Morgunblaðið - 01.05.1992, Side 10

Morgunblaðið - 01.05.1992, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR L MAÍ 1992 10 Sigiiý Sæmundsdóttir og Jónas Ingimundarson í Gerðubergi Tónlist Ragnar Björnsson Söngveislum Gerðubergs starfs- árið 1991—1992 lauk með sérlega gððum og merkum tónleikum sl. mánudag. Hvað er, hvemig verður svokölluð góð, eða falleg, söngrödd til? Þegar stórt er spurt verður . fátt um svör, en fyrir undirrituðum er þessi raddfegurð, litur raddar- innar, framsögn eða hvað nú á að kalla það, manneskjan sjálf í öllu sínu litrófi tilfinninga, þroska, reynslu, ósigrum, sigrum, úrvinnsl- an úr þessu öllu er það sem gefur röddinni lit, líf, frásagnarhæfi- leika. Sem mörgum er kunnugt hefur Signý gengið í gegnum tölu- verða lífsreynslu undanfama mán- uði. Slík reynsla hlýtur að breyta Grillskálinn, Ólafsvík Til sölu er Grillskálinn í Ólafsvík , í eigin húsnæði. Góð velta. Upplýsingar hjá Herbert í símum 93-61362 og 93-61331 og Páli í síma 93-61490. EIGNAMIÐLUNIN Hi Sími 67-90-90 - Síðxunúla 21 Sumarhúsalóðir í grennd við Flúðir Til leigu eru sumabústaðalóðir í landi Ásatúns í Hruna- mannahreppi. Aðeins rúmlega klukkustundar akstur frá Reykjavík og bundið slitlag nær alla leið. Um er að ræða fallegt land með stórbrotnu útsýni. Heitt og kalt vatn er lagt að lóðarmörkum og unnt er að taka inn rafmagn strax. 5 mínútna akstur er að Flúð- um en þar er m.a. sundlaug, verslun o.fl. í nágrenninu er einnig golfvöllur og margskonar útivistarmöguleikar. Nánari upplýsingar veita Grímur og Guðbjörg í Ásatúni í síma 98-66683. 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggilturfasteignasali Til sölu eru að koma m.a. eigna: Skammt frá Hótel Sögu Mikið endurnýjuð 3ja herb. íbúð tæpir 80 fm á 3. hæö. Nýtt parket. Nýtt gler. Sólsvalir. Risherb. með snyrtingu. Sameign töluvert endumýj- uð. Laus fljótlega. Sanngjarnt verð. í Vogunum - hagkvæm skipti Vel byggt og vel með farið steinhús ein hæð 165 fm auk bílskúrs. 5 svefnherb., 2 stofur m.m. Skrúðgarður. Eignaskipti möguleg. Úrvals íbúð með sérinngangi 3ja herb. íbúð tæpir 70 fm á 1. hæð við Hraunbæ. Allar innr. og tæki af vönduöustu gerð. Vélaþvottahús og gott gufubaö fylgir í sameign. Húsið ný málað að utan. Glæsilegt endaraðhús - eignaskipti Vel byggt raðhús um 240 fm á þremur hæðum. 6-7 svefnherb. Tvenn- ar svalir. Á jarðhæð (ekki kjallari) má gera séríbúð. Stór og góður bílskúr. Margskonar eignaskipti möguleg. Við Næfurás - langtímalán Stór og giæsileg 2ja herb. íbúð á 1. hæð. Parket. Sólsvalir. Sérþvotta- hús. Ágæt sameign. Mikið útsýni. 40 ára húsnæðislán kr. 2,4 millj. Skammt frá KR-heimilinu 10 ára íbúð 3ja herb. á 1. hæð. Ekki stór en vel skipulögð. Parket. Sótsvalir. Þvottahús á hæð. Góð geymsla í kjallara. Skipti möguleg á einstaklingsibúð á 1. eða 2. hæð. Einstaklingsíbúð við Ljósheima Á efstu hæð í lyftuhúsi 2ja herb. íbúð rúmir 40 fm nettó. Laus strax. Frábært útsýni. Tilboð óskast. Ný íbúð - sérþvottahús - bílskúr 3ja-4ra herb. íbúð 118 fm við Sporhamra. Næstum fullgerð. Hús- næðislán til 40 ára kr. 5 millj. Eignaskipti möguleg. Við Hulduland - tilboð óskast 5 herb. íbúð 120 fm á 2. hæð. Sólsvalir. Sér þvottahús. Bílskúr fylgir. Frábær staður. Á söluskrá óskast fyrir fjársterka kaupendur: Einbýlishús stórt og vandað á Flötunum eða á Arnarnesi. Raðhús eða einbhús miðsvæðis í borginni á einni hæð 110-150 fm. 3ja-4ra herb. góð íbúð á 1. eða 2. hæð miðsvæðis í borginni. Lyftu- hús kemur til greina. 