurríki.
„Eg var mjög ánægður með þannan leik — að við náðum að
leggja Hollendinga með tíu mörkum. Það er Ijómandi góður
árangur og ef maður lítur til baka þá hefði sigurinn getað orðið
stærri, en við náðum ekki að nýta fjögur vítaköst og annað eins
ef ekki meira af dauðafærum," sagði Geir Sveinsson, fyrirliði
íslenska landsliðsins, þegar Morgunblaðið bað hann að lýsa
leiknum frá sjónarhorni leikmanns.
|ér fannst leikurinn þróast
ágætlega. Það var góður
stígandi hjá okkur fyrir utan fyrstu
tíu mínútur leiksins. Eftir fimmtán
mínútna hikst fór vörnin að vinna
betur saman og við náðum góðum
hraðaupphlaupum. Annars bar leik-
urinn þess merki að þetta var fyrsti
leikur okkar, en það hefur lengi háð
okkur hvað við höfum verið lengi
að fara á ferðina og verið lélegir í
fyrstu leikjum okkar á mótum sem
þessu. Sem betur fer fór þetta vel
og tíu marka sigur er nokkuð sem
ekki margir áttu von á. Sigurinn
er mjög gott vegamesti ef Hollend-
ingar fara með okkur í milliriðil."
Lékum ekki mikið af
leikkerfum
Við lékum ekki mikið af leikkerfum
í leiknum. Sóknarleikur okkar var
frjáls og það leiddi til þess að Sig-
urður Sveinsson fékk að njóta sín.
Það var ekki nóg að hann gerði
mörg falleg mörk, heldur átti hann
margar frábærar línusendingar sem
gáfu mörk og vítaköst. Gunnar
Gunnarsson stjórnaði sóknarleikn-
um mjög vel. Þá stjórnaði Kristján
Arason vörninni sem hershöfðingi
og var þar sem klettur. Þá skilaði
Héðinn Gilsson hlutverki sínu ljóm-
andi vel og Sigurður Bjarnason kom
sterkur inn þær tíu mínútur sem
hann lék undir lokin. Birgir Sigurðs-
son og homamennirnir Konráð
Olavson, Valdimar Grímsson og
Bjarki Sigurðsson áttu einnig góðan
dag, svo ekki sé minnst á Berg-
svein Bergsveinsson sem stóð sig
eins og hetja í markinu. í heildina
var þetta góður sigur liðsheildarinn-
ar — þar sem allir nutu sín og keppt-
ust við að hafa gaman af því sem
þeir voru að gera.
Það kom í ljós að það markmið
sem við höfum verið að tala um
þessa daga í Linz — að hafa gaman
af þessu — hafi gengið upp.“
— Áttu þá von á því að þið sparið
einnig leikkerfin í leiknum gegn
Belgíumönnum?
— „Já, ég reikna fastlega með því.
Við eigum eftir að skoða leik Belg-
íu gegn Danmörku nánar á mynd-
bandi og sjá þá út nákvæmlega
hvernig Belgar leika. Við munum
ekki leika kerfin eins stíft gegn
þeim eins og við þurfum til dæmis
að gera gegn Norðmönnum. Við
eigum margt gott, sem við sýndum
ekki gegn Hollendingum og sýnum
ekki gegn Belgíumönnum. Norð-
menn fá að glíma við leynivopn
okkar,“ sagði Geir.
■ BJARKI Sigvrðsson skoraði
fallegt mark úr horni, 29:19, gegn
Hollendingum. Þulur hjá Euro-
sport, sem lýsti leiknum, sagði að
þessi leikmaður minnti sig á Jochen
Fraatz hjá Essen.
■ EKKERT verður leikið í dag í
B-keppninni, en Islendingar leika
gegn Belgíumönnum á morgun,
og Norðmönnum á sunnudaginn.^
■ „EG gat ekki annað en skorað
þegar ég var kominn í hraðaupp-
hlaup,“ sagði Kristján Arason, en
Þorbergur landsliðsþjálfari kallaði
á hann og sagði honum að koma
strax útaf, áður en hann skoraði.
Vinstri öxl Kristjáns var kæld nið-
ur eftir leikinn. Hann sagði að hann
ætti enn nokkuð í land til að geta
skotið almennilega. „Ég get ekki
skotið fast þessa dagana og því
ekki hægt að kalla mig stórskyttu."
U BERGSVEINN markvörður
var fljótur í sturtu og að klæða sig
eftir leikinn. Hann mætti tímalega
fyrir leik Noregs og Belgíu til að
kortleggja skot leikmanna liðanna.
