Morgunblaðið - 01.05.1992, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
Um fullgerð K-bygg-
ingar Landspítala
- nýr tónn í heilbrigðismálaumræðuna
eftirÁsmund
Brekkan
Umliðin misseri hafa verið heil-
brigðiskerfi landsmanna erfíð.
Erfíðleikamir eiga umfram allt
rót sína að rekja til þeirra geig-
vænlegu hræringa, sem orðið hafa
og em enn í efnahagsskipan þessa
lands og þeirri viðleitni sem höfð
hefur verið uppi til að „bjarga
því, sem bjargað verður“. Ekki
skal dregið í efa, að góður hugur
og ásetningur hafí fylgt vel flest-
um þeim aðgerðum, sem stjórn-
völd hafa gripið til, þótt í mörgu
hefði e.t.v. náðst sami árangur eða
rneiri árangur með skipulegri og
ígrundaðri aðferðum. Ekki skal
um það rætt nú og hér, né heldur
um miður rökstuddan áróður á
hendur læknum og ýmsum öðrum
heilbrigðisstéttum, sem bera frem-
ur keim af því, að verið sé að drepa
öðrum málum á dreif, en að
ígrundun eða heilshugar sannfær-
ing liggi að baki.
Ein umdeildasta meiriháttar
ráðstöfun heilbrigðisyfírvalda á
þessum erfíðu misserum er án efa
sá leikur að gögnum og gæðum
; landsmanna auk andlegra bar-
smíða á heilbrigðisstéttum, sem
við höfum orðið vitni að í tengslum
við svonefnda sameiningu Landa-
kots ob Borgarspítala. Ekki skal
frekar rætt um þessa fímleika, né
um það vonleysis- og doðaástand,
sem aðgerðirnar hafa víða leitt af
sér. Nú tel ég, að gera verði átak
í því, að snúa neikvæðri umfjöllun
um sjúkrahúsmál höfuðstaðarins
og landsins alls í jákvæðar ábend-
ingar um það sem framundan er.
Ég hefí á undanförnum árum
oftar en einu sinni komið að því,
í þessu blaði, að ein misvitrasta
stjómvaldsráðstöfun í sjúkrahús-
málum íslendinga fyrr og síðar
hafí verið, er ákveðið var að stöðva
framkvæmdir við K-byggingu
Landspítalans í miðjum klíðum á
miðju ári 1985. Lokið var við
fyrsta stig þeirrar byggingar af
miklum myndarskap og þar með
komið sæmandi og verðskulduðu
húsnæði yfir krabbameinslækn-
ingar Landspítalans. Þó ber þess
að geta, að ekki var að fullu lokið
við þann áfanga né heldur það
húsnæði, sem ætlað var lækning-
um og rannsóknum í tengslum við
krabbameinssjúkdóma. Menn eru
oft ekki mjög minnugir á það sem
vel er gert og því rétt að rifja upp
í fáum orðum hvaða starfsemi
K-byggingu Landspítalans var (og
er) ætlað að hýsa. í þessa
stórglæsilegu og vel hugsuðu
byggingu var búið að fullhanna
skurðstofudeild, sótthreinsun,
gjörgæsludeild og nýja röntgen-
og myndgreiningardeild. Rétt er
að rifja upp, að skurðstofuaðstaða
á Landspítalanum hefur húsnæðis-
lega lítið breyst frá því er spítalinn
var opnaður fyrir 62 árum. Ég
hefi fyrir'satt, að í raun hafí sá
skurðstofugangur, sem enn er
notast við, verið hugsaður til
„bráðabirgða". Röntgen- og
myndgreiningardeild Landspítal-
ans er enn í sama húsnæði og hún
hóf starfsemi sína, fyrst allra
deilda Landspítalans, í desember
1930, að vísu með viðauka. Enda
þótt á Landspítalanum séu reknar
skurðlækningar, t.d. kransæðaað-
gerðir, vel á heimsmælikvarða,
hvað árangur varðar, þá er ennþá
ekki til nein sérhönnuð gjörgæslu-
deild, er samrýmist þeirri há-
tækni, sem á öðrum sviðum er
beitt innan Landspítalans. Sótt-
hreinsunardeild spítalans, sem að
vísu er vel búin, er rekin á tveim-
ur stöðum án beinna tengsla við
Ásmundur Brekkan
„Það er raunhæfur
möguleiki, að þá getum
við farið að „flylpa út“
sérhæfða heilbrigðis-
þjónustu, t.d. í formi
skurðaðgerða á hjarta
og liðum. Um það liggja
fyrir raunhæfar fyrir-
spurnir erlendis frá.
skurðdeild, annars vegar í kjallara
gamla spítalahússins, hins vegar
í öðrum enda borgarinnar.
