Morgunblaðið - 01.05.1992, Page 54
54
MORGUNBLAÐll) FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
Norrænir vísnadagar
VÍSNATÓNLIST á sér samhljóm
hvarvetna á Norðurlöndunum
og í kvöld gefst kostur fyrir
hvern og einn að sannreyna það,
því þá hefjast í Norræna húsinu
Norrænir visnadagar. A þeim
vísnadögum, sem standa til 5.
maí, koma fram nokkrir af
helstu vísnasöngvurum Norður-
landa, þar á meðal Björn Afzel-
ius, Hanne Juul, Hörður Torfa-
son, Oyvind Aund og Jannika
Haggström ýmist í Reykjavik,
eða á Akureyri, ísafirði og Egils-
stöðum.
Flytjendur á vísnadögunum
koma frá öllum Norðurlöndum. Ís-
lensku þátttakendurna er vart þörf
að kynna, en erlendu gestirnir eru
eftirfarandi:
Björn Afzelius er merkastur
þeirra gesta sem sækja okkur heim
að þessu sinni, og reyndar er hann
með vinsælustu tónlistarmönnum
Norðurlanda. Bjöm, sem er sænsk-
ur, hóf tónlistariðkan snemma á
sjöunda áratugnum og var þá und-
ir áhrifum af bresku poppi og
bandarísku rokki og rytmablús.
Hann lagði hljóðfæraslátt á hilluna
um tíma til að sinna háskólanámi,
en tók þráðinn upp aftur þegar
hann stofnaði Hoola Bandoola
Band með Mikael Wiehe 1970. f
upphafi var það frístundasveit, en
eftir að fyrsta breiðskífan kom út
1971 varð tómstundaiðjan að aðal-
starfi. Hljómsveitin naut þegar
mikillar hylli, en sveitarmeðlimir
ákváðu að hvíla sveitina 1974. Þá
sendi Björn frá sér sína fyrstu sóló-
skífu, sem seldist vel og lagði
grunninn að sólóferli hans, sem
hófst fyrir alvöru þegar Hoola
Bandoola Band var lagt niður 1976.
Önnur breiðskífan kom út 1976 og
ári síðar stofnaði Björn rokksveit,
sem varð meðal vinsælustu hljóm-
sveita Svíþjóðar. Hann leysti sveit-
ina upp 1979 og sendi frá sér
kántrýplötuna Globetrotter 1980
og seldist í yfir 50.000 eintökum í
Svíþjóð. Endanlega sló Bjöm svo í
gegn með breiðskífunni Innan
tystnaden, sem seldist í yfir
130.000 eintökum. Síðan hefur
Björn Afzelius verið fremstur með-
al jafningja í sænskum tónlistar-
heimi. Á ferli sínum, sem er enn í
blóma, hefur hann selt yfir milljón
hljómplötur og leikið fyrir fullu
húsi hvarvetna á Norðurlöndunum.
Þetta verður í fyrsta sinn sem Björn
Afzelius leikur hér á landi, en hing-
að kemur hann með félögum sínum
Bengt Bygren og Hannes Rástam.
Jan-Olof Andersson er sænsk-
ur söngvari og gítarleikari. Hann
hefur leikið hér á landi áður, kom
fram á afmælistónleikum Blásar-
akvintetts Reykjavíkur á síðasta
ári og hélt einnig tónleika í Nor-
ræna húsinu. Jan-Olof hefur hlotið
ij'ölda viðurkenninga fyrir vísna-
túlkun sína og nægir að. nefna Alf
Hame-styrkinn 1991, Per Olrog-
styrkinn 1987 og LilleBror Söder-
lundh-styrkinn 1985. Jan-Olof
leggur megináherslu á sænska
vísnahefð, en hefur á efnisskrá
sinni sinni ástarsöngva frá 16. öld
og allt í flutning eigin söngva.
