Morgunblaðið - 01.05.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR I. MAÍ 1992
Flugferðir-Sólarflug hf. skipta um flugvél:
Farþegar með
þotu Air Atlanta
FARÞEGAR hjá Flugferðum-Sól-
arflugi hf. til Kaupmannahafnar
í dag, 160 talsins, munu fara
ferðina með Tri-Star breiðþotu
Air Atlanta en ekki þotu frá Atl-
antsflugi eins og áformað hafi
verið. Halldór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Atlantsflugs, segir
að þeir hafi ekki getað látið
leiguvél sína fara þessa ferð þar
sem ekki hafi verið borgað fyrir
Flestir vilja
sameina ieigu-
bílastöðvar
MEIRIHLUTI leigubílsstjóra vill
sameina leigubílastöðvar í eina
eða tvær stöðvar samkvæmt úr-
slitum viðhorfskönnunar í tengsl-
um við aðalfund Frama stéttarfé-
lags leigubílstjóra. Aðalfundurinn
var haldinn í Fellsmúla 26 á
þriðjudag.
Félagar í Frama kusu á milli
stjórnar sem setið hefur í eitt ár og
eldri stjórnar félagsins. Af 600 félög-
um kusu 519, 347 (68%) kusu sitj-
andi stjórn og 163 (32%) eldri stjóm.
Stjórnina skipa Sigfús. Bjamason,
formaður, Ólafur Baldursson, Jónas
Sveinsson, Sveinbjörn Stefánsson og
Ólafur Oddgeirsson.
í tengslum við aðalfundinn var
efnt til viðhorfskönnunar um það
hvort félögum fyndist að sameina
ætti leigubílastöðvar. Niðurstöðurnar
urðu þær að 168 vildu sameina allar
stöðvar í eina stöð, 208 vildu sam-
eina allar stöðvar í tvær stöðvar, 108
voru á móti og 35 seðlar voru auðir.
flugið. Guðni Þórðarson, for-
stjóri Sólarflugs, segir þetta
rangt, þeir hafi borgað fyrir
flugið inn á bankareikning til
útborgunar um leið og flugið
átti að hefjast.
„Frá okkar sjónarmiði hefur Sól-
arflug ekki staðið við gerða samn-
‘inga og því neyddumst við til að
aflýsa fluginu með okkar vél,“ seg-
ir Halldór Sigurðsson. „Það hefur
álltaf verið venjan í leiguflugi okkar
að ferðir eru borgaðar áður en flog-
ið er af stað en ekki eftir. Greiðsla
hafði ekki borist okkur í gærdag
eða í morgun (fimmtudag, innsk.
blm.).“
Guðni Þórðarsson segir að Sólar-
flug hafi borgað fyrir ferðina inn á
bankareikning en hins vegar sé
málið að þeir hafi ekki viljað nota
þá þotu sem þeim stóð til boða hjá
Atlantsflugi. „Sú þota sem við
sömdum um er nú í Víetnam en
Atlantsflug bauð okkur þotu frá
Júgóslavíu í staðinn. Við höfum
slæma reynslu af slíkum þotum og
höfnuðum henni því er okkur bauðst
Tri-Star breiðþotan. Munum við
nota breiðþotuna í næstu ferðum
okkar,“ segir Guðni.
Morgunblaðið/Þorkell
Starfsfólk Landakotsspítala á Ieið til fundar við heilbrigðisráðherra, þar sem afhent voru mót-
mæli vegna niðurskurðar á framlögum ríkisins og uppsögnum starfsmanna.
Starfsfólk Landakots kveður
STARFSFÓLK Landakotsspítala kvaddi vinnustað sinn í gær.
Safnaðist fólk saman við spítalann, kveikti á kyndlum og gengið
var á fund Sighvats Björgvinssonar heilbrigðisráðherra. Að sögn
Jónínu Cortes ritara hjúkrunarstjórnar vakti athygli að enginn
stjórnarmanna spítalans var viðstaddur til að kveðja starfsfólkið.
í bréfi starfsfólks til ráðherra
var lýst áhyggjum yfir því ástandi
sem skapast hefur á Landakoti
vegna mikils niðurskurðar. „Við
hörmum þá stöðu sem spítalinn
er kominn í vegna lokana deilda
og uppsagna starfsfólks. Stór-
felldur niðurskurður á framlagi.
ríkissjóðs til rekstrar er skýlaust
brot á samningi þeim er gerður
var árið 1977 þegar ríkið keypti
spítalann af St. Jósefssystrum.
Kom þar skýrt fram að hann
skyldi rekinn í óbreyttri mynd til
ársins 1997. Það er ósk okkar að
stjórnvöld endurskoði þann ómak-
lega niðurskurð, sem varð á ijár-
veitingu til spítalans á þessu 90.
afmælisári og standi við áður-
nefndan samning."
