Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
Sjóslysið út af Patreksfirði:
Börðust í fimm mín-
útur í sjónum við að
opna björgunarbátinn
Báturinn var hlaðinn langt yfír uppgefið hámarksburðarþol
Bjldudaj.
SJOPROF vegna sjóslyssins sl. þriðjudag, þegar Sómabáturinn Ing-
þór Helgi BA 103 frá Tálknafirði fylltist af sjó 15 mílur norðvestur
af Blakk út af Patreksfirði, voru haldin á sýsluskrifstofunni á Pat-
reksfirði á miðvikudaginn. Fulltrúi sýslumanns, Sölvi Sölvason,
stýrði sjóprófunum, en Kristján Guðmundsson fulltrúi frá Rannsókn-
amefnd sjóslysa sat prófið ásamt tveimur meðdómumm.
Fram kom í lögregluskýrslum
sem teknar voru fljótlega eftir slys-
ið, að um borð í Ingþóri Helga BA
hafí verið um 2,5 tonn af fiski fyr-
ir utan annan búnað. Hins vegar
er hámarksburðarþol bátsins, sem
er af gerðinni Sómi 800, skráð
1.700 kíló. Þórhallur Óskarsson
skipstjóri bátsins sagðist ekki hafa
gert sér grein fyrir hleðslunni í
bátnum að lokinni veiðiferð. Bátur-
inn var á línuveiðum með 14 bala.
Skipveijar voru einnig með þrjár
bandfærarúllur um borð og fískuðu
eitt tonn af þorski á þær, að sögn
Þórhalls. Hann sagði að aflinn á
línuna hefði verið lélegur eða um
100 kíló á bala. Ef sú ágiskun er
tekin gild má ætla að aflinn á lín-
una hafi verið um 1,4 tonn, eða
samtals með handfærafískinum
táeplega 2,4 tonn.
Fjórir balar í lúkarnum
Þegar lagt var af stað á leið til
lands var lestin full af físki og tvö
hólf beggja megin við vélina voru
líka full. Á þilfari voru síðan tvö
kör full af fiski. Tíu bölum var
raðað beggja megin út í síðurnar
og fjórir balar voru settir fram í
lúkar. Fljótlega eftir að báturinn
var kominn á landstím tók Þórhall-
ur eftir því að sjór var kominn á
þilfarið.
„Þegar mér verður litið aftur þá
sé ég að það er kominn sjór á dekk-
ið. Eg hleyp út og aftur inn og slæ
af, ræsi Kristin [Óskarsson], þar
sem hann lá sofandi á bekknum
fram í lúkar og kalla síðan í talstöð-
ina á rás 11, „þetta er Ingþór
Helgi, við erum að sökkva!“. Síðan
setti ég á fulla ferð til að reyna
að keyra mig uppúr,“ segir Þórhall-
ur. „Þá drapst á vélinni. Síðan fór-
um við báðir út og ég losa björgun-
arbátinn og við vorum rétt búnir
að kasta honum út fyrir þegar
báturinn sporðreisist og þá yfirgáf-
um við bátinn. Við vorum hræddir
um að fara niður með soginu."
5 mínútur að opna
björgunarbátinn
Þórhallur og Kristinn börðust
síðan í fímm mínútur í köldum sjón-
um við að reyna að opna björgunar-
bátinn. „Það var, mjög óþægileg
tilfínning þegar báturinn opnaðist
ekki,“ segir Kristinn. Þeir félagam-
ir voru ekki í flotgöllum. Kristinn
var klæddur í loðfóðraðan samfest-
ing og Þórhallur í sjógaila. „Gallinn
var hreinlega að draga mig á kaf.
Ég held að ég hefði ekki tórað
mikið lengur í sjónum. Svo þegar
loksins björgunarbáturinn opnaðist
varð Þórhallur að hjálpa mér upp
í bátinn. Síðan dró ég hann upp í,“
segir Kristinn. „Við urðum mjög
hræddir þegar björgunarbáturinn
opnaðist ekki. Ég held að enginn
einn maður hefði getað opnað bát-
inn. Það tók okkur örugglega fimm
mínútur að rembast við að opna
hann og það tókst með því að við
spyrntum báðir með fótunum í
hann og toguðum af öllu afli,“ seg-
ir Þórhallur. Eftir að þeir voru
komnir um borð skutu þeir upp
neyðarblysi og kveiktu á hand-
blysi. Þeir sáu engin Ijós á svæðinu
og aðeins var farið að rökkva.
„Við skulfum eins og hríslur, okkur
var > mjög kalt,“ segir Þórhallur.
Þeim barst síðan hjáip tveimur tím-
um eftir að þeir yfirgáfu Ingþór
Helga, en það var kl. 19.30. Sóma-
báturinn Garri BA frá Tálknafírði
kom á vettvang og bjargaði mönn-
unum, sem voru orðnir mjög kaldir
og hraktir, um borð og sigldi með
þá í land. Hálfdán í Búð ÍS kom
stuttu seinna og náðu skipveijar
að festa taug í Ingþór Helga þar
sem hann maraði í kafí og var
hann dreginn til Patreksfjarðar.
