Morgunblaðið - 01.04.1992, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.04.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992 35 Minning: Runólfur Jónsson, Litla-Sandfelli Fæddur 4. nóvember 1902 Dáinn 1. febrúar 1992 Að morgni laugardags 1. febrúar sl. lést Runólfur Jónsson á Hjúkrun- arheimilinu Seli á Akureyri, eftir nokkra mánaða dvöl þar, liðlega 89 ára. Útför hans fór fram frá Glerár- kirkju föstudaginn 7. febrúar að við- stöddum fjölda ættingja og vina. Margir uðru þó að sitja heima, bæði héðan að austan og eins að sunnan, vegna ókyrrðar í lofti, svo að flug féll að mestu niður jarðarfarardag- inn. En margir héðan að austan voru svo forsjálir að fara á bílum norður yfir fjöllin og kváðu veginn jafnvel betri en að sumarlagi, ekki svo mikið sem skafl í vegarkanti. Því miður leyfði ekki heilsa mín að fylgja vini mínum og gömlum sveitunga síðasta spölinn. En þess í stað ætla ég að minnast hans með nokkrum línum. Ég skrifði smá af- mælisgrein um Runólf áttræðan sem birt var í íslendingaþáttum Tímans 1982. Það verður ekki komist hjá einhverri endurtekningu frá henni. Runólfur var fæddur í Stóra- Sandfelli 4. nóvember 1902. Foreldr- ar hans voru hjónin Kristbjörg Kristjánsdóttir og Jón Runólfsson, bæði frá Grófargerði í Vallahreppi. Árið 1904 fluttu þau Jón og Krist- i þjörg að Litla-Sandfelli og bjuggu þar til 1925, en síðla sumars það ár lést Jón. Banamein hans var lungnabólga. Jón var lengi í hrepps- nefnd Skriðdalshrepps og oddviti hennar. Þau Jón og Kristbjörg áttu þijú börn. Þau eru: Björg, fædd 1896, var ljósmóðir, maður hennar Einar Markússon, bjuggu þau á Keldhólum á Völlum. Fluttu síðar til Neskaupstaðar. Næstur var Run- ólfur sem hér er minnst og Gróa yngst, fædd 1905. Hennar maður Snæbjörn Jónsson bóndi í Geitdal, þau áttu þijá syni: Jón ráðunaut, búsettur í Fellabæ,- Bjarni og Einar bændur í Geitdal. Snæbjörn er látinn én Gróa dvelur á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum. Runólfur ólst upp hjá foreldrum sínum og systrum í Litla-Sandfelli. Vandist öllum utanbæjarverkum eins og þau voru unnin með hand- verkfærum. Skólaganga ekki önnur en barnafræðsla fyrir fermingu. Hann var greindur og minnið traust. Laugardag fyrir hvítasunnu 21. maí 1926 kvæntist Runóflur heit- konu sinni, Vilborgu Jónsdóttur frá Vaði í Skriðdal. Mestu myndar- og ágætiskonu. Þetta sama ár tóku ungu hjónin við búi í Litla-Sandfelli. Á þessum árum var erfitt að hefja búskap með lítil efni og fallandi af- urðaverð. Þá var eingöngu búið með sauðfé og kýr aðeins fyrir heimilið. Runólfur var íjárglöggur, hirti vel sitt fé og hafði góðan arð af því. Þó held ég að Runólfur hafi haft mest dálæti á hestum sínum, koma þeim á bak og finna fjörtök stinn. Þegar þau Runólfur og Vilborg hófu búskap í Litla-Sandfelli var þar lítið tún og reytingssamar engjar. Var því ekki komist hjá því að fá engjaheyskap að láni á öðrum bæj- um. Þessi engjaheyskapur var bæði erfiður og tafsamur. Runólfur hóf því að stækka túnið, fyrst með hesta- verkfærum og síðar með vélknúnum tækjum, fór svo að hann tók allan sinn heyskap af ræktuðu landi. Sam- hliða áðurnefndum ræktunarfram- kvæmdum byggðu hjónin stórt og vandað íbúðarhús úr steinsteypu