Grandi hf. kaupir hlut í
útgerðarfyrirtæki í Chile
Stefnt er að 120 milljóna króna hlutafjárútboði í sumar
HAGNAÐUR Grandajhf. á síðasta ári nam 97,7 milljónum króna skv.
ársskýrslu félagsins sem lögð var fram á aðalfundi þess í gær. Arið
áður var hagnaðurinn rúmar 190 milljónir og er munurinn að miklu
leyti skýrður með aflasamdrætti. Á aðalfundinum kom fram að Grandi
hefur gert samning um útgerðarfyrirtæki í Chile, Friosur, um að kaupa
20-49% hlutafjár í fyrirtækinu ásamt því að veita milligöngu um tækni-
legar leiðbeiningar og tækjakaup. Þá var samþykkt tillaga sljórnar
um aukningu hlutafjár um allt að 120 millj.
Lottó:
Einn tvöfald-
ur á mánuði
Selfossi.
ÞRÍR tvöfaldir Lottóvinning-
ar hafa lent á Selfossi frá því
um miðjan febrúar og er það
einn tvöfaldur vinningur á
mánuði.
Tveir síðustu tvöföldu vinn-
ingamir voru keyptir í verslun-
inni Horninu en sá fyrsti í Foss-
nesti. Fyrsti viningurinn, 15.
febrúar, var að upphæð
7.990.164 krónur. 21. mars kom
vinningur að upphæð 7.957.019
og 25. apríl var sá tvöfaldi kr
7.184.466. Samtals nema vinn-
ingamir 23.131.649 kr.
Sig. Jóns.
Ami Vilhjálmsson, stjórnarfor-
maður Granda, sagðist í samtali við
Morgunblaðið búast við því að hluta-
fjárkaup félagsins í Friosur yrðu í
lægri kantinum miðað við samning
enda væri þar um umtalsverða fjár-
hæð að ræða sem skipti tugum millj-
óna króna. „í samningnum við Frios-
ur felst að Grandi fær í sinn hlut til
ársloka 1996 25% þess hagnaðar sem
fer umfram ákveðna lágmarksarð-
semi eigin fjár fyrirtækisins, en njóti
hagnaðar að öðru leyti til jafns við
aðra hluthafa. Friosur er fjárhags-
lega sterkt og samningurinn ætti að
geta veitt Granda töluverðan fjár-
hagslegan ábata þegar fram líða
stundir, enda gerum við ráð fyrir að
þekking okkar nýtist vel þar ytra,“
sagði Ámi.
Hampiðjan hf. er þriðji stærsti
hluthafmn í Granda og að sögn Áma
er líklegt að fyrirtækið dragist inn í
samstarfið við Friosur þar sem einn
liður í hagræðingunni tengdist notk-
un betri veiðarfæra.
Rekstrartekjur Granda hf. vom
2.455 milljónir á sl. ári samanborið
við 2.543 milljónir króna árið áður.
Heildareignir í árslok 1991 voru
metnar á 3.227 milljónir króna en
heildarskuldir á 1.781 milljónir. Eig-
ið fé fyrirtækisins varþví 1.445 millj-
ónir og jókst um 2,5% milli ára. Eig-
infjárhlutfall var 45% miðað við 40%
árið 1990.
Að sögn Brynjólfs Bjamasonar,
framkvæmdastjóra Granda, má eiga
von á því að heimildin til hlutafjár-
aukningar upp á 120 milljónir verði
að fullu nýtt í sumar. Miðað við nú-
verandi gengi hlutabréfa í Granda
ætti það að skila 250-280 milljónum
króna til fyrirtækisins.
Fyrirhugað er að í lok ágúst nk.
verði öll starfsemi í frystihúsinu í
Grandagarði sameinuð vinnslunni í
Norðurgarði, enda hefur undanfarin
Yantrauststillaga á formannn
Menntamálaráðs samþykkt
Á FUNDI Menntamálaráðs í gærmorgun var borin fram vantraust-
stillaga á Bessí Jóhannsdóttur formann ráðsins og hún samþykkt
með oddaatkvæði varafulltrúa Alþýðuflokksins, Ragnheiðar Davíðs-
dóttur. Eftir að Bessí Jóhannsdóttir hafði verið felld sem formaður
var Helga Kress fulltrúi Kvennalistans kjörinn formaður ráðsins.
Helga Kress segir að lita beri á mál þetta sem menningarpólitískt
en ekki flokkspólitískt.
