Morgunblaðið - 04.04.1992, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992
Ungur maður stunginn í brjóstið:
Kunningi manns-
ins hefur játað
á sig verknaðinn
Morgunblaðið/KLiA
Nýjar götur lagðar í Grafarvogi
Um þessar mundir er verið að vinna að gatnagerð í nýju hverfi í Grafarvogi, Rimahverfí og er áætlað
að hverfíð verði bygginarhæft um mitt sumar. Verktakafyrirtækið Völur vinnur verkið en það var boðið út
á vegum gatnamálastjóra. Hér má sjá starfsmenn verktakafyrirtækisins við vinnu sína.
UNGUR maður var stunginn í brjósthol með hnífi á heimili sínu
við Smyrlahraun í Hafnarfirði á sjötta tímanum í gærmorgun.
Lagið gekk í lunga mannsins, sem var fluttur á sjúkrahús til
aðgerðar og var talinn úr bráðri lífshættu síðdegis I gær, að
sögn rannsóknarlögreglu. Tveir menn, kunningjar þess sem stung-
inn var, voru handteknir vegna málsins í gær og hefur annar
þeirra játað á sig verknaðinn. Lögð var fram krafa um gæsluvarð-
hald yfir honum í sakadómi í gærkvöldi. Mennirnir hittust á vín-
veitingastað í fyrrakvöld, fóru þaðan saman í teiti og síðan heim
til þess sem stunginn var. Ýmislegt var óljóst um aðdraganda
árásarinnar í gærkvöldi en þá voru yfirheyrslur nýlega hafnar.
Lögreglan í Hafnarfírði var köll-
uð að húsi við Smyrlahraun
skömmu fyrir klukkan sex í gær-
morgun. Þar fundu lögreglumenn
húsráðandann blóðugan og hafði
verið lagt til hans’ með 20 senti-
metra löngum búrhníf. Sá sem
hefur játað á sig verknaðinn var
þá farinn af staðnum en var hand-
tekinn síðar um daginn. Þriðji
maðurinn, sem talið er að hafi orð-
ið vitni að atburðinum, var að hlúa
að hinum slasaða þegar lögregla
kom að. Sá var yfirheyrður sem
vitni í málinu í gærkvöldi og látinn
laus að því loknu.
Lagið hafði gengið inn í hægra
Loðnuvertíð
lunga mannsins. Hann var talinn
í bráðri lífshættu og var fluttur til
aðgerðar á sjúkrahúsi. Þar lá hann
á gjörgæsludeild í gær en var tal-
inn úr bráðri hættu.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Samningar við EB heyrðu
undir utanríkisráðuneytið
JÓN Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra segir að samningagerð
við erlend ríki heyri undir utanríkisráðuneytið og þar af leiðandi
heyrði umsókn um aðild að EB undir utanríkisráðuneytið, ef af yrði.
Utanríkisráðherra sagði þetta í samtali við Morgunblaðið í gær, er
hann var spurður álits á þeim ummæium Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra og Björns Bjarnasonar alþingismanns að álitamál sé hvort
líta beri á hugsanlega aðildarumsókn að EB sem utanríkismál eða
innanríkismál, á meðan málið sé til umræðu hér á landi.
„Samkvæmt íslensku stjórnkerfí
er það svo að mál sem ekki heyra
undir sérstakan fagráðherra éru
sameiginleg verkefni ríkisstjórnar
og heyra þá undir forystu forsætis-
ráðuneytisins. A hinn bóginn er það
svo að samningagerð við erlend ríki
heyrir undir utanríkisráðuneytið.
Þannig hefur ekki hvarflað að nein-
um annað en að utanríkisráðuneyt-
ið fari með samninga við erlend
ríki eins og við til dæmis höfum
gert varðandi þetta risavaxna verk-
efni, sem er samningurinn um evr-
ópska efnahagssvæðið. Verkstjóm
í því efni hefur verið á hendi utan-
ríkisráðherra," sagði Jón Baldvin.
Jón Baldvin sagði að EES-samn-
ingurinn spannaði geysivítt svið.
