Morgunblaðið - 20.03.1992, Page 48

Morgunblaðið - 20.03.1992, Page 48
LYKILUWM \l» GÓDL KVÖLOI MOKGUNBLADID, ADALSTKÆTI 6, 101 KEYKJA VÍK SÍMI 691100, StMBKÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUKEYRI: UAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Ályktun Alþingis: Viðskiptaráðherra undirbúi löggjöf um yfirtökutilboð ALÞINGI íslendinga samþykkti í gær með 36 samhljóða atkvæðum þingsályktunartillögu um að viðskiptaráðherra hefji nú þegar undirbún- ing að löggjöf um yfirtökutilboð og önnur almenn tilboð í hlutafélög til þess að vernda félagsmenn og aðra sem hagsmuna eigi að gæta. Viðskiptaráðherra skal leggja fram frumvarp um þetta efni á næsta haustþingi svo ný lög um þetta efni geti tekið gildi ekki síðar en 1. janúar 1993. Með yfirtökutilboði er vanalega átt við tilboð sem er gert í þeim til- gangi að ná virkum yfirráðum yfir nlutafélagi og er tilboðið skilyrt þannig að það gildir einungis ef nægilega margir hlutafar samþykkja að selja sinn hlut svo að tilboðsgjaf- inn nái þeim völdum sem hann sæk- ist eftir. Alþingismennirnir Matthías Bjarnsson og Eyjólfur Konráð Jóns- son standa að þeirri tillögu sem var . samþykkt í gær. I umræðum um þessa tillögu bentu flutningsmenn á það að hér á landi vantaði lög og reglum um yfirtökutilboð og almenn -^filboð í hlutafélög. Slíkar reglur hefðu tvíþættan tilgang. Annars veg- ar að vernda hagsmuni hluthafa Reykjavík: Tíu nýir á at- vinnuleysis- skrá daglega ALLS er 931 karl á atvinnu- leysisskrá í Reykjavík og 533 konur, eða samtals 1.464 manns. Um síðustu mánaða- mót voru 1.327 manns á at- vinnuleysisskrá í höfuðborg- inni og hefur þeim því fjölgað um 137 frá mánaðamótum, eða að meðaltali um 10,5 á hverjum virkum degi það sem af er mánuðinum. Gunnar Helgason hjá Ráðn- ingarstofu Reykjavíkurborgar sagði að ekkert hefði slegið á atvinnuleysi í borginni og miðað við spár og kannanir sjáist ekki nein batamerki fyrst um sinn þótt farið sé að nálgast vor. þeirra hlutafélaga sem yfirtökutilboð væri gert í. Hins vegar að hafa eftir- lit á því að einokunaraðstaða og sam- þjöppun valds á fárra hendur verði ekki til skaða á kostnað einstaklinga og þjóðfélagsins í héild. Matthías Bjarnason sagði gleðilegt að áhugi almennings á því að leggja fé sitt í almenningshlutafélög hefði á síðusfu árum farið vaxandi. Það væri mjög óheppilegt að einstakir aðilar gætu stjórnað slíkum félögum nánast eins og þeir ættu fyrirtækið allt, þótt þeir ættu ekki nema tiltölu- lega takmarkaðan hlut. Það væri orðið tímabært að setja reglur sem tryggðu það að einstaklingar eða lögaðilar gætu ekki náð völdum í. slíkum fyrirtækjum með því að kaupa nægjalegan hlut til yfirráða án þess að þeim væri um leið gert skylt að bjóða öðrum hluthöfum að kaupa þeirra hluti. Væri þetta ekki gert gæti sú staða hæglega komið upp að margir hluthafar sætu uppi með verðminni hlutabréf en þeir áttu fyr- ir yfirtökuna. Morgunblaðið/Einár Falur Njarðvíkingar bikarmeistarar NJARÐVÍKINGAR urðu bikarmeistarar karla og Haukastúlkur fögnuðu sigri í kvennaflokki í gær- kvöldi, en úrslitaleikirnir fóru fram í Laugardals- höll. Njarðvíkingar skoruðu 91 stig gegn 77 stigum Hauka í karlaflokki, og Haukastúlkur sigruðu lið Keflvíkinga óvænt en örugglega, 70:54. Á myndinhi hampar Ástþór Ingason fyrirliði Njarðvíkinga bik- arnum eftirsótta og félagar hans fagna. Kristján Pálsson bæjarstjóri Njarðvíkur horfir kátur á. Sjá íþróttir bls. 44-47. Christian Roth forstjóri ÍSAL: Verkalýðsfélög krafin um þau kjör sem þau bjóða Atlantsáli CHRISTIAN Roth, forstjóri ís- lenska álfélagsins í Straumsvík, segir það óljóst á þessari stundu hvort ISAL verði reiðubúið til þess að vera aðili að heildar- kjarasamningi aðila vinnumark- aðarins, takist slíkur samningur á næstu dögum eða vikum. ISAL hafi sett fram kröfur á hendur starfsmönnum, um að stjórnun- arréttur verði