Vantrauststillagan var sett fram
eftir felld hafði verið tillaga Bessíar
og Sigurðar Bjömssonar, hins full-
trúa Sjálfstæðisflokksins, um að
leggja skyldi niður bókaútgáfu
Menningarsjóðs. Bessí Jóhanns-
dóttir segir að það sé afar sérkenni-
legt að varafulltrúi Alþýðuflokksins
í ráðinu skyldi með þessum hætti
ganga gegn stefnu og samþykktum
flokks síns í ríkisstjórn. „Þessi af-
staða Ragnheiðar brýtur í bága við
stefnu ríkisstjórnarinnar og ég var
búin að vinna að þessari tillögu í
nánu samstarfi við fyrrum aðalfull-
trúa Alþýðuflokksins í ráðinu,
Helgu heitna Möller,1' segir Bessí.
Bessí segir að hún sé nú að láta
athuga lagalega stöðu sína í máli
þessu og muni tala við viðeigandi
yfírvöld að því loknu.
Ragnheiður Davíðsdóttir segir að
tillaga þeirra Bessíar og Sigurðar
hafi verið brot á lögum og því ekki
annað hægt en að samþykkja van-
trauststillöguna. „Það er vægast
sagt óeðlilegt að formaður Mennta-
málaráðs skuli standa að tillögu um
að leggja niður bókaútgáfu Menn-
ingarsjóðs því slíkt er aðeins á valdi
Alþingis,“ segir Ragnheiður.
„Menntamálaráði ber siðferðisleg
skylda til að gæta hagsmuna Menn-
ingarsjóðs og ég taldi næga ástæðu
til að fella formanninn þá að hún
brást þessari skyldu. En áður hafði
ýmislegt ámælisvert komið fram í
störfum Bessíar Jóhannsdóttur og
má þar sem dæmi nefna einhliða
ákvörðun hennar að segja upp út-
gáfusamningi við Bókmenntastofn-
un Háskólans."
Helga Kress, núverandi formaður
Menntamálaráðs, segir að fráfar-
andi formaður hafl unnið gegn
hagsmunum ráðsins og Menningar-
sjóðs sem heyrir undir ráðið. „Það
er ekki hægt að leggja ráðið niður
innanfrá eins og tillaga formanns-
ins gerði í raun ráð fyrir,“ segir
Helga. „Slíkt er ekki á okkar valdi
heldur Alþingis og við hin í ráðinu
gátum ekki samþykkt slíkt lögbrot.
Að mínu mati snýst málið um menn-
ingarpólitík en ekki flokkspólitík
því það þarf ekki mikið til að bjarga
íjárhag Menningarsjóðs og gera
hann að stöndugri útgáfu."
Helga segir að ef hún fái frið til
þess muni hún beita sér fyrir ýms-
um breytingum á vettvangi bókaút-
gáfu Menningarsjóðs en þar hafi
að hennar mati verið illa að málum
staðið í tíð fráfrandi formanns.
misseri skort talsvert á að tekist
hafi að fullnýta framleiðsluaðstöðuna
þar. Engar uppsagnir starfsmanna
eru áætlaðar í kjölfar sameiningar
frystihúsanna.
Á aðalfundinum var samþykkt til-
laga stjómar um úthlutun 8% arðs
til hluthafa og að hlutafé verði aukið
um 10%, úr 850 milljónum í 935
milljónir króna með útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa. Þá var ákveðið að sækja
um skráningu á Verðbréfaþingi Is-
lands ekki síðar en að lokinni hluta-
fjáraukningu í sumar. Stjórn félags-
ins var endurkjörin á fundinum og
skipa hana því áfram Árni Vilhjálms-
son, Ágúst Einarsson, Benedikt
Sveinsson, Gunnar Svavarsson, Jón
Ingvarsson og Kristján Loftsson.
Neskaupstaður:
Islandsflug
fær sérleyfíð
HALLDÓR Blöndal sam-
gönguráðherra veitti í gær
Islandsflugi sérleyfi til áætl-
unarflugs á milli Reykjavíkur
og Norðfjarðar frá 18. þessa
mánaðar að telja en Flugleið-
ir hafa sagt upp sérleyfi sínu
frá þeim tíma. Sérleyfið gild-
ir til ársloka 1997.
Starfsmenn íslandsflugs
unnu í gær við að skipuleggja
Norðfjarðarflugið. Gunnar Þor-
valdsson framkvæmdastjóri
sagði síðdegis að flogið yrði
fimm sinnum í viku. Farið yrði
frá Reykjavík síðdegis virka
daga en á laugardögum yrði
morgunflug. Þá hefur verið
ákveðið að fljúga til Egilsstaða
þegar ófært er til Norðjarðar.
Islandsflug mun til að byija
með nota Beechcraft-skrúfu-
þotur sínar í þetta flug. Tveir
flugmenn fljúga þeim og þær
taka fimmtán farþega.