Morgunblaðið - 01.05.1992, Page 1
88 SIÐUR B/C/D
98. tbl. 80. árg.
FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vargöld og upplausn í Los Angeles eftir sýknudóm yfir hvítum lögreglumönnum:
Morð á götum úti, íkveikj-
ur og gífurlegt eignatjón
Lögreglumenn standa á verði við
brennandi byggingar í Los Ang-
eles er miklar óeirðir blossuðu
þar upp í fyrrinótt eftir að kveð-
inn hafði verið upp sýknudómur
yfir fjórum lögreglumönnum,
sem voru sakaðir um að hafa
misþyrmt blökkumanni. Óeirð-
irnar kostuðu sextán manns lífið
og á fimmta hundrað særðust. I
gærkvöídi höfðu rúmlega 250
manns verið handteknir.
Utgöngubann í gildi og 4.000 þjóðvarð-
iiðar kallaðir til aðstoðar lögreglunni
Los Angeles. Frá Benedikt Stefánssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SEXTÁN manns biðu bana og á fimmta hundrað saérðust í öldu ofbeld-
is- og skemmdarverka sem reið yfir Los Angeles í fyrrinótt og í gær-
kvöldi. Slökkvilið reyndi að slökkva elda í hátt í 600 byggingum í
gærkvöldi og lögreglan hafði í engu tré við æstan skríl sem lagði eld
að verslunum og fór um með ránum og gripdeildum. Eldar loguðu enn
um alla borgina. Flugumferð um alþjóðaflugvöllinn var takmörkuð í
gær vegna þess að þykkan reykjarmökk lagði yfir suðurhluta borgar-
Fylkisstjóri Kaliforníu hefur lýst
yfír neyðarástandi í borginni og kall-
að 4.000 þjóðvarðliða til aðstoðar við
að koma á lögum org reglu. Út-
göngubann verður í gildi til dögunar
í dag. Að sögn lögreglustjóra borgar-
innar á lögreglan að stöðva og hand-
taka fólk sem er á ferli að nætur-
lagi, gefi það ekki gilda ástæðu fyr-
ir ferðum sínum.
Óeirðirnar blossuðu upp síðdegis
á miðvikudag að staðartíma þegar
tilkynnt var um sýknudóm yfir fjór-
um hvítum lögregluþjónum sem
ákærðir voru fyrir að hafa misþyrmt
svörtum ökumanni þegar þeir hand-
tóku hann fyrir ári. Mikil ólga greip
um sig í borginni þegar sjónvarps-
og útvarpsstöðvar skýrðu frá sýknu-
dóminum.
Tom Bradley borgarstjóri kvaðst
orðlaus vegna dómsins. „Kviðdómur-
inn sagði veröldinni að það sem við
sáum með eigin augum væri ekki
glæpur, bað okkur um að leggja
blessun okkar yfir að hjálparvana
maður væri beittur ofbeldi. Við látum
ekki viðgangast að lögregluþjónar,
sem láta ekki að stjórn, gangi milli
bols og höfuðs á borgurunum,“ sagði
Bradley á blaðamannafundi.
Aðeins fáeinum stundum eftir að
tilkynnt var um dóminn fluttu sjón-
varpsstöðvar myndir í beinni útsend-
ingu af skrílslátum í South Central-
hverfmu, þar sem lýður réðst að bíl-
um hvítra ökumanna, <jró þá út á
götu og barði til óbóta.
Eldar voru lagðir að byggingum
um allt South Central-hverfið í gær-
kvöldi og slökkvilið borgarinnar hafði
ekki undan að svara útköllum, sem
voru allt að 200 á klukkustund þeg-
ar verst lét. Þá þurftu slökkviliðs-
menn á lögregluvernd að halda til
að veijast árásum leyniskyttna og
var a.m.k einn fluttur á sjúkrahús
með alvarlega áverka á hálsi.
Ólæti voru einnig við ráðhús borg-
arinnar og höfuðstöðvar lögreglunn-
ar í borginni. Eignatjónið er metið á
100 milljónir dala, tæpa sex milljarða
ÍSK.
Sjá fréttir á bls. 30-31.
Ekkert lát var á íkveikjum og gripdeildum í Los Angeles í gær.
Þessi mynd var tekin af verslunarbyggingu í miðborginni í gærkvöldi.
Reuter
Opinberir starfsmenn leggja niður vinnu í Þýskalandi:
Kohl skorar á verkfalls-
menn að sýna sanngirni
Vaxandi efasemdir um framtíð sljórnarsamstarfsins
Bonn. Reuter.
OPINBERIR starfsmenn í Þýskalandi slökuðu aðeins á verkfallsað-
gerðum sínum í gær en ekkert bendir til samninga á næstu dögum.