Á Landspítalanum þrífst og
hefur þrifíst talsvert öflug vísinda-
leg rannsóknastarfsemi, þrátt fyr-
ir húsnæðisvandræði til allra
hluta. Landspítalinn á líka því láni
að fagna að eiga mjög vel mennt-
að og áhugasamt starfslið, sem
setur metnað sinn í að halda uppi
merki spítalans, sem hátækni-,
rannsókna- og kennsluspítala.
Öll höfum við lagt á okkur tals-
verðar þrengingar, meðal annars
vegna þeirrar framtíðarsýnar, að
með fullgerðri K-byggingu Land-
spítalans yrðum við í stakk búin
til að taka að okkur og leysa
ýmis aðkallandi verkefni, bæði í
því „tæknivædda" húsi, svo og
vegna þeirra rýma, sem losna í
gömlu spítalabyggingunum. Það
er raunhæfur möguleiki, að þá
getum við farið að „flytja út“ sér-
hæfða heilbrigðisþjónustu, t.d. í
formi skurðaðgerða á hjarta og
liðum. Um það liggja þegar fyrir
raunhæfar fyrirspurnir erlendis
frá. Ýmis önnur læknisfræðileg
„útflutningsverkefni" mætti
nefna, svo sem sérhæfðar rann-
sóknir fyrir næstu nágranna okk-
ar, og til dæmis glasafijóvganir
fyrir allstóran hóp lengra aðko-
minna. Nú er langt komið að
steypa fyrir tengimannvirkjum,
sem nauðsynleg voru til að K-
bygging kæmist í gagnið. Því er
nú lag að knýja enn á, að fram-
kvæmdir við K-byggingu Landsp-
ítálans verði hafnar á ný án tafa,
og þeim lokið sem forgangsverk-
efni, þannig að arðsemi spítalans
fyrir þjóðina, hvort heldur er litið
til peninga eða annarra gæða,
megi aukast og ný viðhorf opnast.
Höfundur er prófessor og
yfirlæknir á Röntgendeild
Lnndspítulans.
p & & Qi'ii 6/ * h' «•♦ 'l/i >íi w'&V'Sr*
| “ |éééééA| ú
.. * lj-*t •*iH’&Wlé&Mi •*, ■// »>•
;/ 9 th ’ý/ Ht’ iit ‘ih '»/• %■ ik ’$"$/■ Hr 'ii! ‘il 'Si
■ ' ÍH <i/: öf’ Hl 'iþ rft- Ht 'Hl ‘U’
'lj /I, «(> f ‘t!> dnUj ‘ÍH ‘it 'H ■' ■(! *• 'H H'l Hir H. Jl, /k $1’',f
(rfo " $
•*»« ' ## *,*/,» *,&»'*‘/flfy & édfl'/1*1* ***
«*•»•»*«>**!éfi9-k*/t/fr»9ér»ér»*fl-efl’ifl»9 a-6/*
»■»*/»»** **
- ¥9
V’9-6/
t&iirifl
•***
*'<99
ih t/i
9‘96
tt
6*
.'♦• * +
♦ **#•**«>*
«•«•**»........
» (fl % * * 4> ifl 4fl «•«* 'iflifl 4fl <tfl
#•«**•«», %* + %•*+ v'
>»*»**»**«*•*
****•*#■• /b-flW*
*♦»**»•»****
* * * ® * «
O 9, <ti' • »«©*«/• 8
****««*•' »*
ifl* fl
■ii/ ■$ •»**• -*
to tfl *«** »#•******•
............/fj//i/þí/l
IBHBr
|Hp:r r
* *
*»*/
** **•
> “***
tfl;
*>**> -
***** *
* 111*1-9
**#»#/ -
«/**•• * ‘ífl*
*****
.*•«**»
e *■«/*
*•
+ #* *
* * * - . *
f* •** * *
* * «
*■ * *
« **■««• ft ,»
« »**«>*« #»*
,* *»******•*
ft ** •**♦•**♦-
»ifl»*e/ + * Ítt* ftí- **
»*>*•» -*****»***>»
fl *, , *a«*6<®*****f - -
**«+++***••****+**»***•+
«,»»tr»%/*■»»»*# -9*
- * * IflSn ’ *'%*#*>*•#***-
> *#/f«
FRAMTÍDAR
MENNTUN
Fiskeldisnám er tveggja ára hagnýtt
verklegt og bóklegt nám sem gefur
áfanga að stúdentsprófi og titilinn
FISKELDISFRÆÐINGUR.
