Morgunblaðið - 04.04.1992, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
37
Minning:
Jón Helgi Jónsson
rennismíðameistari
Fæddur 31. maí 1933
Dáinn 24. mars 1992
Hinn 24. mars sl. lést langt um
aldur fram Jón Helgi Jónsson, renni-
smíðameistari í Borgarnesi. Jón var
fæddur í Vatnsholti í Staðarsveit 31.
maí 1933, sonur Jóns Ó. Stefánsson-
ar bónda þar og konu hans Jónínu
Þorsteinsdóttur, en þau eru bæði lát-
in. Jón var yngstur átta systkina sem
voru: Konráð og Ingibjörg sem eru
látin, Stefán, í sambúð með Guð-
laugu Gísladóttur og búa þau í
Reykjavík, Gunnar, kvæntur Auði
Guðmundsdóttur og búa þau á Álfta-
nesi, Margrét, húsmóðir í Ölkeldu,
gift Þórði Gíslasyni, Rannveig, hús-
móðir í Borgarnesi, gift Hirti Gísla-
syni, og Þorsteinn, kvæntur Öldu
Sófusdóttur og búa þau í Mosfellsbæ.
Jón ólst upp í foreldrahúsum þar
til hann hleypti heimdraganum og
hélt til náms í Reykjavík. Hann lauk
námi í rennismíði frá Iðnskólanum í
Reykjavík og starfaði með náminu
hjá Vélsmiðjunni Héðni hf., og fyrstu
árin að námi loknu. Á námsárunum
kynntist hann eiginkonu sinni,
Guðnýju B. Sigvaldadóttur sem ætt-
uð er frá Kollabúðum í Reykhóla-
sveit, dóttir hjónanna þar, Sigvalda
J. Dagssonar og Guðrúnar M. Krist-
jánsdóttur, sem nú er látin. Jón og
Guðný hófu búskap sinn árið 1960
og hefur sambúðin verið hin farsæl-
asta. Þau eignuðust ekki börn, en
systir Guðnýjar, Vigdís, ólst upp hjá
þeim og gekk Jón henni í föðurstað.
Vigdís er í sambúð með Guðmundi
Hjalta Stefánssyni og eiga þau einn
son og búa í Borgarnesi.
Skömmu eftir að Jón lauk námi,
hóf hann sjálfstæðan atvinnurekstur
í iðn sinni, fyrst í Reykjavík, en árið
1968 fluttu þau hjónin til Borgarness
og setti hann þar á stofn rennismíða-
verkstæði sem hann rak til dauða-
dags. Átti það vel við skapgerð Jóns
að vera sinn eigin húsbóndi og var
hann sístarfandi og áhlaupamaður
til vinnu og verkhagur með afbrigð-
um. Eins og allir vita hefur ekki
verið neitt sældarbrauð að vera sjálf-
stæður atvinnurekandi á lands-
byggðinni síðustu áratugi og á ýmsu
gengið og Jón fór ekki varhluta af
þeim sveiflum frekar en aðrir, en
síðustu árin gekk fyrirtæki hans
mjög vel og þeim mun grátlegra að
svo snöggt er höggvið á lífsþráðinn.
Jón hafði mikinn pólitískan áhuga
og skipaði sér ungur undir merki
Sjálfstæðisflokksins. Hann hóf strax
þátttöku í störfum flokksins hér í
Borgarnesi og var alla tið einn af
máttarstólpum hins fiokkslega
starfs. Hann vat' einn þeirra sem
alltaf mátti leita til þegar taka þurfti
til hendi og er okkur sérstaklega
minnisstæður dugnaður hans og
ósérhlífni við uppbyggingu Sjálf-
stæðishússins hér í Borgarnesi á sín-
um tíma.
Jón var í fulltrúaráði flokksins í
Mýrasýslu árum saman og í allmörg
ár formaður Sjálfstæðisféiags Mýra-
sýslu og nú síðustu árin var hann í
stjóm kjördæmisráðs sjálfstæðisfé-
laganna á Vesturlandi. Ég vil fyrir
hönd sjálfstæðisfélaganna í Mýra-
sýslu þakka honum vel unnin störf
og ánægjulega samvinnu á þeim vett-
vangi og sendum við eftirlifandi eig-
inkonu hans og öðrum ástvinum okk-
ar dýpstu samúðarkveðjur vegna
hins ótímabæra fráfalls Jóns.
F.h. sjálfstæðisfélaganna í Mýra-
sýslu,
Gísli Kjartansson.
Jón Helgi Jónsson, rennismíða-
meistari, Kveldúifsgötu 3, Borgar-
nesi, lést á Akranesspítala 24. mars
sl. eftir erfiða baráttu við banvænan
sjúkdóm. Jón var fæddur 31. maí
1933 að Vatnsholti á Snæfellsnesi
og ólst þar upp hjá foreldrum sínum
í hópi margra systkina. Rúmlega
tvítugur að aldri lauk hann námi í
rennismíði við Vélsmiðjuna Héðinn í
Reykjavík, vann síðan við véla- og
rennismíði [Reykjavík um nokkurra
ára skeið. Árið 1968 fluttist Jón til
Borgarness ásamt fjölskyldu sinni
og byggðu þau hjón þat' fallegt íbúð-
arhús á Kveldúlfsgötu 3 og um líkt
leyti setti hann á stofn véla- og renni-
smíðaverkstæði á satna stað, og gekk
það vel. Jón var með afbrigðum vand-
virkut' maður, það lék allt í höndun-
um á honum eins og sagt var hér
áður fyrr, hann var fljótur að átta
sig á því sem gera þurfti við erfiðar
viðgerðir, þegar komið var til hans
með slík verkefni, sem vöfðust fyrir
mörgum urðu þau enginn vandi í
höndunum á Jóni enda hafði hann
vanalega næg verkefni. 'Ég kynntist
Jóni fyrst eftir að hann fluttist í
Borgarnes. Eins og ég sagði áður
þá byggðu þau hjón íbúðarhús við
Kveldúlfsgötu, ásamt fallegum garði
og bjuggu þar við snyrtimennsku og
myndarskap um árabil. Borgarnes
er fallegur bær og er í þjóðbraut.
