Morgunblaðið - 01.05.1992, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
Höfundar greinarinnar með börn sín.
Opið bréf til Sjálfstæðis-
og Alþýðuflokkskvenna
Trio Borealis á tónleikaferð:
Súrsæt samsetning
— segir Einar Jóhannesson klarinettleikari um efnisskrána
Trio Borealis skipa þau Einar Jóhannesson, Beth Levin og Richard
Talkowsky.
Ágætu kynsystur!
Þegar þetta bréf er skrifað lítur
út fyrir að við undirritaðar sængur-
konur á Fæðingarheimili Reykja-
víkur séum síðustu konurnar sem
njótum þeirrar gæfu að fá að fæða
börnin okkar hér.
Sú mikla reynsla að ala barn í
þennan heim er vafalaust stærsti
viðburðurinn í lífí hverrar konu.
Sérhver kona á að hafa þau sjálf-
sögðu mannréttindi að hafa val um
hvort hún elur barn sitt á stóru
sjúkrahúsi eða á fæðingarheimili.
Fyrir síðustu kosningar sögðu
þið sjálfstæðiskonur, að ekki væri
þörf á sérstökum kvennalista vegna
þess að þið létuð ykkur „mjúku
málin“ varða. Hvert er ykkar svar
við þessari aðför að Fæðingarheim-
ili Reykjavíkur? Ykkar flokkur er í
stjórn. Eru konur kannski áhrifa-
lausar innan Sjálfstæðisflokksins?
0g hver eru viðbrögð ykkar Al-
þýðuflokkskvenna? Heilbrigðis-
málaráðuneytið er nú í höndum
Alþýðuflokksins.
Konur innan ríkisstjórnarflokk-
anna, við skorum á ykkur að láta
í ykkur heyra, munið að þögn er
sama og samþykki.
Virðingarfyllst, sængurkonur á
Fæðingarheimili Reykjavíkur vik-
una 13.—17. apríl 1992,
Guðrún Sæmundsdóttir,
Kristín Þ. Harðardóttir,
Jórunn I. Kjartansdóttir,
Elísabet Sigurðardóttir,
Kristveig Halldórsdóttir,
Vilma B. Ágústsdóttir,
Björg Ingadóttir,
Bjarndís Arnardóttir.
Trio Borealis er aftur komið
á kreik og hyggst halda tónleika
í Reykjavík og víðar á Suð-
vesturlandi dagana 1.-5. maí.
Tríóið var stofnað í fyrra og
hélt síðast tónleika hérlendis í
fyrravor en fór síðan til Spánar
þar sem leikið var á tónlistarhá-
tíðum í Katalóníu. Það eru þau
Einar Jóhannesson klarinett-
leikari, Richard Talkowsky sell-
óleikari og Beth Levine píanó-
leikari sem skipa Trio Borealis.
Borealis vísar til norðursins og
að sögn Einars Jóhannessonar
klarinettleikara var nafnið valið
með hliðsjón af Spánarferðinni í
fyrra. Hann sagði að tríóið væri
fyrst og fremst hugsjónastarfsemi,
eins og kammermúsík væri einatt,
menn hugsuðu ekki um fjárhags-
hliðina heldur vonuðu að fólk sýndi
framtakinu áhuga. Á Spáni virðast
menn hafa áhuga, því tríóinu hefur
verið boðið að koma þangað aftur
og spila á hátíðum víða um landið
nú í sumar.
Hvað varðar efnisskrá tónleik-
anna nú sagði Einar að alltaf væri
vandi að setja saman efnisskrá
þannig að verkin upphefðu hvert
annáð í stað þess að draga hvert
úr öðru. „Ef maður setur til dæm-
is sætt með sætu getur það endað
í bragðleysi, þannig að þetta er
svona súr-sæt samsetning hjá okk-
ur. Þetta er eins og þýsk-róman-
tísk samloka, með franskri kæfu
og íslenskum blábeijum inn á
milli.“ Með öðrum orðum: Flutt
verða tvö verk frá rómantíska
tímabilinu, eftir Max Bruch og
Emil Hartmann, sellósónata eftir
Claude Debussy, klarinettsónata
eftir Francis Poulenc og síðan sex
íslensk þjóðlög sem Þorkell Sigur-
björnsson hefur færtí „sinn pers-
ónulega búning“ eins og Einar
orðar það. „Ég tel að Þorkell sé
hreinn snillingur í að taka þennan
þjóðlega efnivið sem við eigum og
gera úr honum efni sem er nýst-
árlegt en samt þjóðlegt," segir
Einar. Verkin voru skrifuð fyrir
tríóið í fyrra og frumflutt á Spáni
þar sem þau gerðu mikla lukku.
