Morgunblaðið - 01.04.1992, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992
HANDKNATTLEIKUR
Sjálfstraustið hvarf
vegna óvissu í
undirbúningnum
- segir Valdimar Grímsson en segir ísland hafa verið með besta liðið
ÞAÐ eru allir sammála, sem
sáu íslenska landsliðið leika í
B-keppninni f Austurríki, að
sóknarleikur liðsins var í mol-
um og leikmenn liðsins voru
ekki eins vel undirbúnir fyrir
átökin og vonast var til. Þetta
hefur komið fram í viðtölum við
þjálfara landsliðsins Þorberg
Aðalsteinsson, landsliðsmenn-
ina sjálfa og forráðamenn HSÍ
sem hafa staðið í ströngu hér
í Austurríki.
ristján Arason sagði að því
væri um að kenna hvað sókn-
arleikurinn var ráðleysilegur, að
undirbúningurinn
var ekki nógu góður
og ekki nægilega
langur. Hvað hefur
Valdimar Grímsson,
einn leikreyndasti landsliðsmaður
íslands að segja um keppnina.
„Við höfum staðið okkur að
mörgu leiti mjög vel. Við vorum
óheppnir gegn Noregi og einnig
gegn Dönum. Við getum heimfært
það upp á að við höfum verið að
ieika lélegan sóknarleik. Þegar
maður velltir þessi fyrir sér þá erum
við ekki nema einu marki frá því
að leika til úrslita. Það hlýtur að
segja að við erum með gott og
sterkt lið. Ég tel að við séum með
langbesta liðið hér í Austurríki.
Hættulegast í svona keppni
að gefast of fljótt upp
Það er hættulegast við svona
keppni hvað menn gefast fljótt upp
— sama hvort það er leikmaður,
þjálfari, áhorfandi eða fréttamaður.
Það er marg sannað mál þegar á
reynir að þetta ekki nema eitt
stangarskot, eða annað smávægi-
legt, sem ræður því hvort að við
erum A- eða B-þjóð, sigurvegari eða
miðlungsleikmaður.
- Það var viss hræðsla fyrir leik-
inn gegn Noregi. Heldur þú að
menn hafi hugsað of mikið um þann
leik?
„Nei, ég held ekki. Undanfarin
ár höfum við unnið Norðmenn og
þegar að er gáð erum við með betra
lið er Norðmenn."
Hringlandaháttur í undirbún-
ingi og vali landsliðsins
- Hér hafa menn sagt að ekki
sé hægt að bera landsliðið saman
við það lið sem vann B-keppnina
1989, sem var búið að vera meira
og minna saman í sjö ár. Hvað seg-
ir þú um það?
„Ég held að hringlandahátturinn
í undirbúningi og vali á landsliðinu
— og vangaveltur um að það vanti
þennan og það vanti hinn, þessir
séu ekki nógu góðir og vantraust á
hina og þessa, hafi skilað sér í
óánægju hjá leikmönnum, sem voru
ekki hressir með framgang mála
undir niðri.“
•— Þetta hefur verið hættuleg
þróun, sem angraði leikmenn í und-
irbúninginum?
„Já, það er engin spurning. Það
er grunnt á þessari óvissu og þar
af leiðandi hafa leikmenn ekki náð
að sýna sitt rétta andlit. Það gerð-
ist ekki fyrr -en í síðasta leiknum
gegn Sviss — á lokasprettinum þeg-
ar menn náðu að rífa sig upp og
sýna hvers megnugir við erum. Við
getum þetta.“
Ungu strákarnir misstu
trúna á sjálfa sig
- Það hefur þá myndast viss
spenna hjá leikmönnum í undirbún-
ingnum, leikmenn fóru að hugsa
um hvort þeir væru í liðinu, eða
ekki?
„Já, og ég held að mesta óánægj-
an sé, með fullri virðingu fyrir eldri
leikmönnunum — ég segi að þeir
áttu hundrað prósent rétt á að vera
hérna og voru kannski bestu leik-
menn okkar í mótinu — að við þurft-
um sífellt að spila undirbúningsleiki
undir tali um að það vanti hina og
þessa. Þetta var gert allan tímann,
allan undirbúningstímann, allt
haustið. Það fyllti ungu strákana
óöryggi og sjálfstraustið hvarf. Þeir
hættu í rauninni að trúa á sjálfa
sig — biðu í rauninni eftir því að
gefið væri grænt ljós á að þeir
gömlu kæmu inn. Og þegar þeir
komu inn biðu ungu leikmennirnir
eftir því að þeir kláruðu allt. Þeir
gleymdu því að þeir þurfa einnig
að leika sinn handknattleik og skila
sínu. Því miður vill það vera svo
að þegar leikmenn, sem eru ekki
með nægilega reynslu - fá svona
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
frá Vín
Vil helst fá fyrsta
leik gegn íslandi
- sagði Jakob Jónsson, sem fær
senn tækifæri með norska landsliðinu
JAKOB Jónsson, leikmaður
með norska liðinu Víkingi, fær
senn tækifæri með norska
landsliðinu, eins og greint var
frá í blaðinu í gær. Jakob von-
aði reyndar innst inni að hann
fengi tækifæri með því í B-
keppninni, þó Gunnar Pett-
ersen, landsliðsþjálfari Nor-
egs, hefði sagt honum að
sennilega yrði hann ekki með
fyrr en eftir keppnina.
