Morgunblaðið - 01.04.1992, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992
Mjólkurduft í samkeppni
Vinnslu- og dreifingarkostnaður á nýmjólk
og verð á mjólk til bænda 1980-1990
80
Verð á mjólkfrá bœndum
—i-----1-----1-----1----
80
1980
1982
1984
1986
1988
1990
Heildsöluverð á nýmjólkurdufti 1991
Heimsm.verð
Bretland
Þýskaland
ísland
Danmörk
EB-Hæsta verð
Fraki^land
Italía
Noregur
Svíþjóð
Austurríki
Sviss
Finnland
Óniðurgrain
héjldsöluvórð
0 T100
Verð á nýmjólkurdufti
í innfl. súkkulaði
\arti flöti rinn gefkr til
\nna niði rgreiðslúr
hiendis \
200 300
krónur á kg
400
500
600
eftir Yngva
Harðarson
í febrúar sl. skilaði ráðgjafar-
nefnd um verðjöfnunarkerfi iðnað-
arráðherra skýrslu um Verðjöfnun-
arkerfi í súkkulaðiframleiðslu. I
nefndinni, sem skipuð var af iðnað-
arráðherra í lok maí 1991, sitja
fulltrúar iðnaðar, bænda og stjórn-
valda. Tilefnið var að ráðuneytið
hafði ákveðið að samræma í eitt
kerfí, þ.e. verðjöfnunarkerfi, þær
aðferðir sem notaðar hafa verið til
að jafna mun á samkeppnisStöðu
innlends og erlends iðnvarnings sem
stafar af mismunandi verði land-
búnaðarhráefna hérlendis og á
heimsmarkaði.
Ásakanir fimmmannanefndar
Skýrsla þessi hefur hlotið tals-
verða umfjöllun í fjölmiðlum og at-
laga formanns fimmmannanefndar
að niðurstöðum hennar hefur vakið
nokkra athygli. Hér má nefna frétt-
atilkynningu frá fimmmannanefnd
dags. 12. mars sl. þar sem fram
komu ásakanir um verulegar
skekkjur í útreikningum, rangtúlk-
anir og aðdróttanir. I Ríkissjónvarp-
inu þá um kvöldið fullyrðir formað-
ur fimmmannanefndar (verðlags-
stjóri) síðan að í skýrslunni séu
meðal annars rangar upplýsingar
um vinnslu- og dreifingarkostnað
mjólkur, hann hafi ekki hækkað um
30% heldur um rúm 18%. Þó eru
upplýsingar nefndarinnar um
vinnslu- og dreifingarkostnað
fengnar beint frá stofnun innan
landbúnaðarins. Um reiknings-
skekkju af hálfu nefndarinnar er
því ekki að ræða. Til fróðleiks fylg-
ir hin umdeilda mynd. Engar athug-
■ LIONSKL ÚBBUR Garðabæj-
ar verður 20 ára í maí nk. en klúbb-
urinn var stofnaður að Garðaholti
4. maí 1972. Fyrsti formaður
klúbbsins var Þórður H. Jónsson.
Á þessu 20 ára tímabili hefur klúbb-
urinn gefið margar stórgjafir til
líknarmála. Má þar nefna meðal
annars tvo heita potta við sundlaug
Garðabæjar, eitt vistrými á Hrafn-
asemdir hafa verið gerðar við upp-
lýsingar um þróun á verði til bænda.
Rétt er að benda á að jafnvel
þótt athugasemdir formanns fimm-
mannanefndar (verðlagsstjóra) við
upplýsingar um þróun vjnnslu- og
dreifingarkostnaðar mjólkur ættu
við rök að styðjast hefði það engin
istu, dvalarheimili aldraðra sjó-
manna, svo og að standa að upp-
byggingu tækjabúnaðar í Heilsu-
gæslustöð Garðabæjar. Nýlega af-
henti Lionsklúbbur Garðabæjar í
tilefni 20 ára afmæiis klúbbsins
500.000 kr. til kaupa á sjúkrabaði
í „Lionshúsið" fyrir fjölfatlaða á
Reykjalundi. Núverandi formaður
klúbbsins er Sighvatur Sveinsson.
