Morgunblaðið - 01.05.1992, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
Morgunblaðið/RAX
Tíminn að renna út...Þorgils Óttar Mathiesen heldur um ennið, telur að Sigur Selfyssinga sé í höfn, en við hlið han er Guðjón Árnason, s^m getur verið að
segja: „Taktu þessu rólega vinur, þetta er ekki búið.“ Rétt á eftir fór Guðjón inná og skoraði jöfnunarmark FH-inga, 25:25.
„Guðjón er maður
að mínu skapi“
- sagði Kristján Arason, þjálfari FH-liðsins, sem sýndi enn einu sinni mikla keppnishörku
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
Leikir [ úrslitakeppni NBA í fyrrinótt:
Austurdeild:
Chicago Bulls - Miami Heat..119:114
■Jordan fór á kostum í leiknum og gerði
56 stig. Chicago vann samanlagt 3:0 og
mætir Detroit eða New York.
Vesturdeild:
Phoenix Suns - San Antonið..101:92
■Phoenix Suns vann samanlagt 3:0 og
mætir annað hvort Lakers eða Portland.
LA Lakers - Portland........121:119
■Eftir framlengdan leik. Staðan. eftir
venjulegan leiktíma var 102:102. Treatt var
stigahæstur í liði Lakers með 24 stig, en
Clyde Drexler gerði 42 stig fyrir Portland.
Næsti leikur verður í Portland annað kvöld.
Portland er yfir 2:1.
Íshokkí
Patrick-deildin:
New Jersey - New York............5:3
■Þegar einn leikur er eftir er staðan, 3:3.
Pittsburgh - Washington........6:4
■ Staðan er 3:3.
Adams-deildin:
Hartford - Montreal Canadiens....2:1
■Staðan er 3:3.
Buffalo Sabres - Boston Bruins...9:3
■ Staðan er 3:3.
Snóker
8-manna úrslitin í heimsmeistaramótinu í
snóker fór fram í Sheffield á Englandi á
miðvikudagskvöldið:
Alan McManus (Skotlandi) vann John
Parrott (Englandi) 13:12
60-31, 128-0, 64-1, 43-62, 44-68, 21-88, 74-38,
32-93, 80-51, 127-0, 25-60, 74-37, 35-79, 11-51,
64-13, 59-46, 60-59, 77-1, 28-59, 11-89, 51-79,
32-69, 58-73, 53-36, 79-0.
Terry Griffiths (Wales) vann Peter Eb-
don (Englandi) 13:7
69-48, 99-10, 68-50, 87-37, 1-134, 8-84, 65-57,
15-72, 94-27, 95-3, 74-67, 78-33, 61-74, 89-13,
4-124, 43-69, 60-16, 17-108, 73-0, 96-29.
Stephen Hendry (Skotlandi) vann Dene
O’Kane (N-Sjálandi) 13:6.
43-58, 98-44, 1-114, 0-68, 126-4, 70-37, 126-0,
81-24, 36-67, 16-125, 109-5, 75-0, 79-51, 64-68,
67- 62, 80-40, 73-13, 82-36, 71-14.
Jimmy White (Englandi) vann Jim Wych
(Kanada) 13:9.
0-71, 65-17, 90-46, 51-60, 79-2, 72-29, 113-4,
78-16, 0-73, 51-63, 30-103, 75-7, 79-5, 22-76,
53-72, 100-19, 63-41, 121-11, 0-74, 91-5, 35-72,
68- 57.
Knattspyrna
ítalfa
Sampdoria og Parma gerðu 2:2 jafntefli f
síðari leik liðanna í undanúrslitum í bikar-
keppninni. Parma kemst áfram, 3:2.
Um helgina
Glíma
Íslandsglíman verður í íþróttahúsi Kennarahá-
skólans á laugardaginn kl. 14. Tíu glímukapp-
ar mætá til leiks og eru 45 glímur. Keppnin
tekur rúman klukkutíma.
Handknattleikur
Tveir leikir verða í úrslitakeppninni í hand-
knattleik karla. Selfyssingar taka á móti FH-
ingum á morgun 16 og á mánudaginn mæt-
ast liðin aftur, nú í Hafnarfirði og hefst leikur-
inn kl. 20.