og öll gripahús og heygeymslur. Þegar ég lít nú yfir 32ja ára bú- skaparannál þeirra Litlu-Sandfells- hjóna, sem ég hef hér að framan drepið á, má segja með réttu að þau hafi breytt koti í stórbýli. Þau Runólfur og Vilborg eignuð- ust níu börn. Þrjú dóu ung, þegar veikindi hetjuðu á fjölskylduna. Þau sém upp komust eru: Kristbjörg húsfreyja, Akureyri, Björgvin bóndi á Dvergasteini, Eyjafirði, Ingibjörg húsfreyja, Vökulandi, Eyjafírði, Sigurður smiður á Akureyri, Kjartan bóndi á Þorvaldsstöðum, Skriðdal, og Árný húsfreyja, Akureyri. Öll eru systkinin mikið manndómsfólk, vel gefið, góðir þjóðfélagsþegnar og eiga marga afkomendur. Þegar að því kom að þau Runólf- ur og Vilborg voru orðin ein eftir í Litla-Sandfelli 1958, hættu þau bú- skap og fluttu til Akureyrar. Þau komu sér vel fyrir í snoturri íbúð sem er á neðri hæð í húsi Sigurðar sonar þeirra og hans konu, í Lang- holti 17. Þangað var gott að koma til Vilborgar og Runólfs, sama gest- risnin og glaða vimótið sem fyrr. Barst þá talið að Skriðdalnum og mannlífi þar. Fyrstu árin eftir að Runólfur og Vilborg fluttu til Akureyrar unnu þau bæði úti við ýmis störf. Meðal annars má geta þess að Runólfut- vann um tíma lvjá Sambandsverk- smiðjunum. Seinna tók hann að starfa við blaðið Dag, sem gefið var út á Akureyri. Við blaðið vann hann í 15 ár. Öll störf sem Runólfur tók að sér, leysti hann af hendi af mik- illi trúmennsku og skyldurækni. Á yngri árum tók Runólfur mikinn þátt í félagsmálum, hann var góður ræðumaður og átti létt með að gera grein fyrir sínum skoðunum. Þau hjónin notuðu sinn frítíma vel, heim- sóttu börn sín og þeirra Qölskyldur, svo og vini og kunningja á Austur- landi, þá einkum í Skriðdal. Það var mikið áfall fyrir Runólf að missa konu sína eftir 64 ára sam- búð, en hún lést 5. febrúar 1990. Ég hygg að Runólfur hafi ekki bor- ið sitt barr eftir það, þó börn hans og afkomendur væru honum til að- stoðar, þar sem hann hélt til í sinni íbúð lengst af. Ég átti leið urfi Akur- eyri síðastliðið sumar, leit að vanda inn til Runólfs og sat hjá honum um stund. Var hann furðu hress og barst talið fljótlega að gömlu átthögunum. Áður en ég kvaddi sagði hann, Stef- án minn, þessu er nú bráðum að verða lokið fyrir mér. Stuttu seinna frétti ég að hann hefði veikst og verið fluttur á Hjúkrunarheimilið Sel, þar sem hann dvaldist uns yfir lauk. Ég og fjölskylda mín sendum börnum Runólfs, barnabörnum og öðrum vandamönnum innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minn- ingu Runólfs frá Litla-Sandfelli. Stefán Bjarnason, Flögu. Runólfur afi lést aðfaranótt 1. febrúar sl. á hjúkrunarheimilinu Seli en þar dvaldi hann síðustu mánuð- ina. Við köiluðum hann oft „afa niðri“, en hann og amma áttu heima í sama húsi og við, á neðri hæðinni í Langholti 17. Ófá sporin áttum við systkinin niður til þeirra, til dæmis að biðja afa að hita kalda putta, spiia löngu- vitleysu, líta í Tímann eða spjalla um heima og geima og alltaf var tekið á móti okkur með ást og hlýju. Afi var að austan, hann var bóndi á Litla-Sandfelli í Skriðdal, þar til þau amma fluttu til Akureyrar. Afi sagði okkur oft skemmtilegar sögur úr sveitinni sinni, frá því þegar pabbi okkar var drengur eða