Hanne Juul á rætur á Islandi,
enda var afi hennar apótekari á
ísafirði og Hanne bjó hér á landi
í níu ár. Hún er búsett í Svíþjóð
um þessar mundir, en ferðast um
Norðurlönd og treður gjaman upp
í sjónvarpi, eins og margir ættu
að kannast við, því hún söng í
þætti Hermanns Gunnarssonar fyr-
ir stuttu. Ilanne hefur safnað að
sér styrkjum og viðurkenningum á
öllum Norðurlöndum, var meðal
stofnenda Vísnavina á íslandi
1976, barðist fyrir því að Norræni
vísnaskólinn í Kungálv í Svíþjóð
var stofnaður og var í mörg ár
formaður samtaka norrænna
vísnasöngvara og vísnavinafélaga,
Nordvisa. Hanne hefur sent frá sér
eina breiðskífu, Brisingamen,
1984.
Norski vísnasöngvarinn og
myndlistarmaðurinn Oyvind Sund
hefur haft margvísieg áhrif á
norska vísnahefð frá því á sjöunda
áratugnum. Hann var fyrsti þegi
Alf Pröyser-styrksins, sem varð til
að afla honum viðurkenningar sem
listamanns og vísnaskálds. Hann
hefur víða farið um Norðurlönd til
tónleikahalds og meðal annars kom
hann hingað til iands á norræna
vísnamótið Visland 1985, en hann
hefur einnig iðulega komið fram í
útvarpi og sjónvarpi. 0yvind hefur
gefíð út þrjár breiðskífur og nokkr-
ar vísnabækur.
Hanus G. Johansen er þekkt-
asti vísnasöngvari Færeyinga.
Hann hefur haldið tónleika um öil
Norðurlönd, og var meðal gesta á
Visland-hátíðinni hér á landi á sín-
um tíma. Hanus sendi frá sér sína
fyrstu sólóplötu 1988, þar sem
hann flytur eigin lög við ljóð fær-
eyska skáldsins Pouls F. Joensens.
Jannika Hággströin er
Hanne Juul
sænskumælandi Finni og meðlimur
í Vísnavinum í Helsinki. Hún nam
í Norræna vísnaskólanum 1987 og
hefur ásamt Hanus G. Johansen
þýtt færeyskar vísur á sænsku.
Janika er formaður Félags ungra
túbadúra, en þetta er í fyrsta sinn
sem hún kemur til íslands.
Á Opnunartónleikunum, sem
verða í Norræna húsinu og hefjast
kl. 16.00, koma fram Jan-Olof
Andersson, Jannika Hággström,
Hanus G. Johansen, Hanne Juul,
Oyvind Sund, Anna Pálína og Aðal-
steinn Ásberg og hljómsveitin Is-
landica.
Laugardaginn verða tónleikar á
Isafírði, sem um leið eru í tilefni
af opnun Norrænnar upplýsinga-
skrifstofu þar. Þar koma fram Jan-
Olof Andersson, Hanne Juul og
ísfírðingurinn Sigurður Friðrik Júl-
íusson. Sama dag verða í Gamla
Björn Afzelius
Lundi á Akureyri tónleikar þar sem
fram koma Hanus G. Johansen og
Tjarnarkvartettinn úr Svarfaðar-
dal. Tónleikarnir þar eru á vegum
svæðiskrifstofu Norræna félagsins.
Sunnudaginn 3. maí verða tón-
leikar Bjöms Afzeliusar og félaga
í Norræna húsinu kl. 20.30. Á
Akureyri verða þá tónleikar í Hótel
KEA með Hanne Juul. Jan-Olof
Andersson og Herði Torfasyni. Á
Egilsstöðum verða tónleikar í Hótel
Valaskjálf með Hanus G. Johansen,
Janniku Hággstöm, 0yvind Sund,
Önnu Pálínu og Aðalsteini Ásbergi
og Vísnavinum á Héraði.
Þriðjudaginn 5. maí verða loka-
tónleikar í sal Tónlistarskóla FÍH
í Rauðagerði. Þar koma fram allir
erlendu gestirnir, Hörður Torfason
og Islandica. _
Texti: Árni Matthíasson
Kirkja Óháða safnaðarins.
