Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐH) LAUGARÐAGUR 4. APRIL 1992
13
kenndi fyrir alþjóð í útvarpi, að fjár-
hagsáætlun A-flokkanna hefði verið
ofspennt og að heildarskuldir bæj-
arfélagsins hefðu verið í raun um
1840 milijónir, þ.e. 2000 milljónir
á núvirði. Skuldirnar nú segir Guð-
mundur Oddsson að séu 2650 millj-
ónir án þess að búið sé að ljúka
reikningum bæjarins.
Hvaða tala sem nákvæmlega
kemur út úr endanlegu uppgjöri,
þá mega menn ekki gleyma því,
hvað eignir og framtíð bæjarins
standa á móti skuldatölunni.
Fólk streymir nú til bæjarins að
byggja sér heimili. Nægar lóðir eru
nú fyrir hendi í fyrsta sinn í sögu
bæjarins. íbúafjöldinn mun vaxa
mikið á næstu árum án mikillar
útgjaldaaukningar. Fjárhagur mun
því fara batnandi á næstu árum
vegna framsýni núverandi meiri-
hluta. Kópavogur er kominn í sókn
eftir afturhalds- og stöðnunar-
stefnu fyrri meirihluta.
Vinnubrögð fyrri meirihluta
Nokkur megineinkenni stjórnar-
fars fyrri meirihluta má draga hér
saman til glöggvunar.
Hið fyrsta er, hversu gersamlega
öll stjórnun og kostnaðareftirlit fór
úr böndunum. Þetta sést best á
yfirlitinu um áætlanir þeirra og
veruleikann hér að framan.
Til viðbótar þessu veltu þeir á
undan sér ógreiddum og óbókfærð-
um reikningum við hver áramót,
sannkallað skókassabókhald.
Þeir notuðu skattfé borgaranna
til þess að gefa út kosningabækl-
inga fyrir sjálfa sig, sem best sést
á bæklingnum um íþróttahöllina,
sem kostaði milljónir eftir vinnslu
auglýsingastofunnar alþekktu,
Hvíta hússins.
Þeir notuðu skattfé borgaranna
til þess að halda veislur sjálfum sér
helst til heiðurs. Þeir notuðu skattfé
borgaranna til þess að greiða sjálf-
um sér aukalaun í gegnum misþarf-
ar sérnefndir á vegum bæjarins.
Síðasta hugmynd Guðmundar
Oddssonar í bæjarstjórn var að
hækka útsvarið um 110 milljónir á
þessu ári. Þó vissulega sé einfald-
ara að stjórna með því að senda
skattgreiðendum sífellt reikninginn,
þá hafnaði núverandi meirihluti
þessari leið Guðmundar.
Þess má geta að Kópavogur er
nú með þriðju lægstu heildarálögur
á íbúa á höfuðborgarsvæðinu.
Kópavogur er eina bæjarfélagið,
sem býður upp á 10% staðgreiðslu-
afslátt á fasteignagjöldum.
Meðan Guðmundur Oddsson
stjórnaði Kópavogi, þá ásakaði
hann hvern þann sem gagnrýndi
störf hans um „að sverta og rægja
sitt eigið bæjarfélag“. Nú, þegar
hann er í stjórnarandstöðu, þá reyn-
ir hann að gera alla hluti tortryggi-
lega sem núverandi meirihluti
stendur að. Eftir því sem hlutirnir
virðast ætla að ganga betur, þeim
mun verr virðist Guðmundi líða.
Núverandi meirihluti mun ekki
láta deigan síga, heldur halda
ótrauður áfram á markaðri braut.
Árangurinn verður lagður í dóm
kjósenda árið 1994. Það er „ofur
eðlilegt að A-flokkarnir kvíði þeim
dómi í ljósi framansagðs.
Höfundur er oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og
fornmóur hæjarráös.
werzalitr
SÓLBEKKIR^
fyrirliggjandi.
Þola
vatn
Mk SENDUM f PÓSTKRÖFU
p. ÞORGRÍMSSON &CQ
Ármúla 29 • Reykjavík • sími 38640
Hjartsláttur - taktur lífsins
eftir Sigurð Helgason
Alþjóðaheilbrigðisdagur er 7.
apríl 1992 og af því tilefni hafa
verið valin einkunnaroðin: Hjart-
sláttur - taktur lífsins. Dagurinn
er helgaður baráttunni við krans-
æðasjúkdóma, sem í dag eru taldir
skæðasti óvinur heilsunnar. Komið
hefur í ljós að um fjórða hvert
dauðsfall má rekja til þessa sjúk-
dóms. Fagna ber að þessi sjúkdóm-
ur er í mikilli rénun hér á landi og
um heim allan. Með markvissu for-
varnastarfi má ná miklum árangri
og framfarir hafa orðið með bætt-
um lækningum. Mikill árangur hef-
ur einnig áunnist með breyttum lífs-
stíl, réttu mataræði, líkamsrækt og
banni við reykingum, svo nokkuð
sé nefnt. En allt foi'varnastarf
byggist á því að almenningur og
ríkisvaldið styðji §árhagslega alla
þá sem vinna gegn þessum sjúk-
dómi, en baráttan er kostnaðarsöm
og fjölda mannslífa má bjarga með
réttum varnarráðstöfunum.