3ja-5 herb. góðar ibúðir með bílskúr. Einbýlishús eða raðhús um 80-100 fm í borginni eöa nágrenni. Má þarfnast endurbóta. Margskonar eignaskipti möguleg. Margir bjóða útborgun i peningum fyrir rétta eign. • • • Opið í dag f rá kl. 10-12. Opið á iaugardaginn frákl.10-16. Gleðilegan 1. maí. AIMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAvÉGn8SÍMAR2ÍÍ5Ö,^Í377 einstaklingnum, sem fyrir verður og hvemig tekst honum síðan að vinna úr hlutunum? Ég sé ekki betur en Signý hafi unnið rétt og vel úr þessari reynslu og að hún hafi þroskast bæði raddlega og list- rænt. Röddin er mýkri og fylltari en var og ekki get ég betur heyrt en að listrænt hafi hún þroskast mikið. Því miður missti undirritað- ur af fyrstu fimm lögunum á efnis- skránni, lögum eftir Fr. Liszt sem trúað gæti ég að hafi hentað Signýju vel. Þá komu tvö gyðingleg sönglög eftir Maurice Ravel, það fyrra „Bæn fyrir dauðum“, sem Signý söng á aramísku, þeirri tungu sem Kristur á að hafa tal- að, síðara lagið „Gátan eilífa", þjóðvísa sem hún söng á jiddísku og var flutningur beggja laganna áhrifamikill og þó sérlega fyrra lagið sem var og ólíkt meiri og þéttari „komposition“. Eftir hlé komu tvö lög eftir Frakkann Dup- arc, „Fyrra líf“og „Harmatölur“, hvoru tveggja lög sem fyrst komu Duparc á blað sem tónskáldi og. sýna hæfni hans að laða tónlist að texta. Þessi lög fluttu þau Signý og Jónas af næmum skilningi. Signý Sæmundsdóttir Fimm argentínskir alþýðusöngvar- ar eftir argentíska tónskáldið Al- berto Ginastera voru næstir á efn- isskrá, mjög skemnmtilegir söngv- ar þar sem Signý sýndi ýmis blæ- brigði raddarinnar og 'um leið að spila á hin ólíkustu tilfinningamið. Jónas fékk einnig að taka á honum stóra sínum í sumum þessara laga og slapp vel frá. Þessari erfiðu og metnaðarfullu söngskrá lauk með verki eftir furðufuglinn Erik Satie, Jónas Ingimundarson „Ég vil þig“. Sérstök ástæða er til að óska Signýju til hamingju með þessa tónleika. Með þeim undir- strikaði hún nafn sitt meðal ís- lenskra söngvara svo um munar. í lok tónleikanna var Reyni Axels- syni sérlega þakkað fyrir ljóðaþýð- ingar í efnisskrár ljóðatónleika Gerðubergs og víst hefði efnisskrá- in orðið mun fátæklegri án fram- lags Reynis, eins og Jónas Ingi- mundarson orðaði það. Umsjónarmaður Gísli Jónsson Málfræðileg bygging setninga ,er á undanhaldi. Fólk sinnir ekki um samræmi milli frumlags og umsagnar. Þetta er slappleiki, hugarleti, hættumerki, enda þótt til sé á því fínt heiti: con- structio ad sensum. Um hvað er maðurinn að tala? Ég skal taka dæmi. Eina helgina um daginn fylgdist ég vandlega með málfari fréttamanna í útvarpi og sjónvarpi, báðum stöðvum. Mér þótti það næstum því vera regla, fremur en undantekning, að setningar af eftirfarandi tagi heyrðust: Mikill fjöldi manna „eru“ hér sam.an „komnir“. Stór hópur fólks „lögðu“ á fjöllin. Er ekki ljóst að fjöldi og hópur eru orðmyndir í eintölu, en eru, lögðu og komnir í fleirtölu? Víst er svo. Þess vegna á undan- bragðalaust að segja: Mikill Qöldi manna er hér saman kom- inn. Stór hópur fólks lagði á ijöllin. Engin afsökun er það okkur, þó Englendingar segi „people are“. Við segjum auðvitað: fólk er, því að fólk er eintöluorð, þó að það feli í sér fleirtölu- merkingu. Enginn íslendingur, óhaltur á máli, segir: Fólk „eru óánægð“. Þess vegna segjum við ekki heldur: Fjöldi manna „eru“ þar saman „komnir“. Við segj- um: fjöldi manna er þar saman kominn. Hins vegar segjum við: Margir menn eru þar saman komnir, af því að menn er fleir- tala. Á mjóum þvengjum læra hundamir að stela, og ef við réttum skrattanum einn fingur, er sagt að hann sé vís til að taka höndina alla, gott ef ekki báðar hendumar. Ef við leyfum okkur hugsana- leti og slappleika í málfari, fer illa. Við megum hvergi láta und- an síga heldur halda uppi vörn- um á öllum vígstöðvum, beijast linnulaust og kappsamlega. Þetta var því miður ekki það eina sam angraði mig