Morgunblaðið - 04.04.1992, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992
23
Anna Þóra Benediktsdóttir
Tónlistarskól-
inn í Reykjavík:
Burtfarar-
• •
próf Onnu
Þóru Bene-
diktsdóttur
TÓNLISTARSKÓLINN í
Reykjavík heldur tónleika í
Islensku óperunni mánudag-
inn 6. apríl kl. 20.30. Tónleik-
arnir eru burtfararpróf
Önnu Þóru Benediktsdóttur
píanóleikara frá skólanum.
Á efnisskránni eru ítalski
konsertinn eftir J.S. Bach, Imp-
romptu í B-dúr op. 142 nr. 3
eftir Schubert, Sónata í Fís-dúr
op. 78 eftir Beethoven, Þrír
þættir eftir Poulenc, Tvær etýð-
ur eftir Debussy og Ballaða í
As-dúr op. 47 eftir Chopin.
Aðgangur að tónleikunum
er ókeypis.
Hæstiréttur í máli fyrrum starfsmanna Orkustofnunar:
Til biðlauna reiknist um-
samin óunnin yfirvinna
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt ríkissjóð til að greiða fyrrum
starfsmanni Orkustofnunar, sem sagt var upp störfum frá
áramótum 1988, umsamda óunna yfirvinnu sem hluta af föstum
launum ásamt dagvinnulaunum í þann tíma sem hann naut
biðlauna og að auki orlofsfé á dag- og yfirvinnu á biðlauna-
tíma. Einnig var ríkissjóður dæmdur til að greiða ótekið orlof
með yfirvinnukaupi enda stóð svo á í málinu að talið var sann-
að að yfirmenn stofnunarinnar hafi mælst til þess að orlof
væri tekið utan hefðbundins sumarleyfistíma. Hins vegar var
ríkissjóður sýknaður af kröfu um að greiða með launum fyrir
ótekinn orlofstíma hinar umsömdu óunnu yfirvinnustundir, þar
sem af jafnan hafi verið greitt orlofsfé af fastri yfirvinnu.
Fallist var á það með ríkissjóði að þar með yrði um tví-
greiðslu að ræða. í héraðsdómi höfðu allar kröfur mannsins
verið teknar til greina, að efni til.
Maður þessi var eðlisfræðingur að ræða tvo jarðfræðinga, sem
sem sagt var upp vegna sparnað-
ai’ráðstafana hjá stofnuninni
haustið 1987 eftir 12 ára starf.
Hann átti þá ótekna 27 orlofsdaga
fyrir það ár, auk 1 dags frá fyrra
ári. Niðurstaða Hæstaréttar var
að greiða ætti honum rúmlega 201
þúsund krónur auk vaxta, en í
bæjarþingi Reykjavíkur hafði verið
fallist á kröfu sem nam um 225
þúsund krónum auk vaxta.
Síðustu 10 starfsár sín hjá
Orkustofnun hafði maður þessi
unnið samkvæmt ótímabundnum
ráðningasamningi og var réttur
hans til biðlauna viðurkenndur en
ágreiningurinn snerist um _ hvað
skyldi telja til fastra launa. í mál-
um tveggja annarra fyrrum starfs-
manna Orkustofnana, sem Hæsti-
réttur dæmdi í sama dag, var um
áttu að baki um 12 ára störf hjá
Orkustofnun er þeim var sagt upp
haustið 1987. Þeir höfðu ávallt
starfað samkvæmt ráðningar-
samningi til árs í senn eða þar um
bil. Öðrum var tilkynnt að ráðning-
arsamningur hans yrði ekki end-
urnýjaður en hinum var sagt uþp
tveimur mánuðum áður en samn-
ingurinn rann út. Ríkissjóður við-
urkenndi ekki að þeir ættu rétt til
biðlauna og var sú nðurstaða stað-
fest í héraði og Hæstarétti.
í héraði voru þeim, sem tilkynnt
var að samningurinn yrði ekki
endurnýjaður, dæmdar bætur
vegna yfirvinnu í óteknu orlofi og
yfirvinna í stað dagvinnu í óteknu
orlofi, þar sem lögð hefði verið
áhersla á að starfsmenn færu í
orlof utan orlofstíma, en synjað
um rétt til biðlauna. Sú niðurstaða
var staðfest í Hæstarétti að öðru
leyti en því að manninum var ekki
dæmd yfirvinna í orlofi, heldur
aðeins sama fjárhæð, rúmar 30
þúsund krónur, og í héraði vegna
yfirvinnu í stað dagvinnu í óteknu
orlofi, sem frestast hafði að frum-
kvæði yfirmanna hans. Staðfest
var synjun á rétti til biðlauna.