Ég mun hér í stuttri grein rekja
störf tveggja landssamtaka, sem
lagt hafa mikið af mörkum í þess-
ari baráttu og hafa notið til þess
mikils velvilja allrar þjóðarinnar.
Hjartavernd
Stofnfundur Hjartaverndar, sam-
taka hjarta- og æðasjúkdómavarna-
félaga á íslandi, var haldinn 25.
október 1964. Tilgangur samtak-
anna er barátta við hjarta- og æða-
sjúkdóma, utrbeiðslu þeirra og af-
leiðingat'. í þeirri baráttu skyldi
beita ýmsum ráðum og var það
nánar skilgreint í sjö meginatriðum.
Hjartavernd hefur þó frá upphafi
aðallega beint kröftum sínum að
tveimur megin verkefnum: rann-
sóknum og fræðslu. Rannsóknar-
stöð Hjartaverndar tók til starfa
1967 og hafa í stórri hóprannsókn
verið gerðar um 90 þúsund einstakl-
ingsskoðanir. Mjög mikið af upplýs-
ingum liggja fyrir, sem ekki hefur
enn unnist tími að rannsaka til hlít-
ar, enda mjög fjárfrekt og framlög
af skornum skammti. Farnar voru
ferðir um allt land og á þann hátt
reynt að gera almenning virkan í
foi'vörnum. Var lögð höfuðáhersla
á baráttu gegn mestu áhrifavöldun-
um, þ.e. reykingum, háum blóð-
þrýstingi og hækkaðri blóðfitu.
Rannsóknarstöð Hjartaverndar hef-
ur sérstaklega gert könnun á þess-
um áhættuþáttum og lagt mikið af
mörkum í margvíslegum rannsókn-
um á þeim og fjöldi ritgerða hefur
verið saminn um þessi efni. Blaðið
Hjartavernd hefur komið út í 27
ár og birt fjölda stórmerkra greina
um ýmiss efni á þessu sviði.
Á aðalfundi Hjartaverndar komu
fram ýmsar merkar upplýsingar í
skýrslu Magnúsar Karls Pétursson-
ar formanns og í skýrslu yfirlæknis
Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar,
dr. Nikulásar Sigfússonar. Nú er
stóru hóprannsókninni nær lokið og
er nú unnið að því að gera öldrunar-
rannsókn, jafnframt er hafin undir-
búningur að næsta stóra rannsókn-
arverkefni Hjartaverndar. Rann-
sakað verður heilsufar yngra fólks
á íslandi og þær fléttaðar við fyrri
hóprannsóknir Hjartaverndar með
því að athuga afkomendur þeirra
sem tóku þátt í upphaflegu hóp-
rannsókninni og eru þá hafðir í
huga erfðafræðilegir þættir. Hefur
þegar farið fram forkönnun í sam-
ráði við erfðafræðinefnd, sem lofar
góðu.
MONICA-rannsóknin er ijölþjóð-
arannsókn á vegum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar og er til-
gangur hennar að kanna breytingar
á tíðni kransæðastíflu meðal þátt-
tökuþjóða á 10 ára tímabili. Þá eru
kannaðar helstu breytingar á
áhættuþáttum þessa hóps og á
grundvelli þeirra verður hafist
handa um varnaraðgerðir. Rann-
sóknin sýnir að kransæðatilfellum
fer stórlega fækkandi og við stönd-
um framarlega miðað við aðrat'
þjóðir heims. Rannsóknir þessar
hafa hlotið mikið lof frá Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni.
Hugmyndin er að Hjartavernd
gefi út matreiðslubók í samvinnu
við Krabbameinsfélag íslands og
Manneldisráð. Fyrst og fremst verð-
ur tekið mið af almennu hollustu-
fæði en íslenskt hráefni og matar-
venjurn haft til hliðsjónat'.
Landssamtök hjartasjúklinga
Landssamtök hjartasjúklinga
voru stofnuð 8. október 1983 og
var höfuðtilgangurinn að vinna að
margvíslegum hagsmunamálum
hjartasjúklinga. Opnuð var skrif-
stofa í Hafnarhúsinu 1985, sem
annaðist margvíslega fyrirgreiðslu
Sigurður Helgason
„Ég mun hér í stuttri
grein rekja störf
tveggja landssamtaka,
sem lagt hafa mikið af
mörkum í þessari bar-
áttu og hafa notið til
þess mikils velvilja allr-
ar þjóðarinnar.“
og upplýsingar fyrir félagsmenn.