Þar hefði verið samið um málefni
sem heyrðu undir hin ýmsu ráðu-
neyti, svo sem fjármálaráðuneyti',
iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti,
sjávarútvegsráðuneyti og félags-
málaráðuneyti. í þeim skilningi
væri þetta auðvitað ríkisstjórnar-
mál, því stjórnkerfið allt og því sem
næst öll ráðuneytin hefðu komið
að því máli.
„Sama máli gegnir auðvitað um
umsókn um aðild að Evrópubanda-
laginu. Hún er nánast hliðstæð
Frumvarp um verndun barna og ungmenna:
Y fii’stj óni barnavemdarmála
til félagsmálaráðuneytisins
Barnaverndarráð fari með fullnaðarúrskurðarvald í bamaverndarmálum
í FRUMVARPI til laga um vernd barna og unglinga er gert ráð
fyrir því að yfirstjóm barnavemdarmála fari frá menntamálaráðu-
neyti til félagsmálaráðuneytis. Eftirlit með störfum bamaveradar-
nefnda og leiðbeiningarskylda verður og í félagsmálaráðuneytinu.
Barnaveradarráð á að hafa með höndum fullnaðarúrskurðarvald
í barnaveradarmálum. Stefnt er að stækkun barnaverndarumdæma.
lýkur í dag'
VÍKINGUR AK var eina loðnu-
skipið á miðunum við Snæfells-
nes í gærkvöldi og var komið
með 150 tonn um kvöldmatar-
Ieytið. „Það er ekkert að hafa,
aðrir eru hættir loðnuveiðum á
þessari vertíð og við hættum á
morgun,“ sagði Viðar Karlsson,
skipstjóri á Víkingi, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
í gær var búið að veiða rúm 631
þúsund tonn af 751 þúsund tonna
loðnukvóta okkar og því voru tæp
120 þúsund tonn óveidd af kvótan-
um, að sögn Jóns Ólafssonar fram-
kvæmdastjóra Félags íslenskra
fiskmjölsframleiðenda. Hjálmar
Vilhjálmsson fískifræðingur segist
reikna með að Hafrannsóknastofn-
un fari á næstunni yfir þessa
loðnuvertíð með hagsmunaaðilum.
Fram hefur verið lagt stjómar-
frumvarp, í níu köflum og 71 grein,
um vernd barna og ungmenna.
Helztu nýmæli frumvarpsins eru
þessi:
Frumvarpið felur í sér að yfír-
stjóm barnaverndarmála verði í
höndum félagsmálaráðneytis í stað
menntamálaráðuneytis eins og nú
er. í greinargerð segir að barna-
vemdarstörf tengist félagslegri
þjónustu, sem unnin er á vegum
sveitarfélaga, en yfirstjóm sveitar-
stjómarmála sé í félagsmálaráðu-
neytinu. Yfirstjóm barnavemdar-
mála er sögð í félagsmálaráðuneyt-
um hjá öðmm Norðurlandaþjóðum.
Bamaverndarráð fer einungis
með fullnaðarúrskurðarvald í
bamavemdarmálum, samkvæmt
fmmvarpinu, en ráðgjöf til bama-
verndarnefnda flyzt í félagsmála-
ráðuneytið sem og eftirlit með
störfum nefndanna.
í greinargerð segir að brýnt
þyki að stækka barnavemdarum-
dæmin, en þau eru nú yfir tvö
hundruð talsins, þar eð smæstu
umdæmin hafi ekki bolmagn til
að sinna raunhæfu barnaverndar-
starfí eða ráða starfsfólk með sér-
þekkingu við úrlausn bamavemd-
armála.
í fmmvarpinu er leitast við setja
skýrari ákvæði um skyldur bama-
vemdaryfírvalda gagnvart bömum
og ungmennum. Kveðið er á um
skyldur yfírvalda gagnvart börnum
sem lenda í eða verða fyrir afbrot-
um. Nauðsynlegt er, segir í
greinargerð, að gera breytingar á
lögræðislögum um innlögn ung-
EES-samningunum að öllu leyti.
