Morgunblaðið - 01.04.1992, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992
VINKLAR A TRE
HVERGI LÆGRI VERÐ
ini
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
^ EINKAUMBOÐ
<c8 Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
Endtirklcebutn húsgögn.
Gott úrval áklceba.
Fagmenn vinna verkib.
Bólstrun Ásgríms,
Bergstaðastræti 2,
sími 16807.
FJAÐRAGORMAR
í ÝMSA BÍLA
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
fclk f
fréttum
KNATTSPYRNA
(H)eldrimenn í Hólminum
Myndin sýnir þingmennina samankomna tilbúna í slaginn.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Snæfell hélt sl. laugardag 21.
mars (H)eldrimannamót í knatt-
spymu og þar voru mætt lið frá
Val, KR., Snæfelli, íþróttafélagi
Akraness og alþingismönnum frá
Ólafsvík og Grundarfirði.
Mót þetta stóð lengi dags og lauk
með sigri Vals en alþingismenn og
þeirra lið varð nr. 5. Meðal þeirra
mættu Ingi Bjöm, Finnur Ingólfsson,
Sturla Böðvarsson og Kristinn Gunn-
arsson.
Maður mótsins var valinn Sig-
mundur Harðarson úr KR, en feg-
ursta markið skoraði Hörður Hilm-
arsson úr Val. Þetta var góð ný-
breytni íþróttanna og skemmtu
áhorfendur sér konunglega.
- Arni
AST
Edward
Kennedy
trúlofar sig
Nú hefur það gerst í Vestur-
heimi, að Edward Kennedy,
hinn þekkti öldungardeildarþing-
maður, hefur opinberað trúlofun
slna við Victoriu Reggie. Dagsetn-
ing brúðkaups hefur enn ekki verið
látin uppi, en þess mun skammt að
COSPER
— Varst það þú, sem kvartaðir yfir matnum?
Á myndinni eru þau Edward
Kennedy og unnusta hans Victor-
ia Reggie.
bíða samkvæmt fregnum að vestan.
Kennedy er ekki síst þekktur fyrir
kvensemi sína í gegn um árin og
hefur stundum jaðrað við að fara
yfir velsæmismörk þau sem banda-
rísk alþýða dregur í þeim efnum.
Þau mörk eru raunar mun ákveðn-
ari heldur en gengur og gerist í
Evrópu, en allt um það, nú þykir
mönnum sem það hylli undir enda-
lok hneykslismála vegna kvensemi
Edwards Kennedy.
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
Gudni A. Einarsson þeytir
hér burt snjónumn úr heim-
keyrslunni með handstýrðum
snjóblásara.
FANNFERGI
Að deyja
ekki
ráðalaus
Það hefur löngum loðað við
landann að láta veturinn,
með tilheyrandi fannfergi, hafa
slæm áhrif á sálartetrið. Ekki
hafa þó allir fallið í þessa gryfju
og hafa sumir ráð undir hveiju
rifi til þess að gera sér lífíð
léttara í svartasta skammdeg-
inu.
Morgun einn I marsmánuði
vaknaði undirritaður fréttarit-
ari við skeljina í sláttuvél ná-
grannans. Ég hugsaði sitthvað
sem ekki verður fest hér á
prenti þegar ég sá nágranna
minn Guðna A. Einarsson rölta
um garðinn með sláttuvél á
undan sér. En eftir að hafa
þurrkað stírurnar úr augunum
sá ég að ekki var það gras-
græna sem þeyttist frá vélinni
heidur stóðu snjógusurnar út
úr henni. Við nánari eftir-
grennslan kom I ljós að hér var
á ferðinni handstýrður snjó-
blásari sem Guðni hafði fest
kaup á frá Bandaríkjunum.
Guðni sagði þetta hið merkileg-
asta tæki sem kæmi að góðum
notum þar sem snjóþungt væri
og erfítt að koma stærri tækj-
um að. Hvort túlípanar Guðna
munu koma fyrr upp I vor held-
ur en hjá fréttaritara verður
ekki hægt að svara fyrr en í
sumar.
- Sturla Páll.
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldinn í Ársal Hótels Sögu,
kl. 16.00, föstudaginn 3. apríl 1992.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins á árinu 1991.
2. Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur sparisjóðsins fyrir árið
1991.
3. Kosning stjórnar.
4. Kosning skoðunarmanna.
5. Tillaga um ársarð og ráðstöfun tekjuafgangs.
6. Tillaga um þóknun stjórnar og skoðunarmanna.
7. Önnur mál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað í fundarbyrjun.
Áríðandi er að sem flestir stofnfjáreigendur mæti á aðalfundinn, svo hann verði sem
fjölmennastur.
Sparisjóðsstjórnin.