B-keppnin í Austurríki
A-riðill:
ísland - Holland.....................30:20
Norgur - Belgía.....................24:19
B-riðill:
Danmörk - Egyptaland................22:17
Pólland - ísrael.....................26:19
C-riðill:
Argentína - Kína................... 21:24
Sviss - Búlgaría.....................21:16
D-riðill:
Austurríki - Japan...................29:12
Finnland - Bandaríkin...............26:14
Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari:
„Ótrúlega auðweK
&í
Þetta var ótrúlega auðvelt. Ég
hafði reiknað með erfiðum leik
þar sem Hollendingar myndu veita
okkur harða keppni í heilar sextíu
mínútur. Það var ótrúlegt hvað þeir
voru fljótir að gefa eftir — sérstak-
lega eftir við þéttum varnarleik okk-
ar og klipptum á skyttur þeirra,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson, sem
stjórnaði íslenska liðinu í þréttanda
leiknum í röð án taps.
„Við förum nú að hugsa um næsta
leik — gegn Belgíumönnum, því að
hann getur einnig haft mikla þýð-
ingu þar sem Belgíumenn geta unn-
ið Hollendinga og komist þannig
áfram í milliriðil. Þá færum við ekki
með tíu marka muninn með okkur
gegn Hollandi.
- Nú var Valdimar Grímsson
lengi að átta sig á hlutunum. Hvers
vegna settir þú ekki Bjarka Sigurðs-
son inná fyrr?
„Ég var ákveðinn að örvænta
ekki þó að leikmenn væru lengi í
gang. Ég vissi að Valdimar myndi
jafna sig og hann fór heldur betur
á ferðina í seinni hálfleik. Þegar
Valdimar var búinn að finna sig taldi
ég rétt að láta Bjarka fá að spreyta
sig.
- Það tók Sigurð Sveinsson einnig
góðan tíma að komast í gang.
„Já, en það er eðlilegt. Hann hef-
ur aðeins æft með okkur fjórai' til
fimm æfingar eftir að hann kom á
nýju inn í hópinn. Þegar hann kom
inn í sóknarleikinn var hann of bráð-
ur. Þegar hinir leikmennirnir vildu
aðeins ná andanum eftir langar
sóknarlotur Hollendinga, þá vildi
Sigurður fara á ferðina. Éftir að við
vorum búnir að lagfæra þetta gekk
Sigurði miklu betur í seinni hálfleik.
Það var einnig erfitt fyrir Héðinn
að koma inn, en hann hefur lítið
leikið með okkur undanfarið ár. Ég
ákvað að gefa honum eins mikinn
tíma og ég taldi nauðsynlegt. Þegar
Héðinn var orðinn vel heitur setti
ég Sigurð Bjarnason í stöðu hans
og hann gerði góða hluti.
Ég var mjög ánægður með margt
sem strákarnir gerðu,“ sagði Þor-
bergur.
- Nú er ljóst að Júlíus leikur
með. Er það ekki léttir fyrir þig?
„Jú, því er ekki hægt að neita.
Ég er mjög ánægður um að umræð-
unni um hvort Júlíus eða Alfreð
Gíslason komi sé lokið. Nú snúum
við okkur að alvörunni.“
Var búinn að kort-
leggja skot þeirra
- sagði Bergsveinn Bergsveinsson sem
sá við Hollendingum og varði 17 skot
„ÞAÐ var gaman hve vel gekk. Ég var búinn að horfa oft á
myndband með leikjum Hollendinga og var búinn að kort-
leggja skot þeirra,“ sagði Bergsveinn Bergsveinsson, mark-
vörður, sem varði vel í gærkvöldi.
Eg var svo öraggur með hvar leikmenn Hollands skutu fyrir utan,'
að stundum var ég kominn á staðinn þar sem þeir ætluðu að
skjóta, en áður fór knötturinn í varnarvegg okkar og breytti stefnu
og hafnaði í netinu. Ég var þá of fljótur á mér,“ sagði Bergsveinn.
„Bergsveinn varði vel og stóð vel undir þeirri pressu sem var á
honum. Við vorum búnir að fara vel yfir hvernig Hollendingar léku
og hvaðan skot þeirra komu. Bergsveinn var vel með á nótunum —
hélt fullum dampi út leikinn. Hann hefur varið vel að undanförnu og
var búinn að vinna fyrir því að leika í markinu. Við treystum honum
fullkomlega," sagði Einar Þoi-varðarson, aðstoðarlandsliðsþjálfari og
fyrram markvörður Islands númer eitt.
'