Morgunblaðið - 01.05.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR í. MAÍ 1992
Trillur frá Amarstapa
með þokkalegan afla
Breiðuvík.
ÚTGERÐ trillubáta frá Arnar-
stapa er nú komin í fullan gang
en róðrarnir hófust í síðasta
mánuði. Lítill afli var framan af,
mikil loðna á miðunum en varla
tók nokkur fiskur á færi. Eftir
fiskveiðibannið sem stóð 12.-20.
apríl hefur afli verið þokkalegur
hjá þeim 11 trillum sem verið
hafa á sjó.
í sumar verða gerðir út 23 bátar
frá Arnarstapa miðað við 30 sem
réru þaðan í fyrrasumar. Hins veg-
ar er hafnaraðstaðan ekki nægilega
góð fyrir svo mikinn fjölda báta.
Er það einróma álit sjómanna hér
að brýnt sé orðið að bæta úr þrengsl-
unum með frekari hafnarfram-
kvæmdum svo fljótt sem auðið er.
Fiskmarkaður Breiðafjarðar hef-
ur nú tekið á leigu fiskverkunarhús-
ið á Arnarstapa til að hafa þar
aðstöðu til fiskmóttöku. Og Fisk-
markaður Snæfeílsnes hf. hefur
boðið sjómönnum á Arnarstapa við-
skipti á góðum kjörum.
Weetabix $
MODfiíM A
45
Aðalfundur MENSU
Aðalfundur MENSU, Menning-
arsamtaka Sunnlendinga, 1992
verður haldinn á Hótel Selfossi
sunnudaginn 17. maí klukkan
15.30. Fundurinn er öllum opinn
með málfrelsi og tillögurétti.
Klukkan 14 hefst samsöngur
sunnlenskra barnakóra í Selfoss-
kirkju undir stjórn söngstjóra sinna
og við undirleik sunnlensks tónlist-
arfólks, m.a. jasssveitar frá Sel-
fossi. Tónleikar þessir eru hluti af
þeim verkefnum sem MENSU hefur
beitt sér fyrir í tilefni af ári söngs-
ins.
MENSU hvetur Sunnlendinga og
aðra tónlistarunnendur til að hlýða
á tónleikana og bendir á að aðal-
fundurinn er í beinu framhaldi af
þeim.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Breiðþota Atlanta TF-ABG á Keflavíkurflugvelli á sunnudaginn þeg-
ar hún kom með 345 íslendinga frá Mallorka.
Breiðþota Atlanta á Keflavíkurflugrelli:
Flutti 345 íslend-
inga til Mallorka
Keflavík.
Breiðþota Atlanta lenti á Keflavíkurflugvelli á sunnudaginn með 345
íslendinga sem voru að koma frá Mallorka. Arngrímur Jóhansson
framkvæmdastjóri Atlanta sagði að vélin hefði verið leigð Sólarflugi
til að fljúga með þennan hóp til og frá Mallorka en færi nú í önnur
verkefni erlendis.
Breiðþotan er af tegundinni Tri
Star Lockheed og ber einkennisstaf-
ina TF-ABG. Hún var upphaflega
i eigu bandaríska flugfélagsins
Eastern en er nú í eigu fjárhaldsfyr-
irtækis á Miami sem leigir Atlanta
vélina. Auk Tri Star-vélarinnar er
Atlanta einnig með fjórar Boeing
737 vélar á leigu og sagðist Arng-
rímur hafa næg verkefni fyrir vél-
arnar.
-BB
Ingunn Eydal sýn
ir í Hafnarborg
INGUNN Eydal hefur opnað
málverkasýningu í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar.
Ingunn lauk námi frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands árið
1976. Hún hefur haldið flölda
einkasýnjnga og tekið þátt í um
120 samsýningum hér heima og
erlendis. Ingunn var kjörin borgar-
listamaður árið 1983, fékk lista-
mannalaun 1984 og starfslaun
listamanna 1987. Hún vann ásamt
tveimur öðrum grafíksamkeppni
íþróttasambands íslands 1989.
Sama ár hlaut hún viðurkenningu
fyrir verk sín á sýningunni
Impreza í Ivano Frankivsk, Úkra-
ínu í Sovétríkjunum.
Verk eftir Ingunni eru í eigu
safna hér heima, á Norðurlöndum,
í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum.
A sýningunni í Hafnarborg sýn-
ir Ingunn olíumálverk, grafíkverk
og teikningar.
Sýningin verður opin daglega
nema þriðjudaga frá kl. 12—18
fram til 11. maí.
-------»...».-4---
Fermingar
Ferming í Melstaðakirkju í
Miðfirði sunnudaginn 3. maí kl.
11. Prestur sr. Guðni Þór Ólafs-
son. Fermd verða:
Björn Helgason.
Björn Líndal Traustason.
Gunnar Ægir Björnsson.
Ingibjörg Jónsdóttir
Katrín Þóra Víðisdóttir.
Kristján Viðar Ingimarsson.
Sigurjón Ingi Björgvinsson.
Skúli Már Níelsson.
Sonja Karen Marinósdóttir.
Þorsteinn Jóhannes Guðmundsson.
Háir sem lágir, mjóir sem breiðir, ungir sem aldnir
þurfa Weetabix til að halda athygli sinni og*
starfsgleði í erli dagsins.
ÞÚ KEMST LANGT Á EINNI KÖKU.
( EINNIG Á SUNNUDÖGUM )
ORKIN 1012-