áhrif á niðurstöður skýrslunnar.
Eftir sem áður er mikill munur á
þróun vinnslu- og dreifingarkostn-
aðar mjólkur og á verði til bænda
á tímabilinu. Tilgangur formanns-
ins virðist því fyrst og fremst vera
að veija eigin gerðir sem odda-
manns í fimmmannanefnd.
Ekkert er hæft í þeirri fullyrð-
ingu að í skýrslunni sé gerður
ágreiningur um hve mikla mjólk
þurfi til framleiðslu nýmjólkur- eða
undanrennudufts.
Hvað segir skýrslan?
Ein helsta niðurstaða skýrslunn-
ar er að vegna þess mikla verðmun-
ar sem er á nýmjólkurdufti hérlend-
is og erlendis sé erfitt að jafna sam-
keppnisstöðuna með því að taka upp
verðjöfnunargjald á innflutt súkku-
laði án hliðarráðstafana. Afnám
niðurgreiðslna á mjólkurdufti sam-
hliða álagningu verðjöfnunargjalds
ein og sér þýðir að innlend súkku-
laðiframleiðsla er látin bera verð á
nýmjólkurdufti sem er tífalt heims-
markaðsverð. Verði það gert má
vænta verðhækkunar á súkkulaði
um 36% að meðaltali. Hlutverk
verðjöfnunarkerfis er að jafna þann
verðmun á innlendum og erlendum
iðnvarningi sem stafar af mismun-
andi verði landbúnaðarhráefna hér-
lendis og á heimsmarkaði. Ástæðan
er sú að iðnaði er almennt ekki
heimilt að flytja inn þau landbúnað-
arhráefni sem framleidd eru hér-
lendis. Útflutningsiðnaður sem fell-
Yngvi Harðarson
„Afnám niðurgreiðslna
á mjólkurdufti sam-
hliða álagningu verð-
jöfnunargjalds ein og
sér þýðir að innlend
súkkulaðiframleiðsla er
látin bera verð á ný-
mjólkurdufti sem er tí-
falt heimsmarkaðsverð.
Verði það gert má
vænta verðhækkunar á
súkkulaði um 36% að
meðaltali.“
ui' undir verðjöfnunarkerfi nýtur
almennt niðurgreiðslna niður á
heimsmarkaðsverð. Þannig er
mjólkurduft í innfluttu súkkulaði á
heimsmarkaðsverði. Verðjöfnunar-
gjald sem endurspeglar verðmun
mjólkurdufts innanlands og á
heimsmarkaði er síðan lagt á inn-
flutt súkkulaði.
Verðmyndun mjólkurdufts
Til að fá úi' því skorið hvaða hlið-
arráðstafanir væru mögulegar
reyndist nauðsynlegt að bera saman
verðmyndun á mjólkurdufti hér-
lendis og erlendis. Meginniðurstöð-
ur þessa samanburðar voru:
* Niðurgreiðslur hérlendis fara í
gegnum mjólkuivinnsluna en eru
ekki greiddar beint til bænda eins
og gert er víðast hvar erlendis. Lík-
ur eru á að þetta fyrirkomulag valdi
sjálfvirkum kostnaðarhækkunum
milliliða og óhagkvæmni á margan
hátt. Hér má minna á ummæli for-
manns fimmmannanefndar
(verðlagsstjóra) í Morgunblaðinu
10. ágúst sl. í tengslum við
verðlagningu mjólkurdufts: ..það
hafi verið ríkjandi sjónarmið innan
fimmmannanefndar að henni beri
ekki að miða ákvarðanir sínar við
það hvort fyrii'komulag framleiðslu
tiltekinnar afurðar sé óhagkvæmt,
og tilteknar breytíngar á því geti
skilað lægra verði, heldur einungis
að heildsöluverð nægi fyrir kostnaði
eins og framleiðslu sé háttað og að
byggja skuli á kostnaðartölum
framleiðenda. Á meðfylgjandi mynd
má sjá verð á mjólkui'dufti hérlend-
is og erlendis.