Jakob, sem var áður leikmaður
KR og KA, hefur spilað sam-
tals í fimm ár í Noregi. Hann lék
með Stavanger I tvö ár, var síðan
heima á íslandi næstu tvö árin,
en hefur leikið með Víkingi í Sta-
vanger undanfarin þijú ár og varð
norskur ríkisborgari s.I. haust.
Hann sagðist hafa sótt um ríkis-
borgararéttinn til að Víkingur
gæti fengið tvo erlenda leikmenn
til liðs við sig.
Hugsaði aðeins um félagið
„Ég var bara að hugsa um fé-
lagið, því það skiptir mig engu
hvorí ég er íslenskur eða norskur
ríkisborgari. Hins vegar lét ég
mig ekki dreyma um norska
landsliðið á þeirri stundu, því hóp-
urinn hefur verið lengi saman og
hafði þegar sannað sig í haust.
Landsliðsþjálfarinn sagðist reynd-
ar vilja gefa mér tækifæri, en
sennilega ekki fyrr en eftir B-
keppnina."
Pettersen staðið sig vel
Jakob sagði að málið hefði fyi'st
komið opinberlega til tats, þegar
Víkingur og Sandefjord mættust
í norsku deildinni fyrr í vetur, en
Pettersen þjálfar einnig Sande-
fjord. „Blöðin hérna slógu því þá
upp að ég og tveir aðrir í Víkings-
liðinu ættu heima í landsliðinu,
en enginn okkar var valinn. Marg-
ir voru ekki sammála vali Petter-
sens eins og gengur, en hann vissi
hvað hann var að gera og getur
borið höfuðið hátt, enda staðið sig
mjög vel.“
Þorbergur gerði rétt
En hvemig er tilhugsunin fyrir
íslendinginn að fara að leika með
norska landsliðinu?
„Menn hafa ekki verið sóttir til
Noregs í íslenska landsliðið og ég
fékk aldrei tækifæri með liðinu,
en Þorbergur [Aðalsteinsson] hef-
ui' örugglega staðið rétt að málum
og getur verið ánægður með ár-
angurinn í Austurríki. Ég hef
reyndar ekki enn verið valinn í
norska liðið, en auðvitað verður
gaman að fá tækifæri og ég geri
ráð fyrir að fá að reyna mig í
vinstra hominu. Ég hefði viljað
leika í Austurríki, en það væri
gaman að fá fyrsta leik gegn ís-
landi!"
Jökull Jörgensen varð í öðru sæti
í karlaflokki.
SKVASS
Amarog
Ragnheid-
urunnu
Islandsmótið í skvassi lauk um
helgina í Veggsporti við Gullin-
brú. Islandsmeistari í karlaflokki
varð Arnar Arinbjarnar, en hann
vann Jökul Jörgensen, 3:0, í úrslita-
leik. Kim Magnús sigraði Valdimar
Óskarsson 3:2 í leik um þriðja sætið.
í kvennaflokki varð Ragnheiður
Víkingsdóttir íslandsmeistari. Hún
vann Elínu Blöndal 3:0 í úrslita-
leiknum. Kristín Briem sigraði Ástu
Ólafsdóttur 3:1 í leik um þriðja
sætið.
Valdimar í kunnugri stellingu. Hann
inn fyrir B-keppnina.
í andlitið, hætta þeir að trúa því
hvað þeir kunna og geta. Þetta
hefur verið stóra vandamálið hér.“
- Nú er HM-keppnin í Svíþjóð
framundan á næsta ári. Þú verður
að sjálfsögðu áfram með?
„Það veit maður aldrei. Ég ætla
ekki að segja eitt eða neitt — það
verður að koma í ljós.“
Aldrei átt jafn mikinn efnivið
- Telur þú að það náist að
þjappa landsliðinu saman á einu ári?