Knattspyrna
Fjórir leikir verða í Reykjavíkurmótinu í knatt-
spymu og fara þeir allir fram á gervigrasinu
í Laugardal. í kvöld kl. 20 leika Þróttur og
Leiknir. Á morgun, laugardag, mætast Valur
og KR kl. 17. Fram og Víkingur leika á sunnu-
dag kl. 20 og Fylkir og ÍR á sama tíma á
mánudag.
Landsmót „old boys“ í knattspymu innan-
húss verður í Valsheimilinu í dag og á morg-
un. Úrslitaleikurinn fer fram kl. 17.
Hlaup
Tjamarboðhlaup KR fer fram í dag kl. 14.
Hlaupið hefst hjá Ráðhúsinu og laupnir verða
einn til tveir hringir í flokkum unglinga og
eldri.
Golf
Golfklúbbur Hellu heldur opið golfmót á
Strandarvelli í dag. Leiknar verða 18 holur
með og án forgjafar. Ræst verður út frá kl. 9.
Golfklúbburinn Keilir heldur „Opna AIís“
punktamótið 'á laugardaginn og verður ræst
úr frá klukkan 9.
Golfklúbbi Grindavíkur verður með opið
mót laugardaginn 2. maí. Mótið hefst kl. 8
og verða leiknar 18 holur með og án forgjaf-
ar. Skráning hefst hjá Golfklúbbi Grindavíkur
í síma 92-68720 í dag frá kl 16.
Skylmingar
Vormót Skylmingafélags Reykjavíkur heldur
vormót sitt í ÍR-húsinu við Túngötu um helg-
ina. Nánari upplýsingar gefa Davíð Þór (s.
75805), Hildigunnur (s. 12240) og Kári Freyr
(s. 51683).
Veggtennis
íslandsmót karla og kvenna í veggtennis (rac-
quetball) fer fram í Dansstúdíói Sóleyjar við
Engjateig um helgina. Á laugardaginn verður
kvennamótið og hefst það kl. 12. A sunnudag
keppa Qórir til úrslita í karlamótinu en þeir
eru Jóhannes H. Guðmundsson, Jón H. Stein-
grímsson, Sigtryggur B. Hreinsson og Þránd-
ur Arnþórsson.
Kynning
Framkvæmdastjóri íþróttamiðstöðvarinnar í
Sittard í Hollandi er staddur hér á landi og
mun ásamt íþróttadeild Úrvals-Útsýnar kynna
miðstöð þessa fyrir forráðamönnum íþróttafé-
laga og sambanda, þjálfurum og öðrum frámá-
mönnum. Fyrsta kynningin verður laugardag-
inn 2. maí í KA-heimiIinu á Akureyri og hefst
kl. 11. Daginn eftir kl. 14 í félagsheimili Týs
í Vesmannaeyjum og síðasta kynningin verður
á mánduaginn kl. 17 í húsakynnum Úrvals-
Útsýnar við Álfabakka.
Uppskeruhátíð
Handknattleiksdeild Fram heldur uppskeruhá-
tíð deildarinnar kl. 15 á sunnudaginn í félags-
heimili Fram.
„VIÐ gerðum okkur fyllilega
grein fyrir því þegar við mætt-
um til seinni hálfleik fjórum
mörkum undir, að nú væri að
duga eða drepast - við ætluð-
um okkur að gera allt til þess
að koma í veg fyrir að tapa á
heimavelli," sagði Guðjón
Árnason, sem fór á kostum í
FH-liðinu og tryggði FH jafn-
tefli, 25:25, á eileftu stundu og
framlenginu, en í henni léku
leikmenn FH-liðsins við hvern
sinn fingur og fögnuðu sigri.
