Morgunblaðið - 01.04.1992, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.04.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992 31 Ráðherrafundir Heimdallar: Fundur með mennta- málaráðherra í kvöld HEIMDALLUR, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, heldur opinn fund með Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra í Valhöil, Háaleitisbraut 1, í kvöld klukkan 20:30. Á fundinum, sem verður öll- um opinn, verða menntamál og menntastefna rædd í víðu samhengi. Fundurinn er hinn áttundi í röð svokallaðra ráðherrafunda sem Heimdallur hefur staðið fyrir með ráðherrum ríkisstjórnarinnar í vet- ur. Markmiðið með fundum þessum er að gefa sjálfstæðismönnum og öðrum kost á beinum skoðanaskipt- / : um við ráðherra. Fundurínn í kvöld hefst með framsöguerindi Ólafs G. en að því loknu gefst fundannönnum kostur á að koma með fyrirspurnir og at- hugasemdir. Ólafur G. Einarsson menntamála- % ráðherra. Fegurðardrottning Vesturlands, Hrefna Rún Gylfadóttir, situr á milli Önnu Lilju Vaisdóttur sem var í 3. sæti og Helgu Rúnar Guðmundsdótt- ir sem varð í 2. sæti. Akranessmær val- in fegnr ðardr ottn- ing Vesturlands Tuttugu og eins árs gömul Akranessmær, Hrefna Rún Gylfa- dóttir, var kjörin fegurðardrottn- ing Vesturlands í Félagsheimiiinu Hlöðum á Hvalfjarðarströnd að- faranótt sunnudags. Hrefna starf- ar sem skrifstofustúlka á Akra- nesi. Tíu stúlkur tóku þátt í keppninni og varð Helga Rún Guðmundsdóttir, 21 árs nemi frá Akranesi, í öðru sæti og Anna Lilja Valsdóttir, 19 ára nemi frá Akranesi, í því þriðja. Ljósmyndafyrirsæta Vesturlands var valin Þorbjörg Heidi Johansen, 20 ára frá Borgamesi og vinsælasta stúlkan í hópnum var valin Sigur- björg Heiðarsdóttir, 20 ára nemi frá Búðardal. Fyrirtæki og verslanir á Vestur- landi gáfu keppendum og sigurveg- urum margar gjafir og má þar nefna að Alfreð W. Gunnarsson gullsmiður á Akranesi gaf þeim stúlkum, sem hrepptu efstu sætin þtjú, demants- hringi. Einnig gaf Álfreð kórónur og sprota til nota við þetta tæki- færi. Þá gaf Guðmundur Hannah úrsmiður á Akranesi sigurvegaran- um gæsilegt gullúr. íslandsbanki á Alþjóðlegi barnabóka- dagurinn 2. apríl ALÞJÓÐLEGI barnabókadagur- inn er 2. apríl og af því tilefni efnir Barnabókaráðið, Islands- deild IBBY, til dagskrár þann dag klukkan 16.15 í Norræna húsinu. Þar verður fjallað um bamabæk- ur, sem út komu á árinu 1991 og verða flutt þtjú erindi. Hið fyrsta nefnist Texti í bókum fyrir yngri börn, Erna Ámadóttir námstjóri. Þá er erindi um texta í bókum fyrir eldri börn og eru flytjendur Olöf Pétursdóttir þýðandi og Margrét Theodórsdóttir skólastjóri. Loks er erindið Myndir í barnabókum, Ragn- heiður Gestsdóttir rithöfundur. í lok dagskrárinnar verður síðan rætt um umfjöllun um barna- og unglingabækur í fjölmiðlum. Þar verður að verki starfshópur höfunda barna- og unglingabóka og fulltrúar frá fjölmiðlum. Þá sjá rithöfundar um sögustund fyrir börn í Norræna húsinu klukkan 15 og þar til dag- skránni lýkur. Akranesi afhenti nýkrýndri fegurð- ardrottningu peningagjöf. Stúlkurn- ar fengu snyrtivörur, fatnað og blóm svo nokkuð sé nefnt. í kynningu í Morgunblaðinu fyrir keppnina misritaðist nafn eins þátt- takandans, Sesselju Þórunnar Jóns- dóttur. J.G.. 19 DAGAR Brottför 18. maí KARIBAHAF - FLORIDA Ein vika á hinu glæsilega skemmtiferðaskipi SEAWARD um Karíbahaf. Viðkomustaðir eru Bahamaeyjar, Ocho Rios á Jamaica, Grand Cayman og Playa del Carmen og Cózumel í Mexíkó. Aóeins 40 sœti laus i þessa frábæru feró. Ferðatilhögun: Flogið til Orlando 18. maí. Dvalið þar í eina nótt á Guest Quarters hótelinu. Næsta dag er ekið til Fort Lauderdale og dvalið þar í 5 nætur á Guest Quarters, eða til 24. maí. Þá er ekið til Miami og farið um borð í hið stórglæsilega far- þegaskip SEAWARD. Að lokinni siglingu 31. maí er aftur haldið til Fort Lauderdale og gist á Guest Quarters í 5 nætur, til 5. júní, en þá er flogið frá Fort Lauderdale til Baltimore og þaðan til Keflavíkur. Veró kr. 154.000,- pr. mann miðað við gistingu í tvíbýli. Innifalið: Flug, gisting, sigling á SEAWARD, akstur, hafn- arskattar og þjónustugjöld um borð í SEAWARD, veislu- matur meðan á siglingu stendur og fararstjórn. Flugvallarskattur kr. 2.350,- ekki innifalinn. Mögulegt er að framlengja dvölina á Flórída. Mabær Uafnarstræti 2 - Sind 62-30-20 Fösuö spónapl., 12/59x252 Sturtuhurð, gler AEG þvottavél Sandspartl, 25 kg Múrbali, 651 IWBWainBUIWIMWIWiBiB Tilboð t' *x'jp' ’ í ■ ^w 'l 1' . _" Verö áöur Tilboð 612 ▲ BÝKO fúavörn, 51 1.788 1.497 m2 928 Æ. AEG slípirokkur 15.352 12.742 14.065 ▲ Malarskófla 748 594 58.346 ▲ Máiningarbakki+rúlla 899 715 1.223 ▲ Gallabuxur 1.677 1.375 1.513 1 486 1.187 ▲ BYKO innimáln., 201 10 632 8.442 VERSLANIR SKIPTIBORÐ 41000 GRÆNT NUMER 996 410 HAFNARFIRÐI S . 5 44 1 1 BREIDDINNI s. 6 4 19 19 HRINGBRAUT s _ r •? <u n n P Ú P d

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.