Morgunblaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
Bart bjargar Nadiu Comeneci
Rúmenska fimleikastjaraan
Nadia Comeneci mátti þola
erfiða daga eftir að hún flúði
heimaland sitt fyrir nokkrum
árum. Elskhugi hennar og sam-
landi, Constantin Panait, hélt Nad-
íu einangraðri frá umheiminum.
Nadia segir að Panait hafi haldið
henni sem ambátt á heimili sínu,
en hann var giftur fyrir. Þegar hún
loks komst undan vissi hún ekki
hvert hún átti að snúa sér.
Þá kom til sögunnar bandaríski
fimleikamaðurinn Bart Connor
sem var aðdáandi Nadíu frá fornu
fari. Hann gerði sér sérstaka ferð
til að heilsa upp á fímleikastjörn-
una sem lagði heiminn að fótum
sér á ólympíuleikunum í Montreal
árið 1976.
En Bart komst ekki nálægt
henni á meðan Panait stjórnaði lífi
hennar. Þegár sú rúmenska losn-
aði frá samlanda sípum tókust
kynni milli hennar og Bart. Hann
hjálpaði henni að koma undir sig
fótunum og bytjaði á að setja hana
í megrun og stranga líkamsþjálfun.
Eftir nokkur kynni þróaðist vin-
skapurinn í ást og Bart sagði upp
kærustunni sem hann hafði verið
með í sex ár. Nadía flutti til hans
þar sem hann býr í Kaliforníu og
ferðast nú um Bandaríkin með fim-
leikaflokki og hefur lifibrauð af
því.
KOKKTEILKEPPNI
Þorkell meistari
og Bárður í 2. sæti
Islandsmeistaramót í sætum staklega þar sem þeim gekk
kokkteilum var haldið í Súln- báðum vel. „Það er mjög gaman
asal á Hótel Sögu síðastliðinn
sunnudag. Þorkell Ericsson bar
sigur úr býtum og í öðru sæti
varð Bárður Guðlaugsson, en
þeir eru báðir bar-
þjónar í Perlunni og
hafa auk þess unnið
saman í um 15 ár.
Kokkteillinn, sem
Þorkell var með, nefn-
ist Perlutár. í honum
er 1,5 cl af Finnlandia
vodka, 1,5 cl af
Pisang Ambon-líkjör,
0,5 cl af Bananalíkjör
og 2,5 cl af Pfanner-
perusafa. Kokkteill-
inn er hristur og því
næst skreyttur með
lime, blæjuberi og
bláberi.
Bárður var með
kokkteil, sem hann
nefnir Perlumynni, og
í honum eru 2 cl af
Cointreau-líkjör, 1 el
af Apricot-brandy og
2 cl af ferskum app-
elsínusafa. Því næst
er mulinn ís, 1 bar-
skeið af Creme de Mente-líkjör
og ein eggjahvíta sett saman og
þeytt og hellt yfír kokkteilinn.
Hann er að Iokum skreyttur með
lime og kirsuberi.
Um 27 manns tóku þátt í
keppninni og segja þeir Þorkell
og Bárður að það hafi verið mjög
gaman að vera með í þessu, sér-
að við skyldum vera með 1. og
2. sætið í keppninni sérstaklega
þar sem vinnum saman og höfum
gert það í mörg ár. Við vorum
Morgunblaðið/Ingibjörg
Bárður Guðlaugsson, sem varð í 2. sæti í
íslandsmeistarakeppni í sætum kokkteil,
og Þorkell Ericsson Islandsmeistari.
líka með kokkteila sem við
tengdum Perlunni og það er líka
kannski svolítið sérstakt af því
að við vinnum báðir þar,“ segja
þeir.
íslandsmeistarinn, Þorkell
Ericsson, fer til Vínar í haust
þar sem hann tekur þátt í heims-
meistarakeppni barþjóna.
Fj ölskyldudagur
á Pizza Hut
I dag er upplagt fyrir fjölskylduna aö koma
á Pizza Hut og gæða sér á gómsætri
fjölskyldupizzu. Börnin fá frían íslurk
frá Emmess.
Fjölskyldupizzan er heil máltíð
fýrir 4-6 manns.
Gerðu þér dagamun og komdu
með fjölskylduna á Pizza Hut í dag.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Hópur úr 4. bekk ML á bakka nýju útisundlaugarinnar á Laugar-
vatni eftir að hafa synt 100 km boðsund stanslaust í 24 klst.
Amnesty
International
ÍSLANDSDEILD
Aðalfundur
samtakanna verður haldinn á morgun, laugardaginn
2. maí, í Kornhlöðunni við Bankastræti og hefst kl.
14.00. Kaffiveitingar. Félagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
LAUGARVATN
*
Aheita-
sund
í sólar-
hring
Fjórðubekkingar í Menntaskól-
anum á Laugarvatni safna nú
peningum fyrir útskriftarferð sinni
sem farin verður í vor. í því tilefni
efndu þau til sólahringssunds og
fengu fólk til að heita á sig nokkr-
um krónum fyrir tiltækið. Synt var
frá kl. 16 laugardaginn 4. apríl til
kl. 16 daginn eftir. Skiptust krakk-
amir á um að synda hálftíma í
senn, en þó alltaf tvö í einu, í þessa
tuttugu og fjóra tíma. Tókst sund-
ið með ágætum og voru u.þ.b. 100
km lagðir að baki á þessum tíma.
Sundið fór fram í nýrri og glæsi-
legri útisundlaug íþróttakennara-
skólans sem nýlega var tekin í
notkun.
- Kári.
Sumardvalarheimilið Kjarnholtum Biskupstungum
-Ævintýraleg sumardvöl í sveit fyrir 6-12 ára börn-
7. starfsár: Reiðnámskeið, íþróttir, sveitastörf, siglingar, ferðalög, sund,
kvöldvökur ofl.
Tímabil: 31 maí-6júní 14júnf-20júnf 28júnf-4júlf 12júlf-18júlf 26júlf-1 ágúst
7 júnf-13 júnf 21 júnf-27 júní 5 júlí-11 júlí 19 júlí-25 júlí 3 ágúst-9 ágúst
Sama verð og í fyrra kr. 15.800,- Systkinaafsláttur
Innritun og upplýsingar í s-98-68808 daginn, 98-68991 kvöld og helgar