Helmut Kohl kanslari höfðaði í gær til samvisku verkfallsmanna og
spurði hvort ein ríkasta þjóð í heimi gæti ekki afsalað sér örlitlu í
svipinn til að tryggja sem fyrst sömu kjör í öllu landinu, í austurhlut-
anum jafnt sem vesturhlutanum..
Verkfall opinberra starfsmanna
í Þýskalandi hefur staðið í fjóra
daga og er nú orðið það lengsta,
sem þeir hafa efnt til frá stríðslok-
um. í gær ákváðu samtökin að
senda suma starfsmenn í sam-
göngukerfinu aftur til starfa í einn
dag til að sýna samningsvilja en
ríkisvaldið og vinnuveitendur segj-
ast ekki vera til viðræðu um nærri
10% kauphækkun. Kohl kanslari
skoraði í gær á verkfallsmenn að
sýna sanngirni og krefjast ekki
kauphækkana, sem hefðu eingöngu
í för með sér aukið atvinnuleysi,
einkum í Austur-Þýskalandi.
Kvaðst hann ekki fara fram á nein-
ar fórnir en spurði hvort ekki væri
Viðbrögð George Bush Bandaríkjaforseta við óeirðunum í Los Angeles:
A
Ihuga málsókn gegn lögreglumönnunum
Boston. Frd Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins,
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að bandaríska dóms-
málaráðuneytið myndi kanna möguleikann á málsókn gegn lögreglu-
mönnunum fjórurn sem dómstóll í Los Angeles sýknaði af ákærum
um að hafa gengið í skrokk á blökkumanni.
Forsetinn gaf engin loforð um
að mennirnir yrðu sóttir til saka
en útilokaði það þó ekki í yfirlýs-
ingu sem hann las í Hvíta húsinu
'áður en hann lagði af stað í ferð
vegna forkosninga repúblikana.
Hann hafði frestað ferðinni til að
geta rætt við ráðgjafa sína um
sýknudóminn og óeirðirnar í Los
Angeles.
George Bush, sem fyrir ári
kvaðst hafa fyllst óhug eftir að
hafa horft á myndband af barsmíð-
inni á King, sagði að rannsókn
málsins yrði haldið áfram og
tryggja yrði að allir nytu sömú rétt-
inda. Hann sagði að það væri alltaf
áhyggjuefni þegar lögregla beitti
ofbeldi en einnig yrði að fordæma
og stöðva ofbeldi, rán og gripdeild-
ir, sem almennir borgarar væru
valdir að. Forsetinn sagði að lög-
reglusveitir um öll Bandaríkin yrðu
að starfa af heilindum og bætti við
að öfgar og fordómar ættu ekki
heima í bandarískri þjóðarsál.
William Barr dómsmálaráðherra
sagði eftir langan fund með forset-
anum að alríkislögreglan myndi
annast rannsókn málsins og Wayne
Budd aðstoðardómsmálaráðherra,
sem er blökkumaður, myndi fara
til Los Angeles til að stjórna henni.
Markmið rannsóknarinnar er að
kanna hvort lögreglumennirnir hafi
beitt King svo miklu harðræði að
alríkisstjórnin geti sótt þá til saka.
unnt að bíða með miklar launa-
hækkanir til að tryggja einingu
Þjóðveija.
Kohl á við annan vanda að glíma,
sem er óeining innan stjórnarinnar.
í kjölfar átaka innan flokks fijálsra
demókrata um utanríkisráðherra-
embættið og eftirmann Hans-
Dietrich Genschers virðist sem ein-
stakir forystumenn hans séu að
verða afhuga samstarfinu við kristi-
lega demókrata og Kri'stilega sósíal-
sambandið í Bæjaralandi. Otto
Lambsdorff, formaður fijálsra dem-
ókrata, sagði í gíer, að hann efað-
ist um, að stjómin stæði út kjör-
tímabilið og kvaðst þegar vera far-
inn að finna meiri þef af „stóru
samsteypunni" en honum líkaði.
Átti hann þá við samstjórn kristi-
legra demókrata og jafnaðarmanna
en Björn Engholm, formaður Jafn-
aðarmannaflokksins, vísaði þessu á
bug.
Engholm sakaði stjómina um að
láta allt reka á reiðanum og sagði,
að Kohl-hefði misst stjórnartaum-
ana úr höndum sér. Hann kvað
flokk sinrt samt vera tilbúinn til að
ræða við stjórnina um mikilvæg
mál eins og vaxandi fjárlagahalla
og fólksstrauminn til landsins en
því aðeins, að rétt væri sagt frá
fjárhagserfiðleikum ríkisins’og allr-
ar þjóðarinnar.