„Bjargar-
kaffi“ Óháða
safnaðarins
Á SUNNUDAGINN kemur,
þann 3. maí, verður jjuðs-
þjónusta í Kirkju Oháða
safnaðarins og hefst hún
kl. 14. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson, sóknarprestur í
Hallgrímsprestakalli,
messar £ fjarveru safnaðar-
prests.
Eftir guðsþjónustuna verð-
ur hið árlega „Bjargarkaffi"
í Kirkjubæ og er það nú sem
fyrr Kvenfélagið, sem sér um
kaffísöluna til styrktar safn-
aðarstarfínu.
Safnaðarfólk ogvelunnarar
safnaðarins eru hvattir til að
koma til guðsþjónustu og
njóta síðan veglegra veitinga
Kvenfélagskvenna.
Safnaðarprestur
V VEITINGAHÚSIÐ JAZZ
ÁRMÚLA 7 (við hliðina á Hótcl íslandi)
FÖSTUDAG
OGLAUGARDAG
mun víbrafónlcikarinn
góðkunni
Reynir Sigurðsson
ásamt Þórði Högnasyni og
Helgu Möller spila frá
kl. 23-03.
Opiökl. 18-03
Borðapantanirí
síma:681661.
Opið fyrir mat til kl. 23.30
Athugasemd
í VIKUBLAÐINU Press-
unni, sem út kom í dagfseg-
ir að undirritaður hafí verið
kallaður til yfirheyrslu hjá
RLR vegna viðskipta manna,
sem þar eru tilgreindir. I
sama blaði má lesa að undir-
ritaður stjórni Naustaborg
hf./Grensásvegi 14 hf. ásamt
þar nafngreindum manni.
Hvorttveggja er missagt.
Undirritaður seldi hlut
sinn í félaginu Naustaborg
hf. hinn 23. ágúst 1991
Skúla Sigurðssyni lögmanni.
Við söluna voru í eigu félags-
ins tvær fasteignir, að vísu
all veðsettar, en þó undir
raunhæfu markaðsverði. Öll
veðlán og opinber gjöld voru
í skilum.
Þá er og missagt í nefndri
Pressugrein að þar nafn-
greindur maður hafi verið í
stjórn félagsins ásamt undir-
rituðum. Hann mun hins
vegar hafa eignast hlut í fé-
laginu og setið þar í stjóm
eða varastjórn, eftir að und-
irritaður seldi hlutafé sitt.
Skv. þessu er breyting á
nafni félagsins og hækkun á
opinberu mati á fasteignum
í eigu þess, ef þar er rétt frá
greint, undirrituðum óvi-
komandi.
Ólnfur Thoroddsen, hdl.
T~T W T T
OPIÐ UM HELGINA
VITASTÍG 3 T
SÍMI623137 L
Föstud. 1. mai opið kl. 20-03.
1. MAÍ-FAGNAÐUR
KK, gitar og söngur,
Ellen Kristjánsdöttir, söngur,
Eyþór Gunnarsson, piano,
Þorleifur Guðjónsson, bassi,
Kormakur Geirharðsson, trommur.
GESTIR SEM MÆTA TÍMANLEGA FÁ
FORDRYKK:
„1. MAÍ-DÚNDUR“
KL. 22-23: SÆLU-DÆLU-STUND
(HAPPY-DRAFT-HOUR)
DÚNDURSTEMMNING TIL KL. 3 í NOTT.
Laugard. 2. mai opið kl. 20-03.
skemmta
Opiðfrákl 19ti!03
Meim en þú getur imyndað þér!
Hljómsveit
INGIMARS EYDAL
LEIKA FYRIR DANSI
Snyrtilegur klæðnaður
O
<
D
D
I-
tn
=o
lL
0
<
□
ce
<
O
D
<
J
SÁLIN HANS
JÓNS MÍNS
SKEMMTIR ( KVÖLD
- SJÁUMST [ FIRÐINUM -
Snyrtilegur klæðnaður
KLANG OG KOMPANÝ
SKEMMTA / KARAOKE
Gestasöngvarar velkomir
-opið til kl. 03.00