Þetta væm samningar við erlend
ríki, sem heyra undir utanríkis-
ráðuneytið, en samningssviðið er
svo vítt að það spannar allt stjórn-
kerfíð og er þess vegna ríkisstjórn-
armál,“ sagði utanríkisráðherra.
Sú skoðun hefur komið fram hjá
Birni Bjarnasyni alþingismanni að
forsætisráðuneytið fremur en utan-
ríkisráðuneytið eigi að fara með
EB-málið. Jón Baldvin var spurður
hvort hann liti þannig á að þessi
skoðun kæmi í kjölfar þess að Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra ákvað
síðastliðið haust að ráða til sín sér-
stakan sérfræðing í alþjóðamálum:
„Sú ákvörðun á sínum tíma var
tekin án samráðs við utanríkis-
ráðuneytið. Ég gef mér ekki fyrir-
fram að það séu einhver tengsl á
milli þessa tvenns, og hef ekkert
tilefni til að álykta sem svo.“
Utanríkisráðherra var spurður
hvort ákvörðun forsætisráðherra
menna á stofnun, sem stefna eigin
heilsu og þroska í hættu með vímu-
efnaneyzlu.
í fmmvarpinu em og ítarlegri
ákvæði um ráðstöfun barna í fóst-
ur, svo og um réttarstöðu bama í
fóstri, fósturforeldra og kynfor-
eldra. Þá em ákvæði um starfs-
hætti barnaverndamefnda og
málsmeðferð sett í sérstakan kafla.
Leitast er við að skilgreina betur
réttarstöðu bama og ungmenna í
barnaverndarmálum. Böm eiga að
jafnaði rétt á að tjá sig um mál
og er það skylt þegar bam er 12
ára. Felld em á brott ákvæði um
skoðun kvikmynda, en eðlilegt
þykir að þau verði í lögum um
bann við ofbeldiskvikmyndum.
frá í haust og sú skoðun úr þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins að for-
sætisráðuneytið ætti að fara með
EB-mál væri ekki vísbending um
átök á milli stjórnarflokkanna um
verkaskiptingu milli ráðuneytanna:
„Ef það væri, þá hefði það verið
tekið upp til umræðu innan ríkis-
stjórnarinnar. Það hefur ekki verið
gert. Málið er órætt með öllu og
ég sé ekkert tilefni til slíkrar um-
ræðu, vegna þess að þær reglur sem
um þetta gilda í stjómkerfínu em
skýrar og þær hefðir sem skapast
hafa sömuleiðis," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra.
-----» ♦ ♦----
Mjólkurfræðingadeilan:
Viðræður í
biðstöðu fram
yfir helgina
RÍKISSÁTTASEMJARI ætlar
að hafa samband við viðræðuað-
ila í deilu mjólkurfræðinga og
viðsemjenda þeirra á mánudags-
morgun um hvort hægt verður
að halda samningafundum
áfram, en vinnuveitendur slitu
viðræðum eftir miðnætti á
fimmtudagskvöld þegar fyrir lá
að mjólkurfræðingar hefðu boð-
að verkfall frá og með föstudeg-
inum 10. apríl.
Að sögn Guðlaugs Þorvaldsson-
ar ríkissáttasemjara vilja vinnu-
veitendur að viðræðurnar verði
látnar ganga inn í heildarsamninga
aðila vinnumarkaðarins en mjólk-
urfræðingar vilja að sérviðræðum
verði haldið áfram. í þeirra kröfum
vegur þungt ótti um atvinnuöryggi
í stéttinni vegna samdráttar í
mjólkurbúum þar sem búist er við
að nokkur smærri fnjólkurbú verði
lögð niður. Að sögn Guðlaugs
fara þessa dagana fram fundir í
félögum launþegasamtakanna
vegna stöðu kjaraviðræðnanna og
er boðaður fundur í framkvæmda-
stjórn Verkamannasambandsins á
þriðjudag. „Ég held að ef dregur
til tíðinda í næstu viku verði það
ekki fyrr en á þriðjudag eða mið-
vikudag," sagði hann.
\