aukinn. Slíkt sé höfuðnauðsyn til þess að reka megi álbræðsluna í Straumsvík á viðunandi hátt. „Ég hef rætt við forsvarsmenn _Vei'ðmæti kvóta Hagræðing- arsjóðs rúmar 500 milljónir HEILDARVERÐMÆTI þess 11.400 tonna kvóta sem úthlutað verður úr Hagræðingarsjóði á næstunni nemur rúmlega 500 milljónum króna miðað við verð á kvótamarkaði í dag. Þessum kvóta verður úthlutað endurgjaldslaust þar sem ákvæði nýrra laga um Hagræðingarsjóð, sem kveða á um sölu á þessum kvóta, taka ekki gildi fyrr en 1. september nk. eða við upphaf næsta fiskveiðiárs. Um er að ræða botnfiskkvóta eingöngu og er honum úthlutað í samræmi við botn- fiskheimildir fiskiskipa. Stærstu útgerðirnar fá þannig rúmlega 4% ti sinn hlut eða um 20 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Skarphéðinssyni deildar- stjóra í sjávarútvegráðuneytinu voru gömlu lögin um Hagræðingar- sjóð þannig að kvóti sem safnaðist í hann vegna sölu á óunnum fiski erlendis fór að jöfnu til úreldingar fiskiskipa og sem veiðiheimildir til þeirra sveitarfélga sem stóðu höil- um fæti vegna sölu .skipa úr byggðalaginu. Með nýlegri laga- breytingu er hinsvegar kvótinn fastsettur við 12.000 tonn og tekjur af sölu þeirra heimilda eiga að renna til rekstrar Hafrannsóknar- stofnunar frá og með 1. september. Salan á 12.000 tonna kvóta Hag- ræðingarsjóðs eftir 1. september fer fram með tvennum hætti. I fyrsta lagi verðu sent út tilboð til allra kvótahafa þar sem þeim er boðinn kvóti í hlutfalli við aflaheimildir hvers skips á verði sem sjávarút- vegsráðherra ákveður. Ber ráðherra að taka tillit til almenns markaðs- verð á hvetjum tíma við ákvörðun sína. í öðru lagi verður svo um að ræða að ef allur kvótinn gengur ekki út á þennan hátt verða eftir- stöðvarnar boðnar út á almennum markaði og er reiknað með að það verði gert um þremur vikum eftir að frestur til forkaupsréttar rennur út. Sem fyrr segir fá útgerðarfyrir- tæki úthlutað af kvóta Hagræðing- arsjóðs í samræmi við botnfisk- heimildir sínar. Þannig fær Útgerð- arfélag Akureyringa 4,27% af kvót- anum eða 486 tonn að jafngildi rúmlega 20 milljóna króna miðað við almennt verð á þorskígildiskíló- inu á kvótamarkaði en það er nú 46 krónur. Hér verður að gera þann fyrirvara að miðað er við þorsk- ígildi en tegundasamsetning á kvóta Hagræðingarsjóðs getur ver- ið örlítið önnur en á botnfiskkvóta ÚA og öðrum fyrirtækjum sem hér verða talin upp. Samherji hf. hefur 3,26% af heildarbotnfiskkvótanum og fær því 371 tonn að verðmæti 17 milljónir króna. Grandi hf. hefur 3,18% af botnfiskkvótanum og fær því úthlutað 362 tonnum að verð- mæti 16,6 milljónir króna og ísfélag Vestmannaeyja hf. hefur 2,8% af botnfiskkvótanum og fær úthlutað 319 tonnum að verðmæti 14,6 millj- ónir króna. Vinnuveitendasambands íslands og greint þeim frá því að ef já- kvæð niðurstaða fæst í kjarasamn- ingum munuin við eiga fund með VSÍ, en hver afstaða okkar verð- ur, liggur ekki fyrir nú, enda fer hún auðvitað mjög eftir niðurstöð- unni,“ sagði Christian í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi. Christian sagði jafnframt: „Við höfum sett fram ákveðnar kröfur á hendur viðsemjenda okkar í þá veru að við kreíj- umst aukins stjórnunarréttar hér í fyrirtækinu. Það er aug- ljóst að aukinn stjórnunarréttur er höfuðnauðsyn þess að reka megi þessa verksmiðju á þann veg að viðunandi sé. Við höfum greint viðsemjendum okkar al- veg ákveðið frá því að við ger- um kröfu um að eiga kost á samskonar kjarasamningum og verkalýðsfélögin hafa þegar boðið Atlantsálhópnum upp á og það er alveg ljóst að við munum hvergi hopa frá þeirri kröfu okkar. Hvaða áhrif þessi krafa hefur á viðræður við við- semjendur okkar er ekki gott að segja til um á þessu stigi.“ Sjá einnig viðtal við Edward A. Notter framkvæmdastjóra hráefnis- og málmsviðs Alu- suisse á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.