Félagarnir í Trio Borealis eru
allir reyndir tónlistannenn. Beth
Levin er búsett og starfandi í New
York og lærði m.a. hjá Rudolph
Serkin. Hún vann til verðlauna í
alþjóðlegu píanókeppninni í Lee'ds
árið 1978 og hefur leikið einleik
með fjölda bandarískra sinfóníu-
hljómsveita auk þess að leika inn
á hljómplötur fyrir Columbia
Masterworks.
Richard Talkowsky útskrifaðist
frá Boston-háskóla þar sem aðal-
kennari hans var George Neikrug.
Hann hefur leikið víða um lönd og
var m.a. annar leiðandi sellóleikari
sinfóníuhljómsveitarinnar í Barcel-
ona á árunum 1981-87. Hann
starfar nú í Sinfóníuhljómsveit Is-
lands eins og Einar Jóhannesson,
sem er fyrsti klarinettleikari hljóm-
sveitarinnar. Einar nam hjá Bern-
ard Walton og John McCaw við
Konunglega Tónlistarháskólann í
Lundúnum. Hann er félagi í Blás-
arakvintett Reykjavíkur og kemur
auk þess fram sem einleikari víða
um lönd. Væntanlegur er einleiks-
diskur með Einari á vegum breska
fyrirtækisins Chandos í júlí næst-
komandi. Þar leikur hann enska
músík við undirleik píanóleikarans
Philips Jenkins. Diskurinn var
hljóðritaður í Cambridge í fyrra
og býst Einar við að um frekari
upptökur verði að ræða í framtíð-
inni. Vonast hann til að koma ís-
lensku efni að með tíð og tíma.
Einar leikur að sjálfsögðu einnig
með á þeim diskum sem eru að
koma út með Sinfóníuhljómsveit
íslands hjá sama útgáfufyrirtæki.
„Margir hafa spurt mig af
hveiju ég sé að vinna hérna heima,
af hveiju ég starfi ekki í útlönd-
um,“ segir Einar. „En mér finnst
fjarlægðir ekki'vera til lengur og
mér líður vel hér. Aftur á móti vil
ég gjarnan drífa það sem við erum
að gera hér út fyrir landsteinana
og vera með í samspili þjóðanna.
Annars er svo mikil hætta á að
við einangrumst og missum sjónar
á því sem við erum að gera. Þetta
er spurning um að fá annað sjónar-
horn á viðfangsefnið og vera ekki
hræddur við að leggja sitt verk
undir alþjóðlegan dóm.“
Fyrstu tónleikar Trio Borealis
verða í Njarðvíkurkirkju í kvöld,
þeir næstu í Tónlistarkóla Akra-
ness á morgun og þeir þriðju í
Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, á
sunnudaginn og hefjast þessir tón-
leikar allir kl. 17.00. Fjórðu og
síðustu tónleikarnir hérlendis að
þessu sinni verða í Listasafni Is-
lands þriðjudaginn 5. maí kl. 20.30.
Mætum í
og á útifundinn 1. maí.
Safnast verður saman við Hlemm kl. 13.30,
gangan leggur af stað kl. 14.00.
Samstaða er styrkur.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna íReykjavík.
Nv sölu-sálfræði
(TheNewPsychoIogyofselling) -forskotið sem vantar
Árangursríkt söluþjálfunarkerfi fyrir sölufólk. Námskeiðið byggist á
fyrirlestrum Brian Tracy, myndböndum á ensku, vinnubók og umræðum.
Hljóðsnældur tit upprifjunar á öllu námsefni fylgja.
Ilj inu sinni á öld kemur fram Þessi nýja tækni er sett fram
ný sölutækni sem gerir þá tækni af manni sem hefur starfað
sem var fyrir hendi lítils virði. við sölu og hefur kennt
öðrum að selja, manni sem
hefur starfað náið með fjölda
fyrirtækja og fjármálasér-
fræðingum á fjölmörgum
sviðum.
Brian Tracy hefur starfað í
yfir 80 löndum í fimm
heimsálfum. Hann talar 4
tungumál, hefur B.Comm og
M.B.A. gráðu og hefur hlotið
æðstu viðurkenningu
Brian Tracy C.P.A.E. fyrir ræðumennsku.
Hann er forstjóri Institute for
Executive Development sem
hefur skrifstofur víðsvegar í
Bandaríkjunum og Kanada.
Þetta myndbandanámskeið
stendur eitt sér eða með hvaða
söluþjálfunamámskeiði sem er.
Yfir 50.000 sölumenn,
víðsvegar um heim, frá
hundmðum fyrirtækja á
fjölmörgum sviðum, hafa
notfært sér þær hugmyndir
sem kenndar em á þessu
námskeiði.
Tími 14., 15. og 16. maí.
Innritun hafin.
Stjórnunarfélag
islands
Ánanaustum 15, sími 621066
Nanari upplýsingar fást hjá Stjórnunarfélagi íslantís / síma 621066
— rhv