í máli hins mannsins, sem var
gert að láta af störfum tveimur
mánuðum áður en ráðningarsamn-
ingur hans rann út, var niðurstaða
Hæstaréttar hin sama að því leyti
að synjað var um biðlaun og yfir-
vinnu í óteknu orlofi en dæmd fjár-
hæð, tæpar 78 þúsund krónur,
vegna yfirvinnu í stað dagvinnu í
óteknu orlofi. Einnig voru honum
tildæmdar bætur vegna ólögmætr-
ar uppsagnar sem svöruðu til
fastrar yfirvinnu þá mánuði sem
eftir voru af ráðningarsamningn-
um, rúmlega 41 þúsund krónur,
auk orlofs á þá ijárhæð.
Mál þessi dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Haraldur Hemysson, Hjörtur
Torfason, Hrafn Bragason og Pét-
ur Kr. Hafstein, sem skilaði sérat-
kvæði í síðargreindu málunum
tveimur og vildi þar sýkna ríkið,
þ.e. iðnaðarráðherra fyrir hönd
Orkustofnunar og fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkissjóðs, af öll-
um kröfum mannanna tveggja.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
671800 ^
„Enginn verdmúr“
Saab 900i 4 dyra ’87, grásans, sjálfsk., ek.
76 þ. Gott eintak. V. 940 þús., sk. á ód.
Ath. Vantar á staðinn nýl. bíla árg.
’88-'92. Einnig vantar ódýra bíla
sem eru skoðaðir *93.
Peugout 205 junior ’90, ek. 16 þ. V. 550
þús.
Honda Accord EX-2.0Í ’88, hvítur, 5 g., ek.
60 þ., m/öllu. V. 990 þús. stgr.
Ford Bronco II XL ’88, rauður, 5 g., ek. 37
þ., krómfelgur, o.fl. Gott eintak.
V. 1290 þús. stgr., skipti á ód.
BMW 518i ’87, toppeintak, ek. 44 þ. V. 950
þús.
Chervolet Astro EXT 4x4 ’91, sjálfsk., ek
7 þ., ABS, rafm. í öllu, o.fl. Sem nýr.
V. 3150 þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade Sedan GS ’90, ek. 18
þ. V. 750 þús.
Daihatsu Rocky 4x4 '85, gott eintak.
V. 590 þús., stgr.
Honda Civic DX ’91, ek. 7 þ. V. 920 þús.,
sk. á ód.
Mazda 323 LX 1.3 ’90, ek. 29 þ. V. 820 þús.
MMC Colt GL '91, (VSK bíll), ek. 11 þ. (aftur-
sæti fylgja). V. 830 þús.
MMC Lancer hlaðbakur GLXi '91, ek. 21
þ. V. 1030 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla Liftback ’88, rauður, ek. 46
þ., samlitir stuðarar, o.fl. V. 790 þús.
Toyota Corolla XL 1.3 station '91, ek. 11
þ., 5 g., vökvast. o.fl. V. 940 þús.
Toyota Corolla XL 5 dyra, ’88, 5 g., ek. 40
þ. V. 590 þús., stgr.
Toyota Tercel 4x4 station '87, ek. 88 þ
V. 520 þús. stgr.
Volvo 245 GL station '86, blár, 5 g.f ek.
108 þ. V. 690 þús.
Renault Clio RN ’91 3ja dyra , 5 g., ek. 11
þ. V. 670 þús. stgr.
Ath. 15-30% staðgreiðsluafsláttur
ikligarður við Sund helur nú tekið miklum
Sm3 hefur lækkað stórlega!
,r nú pökkuð í neytendaumbuðir.
Öiisérvaraifatnaðurfvrirbörn'.g
fuilorðna, sportvara snvrtl”r . v'erði.
húsáhöld o. fl- Urvals vara a frab
3% staðgreiðsluafsláttur af öllum voru
5*^ SUnnudaQinn
AIIKIIG4RÐUR