Orsök slyssins
Að löknum sjóprófum lá ekki
fyrir skýring á orsökum slyssins.
Þórhallur var spurður hvort hann
hefði gert sér grein fyrir því hve
báturinn væri mikið hlaðinn. Hann
kvaðst ekki hafa gert það en sagði
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Sómabáturinn Ingþór Helgi BA 103 frá Tálknafirði þar sem hann
liggur við festar í höfninni á Patreksfirði. Þórhallur og Kristinn
Óskarssyni standa á bryggjukantinum.
að menn gerðu þetta og að allir
vissu að þetta væri gert. Þórhallur
sagði að fríborð (fjarlægð frá sjó-
línu upp að lunningu) hafi verið
um 40-45 sm að aftan en mun
meira að framan á leiðinni heim.
„Ég tel að skrúfan hafi sogað bát-
inn niður,“ sagði Þórhallur í sjó-
prófum. Veður var gott þegar slys-
ið gerðist, tvö vindstig og sjólítið.
Báðir fjölskyldumenn
Þórhallur Óskarsson og Kristinn
Óskarsson eru báðir þriggja barna
feður og búa á Tálknafirði. Þess
má geta að þeir eru ekki bræður.
„Við ætlum að láta draga bátinn
frá Patreksfirði til 'fálknafjarðar
sem fyrst og láta gera við hann
og fara síðan aftur á veiðar. Þetta
er okkar lifibrauð. Við viljum nota
tækifærið og þakka öllum þeim
sem hjálpuðu okkur, sérstaklega
skipveijum á Garra," sagði Þórhall-
ur að lokum.
Þórhallur festi kaup á bátnum
sl. haust og hefur gert hann út í
vetur. Hann hefur réttindi til að
stjórna bátum undir 30 tonnum.
Björgunarbáturinn var síðast skoð-
aður í febrúar á þessu ári.
- R. Schmidt
Framtíðarsýn í lönd-
um morgimroðans
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Heimsklúbbi Ingólfs:
„Japanir lokuðu sig lengi vel frá
vestrænum áhrifum, en nú eru þeir
orðnir ein mesta ferðaþjóð heimsins,
og fara um 10 milljónir þeirra í utan-
landsferðir árlega. Japanir gera alia
hluti markvisst og skipulega, einnig
ferðalög, og hvarvetna á ferðaslóðum
og í stórborgum Evrópu má sjá þá
í hópum að kynnast sögu og lífshátt-
um Vesturlandabúa til að taka með
sér heim og laga að eigin menningu.
En ekki er síður lærdómsríkt fyrir
fólk af Vesturlöndum að sækja Jap-
ani heim og Iæra af þeim.
Japan er mesta tækni- og framfa-
raundur nútímans og komið langt
framúr Vesturlöndum á mörgum
sviðum. Forvitnilegt er að kynnast
þessum framtíðarheimi 21. aldar,
sem þar blasir við augum ferða-
manns í Japan. I heimsborginni
Tókýó er hátæknin fullnýtt í þágu
lífsgæða og ménningar. Listalíf
stendur með miklum blóma og hótel-
menning er hvergi á hærra plani. I
borg hraðans, þar sem enginn virðist
flýta sér, er umferðin allt ym kring,
til hliðar, uppi í loftinu fyrir ofan og
einnig fyrir neðan, en allt með fullri
tilitssemi við náungann og án
árekstra. í Tókýó með um 15 milljón-
ir íbúa eru umferðarslys færri en í
Reykjavík, flesta daga ársins. Þótt
borgin sé síkvik og spennandi, er hún
hreinlegri og öruggari en flestar aðr-
ar stórborgir heimsins, og það býr
kurteisasta þjóð í heimi. Leigubíl-
stjórinn getur lítið talað við þig á
erlendum málum', en hann opnar fyr-
ir þér bílhurðina íklæddur drifhvítum
hönskum og hneigir sig djúpt. Til
þæginda er að hafa nafn áfangastað-
ar einnig ntað á japönsku til að sýna
honum. Kimono-klædd blómarósin
við lyftuna ýtir á hnappinn fyrir þig,
hneigir sig djúpt brosandi út að eyr-
um og býður góðan daginn á jap-
önsku og ensku. Ferðamaður í Japan
fær á tilfinninguna að hann sé mjög
merk persóna og mikils metin, en
þetta er hinn mikli leyndardómur
þjónustunnar og sjálf ímynd hennar.
Narita-flugvöllur við Tókýó er ein
stærsta flughöfn heimsins, og risa-
þotur leggjast að gangi og renna frá
á fárra mínútna fresti. Samt tók það
90 íslendinga, sem þar voru á ferð-
inni, aðeins 25 mínútur að komast
inn í þennan heim framtíðarinnar og
ljúka þeim leiðinda formsatriðum
sem fylgja tolli og passaskoðun.
