Morgunblaðið - 01.04.1992, Side 17

Morgunblaðið - 01.04.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRIL 1992 17 Norðurlönd á dálkum dagblaðanna - Noregur: Það er eitthvað mikið að eftir Per Kollstad Þetta er hún Thea Vatle frá Hamar. Hún er nemandi í öðrum bekk stiftisskól- ans í Hamar. Varð 18 ára í desember og er virkur þátttakandi í félagslífinu. Hún hefur áhuga á þjóðfélagsmálum og sér- staklega á umræðum um jafnréttismál. Hún nýtur lífsins en hefur áhyggjur af vandamálum í sambandi við atvinnuleysi og menntamál sem koma verst niður á unglingum í velferðarríkinu Noregi. Það er mjög óréttlátt að þeir sem sitja í valdastólum meti ekki menntunina meira, segir Thea. Vel menntað fólk er ómetanleg auðlind. Það hlýtur að vera hræðilegt að komast að því að samfélagið hefur enga þörf fyrir menntun sem einhver hefur ef til vill varið sex árum ævi sinnar í að afla sér. Þá er eitthvað mikið að. Langar að mennta sig Efasemdir varðandi menntamálin draga ekki úr áhuganum á að afla sér framhalds- menntunar. Á hvaða sviði veit hún hins- vegar ekki. Það veldur mér nokkrum áhyggjum, játar menntaskólaneminn. Það er um svo' margt að velja hjá Theu og öðrum jafnöld- rum sem eru að ljúka 12 ára almennri skólagöngu. Eins árs dvöl erlendis til að þroskast og hugsa málin væri í raun ágæt- is hugmynd. En hún þarf ekki að ákveða sig strax. Enn er hálft annað ár þar til hún þarf að taka ákvörðun. Hugsunin um að taka ranga ákvörðun skelfir hana. Dýr námslán valda því áð hún hefur ekki ráð á að eyða einu til tveimur árum til einskis. Annríki Thea er upptekin allan daginn. Námið og frístundaiðja taka allan tíma þessarar ungu stúlku frá því snemma morguns til seint á kvöldi. Þegar skóla lýkur 'keppa heimanám, kórsöngur, félagsstörf í 4H og stjórnmálin um athyglina hjá sístarfandi stúlkunni. Það getur valdið vondri samvizku. Góðir vinir toga úr öllum áttum. Verðu meiri tíma í stjórnmálin, segja samstarfsmenn hennar í stjórnmálasam- tökum ungra hægrimanna í Hamar, en þar er hún varaformaður. Hættu í kórnum. fær hún að heyra frá vinum sínum í 4H. „Thea er upptekin allan daginn. Námið og frí- stundaiðja taka allan tíma þessarar ungu stúlku frá því snemma morguns til seint á kvöldi. Þegar skóla lýkur keppa heimanám, kórsöngur, félagsstörf í 4H og stjórnmálin um at- hyglina hjá sístarfandi stúlkunni.“ ••MÍkMMÉitÉlÉMÉMMMk Thea Vatle. Þú kemur örugglega á kóræfinguna í kvöld. Og svo segja foreldrarnir að hún verði að fylgjast með í skólanum og ljúka heimanáminu. Aríðandi að fylgjast með Það er synd hve margir unglingar fylgj- ast ekki með því sem er að gerast kringum þá, segir hún. Þeir eru vanir því að aðrir hugsi um það. Hvað verður um þá þegar þeir verða fullorðnir og eiga að ráða? Thea telur nauðsynlegt að fylgjast vel með. Bæði vegna stjórnmálastarfa og félagsfræðinnar í skólanum. Hún hlustar mikið á útvarp. Daglega les hún Aften- posten og staðarblöðin í Hamar. Sjónvarp situr á hakanum. Hún hefur ekki mikið álit á æsifréttablöðum höfuðborgarinnar. Þá er betra að halda sig við aukablöðin hjá Aftenposten. Þótt efni blaðsins sé gamanlaust, er sagt frá því sem er að gerast. Ef til vill ætti ég að hugleiða blaða- mennskustarfið, hugsar hún upphátt. Lífið skipulagt Lífið er í raun mjög skipulagt. Við menntum okkur, göngum í hjónabönd og eignumst börn. Alltaf íþyngja skuldirnar okkur. Stundum langar okkur til að breyta til. Stökkva út úr hringekjunni. Ferðast til einhverrrar Suðurhafseyjar og liggja í letii'Eða setjast undir eplatré með strá í munninum og leyfa heiminum að sigla sinn sjó. Thea sér ekki sjálfa sig í hlutverki heimavinnandi ungbarnamóður. Jafnrétti á að ríkja allsstaðar. Einnig á heimilinu. Stúlkur eru jafn góðir smiðir og strákar. Þeir sem draga sig í hlé af þeim sökum eru ekki viðkynningar verðir, segir Thea Vatle með glampa í augum. Samtalið birtist upphaflega í Hamar Dagblad, Hamar, 23. október 1991. /i * ■/////■/■///• Y/fóVMW/ táyy'm/y r# * ... WM mzmyw/m V//S.'VjT s‘ ///-.-.-.'.■-■'y//////SSSSAW. skíðá DAGAR 20-50°/« afsláttur /^ÖUUMSKÍÞWÖRUM 20. MARSjA^APRÍk SKÍÐAGLERM^1______. VÍrtíT»SSWTSítaaa8ana. •staðgreitt qNORRABRMJT 60 SiM112045

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.