Morgunblaðið - 01.04.1992, Page 29

Morgunblaðið - 01.04.1992, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992 29 Eyjafjarðarsveit; Grunnskól- arnir verða sameinaðir Ytri-Tjörnum. HREPPSNEFND Eyjafjarðar- sveitar ákvað á fundi í fyrra- kvöld að leggja niður grunnskól- ann á Laugalandi og flylja skóla- hald alfarið að Hrafnagili, en áfram verður svokallað skólasel í Sólgarði fyrir yngstu nemend- urnar úr fremsta hluta sveitar- innar. Sveitarstjórninni hafði fyrr um dag- inn borist undirskriftalisti frá fjöl- mörgum foreldrum af skólasvæði Laugalandsskóla, sem óskuðu eftir upplýsingafundi með sveitarstjóm um þessi mál áður en endanleg ákvörðun yrði tekin. Sveitarstjórn taldi listana koma fram alltof seint og gat ekki orðið við þessum óskum. Nokkurrar óánægju gætti meðal foreldra skólabarna með þessi mál- alok þar sem aðstaða til kennslu er talin mjög góð á Laugalandi, en á Hrafnagili verður kennt á tveimur stöðum og eiga skólabörn yfir stofn- braut að fara þar sem er mikil og hröð bílaumferð. Einnig hefur verið bent á að búið sé að leggja umtals- verða fjármuni í endurbætur á Laugalandsskóla á undanfömum árum. Áætlað er að sveitarsjóður Eyja- fjarðarsveitar muni spara um eina milljón króna á ári með sameiningu skólanna. Talsmenn sameiningar grunnskólanna segja að fyrir hafi legið er hrepparr.ir þrír framan Akureyrar voru sameinaðir um ára- mótin 1990-1991 að skólanir yrðu einnig sameinaðir. Benjamín Það er vor í lofti og í gær þegar sólin hellti geislum sínum yfir Eyfirðinga reyndu allir sem vettlingi gátu valið að fara út til að upplifa vorfiðringinn. Sif, Þóra og Júlía gæddu sér á snúðum á meðan þær sleiktu sólina og þá er þetta líka rétti tíminn til að koma fleytunni á flot og róa dálítið út á lygnan Pollinn. Morgunbladid/Kúnar Þór Vorfiðringur < C 'K ' Utgerðarfélag Akureyringa: Kvennakvöld í Glerárkirkju í KVÖLD, miðvikudags- kvöldið 1. april, er kvenna- kvöld í Glerárkirkju frá kl. 21 til 22. Þema kvöldsins er innri uppbygging. Kynnt verður ýmislegt sem stuðlar að andlegri uppbygg- ingu og því sem er til hjálpar á hinni andlegu vegferð. Kynnt verður Taizé-bænatónlistin og ýmsar andlegar æfingar og bænir sem færa okkur nær Guði. Boðið verður upp á söng, tónlist, bæn og fyrirbæn. Kynn- ing verður á kyrrðardögum kvenna sem haldnir verða 28.-31. maí næstkomandi á Hólum í Hjaltadal. Skráning á þá hefst um kvöldið. Aðgangur er ókeypis og allar konur hjart- anlega velkomnar. (Frcttatilkynning) Um 87 milljóna kr. hagnaður af rekstrinum á síðasta ári Aflaheimildir nokkru minni en fyrir 4 árum þrátt fyrir 4.000 tonna kvótakaup og 500 tonna úthlutun úr Hagræðingarsjóði HAGNAÐUR af rekstri Útgerðarfélags Akureyringa nam 86,8 milljón- um króna á síðasta ári, eða um 100 milljónum króna minna en árið 1990, þegar félagið skilaði 185,5 milljóna króna hagnaði. Heildarvelta félagsins var 2.353 milljónir króna á liðnu ári, en 1.923 miiyónir á árinu á undan. Eignir félagsins voru í árslok 3.307 milljónir króna, sem er hækkun um 547 milljónir milli ára, eða úr 2.760 milljónum. Eigið fé fyrirtækisins var um áramót 1.478 milljónir króna og er eigiðfjárhlut- fallið tæp 45%. Félagið greiddi starfsfólki um milljarð króna í laun á liðnu ári. Þetta kemur fram í reikningum félagsins sem lagðir verða fram í dag, en aðalfundur ÚA verður haldinn 8. apríl næstkomandi. Útgerðarfélag Akureyringa var með sjö skip í rekstri á síðasta ári og var afli þeirra tæp 23.700 tonn, sem er um 11.000 tonnum meira en á árinu á undan, en þá ber þess að geta að félagið var með einu skipi Hlutabréfasjóður Norðurlands; Hlutabréf seld fyrir 25 milljónir kr. á síðasta ári Hlutabréfasjóður Norðurlands seldi hlutabréf fyrir 25 miíljónir króna á síðasta ári. Hluthafar eru 263 og hlutafé 28,5 milljónir króna. Sjóðurinn var stofnaður í