sögur af smalahundinum sínum. Við systkin- in erum þakklát fyrir þá gæfu að hafa alist upp með afa og ömmu við hlið okkar. Barnabarnabörnin fengu líka að kynnast þeim vel og sakna nú langafa, en vita að honum líður vel hjá Guði. Við vottum pabba og systkinum hans okkar einlægu sam- úð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Br.) Elín Kristbjörg, Baldur, Jón Reynir og Árni Viðar. Minning: Ólafía (Lóa) Guðm undsdóttir Fædd 16. september 1921 Dáin 16. mars 1992 Við viljum með nokkrum fátæk- legum orðum minnast hennar ömmu. Lengstan hluta ævi sinnar bjó hún ásamt afa á Tjarnargötu 10D í Reykjavík. Þaðan koma allar okkar bestu æskuminningar, því varla leið sú helgi sem ekki var gist hjá ömmu og afa í Reykjavík. Amma var ein af þessum ekta ömmum, með bústnar kinnar og fullan skáp af nammi. Á veturna þegar við vorum búnar að skauta allan daginn á Tjörninni, biðu okkar heitar pönnukökur og heitt kakó þegar við komum inn aftur, og ef tærnar voru of kaldar nuddaði hún í þær hita aftur. Síðan var sest nið- ur og horft á Húsið á Sléttunni, og var hún þá vön að setjast hjá okkur og lesa allan textann upphátt, þó að við kynnum að lesa. Á sumrin fór hún með okkur í gönguferðir um miðbæinn og keypti handa okk- ur ís, og yfirleitt enduðu þessar gönguferðir við Tjörnina þar sem við gáfum öndunum brauð. Alltaf máttum við leika okkur í eldhúsinu við að þykjast búa til mat. Var farið í alla skápa og ein- hveiju sullað saman í skál. Síðan voru þessir svokölluðu réttir bornir á borð fyrir ömmu og afa og sögðu þau alltaf að þetta væri það besta sem þau höfðu smakkað. Amma var alltaf mjög gjafmild. T.d. þegar önnur okkar ■ fór til Flórída og gisti hjá íslenskri fjöl- skyldu, sendi amma hana með fullt af íslenskum mat til að gefa þeim þó að hún þekkti þau ekki neitt. Árið eftir fórum við báðar og sama sagan endurtók sig. Það var alveg sama hvað okkur langaði í, við feng- um það. Hún lét allt eftir okkur, en við tvær vorum einu barnabörn- in sem hún átti í átta ár og þá fæddist Óskar bróðir. Eftir það gaf Pétur henni þrjú barnabörn, Gummi eitt og pabbi eitt í viðbót. Einnig átti hún fimm stjúpbarnabörn, sem hún leit á eins og sín eigin. Einnig átti hún eitt bamabarnabarn. Aldrei aftur verður farið til ömmu í Reykjavík, en við munum geyma minninguna um hana allt okkar líf. Nú hafa allir okkar látnu ástvin- ir sameinast á himnum til að taka á móti elsku ömmu, alveg eins og hún mun gera þegar okkar tími kemur. Elsku pabbi, Gummi og Pétur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð, svo og öllum öðrum að- standendum og biðjum góðan Guð að hugsa vel um hana ömmu okkar. Blessuð sé minning hennar. Lóa, Helga, Oskar og Katrín Alexandra. OLYMPUS Þegar hvert orð skiptir máli! Borgartúni 22 S 61 04 50 SCHOLTES OFNAR - ALDREI GLÆSILEGRI! Með fullkominni hitastjórn og nákvæmu loftstreymi nærðu þeim árangri við baksturinn sem þig hefur alltaf dreymt um. w í í TJ 1 HS B ■ mSSSmmm Með innrauðum hita og margátta loftstreymi færðu steikina safaríka og fallega brúnaða. Með innrauðum hita og loftstreymi, sem líkir eftir aðstæðum undir beru lofti, nærðu útigrillsáhrifum allan ársins hring.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.