hlnntökuskilyrði: Samsvarandi u. þ. b.
fyeggja ára námi við fjölbrautaskóla,
tft •*«««*■**
***** .. -*
*♦*>*>♦**<• ' * *>
-r ***** f* */»#*
% V 6, # V 9- «:#■///*/ *■ íh <9 * «/ « *> « ‘H -9 V 9
•*****♦*» »*«**.*.***** +*
'****** * i - ■ -þ">g. annaðhvort 48 einingar eða
18 éiningar ásamt reynslu af vixmu við
sjómennsku, landbúnað eða matvæla-
iðnað í eitt og hálft ár ef umsækjandi er
25 ára eða eldri.
Mjög góð aðstaða á stað sem býður
alla almenna þjónustu og er rómaður
fyrir náttúrufegurð og veðursæld.
Umsóknarfrestur til 1. júlí.
FSU FISKELDISBRAUT
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
Hringdu og fáðu freltari upplýsingar
i síma (98) 74633, 74635 og 74884
Bréfasimi (98) 74833
Málverka-
uppboð á
suimudag
GALLERÍ Borg heldur mál-
verkauppboð nk. sunnudag þann
3. maí. Boðnar verða upp rúm-
lega sjötíu myndir, þar af þrjár
olíumyndir eftir Ninu Tryggva-
dóttur en mjög sjaldgæft er að
svo margar myndir eftir Nínu
séu boðnar á einu og sama upp-
boðinu, segir í frétt frá gallerí-
inu.
Myndirnar eftir Nínu eru módel-
mynd, landslagsmynd og uppstill-
ing, allar frá því um 1940. Þá verða
boðin upp tvö stór olíumálverk eftir
Jóhannes S. Kjarval, olíumynd úr
Borgarfírði eftir Ásgrím Jónsson,
blómamynd eftir Gunnlaug Blön-
dal, máluð í París 1930, mynd frá
Eyrarbakka eftir Kristínu Jónsdótt-
ur, tvær uppstillingar eftir Júlíönu
Sveinsdóttur og olíumálverk sem á
aðra hlið er málað af Þorvaldi Skúl-
asyni og á hina hliðina af Jóni
Engilberts. Auk þess verða boðnar
tvær bronsafsteypur eftir Tove Ól-
afsson, skúlptúr í tré eftir Siguijón
Ólafsson, tveggja metra hár skúlpt-
úr eftir Sverri Ólafsson og fjöldi
olíu-, vatnslita- og pastelmynda eft-
Módelmynd Nínu Tryggvadótt-
ir kunnustu listamenn. landsins, lif-
andi og látna.
Myndirnar verða sýndar í Gallerí
Borg við Austurvöll á laugardag
og sunnudag milli klukkan 2 og 6
báða dagana. Uppboðið hefst kl.
20.30 og fer fram í Súlnasal Hótel
Sögu á sunnudagskvöld eins og
fyrr segir.
Þeir sem ekki komast á uppboðið
en vilja festa sér myndir geta ýmist
gert forboð í galleríinu eða hringt
inn á uppboðið sjálft og gert boð
símleiðis.
(Fréttatilkynning)
Rómantískur jass í Ömmu Lú
TRÍÓ Sigurðar Flosasonar leikur um
þessar mundir á matsölu- og skemmti-
staðnum Ömmu Lú. Auk Sigurðar sem
leikur á saxafón, skipa tríóið Eyþór
Gunnarsson píanóleikari og Tómas R.
Einarsson bassaleikari. Tríóið leikur
rómantíska jasstónlist.
Tríóið leikur frá kl. 20-23.30 á föstu-
dags- og laugardagskvöldið. Síðasta klukk-
utímann bætist jafnan við gestasöngkona
og nk. föstudag verður Berglind Björk við
hljóðnemann en Andrea Gylfadóttir nk.
laugardag. Föstudaginn 8. maí syngur Ellen
Kristjánsdóttir með tríóinu.
Amma Lú býður gestum upp á mat fram-
reiddan af gestakokknum Lisu Stalvey sem
starfar á veitingahúsinu Spago í Los Ángel-
es. Gestum er velkomið að njóta tónlistar-
innar hvort sem þeir snæða eða ekki.
(Fréttatilkynning) Sigurður Flosason.