* Ólíkt því sem gerist erlendis
byggir verðlagskerfi mjólkuriðnað-
arins á miðstýringu. og skorti á
samkeppni þar sem framleiðendur
eru verulega ráðandi um verðlagn-
ingu. Erlendis er bein samkeppni
milli bæði innlendra og erlendra
framleiðenda þar sem umfangsmik-
il milliríkjaviðskipti eiga sér stað
með viðkomandi afurðir.
* Samkvæmt upplýsingum nefnd-
arinnar er nær einvörðungu tekið
mið af hráefniskostnaði við verð-
lagningu mjólkurdufts erlendis.
Hérlendis er ýmis annar kostnaður
heimfærður á mjólkurduftsfram-
leiðslu. Nefna má að reiknaður sölu-
kostnaður vegna nýmjólkurdufts
nam á síðasta ári um 70% af heims-
markaðsverði þess!
Niðurgreiðslur verði
takmarkaðar
Niðurstaða skýrslunnar um
nauðsynlegar hliðarráðstafanir var
sú að á meðan ekki væri komið á
beinum greiðslum til bænda í mjólk-
urframleiðslu væri nauðsynlegt að
halda áfram einhvetjum niður-
greiðslum á vinnslustigi nýmjólkur-
og undanrennudufts. Niðurgreiðsl-
ur vegna mjólkurdufts yrðu þó tak-
markaðar við það sem gerist í Nor-
egi. Við útflutning fengju súkkulað-
iframleiðendur hins vegar niður-
greiðslu niður á heimsmarkaðsverð
á sama hátt og erlendir keppinaut-
ar. Jafnframt var bent á að sam-
ræma þyrfti verðmyndun við það
sem gerist erlendis.
Breyta ásakanir niðurstöðum?
Af því sem að ofan er sagt ætti
að vera ljóst að ásakanir formanns
fimmmannanefndai' (verðlags-
stjóra) breyta engu um niðurstöður
skýrslunnar. Reyndar hefur nefndin
nánast ekkert reiknað enda slíkt
að mestu óþarft. Fyrirliggjandi
staðreyndir tala sínu máli og ásak-
anir formanns fimmmannanefndar
einungis gerðar til að drepa málinu
á dreif í því skyni að veija eigin
gerðir sem oddamanns.
Höfundur er hagfræðingur hjá
Félagi íslenskra iðnrekenda.
Inga Elín sýnir gler-
listaverk í London
Formaður klúbbsins, Sighvatur Sveinsson, ásamt nokkrum félögum
afhendir Birni Ásmundssyni forstjóra á Reykjalundi ávísun að upp-
hæð 500.000 kr.
RAFKNÚNAR DÆLUR
0,5 til 3,0 hp.
Hringrásardælur, brunndælur,
sjódælur úr kopar, neyslu-
vatnsdælur með jöfnunarkút,
djúpvatnsdælur og fleiri
útfærslur.
Úrvalsvara á ótrúlega
lágu verði.
VÉLASALAN H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
INGA ELIN opnaði
laugardaginn 21.
mars sýningu á gler-
listaverkum í Oriel
Gallery í London.
Þetta er þriðja einka-
sýning Ingu Elínar,
en hún lauk námi í
gler- og keramík-
hönnun fra Skolen for
brugskunst í Kaup-
mannahöfn árið 1988.
Auk einkasýninganna
hefur hún tekið þátt
í fjölda samsýninga
hér heima og erlend-
is.
Á sýningunni í Lond-
on verða einkum gler-
myndir sem Inga Elín
hefur unnið á undan-
förnum tveimur árum á
vinnustofu sinni í gömlu Álafoss-
húsunum í Mosfellsbæ. Við mynd-
gerðina hefur hún beitt tækni sem
hún hefur sjálf þróað.
Sýningin í London er haldin að
tilstuðlan Jakobs Magnússonar
Eitt verka Ingu Elínar.
menningarfulltrúa í sendiráði Is-
lands þar og verður hún opin til
30. apríl. Ellen Kristjánsdóttir og
Eyþór Gunnarsson fluttu tónlist við
opnun sýningarinnar.
(Fréttatilkynning)