Auðvita vorum við þrælheppnir
að ná að jafna þegar leik-
tíminn var að renna út. Strákarnir
unnu mikið þrek-
SigmundurÓ. virki að vinna upp
Steinarsson forskot Selfyssinga,
skrífar en það var greinilegt
að leikmenn Selfoss
þoldu ekki að tveir leikmenn væru
teknir úr umferð - þeir urðu tauga-
spenntir yfir að þurfa að leika fjór-
ir gegn fjórum og réðu ekki við
Hans Guðmundsson og Kristján
Arason, sem voru sem klettar í
vörninni," sagði Þorgils Óttar M'att-
hiesen.
„Urðum aðtaka Einar Gunnar
og Sigurð úr umferð“
„Það var ekkert annað fyrir okk-
ur að gera en að taka þá Einar
Gunnar Sigurðsson og Sigurð
Sveinsson úr umferð. Þeir Voru
búnir að vera óstöðvandi og skora
stórglæsileg mörk með langskotum
og þá opnuðu þeir leiðina á línunni
með ógnun sinni. Það kom okkur
til góða að Einar Guðmundsson
meiddist og gat ekki leikið með.
Selfyssingum eftir fyrri hálfleik-
inn,“ sagði Kristján Arason, þjálf-
ari FH-liðsins.
Okkar óheppni að Einar Guð-
mundsson meiddist"
Einar Þorvarðarson, þjálfari Sel-
fyssinga, sagðist hafa reiknað með
því að Sigurður og Einar yrðu tekn-
ir úr umferð. „Það er ekkert nýtt
fyrir okkur að annar þeirra ef ekki
báðir eru teknir úr umferð. Okkar
óheppni í stöðunni var að Einar
Guðmundsson meiddist, en það er
fyrir okkur að missa hann eins og
ef FH-ingar hefðu misst Guðjón
Árnason. Við erum með ungt lið
sem skortir reynslu og það er dýr-
mætt að þurfa að taka út reynsluna
í hreinum úrslitaleikjum um ís-
landsmeistaratitlinn," sagði Einar.
„Daufir og andlausir“
Selfyssingar voru búnir að skora
sjö mörk með langskotum og opna
línuna þannig að fjögur mörk komu
þaðan í fyrri hálfleik, en FH-ingar
náðu að minnka þessar tölur niður
í tvö mörk úr langskotum og tvö
af línu í seinni hálfleiknum. Hvað
var upp á teningnum hjá FH í fyrri
hálfleik?
„Við vorum daufir og andlausir
í vörn og sókn í fyrri hálfleik og
má segja að Bergsveinn Berg-
sveinsson hafi þá haldið okkur á
floti,“ sagði Guðjón Árnason, hetja
Einar ekki
Selfossi?
Einar Guðmundsson, leikstjórn-
andi Selfyssinga, fékk slæmt
högg á vinstra lærið, stórir mar-
blettir mynduðust. „Eg vona svo
sannarlega að Einar nái sér, en það
kemur ekki í ljós fyrr en á morgun
hversu mikil bólga kemur fram á
læri hans,“ sagði Einar Þorvarðar-
son, þjálfari Selfyssinga.
Einar meiddist í fyrri hálfleik og
síðan voru kaldir bakstrar settir á
læri hans í leikhléi. Hann kom
haltrandi að varamannabekk Sel-
fyssinga þegar tólf mín. voru búnar
af seinni hálfleik, en þá voru FH-
ingar bytjaðir að taka Einar Gunn-
ar og Sigurð Sveinsson úr umferð.
FH-inga. „Guðjón var frábær í
seinni hálfleik og stjórnaði leik okk-
ar eins og herforingi. Hann var
maður að mínu skapi,“ sagði Krist-
ján Arason, sem var mjög þjáður í
öxlinni eftir leikinn. „Ég er ákveð-
inn að þrauka í þessari baráttu -
þó svo að ég fái engin fegurðarverð-
laun fyrir handknattleik,“ sagði
þessi keppnismikil þjálfari FH-liðs-
ins, sem er ekki vanur að gefa
tommu eftir þegar á reynir. Já,
Kristján er maður að mínu skapi.