nóvember á síðasta ári og var aðalfundur haldinn í gær, þriðjudag. Tilgangurinn með stofnun sjóðs- ins var að skapa farveg fyrir sam- vinnu einstaklinga og lögaðila til fjárfestinga í hlutabréfun og skuldabréfum atvinnufyrirtækja. Á síðasta ári seldi hlutabréfasjóðurinn hlutabréf fyrir 25 milljónir króna og var ávöxtun sjóðsins þessa fjóra mánuði sem hann hefur starfað nokkuð góð, eða sem svarar til 12,1% raunávöxtunar á ári. Góða ávöxtun má annars vegar rekja til góðrar ávöxtunar á bankavíxlum og hins vegar að húsbréf sem félag- ið keypti í byrjun janúar hafa hækk- að í verði. Stærstu hluthafar í Hlutabréfa- sjóði Norðurlands eru Akureyrar- bær, lífeyrissjóðurinn Björg, Húsa- vík, og lífeyrissjóðurinn Sameining sem eiga eina milljón króna að nafn- verði hver, eða 3,51%, þá kemur lífeyrissjóður stéttarfélaga í Skaga- firði, sem á 3,44%, Lífeyrissjóður lðju og Lífeyrissjóður trésmiða eiga 1,75% og Kaupmannafélág Akur- eyrar 1,05%, en aðrir hluthafar eiga minna en 1% hlut í sjóðnum. Stjórn félagsins var endurkjörin á aðalfundinum, en hana skipa Róbert B. Agnarsson, Halldór Jóns- son og Ingi Björnsson. færra í rekstri. Einnig má nefna að Kaldbakur EA, eitt skipa félagsins, var frá veiðum í rúma þtjá mánuði á síðasta ári þegar hann var tekinn til gagngerra endurbóta. Félagið fékk til vinnslu í landi um 17.000 tonn af hráefni, en um 7.400 tonn voru fryst um borð í tveimur frystitogurun félagins, sem er rúm- um 2.000 tonnum meira en á árinu 1990. Framleiðsla ÚA skiptist þann- ig að 6.050 tonn af freðfiski voru unnin í fiystihúsinu, um 570 tonn voru verkuð í salt og hertir þorsk- hausar voru tæp 300 tonn, þá voru sjófrystar afurðir 4.081 tonn. Sam- tals voru unnar frystar sjávarafurðir hjá fyrirtækinu 10.167 tonn, sem er rúmum þúsund tonnum meira en á árinu á undan og er þetta mesta framleiðsla freðfisks í sögu félagsins. Gunnar Ragnars, framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags Akureyringa, sagði að flutt hefði verið út á hefð- bundna markaði, en þó hefði sú breyting orðið að útflutningur til Bandaríkjanna hefði dregist saman, úr 32% árið 1990 í 23% á síðasta ári. Aftur á móti jókst útflutningur til Frakklands, þangað sem 35,4% framleiðslunnar fóru á liðnu ári, en var á árinu á undan um 26%. Þessar breytingar stafa fyrst og fremst af því að meira var unnið af karfa hjá félaginu í fyn-a, en minna af þorski. „Það er orðið miklu dýrara en áður að sækja hvert kíló. Til að halda vinnslunni gangandi allt árið hefur þurft að kaupa kvóta, menn hafa þurft að bæta sér upp þær skerðing- ar sem orðið hafa með kvótakaup- um,“ sagði Gunnar. ÚA var nýlega úthlutað 500 þorskígildistonnum úr t Hagræðingarsjóði, þá hefur félagið á síðustu fjórum árum keypt um 4.000 tonn af kvóta, en þrátt fyrir það eru aflaheimildir þess um 300 þorskígildistonnum minni en félagið hafði árið 1988. „Ég held að þetta sýni í hnotskurn þá þröngu og erfíðu stöðu sem sjávarútvegurinn er í,“ sagði Gunnar. Undirbúning1- ur Andrésar- leika stend- ur sem hæst „VIÐ látum engan bilbug á okkur finna, þó veturinn hafi verið snjóléttur þannig að undirbúningur Andrésar And- ar-Ieikanna stendur nú sem hæst,“ sagði Gísli Kristiim Lórenzson formaður nefndar er annast undirbúning leik- anna. Andrésar Andar-leikarnir verða settir í íþróttahöllinni á Akureyri 22. apríl næstkomandi, en leikarnir standa yfír dagana 22. til 25. apríl. Skráning þátt- takenda stendur nú yfir, en henni lýkur í næstu viku. Búist er við að þátttakendur verði á bilinu 7-800 talsins, en þeir eru á aldrinum 7-12 ára. „Við erum staðráðin í að halda leikana og þeir verða haldnir. Þó svo að fremur snjólétt hafí verið í Hlíðarfjalli í vetur sjáum við fram á að geta haldið þetta sívinsæla skíðamót," sagði Gísli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.