Morgunblaðið - 24.06.1992, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992
Hagfræðingur VSÍ um útflutnings-
tekjur sjávarafurða á næsta ári:
Risajeppar sýndir
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
„Ford-tröll“ verða sýnd á höfuðborgarsvæðinu
næstu daga á vegum Globus, Bílabúðar Benna og
Landssambands íslenskra akstursíþróttamanna.
Bigfoot-jeppinn sem á myndinni sést er 3,5 metra
hár og dekkin eru vel mannhæðarhá, 1,75 metrar.
Jeppinn er Qórhjólastýrður og er notaður í sýningar-
atriðum. 17 útlendingar standa að sýningunum, sem
eru hluti af Evrópuferð hópsins.
Skuldabréfaútboð Húsnæðisstofnunar:
Tilboðum tekið í bréf
fyrir 245 milljónir kr.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Með sjónvarp í dráttarvélinni
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Nefnd kanni tilhögun
vamarsamstarfisins
Óánægja starfsmanna vamarliðsins með kaupskrámefnd
Á FÍÖLMENNUM fundi starfsmanna varnarliðsins er haldinn var á
Stapa í Njarðvík í gær, lýsti Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra því yfir að skipuð hefði verið nefnd er ætlað væri að kanna
framtiðartilhögun varnarsamstarfs íslands og Bandaríkjanna og
framtíð Atlantshafsbandalagsins. Á fundinum kom fram mikil
óánægja meðal starfsmanna vamarliðsins, en ráðherra tilkynnti að
hann hefði skipað nýja menn í kaupskrárnefnd. Auk þess muni hann
eiga viðræður við sendiherra Bandaríkjanna og forsvarsmenn vara-
arliðsins í vikunni.
í ræðu utanríkisráðherra kom
fram, að hann hefði í gær skipað
nefnd í samráði við forsætisráð-
herra, er ætlað væri að endurskoða
tilhögun vamarmála. Nefndin eigi
að hefja beinar viðræður við for-
svarsmenn Atlantshafsbandalags-
ins og bandaríska aðila um framtíð
vamarsamstarfsins við Bandaríkin
og um framtíð Atlantshafsbanda-
lagsins.
í nefndinni em sex menn. Tveir
stjóri og Gunnar Pálsson sendi-
herra. Nefndinni er ætlað að skila
áfangaskýrslu 1. október og endan-
legri skýrslu um áramót.
Á fundinum komu fram þungar
áhyggjur starfsmanna varnarliðs-
ins af framtíðarhorfum í atvinnu,
auk þess sem Bandaríkjamenn sæki
í sífellt fleiri störf er áður hafí ver-
ið unnin af íslendingum.
Einnig kom fram óánægja með
störf kaupskrámefndar, sem hefur
ákveðið kjör starfsmanna vamar-
liðsins. Gerði utanríkisráðherra
fundinum grein fyrir því, að hann
hefði skipað nýja menn í nefndina,
Óskar Halldórsson forstöðumann
vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins, Ragnar Halldórsson
stjómarformann ÍSAL og
Guðmund Gunnarsson varafor-
mann rafíðnaðarsambandsins. Ráð-
herra kvaðst mundu eiga fund með
nefndinni til að ræða framtíðar-
starf hennar.
Ráðherra sagði einnig, að hann
myndi eiga fund með talsmönnum
vamarliðsins og sendiherra Banda-
ríkjanna í vikunni, og myndi hann
ræða við þá um kjör starfsmanna
vamarliðsins.
em skipaðir af utanríkisráðherra,
Benedikt Gröndal formaður nefnd-
arinnar og Karl Steinar Guðnason
alþingismaður. Forsætisráðherra
skipaði einnig tvo nefndarmenn,
Björn Bjamason alþingismann og
Albert Jónsson deildarstjóra í for-
sætisráðuneytinu. Auk þeirra eiga
sæti í nefndinni tveir embættis-
menn utanríkisráðuneytisins, þeir
Þorsteinn Ingólfsson ráðuneytis-
Skerðingin um
4,5 milljarðar
Loðnuafli vegnr á móti skerðingu í þorski
SKERÐING útflutningstekna sjávarafurða vegna minni þorsk-
kvóta verður einungis um 4,5 milljarðar króna á næsta ári,
samkvæmt áætlun Hannesar G. Sigfurðssonar, hagfræðings
VSÍ. Hannes telur að hluti skerðingarinnar muni koma fram
þegar á þessu ári, en veiði á öðrum fisktegundum en þorski
muni skila um tveimur milljörðum í tekjur á næsta ári.
„Breytingin verður ekki svo
mikil milli almanaksáranna 1992
og 1993. Áfallið verður aðallega á
þessu ári,“ sagði Hannes. „Á árinu
er reiknað með miklum loðnuafla
sem fer langt með að vega upp
skerðinguna í þorski. Á næsta ári
Borgarsljóri
formaður
borgarráðs
Á FUNDI borgarráðs í gær
fór fram kjör formanns og
varaformanns ráðsins og var
Markús Örn Antonsson borg-
arstjóri kjörinn formaður.
Varaformaður var kjörinn
Vilhjálmur Þ. Vilþjálmsson
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins.