Ég ætla ekki að segja að Jón og
konan hans hafi byggt yfir þjóðbraut
þvera, en það lágu leiðir rnargra ferð-
alanga um hlaðið hjá þeim hjónum
og var boðið í bæinn og ekki vantaði
góðar veitingar og fallega búið borð.
Þetta var eiginlega áningarstaður
fyrir ferðafólk úr öllum áttum sem
þekktu þau hjón. Venjulega var það
svo að þegar sest var að borði birtist
húsbóndinn, kom þá af kontórnum
svo ég noti nú gamalt orðalag, eða
þá beint úr smicíjunni og settist þá
beint að borðum með gestum sínum
og var þá hrókur alls fagnaðar. Ég
held að hann hafi notið þess að fá
gesti í heimsókn, ekki síst gamla
sveitajálka sem mundu liðna tíð og
gátu frá mörgu sagt. Fyrir þessar
stundir sem ég átti með Jóni og fólki
hans við kaffiborðið í Borgarnesi er
ég honum og þeim ölium mjög þakk-
látur þær stundir gleymast ekki. Eins
og ég hef áður sagt átti Jón í höggi
við hættulegan sjúkdóm um margra
mánaða skeið, hann gekk þess ekki
dulinn en hann bar það svo vel, hann
sagði mér í vetur er hann dvaldi hjá
mér í nokkra daga vegna meðferðar
á sjúkdómi sínum að hann ætlaði að
sigra þennan hættulega andstæðing
og ég hélt og vonaði að honum myndi
takast það, en það fór á annan veg.
Árið 1960 gekk Jón að eiga eftirlif-
andi konu sína Guðnýju Sigvalda-
dóttur frá Kollabúðum, hinni ágæt-
ustu konu, sem átti sinn stóra þátt
í því að mynda þetta fallega heimili,
og ég vil votta henni og þeirra fólki
innilegustu samúð, ég vil svo að lok-
um óska þessum góða vini mínum
Jóni Helga góðrar ferðar inn í hina
miklu móðu og með þessum ljóðlínum
Jónasat' Hallgrímssonar vil ég kveðja
hann að lokum.
Flýt þér vinur í fegri heim,
kijúptu að fótum friðarboðans,
fljúgðu á vængjum morgunroðans,
meira að starfa Guðs um geim.
Jóhannes Árason.
Jón Helgi Jónsson, rennismíða-
meistari í Borgarnesi, lést 24. mars
sl. og verðut' hann jarðsunginn frá
Borgarneskirkju laugardaginn 4.
apríl.
Jón Helgi var fæddur 31, maí
1933 í Vatnsholti í Staðarsveit á
Snæfellsnesi og var hann sonur hjón-
anna Jóns Ó. Stefánssonar bónda og
konu hans Jónínu Þorsteinsdóttur.
Var hann yngstur 8 systkina.
Kynni mín af Jóni Helga hófust
þá, er hann vann hjá föður mínum
í Ólafsvík. Var hann jafnframt heim-
ilismaður hjá foreldrum mínum, en
góður vinskapur var milli föðurfólks
míns og fjölskyldunnar í Vatnsholti.
Eru ánægjulegar minningar tengdar
fyrstu kynnum okkar Jóns. Síðar
lágu leiðir okkar Jóns saman á vett-
vangi flokksstarfs Sjálfstæðisflokks-
ins á Vesturlandi eftir að hann sett-
ist að í Borgarnesi.
Jón Helgi lauk námi í rennismíði
frá Iðnskólanum í Reykjavík og
starfaði samhliða náminu hjá Vél-
smiðjunni Héðni hf. Frá árinu 1968
bjó Jón og starfaði í Borgarnesi og
rak hann sitt eigið rennismíðaverk-
stæði til dauðadags. Var Jón þekktur
fyrir vandvirkni sína og hversu ráða-
góður iðnmeistari hann var. Hann
lagði kapp á sjálfstæðan atvinnu-
rekstur sinn oft við erfiðar aðstæður.
Éftirlifandi eiginkona Jóns Helga
er Guðný N. Sigvaldadóttir, ættuð
frá Kollabúðum, Reykhólasveit. Þeim
varð ekki barna auðið, en hjá þeim
ólst upp systir Guðnýjar, Vigdís, og
gekk Jón henni í föðurstað.
Jón Helgi var virkur þátttakandi
í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins og
sat hann m.a. í stjórn Kjördæmisráðs
flokksins á Vesturlandi. Allt starf
hans á þeim vettvangi einkenndist
af áhuga og fórnfýsi fyrir málstað
flokksins. Fyrir það starf þakkar
sjálfstæðisfólk á Vesturlandi.
Á kveðjustund votta ég eiginkonu
og ættingjum Jóns Helga mína
dýpstu samúð.
Sturla Böðvarsson.
fSLENDINGAR
sýnum samstöðu
setjum ÍSLENSKT í
öndvegi!
Þegarþú kaupir ís/enska vöru skaparþú atvinnu í tandinu