Morgunblaðið - 24.06.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.06.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992 ÞORSTANUM SVALAÐ Valfrelsi Frá Eygló Karlsdóttur: MIG langar til að leggja nokkur orð í belg um vissa hluti, sem hafa verið í brennidepli núna að undan- fömu í sambandi við trúmál, eins og við köllum það hérlendis. En mér finnst rétt að minna á það sem skiptir miklu máli áður en ég segi það, sem ég vil segja, að það er að við höfum nokkuð sem heitir valfrelsi. Ég trúi á Guð og Jesú Krist (en aðrir hafa sína túlkun á sinni trú eða trúarskoðun). Og ég trúi einnig því að Guð hafi gefið okkur þetta valfrelsi! Og það sem aðrir velja sér eigum við að virða hjá öðrum. Við mennirnir höfum reyndar mjög þrönga hugsun miðað við almættið. Þess vegna finnst mér skrítið að það séu alltaf sýndir neikvæðir hlutir um trúmálin og sérstaklega þegar fólkver fijálst í sinni athöfn. En ýmsu öðra er hampað sem er kannski líka alveg eins neikvætt eins og t.d. dauða- rokkhljómsveitum o. s. frv. En ég hef ekki áhuga á því að dæma neinn, og Jesús gerði það ekki heldur. En hann dæmdi hins vegar verk sem vora vond. Þess vegna held ég að við ættum að læra að leggja niður fordóma og skilja hvort annað í staðinn. En eins og við vitum og sjáum, þá hafa ýmsir straumar streymt að okkur, eins og til dæmis margt í sambandi við nýöldina, sem ýmis- legt ,jákvætt“ og talað er mikið um strauma, orku og ljós, já, ljós og hið heilaga ljós. En ég trúi ekki einungis á það heldur einnig á að við getum átt persónulegt samfé- lag við Guð í Jesú Kristi. Hann er besti vinur minn. En mig langt til að vitna í lokin í ritningartexta um hið heilaga ljós sem er í sálmi 97:11-12. Ljós renn- ur upp réttlátum og gleði hjarta- hreinum. Gleðjist þér réttlátir yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn. Og „því svo elskaði Guð heimin að hann gaf oss son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Jóh. 3:16. EYGLÓ KARLSDÓTTIR Hamrabergi 30, Reykjavík. í VELVAKANDI TÝNDUR KETTLINGUR Grábröndóttur lítill kettlingur, ómerktur, tapaðist frá Ásvalla- götu fyrir skömmu, og hefur hugsanlega farið með bíl út úr hverfinu. Vinsamlegast látið vita í síma 13848 ef hann hefur komið fram. ar varir hringi í síma 612613 eða í Kattholt. Eigendur skúra og geymsla era beðnir um að líta til hjá sér. FILMA Kodak filma fannst nálægt sumarbústað í Grafningi, hjá fyrsta rörahliðinu. Upplýsingar síma 691282. TÝND LÆÐA SÍAMSKÖTTUR Folda er brúnleit yijótt læða ) og á heima á Bollagötu 12. Hún fór út sl. laugardagskvöld, 13. júní, og hefur ekki komið heim síðan. Þeir sem hafa orðið henn- Silpoint síamsköttur, ómerkt- ur, strauk úr pössum að Valla- rási 2 18. júní sl. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í Erlu í síma 93-13110. Island og framlag til samfélags þjóðanna Frá Rafni Geirdal: Nú er nýlokið alþjóðlegri ráð- stefnu í Ríó undir stýringu Samein- uðu þjóðanna um umhverfisvernd. Helstu þjóðarleiðtogar heims mættu á vettvang til undirritunar á mikil- vægum sáttmálum. Forseti okkar, Vigdís Finnbogadóttir, hélt þar markverða ræðu sem tekið var eft- ir. Til marks um það er að Banda- ríkjaforseti steig úr sæti og þakk- aði Vigdísi ræðuna með handa- bandi. ísland getur verið í forvígi fyrir umhverfisvemd í heiminum. ísland hefur myndað fordæmi sem er lyk- ill að árangri. Plantað er 4 milljón- um tijáa á ári. Það era 16 tré á hvem íslending. Við eram að breyta örfoka eyðimörk við heimskauts- baug í grænt land á ný. Þetta er fordæmi sem dugar til að sýna öðr- um þjóðum möguleikann á eftir- breytni. Sumir segja að það sé ekki leiðin til Ríó sem skiptir máli, það er leiðin frá Ríó. Það era verkin sem tala. Við íslendingar höfum látið verk- in tala. Höldum áfram á þeirri braut. Með því að móta lykilinn að lausnunum, er það okkar framlag til samfélags þjóðanna. Þetta ætti að nýtast þeim vel. ísland í önd- vegi. íslandi allt. Ég þakka. RAFN GEIRDAL, skólastjóri LEIÐRÉTTING StafafellsfjöII í þættinum „Sveitin mín“ síðast- liðinn sunnudag, þar sem rætt var við Sigurlaugu Ámadóttur, misrit- aðist nafn Stafafellsfjalla. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Pennavinir Einhleyp 36 ára velsk kona með áhuga á tónlist, bókalestri, ljós- myndun og safnar póstkortum: Helenna Davies, Berth Glyd, 6 Berth Giyd Road, Colwyn Bay, Clwyd LL29 9HT, Wales. MEG frá ABET UTANÁHÚS FYRIRLIGGJANDI £§ Þ.ÞORGRÍWISSON & C0 Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 BIODROGA Silkimjúkar hendur Bio Repair handáburðurinn 340 kr • 30 ml. BIODROGA lífrænar jurtasnyrtivörur Otsölustaðir: Stella, Bankastræti; Ingóltsapótek, Kringlunni; Brá, Laugavegi; Gresika, Rauðarárstíg; Lilja, Grenigrund 7, Akranesi; Kaupf. Skagfirðinga; Kaupf. Eyfirðinga; Vestmannaeyjaapótek. páðfet! síiíii ffá Pana Pocket kx - 9000 ■ Tónval ■ 900 MHz, 40 rásir ■ 10 skammvalsminni (20 tölustafir) ■ Langdrægni 400 m. utanhúss ■ Langdrægni 200 m. innanhúss - ■ Handtæki vegur 390 gr. ■ Móðurstöð vegur 500 gr. ■ Samþykktur af Fjarskiptaeftirlitinu Verð kr. 32. 903 stgr. HEKLA LAUGAVEGI 174 S 695500/695550 ...alltafþegar Æ# það er betra Almenna mótiA í Vatnaskógi 26.-28. júní „Leitiö fyrst ríkis hans“ Kristilegt mót meó fjölbreyttri dagskrá. Allir velkomnir í styttri eða lengri tíma - börn ífylgd meðfullorðnum. Samband íslenskra kristniboðsfélaga. ' Upplýsingar í síma 678899.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.