Hvernig lærði þessi þjóð að vinna svo
hratt, fumlaust og markvisst og með
þeim afköstum, sem gert hefur Japan
að mesta velmegunarlandi heimsins?
Við þeirri áleitnu spumingu er að
sjálfsögðu ekki neitt eitt svar heldur
mörg. Reynt verður að rekja nokkur
þeirra ásamt ágripi af sögu japönsku
þjóðarinnar á ferðakynningu Heims-
klúbbs Ingólfs í Ársal Hótels Sögu
kl. 16. í dag, og er fólk velkomið
þangað í síðdegiskaffítímanum með-
an húsrúm leyfir. Jafnframt verður
kynnt ferð Heimsklúbbsins til Aust-
urland fjær, landa morgunroðans,
sem hefst 6. september næstkom-
andi. í Japan verður 10 daga dvöl
með heimsókn á sögufrægustu stað-
ina, en einnig verður viðdvöl á
Filippseyjum, Tævan og að lokum
hvíldardvö! í Tælandi.
Á sama tíma á sunnudag verður
kynning Heimsklúbbsins á listaferð
til Italíu í ágúst. Kynningamar em
liður í fræðslustarfi Heimsklúbbs-
ins.“
Fjölmennt var á Hótel Sögu við verðlaunaafhendinguna í gær.
Mjólkurdagsnefnd:
Verðlaun fyrir skreyt-
ingar á skólamjólk
SEXTIU nemendur hlutu verðlaun fyrir teikningar í samkeppni
meðal grunnskólanema um myndskreytingar á umbúðir skóla-
mjólkur. Níu bekkir fengu verðlaun fyrir slagorð og þrír skólar
fengu sérstök verðlaun fyrir góðan árangur í keppninni. Alls
bárust dómnefnd 14.374 teikningar og 3701 slagorð.
Þetta er í annað sinn sem
Mjólkurdagsnefnd efnir til slíkrar
samkeppni í samráði við mennta-
málaráðuneytið og heilbrigðis-
ráðuneytið en keppnin fór fyrst
fram árið 1986.
Að þessu sinni var keppnin tví-
þætt. Annars vegar var teiknis-
amkeppni bundin við einstaklinga
og hins vegar slagorðasamkeppni
þar sem allir nemendur hverrar
bekkjardeildar fundu í sameiningu
slagorð sem verða prentuð á um-
búðirnar.
Nemendurnir sem fengu verð-
laun fyrir teikningar geta valið
milli úttektar í sportvöruversl-
un fyrir 10 þúsund krónur eða
vikudvalar á sveitaheimili.
Bekkirnir sem hlutu verðlaun
fyrir slagorð fá hver 25 þúsund
krónur í sinn hlut. Þá hlutu
Gerðaskóli í Garði, Laugar-
bakkaskóli á Hvammstanga og
Laugarnesskóli í Reykjavík sér-
stakar viðurkenningar fyrir
góðan árangur í keppnini og
fær hver skóli myndbandstöku-
vél í verðlaun.
í dómnefndinni sátu Magnús
R. Gíslason yfirtannlæknir, Þórir
Sigurðsson námsstjóri í mynd-
mennt, Kristín Þorkelsdóttir
grafískur hönnuður og Birna
Þorsteinsdóttir húsfreyja að
Stóru-Hildisey í Austur-Landeyj-
um.
Aðalfundur Is-
landsdeildar
Amnesty Int-
emational
AÐALFUNDUR íslandsdeildar
Amnesty International verður
haldinn laugardaginn 2. maí kl.
14.00 í Kornhiöðunni við Banka-
stræti.
Á fundinum verða kynntar skýrsl-
ur stjómar og hópa og kosinn nýr
gjaldkeri í stað Helga E. Helgasonar
fréttamanns, sem nú hættir í stjórn
eftir 6 ára setu. Þá verður iögð fram
starfsáætlun fyrir næsta ár, m.a. um
fjölgun félaga og nýjar leiðir í fjáröfl-
un samtakanna, og ákvörðun tekin
um félagsgjald fyrir árið 1992. í lok
fundarins verða svo rædd önnur þau
mál sem upp kunna að koma, t.d.
um starfssvið samtakanna sem hefur
tekið nokkrum breytingum eftir síð-
asta heimsþing í Japan sl. haust.
♦ ♦ ♦---
Merkjasala
Ingólfs
HIN ÁRLEGA merkjasala Björg-
unarsveitar Ingólfs stendur nú
yfir. Hún hófst í gær og heldur
áfram í dag, á morgun og sunnu-
dag, segir í fréttatilkynningu frá
sveitinni.
Þess má geta að björgunarsveitin
hefur sinnt 48 útköllum á síðastliðnu
ári, á landi og sjó og er með stærstu
björgunarsveitum á landinu.
Mikill kostnaður er samfara því
að reka vel búna björgunarsveit,
þrátt fyrir að öll störf séu unnin í
sjálfboðavinnu. Björgunarsveitin
heitir því á borgarbúa að taka vel á
móti sölubörnum og kaupa af þeim
merki.