Athugasemd
Morgunblaðinu hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá Ingólfi Hannes-
syni, deildarstjóra íþróttadeildar Rík-
isútvarpsins:
„Vegna ummæla Arnar Magnús-
sonar, formanns handknattleiksdeild-
ar FH, í Morgunblaðinu í gær, vill
undiiTÍtaður taka eftirfarandi fram:
„Ö.M. sat fund 3. des. sl. ásamt
forseta íþróttasambandsins, for-
manni Handknattleikssambandsins
o.fl. aðilum um gólfauglýsingar o.fl.
mál þeim tengd, en Ö.M. bað sérstak-
lega um að slíkur fundur yrði boðað-
ur. Þar var m.a. ákveðið að engar
breytingar yrðu á þessum málum þar
til almenn heildarstefna hefði verið
mörkuð. I fundargerð segir orðrétt:
„Örn Magnússon, FH, lagði áherslu
á að samræmi væri milli einstakra
íþróttahúsa og að FH mundi sætta
sig við sameiginlega niðurstöðu." Svo
mörg voru þau orð og býsna fróðleg
í dag.
Auglýsingar á gólfum eru hvergi
leyfðar í handknattleikskeppni í
Norður-Evrópu. Ástæðurnar eru fjöl-
margar, m.a. þær að aðrir auglýsend-
ur telja þær rýra mjög gildi skilta
viðleikvang.
Á Heimsmeistaramótinu í Austur-
ríki var auglýsing í miðjuhring, þvert
á samning á milli viðkomandi aðila.
Flestar sjónvarpsstöðvarnar sem
sendu frá mótinu hafa mótmælt þessu
samningsbroti. Nú hefur Evrópusam-
band útvarps- og sjónvarpsstöðva,
EBU, tilkynnt viðkomandi aðila (í
faxi dags. 27.3.) að helmingur samn-
ingsupphæðar verði ekki greiddur,
eða tæpar 10 milljónir ísl. króna.
Gólfauglýsingar voru einfaldlega
aldrei til umræðu um samningsrétt á
úrslitaleikjum, einfaldlega vegna þess
að slík umræða fór aldrei fram eins
og áður hefur verið sagt frá.“
■agBHBsnanr' :
Vartíminn úti þegar FH skoraði?
„Erfitl að sjá á
eftSr vmmngnum"
Einar Þorvarðarson, þjálfari Selfyssinga, var að sjálfsögðu ekki
ánægður með að sjá á eftir sigrinum til Hafnfirðinga. „Jú, það
var erfitt að horfa á eftir vinningnum - honum var hreinlega stolið
frá okkur. Ég er fullviss að tíminn var útrunninn þegar Guðjón Árna-
son skoraði jöfnunarmarkið þannig að leikurinn fór í framlengingu."
Leikmenn Selfossliðsins tóku undir og Sigurður Sveinsson sagði;
„Tíminn var úti um leið og Guðjón fékk knöttinn inn á línuna. Gísli
Felix, markvörður okkar, horfði á klukkuna þegar sendingin kom til
Guðjóns - þá sýndi hún eina sekúntu, en þegar Guðjón fékk knöttinn
stóð klukkan á núlli,“ sagði Sigurður.
KORFUKNATTLEIKUR
Torfi velur NM-hópinn
Torfí Magnússon, landsliðsþjálfari í körfuknattleik, hefur valið landslið-
ið sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í Noregi 7. til 10. maí. ís-
lenska liðið leikur í riðli með Finnlandi, Svíþjóð og Lettlandi, en í hinum
riðlinum leika landslið Eistlands, Litháen, Danmerkur og Noregs.
Jón Kr. Gíslason er fyrirliði liðsins, sem er annars þannig skipað:
Teitur Örlygsson og Friðrik Ragnarsson, Njarðvík, Jón Kr. Gíslason og Guð-
jón Skúlason, Keflavík, Valur Ingimundarson, UMFT, Guðmundur Bragason,
Grindavík, Birgir Mikaelsson, UMFS, Magnús Matthíasson og Tómas Holton,
Val, Guðni Ó. Guðnason, Páll Kolbeinsson og Axel Nikulásson, KR.
Liðið leikurgegn styrktu Vesturlandsúrvali í Borgarnesi kl. 16 á morgun.