Eitt af fyrstu verkefnum samtak-
anna var að kaupa fullkomin lækn-
ingatæki fyrir ýmsar sjúkrastofn-
anir og vinna að því að sem flestar
kransæðaaðgerðir yrðu gerðar hér
á landi. Félagið hefur starfað í 8
ár og gefið yfir 30 milljónir í tækj-
um miðað við kaupverð tækjanna,
en verðlag hefur stórhækkað á
þessu tímabili. Árið 1991 voru
keypt tæki fyrir yfir 7 milljónir og
má þar nefna stóran hlut í ómsjá
af fullkomnustu gerð og hjarta- og
lungnavél, sem þegar hefur bjargað
nokkrum mannslífum.
Á síðastliðnu ári var gerð róttæk
breyting á lögum samtakanna og
þau gerð að landssamtökum. Stofn-
uð voru 10 félög hjartasjúklinga á
öllu landinu og myndu þau deildir
og er aðalfundur LHS haldinn ann-
að hvert ár. Komið hefur í ljós að
allar deildirnar starfa ötullega og
haldnir hafa verið félags- og
fræðslufundir. Félagar eru yfir
2.000, en ekki hefur verið gert átak
í söfnun nýrra félaga, en allir sem
áhuga hafa á málefnum okkar geta
orðið félagar. Hvetja þarf fjölmarga
aðstandendur hjartasjúklinga að
gerast félagar. Hafin var útgáfa
blaðsins Velferðar árið 1989 og
hafa þegar komið út 6 hefti og
hefur því verið mjög vel tekið.
Á síðasta aðalfundi var einróma
samþykkt skipulagsskrá fyrir
Styrktarsjóð hjartasjúklinga. Til-
gangur hans er að styrkja efnalitla
hjartasjúklinga með fjárframlögum
og sérstaklega þá, sem fara í kostn-
aðarsamar aðgerðir erlendis. Sjóð-
urinn hefur þegar tekið til starfa
og styrkt nokkra aðila. Á sl. ári var
efnt til hjartagöngu 1991 og á 30
stöðum með um 4.000 þátttakend-
um. Ákveðið hefur verið að 27. júní
nk. fari hjartagangan 1992 fram.
Alltaf er að koma í ljós aukin þýð-
ing reglubundinna gönguferða fyrir
heilsuna. Á þetta jafnt við okkur
hjartasjúklinga og aðra, því hér er
um góða fyrirbyggjandi ráðstöfun
að ræða fyrir alla. Við eigum því
að leggja höfuðkapp á að fá al-
menna þátttöku í göngunni og
reyna að auka áhuga allra lands-
manna á gönguferðum.
Þá skal nefnt samvinnuverkefni
Landssamtaka hjartasjúklinga,
Hjartaverndar og SÍBS í rekstri
Endurhæfingarstöðvar hjarta- og
lungnasjúklinga - HL-stöðinni - í
íþróttahúsi lamaðra og fatlaðra í
Hátúni 14 og annarrar stöðvar á
Akureyri. Hér fer fram stórmerk
viðhaldsþjálfun hjartasjúklinga og
einnig er rekin endurhæfing fyrir
lungnasjúklinga, svo og frumæfing-
ar fyrir hjartasjúklinga eftir að-
gerðir. Mikil almenn ánægja er með
rekstur stöðvarinnar.
Sömu aðilar standa nú sameigin-
lega að alþjóðlegum heilsudegi þann
7. apríl, sem helgaður er hjartasjúk-
dómum. Standa þeir fyrir dagskrám
í ýmsum fjöimiðlum t.d. blöðum,
útvarpi og sjónvarpi.
Höfundur erfélags- og
útgáfustjóri Hjartaverndar og
formaður Landssamtaka
hjartasjúklinga.
HONDA ACCORD ER í FYRSTA . . .
. . . sæti í Bandaríkjunum sern
söluhæsti fólksbtllinn undan-
farin þrjú ár og var heiðraður
sem sá bíll sem eigendur voru
ánægðastir með. Accord hlaut
einnig verðlaunin um Gullna
stýrið í sínum flokki í Þýska-
landi.
Það er ekki hægt að segja að
Accord sé sportbíll, en hann er
eins nálægt því og hægt er að
komast sem fjöl-
skyldubíll. Það má
því kannski segja
að Accord sé fjöl-
skyldusportbíll.
Útlitshönnun
Accord er sérlega
vel heppnuð og
innréttingar í alla
staði vel úr garði
gerðar.
Accord er með
sextán ventla,
tveggja lítra vél og
nýja hönnun á
Ssveifarás sem
| dregur mjög úr titringi.
Accord er stórgóður bíll sem
uppfyllir ströngustu kröfur sem
gerðar eru til
fjölskyldubíla.
Accord ár-
gerð 1992 er
til sýnis að Vatnagörðum 24,
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar eru veittar
í síma 68 99 00
Verð frá: 1.548.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
M
HONDA