„Ég verð að segja eins og er að
það ætti að vera hægt. Það er búið
að þjálfa þetta lið í tvö ár — end-
umýjun er nánast engin. Þetta er
aðeins spurning um hæfileika að
klára þetta mál og byggja þetta lið
upp saman. Það er ekki neitt ann-
að. Efniviðurinn er til staðar - það
er engin spurning. Ég tel að við
eigum að sýna að við erum ein af
sjö eða átta bestu þjóðum heims.
Éf það tekst ekki getum við kennt
sjálfum okkur um. Við höfum aldr-
ei átt eins mikinn efnivið og við
eigum í dag. Aldrei! Við erum með
Morgunblaðið/Bjarni
er ekki fyllilega sáttur við undirbúning-
þijá fjóra heimsklassa leikmenn í
öllum stöðum, ef ekki fleiri.
Handknattleikur hentar ís-
lendingum mjög vel
- Það er þá orðið vandamál hvað
við eigum marga góða leikmenn?
„Já, það er engin spurning. Sem
betur fer er breiddin alltaf að auk-
ast og ef svona heldur áfram verð-
um við ein frægasta handknatt-
leiksþjóð í heimi - fyrir það hvers
megnugir við erum. Mín skoðun er
sú að handknattleikur sé íþrótt
númer eitt á Islandi. Þetta er íþrótt
sem hentar Islendingum fram í
fingurgóma. Við erum fæddir góðir
handknattleiksmenn - það er því
aðeins spurninginn hvort við viljum
vera góðir handknattleiksmenn.
Sumar íþróttir henta ekki _öllum,
en handknattleikur hentar íslend-
ingum númer eitt, tvö og þijú.
Þannig erum við góðir og við verð-
um alltaf góðir,“ sagði Valdimar
Grímsson eftir að B-keppninni lauk
í Vín.
Kóreumenn
koma óvænt
LANDSLIÐ Suður-Kóremanna
kemur til landsins í dag öllum
á óvart. Forráðamenn Hand:
knattleikssambandsins (HSÍ)
höfðu verið í sambandi við
Kóreumenn fyrir rúmum mán-
uði en engin svör fengið frá
þeim, þar til í fyrradag að
skeyti barst þess efnis að þeir
kæmu til landsins í dag.
unnar K. Gunnarsson, varafor-
maður HSÍ, sagði í gærkvöldi
að þetta væri hið furðulegasta mál.
„Kóreumenn höfðu samband við
okkur fyrir rúmum mánuði og ósk-
uðu eftir leikjum hér. Þeir eru í
æfingaferð í Evrópu til að undirbúa
sig fyrir Ólympíuleikana. Við send-
um svar um hæl þar sem sagði að
landslið okkar gæti ekki leikið við
þá þar sem það væri nýkomið úr
B-keppninni og þá tæki við tími þar
sem félagsliðin hefðu sína leikmenn
vegna úrslitakeppninnar," sagði
Gunnar.
„Við könnuðum vilja nokkurra
félaga fyrir „opinberum æfinga-
leikjum" við Kóreumenn og undir-
tektir voru þokkalegar þannig að
við sögðum þeim að þeir gætu feng-
ið leiki við sterk félagslið. Svo líður
og bíður og við heyrum ekkert frá
þeim þannig að við sendum þeim
ítrekun en ekkert svar barst við
henni heldur þannig að við flautuð-
um þetta af. Svo var það í dag [í
gær] þegai' við komum heim frá
Austurríki að okkur er sagt að
skeyti hafi komið um helgina sem
segi að þeir komi til landsins mið-
vikudaginn 1. apríl.
Við getum auðvitað ekkert annað
gert en að vera þeim innan handar
um æfingar og æfingaleiki, en þetta
er ákaflega óvenjuleg staða sem við
erum komnir í og kom raunar eins
og þruma úr heiðskýru lofti. Ég
vona bara að félögin séu tilbúin til
að leika einhveija leiki við þá,“
sagði Gunnar.
STYRKIR
Fimm félög fá styrk
Stjórn Afreks- og styrktarsjóðs
Reykjavíkur, sem skipuð er
fulltrúum _frá íþrótta- og tómstund-
aráði og íþróttabandalagi Reykja-
víkur, hefur ákveðið að styrkja
fimm íþróttafélög í Reykjavík um
samtals 2,3 milljónir króna.
Styrkirnir eru veittir fyrir árang-
ur viðkomandi félaga á síðasta ári.
f I I I I - J • : 11 i,I. .1 /I I I l:r;4 , I; •
Styrkirnir skiptast þannig:
kr.
Víkingur, knattspyrnudeild ...400.000
Valur, handknattleiksdeild ....400.000
Valur, knattspyrnudeild......300.000
Víkingur, blakdeild...........300.000
ÍS, körfuknattleiksdeild.....300.000
KR, körfuknattleiksdeild.....300.000
Fram, handknattleiksdeild....300.000