Auk þeirra eiga sæti í ráðinu
þau Katrín Fjeldsted, Ámi Sig-
fússon og Júlíus Hafstein borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins og Ólína Þorvarðardóttir
borgarfulltrúi Nýs vettvangs.
verður hins vegar skerðing í þorski
er nemur um 6,5 milljörðum, en
þar koma um 2 milljarðar á móti,
e'inkum vegna ýsu, grálúðu og
rækju. Ef við veiðum úthafskarfa
í viðbót við þetta gætum við endað
með samdrátt i útflutningstekjum
upp á 2-3 milljarða." Hannes sagði
að þó yrði að gá að því að þegar
hefði verð á físki lækkað um 3%
og spáð væri frekari verðlækkun.
Gæti það orðið til að útkoman
versnaði nokkuð.
„Almanaksárin 1992 og 1993
verður heildarskerðingin að mínu
mati um 7,5 milljarðar, þótt tekjur
af þorski minnki um 13 milljarða.
Á móti munu koma um 4 milljarða
tekjur af loðnu, 1 milljarður vegna
ýsu og eitthvað vegna rækju og
fleiri tegunda," sagði hann.
Hannes kvað sennilegt að menn
myndu halda nokkuð í við sig við
veiðarnar frá því er fískveiðiárið
hefst þann 1. september og til árs-
loka, því þorskkvóti fyrir fískveiði-
árið væri takmarkaður, og óskyn-
samlegt að klára hálfan kvótann á
fjórum mánuðum. Því muni nokkuð
af skerðingu þorskkvótans skila
sér þegar á þessu ári.
V estmannaeyjar:
Nýr Heijólfur í áætlun
Vestmannaeyjum.
NÝJA V estmannaeyjaferj an
Herjólfur fór í fyrstu áætlunar-
siglinguna til Þorlákshafnar í
gær, en síðdegis á mánudag kom
gamli Herjólfur til Ejja úr síð-
ustu áætlunarsiglingunni.
Heijólfur lagði af stað frá Eyjum
rúmlega hálf átta í gærmorgun og
var kominn til Þorlákshafnar tveim-
ur og hálfum tíma síðar. Vel gekk
að lesta og losa skipið og var það
komið til Eyja á ný klukkaii rúm-
lega þijú í gær. Skipið mun nú taka
við áætlunarsiglingum milli Eyja
og Þorlákshafnar af gamia Heijólfí
sem sinnt hefur þeim siglingum síð-
astliðin 16 ár.
Gamli Heijólfur er nú til sölu en
enn hefur ekki fengist kaupandi og
mun skipið því liggja við bryggju í
Eyjum fyrst um sinn.
Grímur
Ikveikja í
vinnuskúr
Slökkviliðið í Reylgavík var í
gærkvöldi kallað að vinnuskúr í
Blesugróf, þar sem logaði tals-
verður eldur.
Vel gekk að ráða niðurlögum
eldsins, en skúrinn er mikið brunn-
inn og skemmdur. Að sögn lögreglu
er talið að um íkveikju hafí verið
að ræða.
ALLS bárust tilboð að fjárhæð um 394 milljónir króna frá 45 aðilum
í fyrsta skuldabréfaútboði Húsnæðisstofnunar en frestur til að skila
inn tilboðum rann út í gær. Ákveðið var að taka tilboðum með 7,15%
eða lægri ávöxtun umfram lánskjaravísitölu og hljóðuðu þau upp á
samtals 245 miHjónir. Fá þessir tilboðsgjafar öll þau bréf sem þeir
óskuðu eftir miðað við 7,15% ávöxtun jafnvel þó tilboð þeirra hafi
verið lægri. Það voru lífeyrissjóðir sem keyptu meginhluta bréfanna.
Að sögn Svanbjörns Thoroddsens
hjá Verðbréfamarkaði íslands-
banka, • sem annast útboðið, er
7,15% ávöxtun sama ávöxtun og
lífeyrissjóðum hefur staðið til boða
af húsbréfum að undanfömu. Hann
sagði að þátttakan í þessu fyrsta
útboði gæfí tilefni til bjartsýni um
framhald útboðanna í Ijósi þess að
framboð annarra bréfa hefði verið
mikið síðustu vikur. Þá mætti búast
við að heildarfjárhæð tilboða sveifl-
aðist frá einum mánuði til annars.
Tilboðin sem bárust í bréfin voru
með ávöxtun á bilinu 7-7,26% en
alls námu tilboð með 7,11-7,15%
ávöxtun 145 milljónum.
Húsnæðisstofnun mun skv. sam-
komulagi við lífeyrissjóðina bjóða
út 3 milljarða á þessu ári í sjö
mánaðarlegum áföngum. Útboðin
verða næst síðasta þriðjudag hvers
mánaðar það sem eftir er ársins.
Bogi Þórhallsson, bóndi á Stóra-Hamri í Eyjafírði og flugvallarstarfs-
maður á Akureyrarflugvelli, er að því er best er vitað sá fyrsti sem
er með sjónvarp í dráttarvél sinni. „Þetta styttir manni stundirnar
þegar aka þarf hring eftir hring tímunum saman,“ sagði Bogi. Að-
spurður hvort ekki væri nein hætta á því að hann æki út í skurð ef
góð spennumynd væri í sjónvarpinu svaraði Bogi því til að það yrði
þá bara að koma í Ijós, en hann kvaðst ekki vera sérlega uggandi
um að svo færi. Að því búnu tók hann aftur til við sláttinn, en hann
varð fyrstur til að hefja slátt á þessu sumri og nú ætti Bogi að
geta fylgst með Evrópukeppninni í knattspyrnu þótt hann sé önnum
kafínn við heyskapinn.
Beiyamín