fyrrnefnda helgi. Getur verið að fréttir séu á verra máli um helgar en virka daga? Frásagnir voru auðvitað af kynningarsamkomu Háskóla ís- lands og annarra skóla nokk- urra. Ég átti nú kannski veika von á að fréttafólk vandaði sig við þvílíkt tækifæri, en nei, og fomei! Háskólastúdentar á Is- landi „töldu“ eitthvað á sjötta þúsund. Hvern sjálfan satan vom háskólastúdentar að telja upp í þess konar tölu? Hafa þeir ekíri reiknivélar og tölvur? Það kom á daginn að þeir töldu eng- in þúsund, heldur töldust það eða öllu heldur voru á sjötta þúsund. Við höfum enga afsök- un, að fara að tala dönsku í þessu sambandi. Því síður er afsakanlegt að gelda þolmyndina æ ofan í æ, eins og þegar seinþroska börn og unglingar segja: „það var barið mig“ eða jafnvel „það var lem(b)t(!) mig í skólanum". í háskólanum er ekki „lagt stund“ á eitt eða neitt. Stund er kvenkyns, og ógeld þolmynd er: Það er lögð stund á ýmis- legt nytsamlegt í höfuðskólum okkar. Já, og því miður eitt enn sem ég var nærri því búinn að gleyma. Engan eignarfallsflótta! Helgi Jóhannsson er fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða- Landsýnar, ekki „Samvinnu- ferða-Landsýn“. Kemur þá þriðji og síðasti hluti skinnduldakenningarinn- ar: „Að lokum er rétt að geta þess, að heimildir finnast fyrir því að fornmenn hafi einnig skrifað á fugla þótt ótrúlegt sé. Frægasta dæmi þess eru lögin sem á þjóðveldistíma voru varð- veitt á grágæsum og var laga- safnið í heild nefnt Grágás (pars pro toto). I rauninni þarf engan að undra að lögin skyldu einmitt vera skráð á gæsir. Engar skepinur gátu borið sig hraðar yfir, en þess þurfti einmitt við til að koma þeim til alþingis í tæka tíð á hverju vori. Þessar gæsir hafa verið vel tamdar og líklega verið varð- veittar á heimili lögsögumanns utan þingtíma. (E.t.v. hafa þær þó alltaf verið hafðar á sama bænum og kemur þá helst til greina höfðingjasetrið Oddi á 638. þáttur Rangárvöilum, sbr. orðið odda- flug sem e.t.v. ætti að skrifa með stórum staf, hafi það merkt flug löggæsanna til og frá Odda. Ekki getur þetta þó talist senni- leg tilgáta.) Þegar líða tók á alþingi hafa löggæsimar verið látnar fljúga af stað til Þing- valla. Hafa þá fróðleiksfúsir og metnaðargjarnir unglingar á svæðum þeim, er gæsirnar flugu yfir, vafalaust staðið úti á hlaði og reynt að lesa og nema þær lagagreinar sem á gæsunum stóðu. Én ekki hefur slíkur lest- ur verið á færi annarra en þeirra sem bæði vora fluglæsir og fluggreindir. Það má því segja að gæsir þessar hafi verið fyrstu flugrit hérlendis ... (Skinnduldakenningin er rí- morð á móti kynduldakenning en sú kenning er miklu viða- meiri og tekur til efnis fornrita, en ekki varðveislu þeirra.)“ Umsjónarmaður þakkar Kristjáni Eiríkssyni fyrir birting- arleyfíð. Umsjónarmanni hefur borist til eyma að til muni vera „apókrýf“ viðbót kenningar þessarar eða kenninga þessara, en mun láta hér víð nema. ★ Gísli Konráðsson kvað: Ein blómarós borin á Fróni fór brosandi’ í reiðtúr á ljóni. Er til baka þau bar hún í betanum var en brosandi leó - sá dóni. ★ Ég ræddi við Gunnlaug Ing- ólfsson á Orðabók Iiáskólans um hugsanlegan merkingarmun orðanna krap og krapi, sjá næstsíðasta þátt. Við fórum yfir býsna mörg dæmi, og er skjótt af því að segja, að eftir þeim dæmum í heild sinni er ekki að finna stuðning við „kenningu“ okkar Sverris Páls, eða tilfinn- ingu okkar, um merkingarmun þessara orða. Fróðlegt væri að heyra hvað ykkur finnst um það sem sagt var um krap og krapa í næstsíðasta þætti, enda hef ég rætt við nokkra Norðlendinga sem eru harðir á því, að sami munur, og okkur Sverri Páli finnst, sé á merkingu marg- nefndra orða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.