Morgunblaðið - 24.06.1992, Page 4

Morgunblaðið - 24.06.1992, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992 Fyrsti lax sumarsins? Jafnan er nokkur spenna meðal veiðimanna hvar og hver veiði fyrsta lax sumarsins. Kemur hann úr Norðurá eða Þverá? Eða Laxá á Ásum? Hin seinni ár hafa eldislaxar verið að veiðast í Hlíðarvatni í Selvogi í maí, en teljast þeir fullgildir kandídatar? Á meðfylgjandi mynd er hins vegar ósvikinn kandídat og ef búrfísk- amir úr Hlíðarvatni em dæmdir úr leik, mætti vel ímynda sér að þama fari fyrsti lax sumarsins. Veiðimaðurinn heitir Júlía Jörgens- en og veiddi hún þennan 8 punda lax á spón 24. maí síðastliðinn. Veiðistaðurinn var Miklavatn í Fljótum, en í það rennur kunn lax- veiðiá, Fljótaá, og má ætla að þessi fallegi vorlax hafí verið á leið í hana er hann sá glitta í spón Júlíu. Lítið miðar á fundum um nýja ÍSAL-samninga t GÆR var haldinn stuttur fundur í deilu íslenska álfélagsins og stéttarfélaga starfsmanna þess. Á honum ítrekuðu aðilar fyrri við- horf til helsta ágreiningsefnisins, sem er spurningin um svigrúm ÍSAL til að bjóða út einstök verkefni. Deilan er enn i höndum ríkis- sáttasemjara, en ekki hefur verið ákveðið hvenær næsti sáttafundur verður haldinn. Vinnuveitendasamband íslands hefur átt aðild að samningaviðræð- unum fyrir hönd ÍSAL. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri, segir að fundurinn í gær hafí verið örstuttur og aðilar að- eins áréttað fyrri afstöðu sína. ÍSAL leggi mikla áherslu á að ná fram breytingum á samningunum, sem geri fyrirtækinu kleift að bjóða út einstök verkefni með sama hætti og tíðkist hjá öðrum fyrir- tækjum í landinu. í því sambandi líti forsvarsmenn fyrirtækisins meðal annars til samninga verka- lýðsfélaga við Atlantsálsfyrirtæk- in. Viðsemjendur ÍSAL eigi aðild að þeim samningum og þar séu ekki fyrir hendi þær hömlur á út- boðum sem fyrirtækið búi nú við. Gylfí Ingvarsson, aðaltrúnaðar- maður starfsmanna ÍSAL, segir að fyrir hálfum mánuði hafí samningamenn vinnuveitenda lagt fram pakka, með því sem þeir hafi kallað velferðarmál ÍSAL. Þar hafí verið áætlanir um hvemig gert yrði upp við starfsmenn eða þeir fluttir til, sem ynnu í þeim deildum fyrirtækisins, sem hug- myndir væru uppi um að leggja niður. Þessum pakka hefðu fulltrú- ar starfsmanna hafnað á fundinum í gær og hefðu vinnuveitendur þá ekki talið ástæðu til að halda við- ræðum áfram að sinni. Hann segir að hugmyndir ÍSAL gangi út á að bjóða til dæmis út mötuneyti, ræstingu, byggingar- vinnu og hafnarvinnu ef þessar hugmyndir nái fram að ganga. Starfsmenn meti það svo, að milli 150 og 200 manns myndu missa vinnuna ef af yrði, en starfsmenn fyrirtækisins séu að jafnaði milli 600 og 650. Gylfí segir að lokum, að það sé rangt hjá forsvarsmönnum vinnu- veitenda að bera aðstæður hjá fyrirtækinu saman við önnur fyrir- tæki, hvað þá álver Atlantsálsfyrir- tækjanna, sem ekki sé einu sinni farið að byggja. ÍSAL hafi gengið inn í ákveðið rekstrarumhverfi þegar það tók til starfa og í því felist meðal annars, að verkalýðs- félögin hafí samningsrétt hvað þessi mál varðar. Nú krefjist stjómendur ÍSAL þess að starfs- menn samþykki einhliða kröfur þeirra eða fái enga samninga ella. Slík vinnubrögð skili hins vegar engum árangri. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 24. JUNl YFIRLIT: Yfir Norðausturlandi er nærri kyrrstæð 984 mb lægð sem grynn- ist smám saman. Yfir Norðvestur-Grænlandi er 1.025 mb hæð. SPÁ: Norðanlands verður norðanátt, víða stinningskaldi eða allhvasst og slydda, en dregur úr vindi og slyddu þegar líður á daginn. Sunnanlands verður norðvestankuldi eða stinningskaldi og nokkuö bjart. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG:Norðanátt og þurrt vestanlands en annars breytileg átt og víða súld eða rigning. Fremur kalt í veðri. HORFUR Á FÖSTUDAG: Aust- og norðaustlæg átt. Rigning eða súld á Suðaustur- og Austurlandi en víða þurrt annars staðar. Heldur hlýnandi. Svarsfmf Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. O ^ Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað f f f * f * *** f f * f * * f f f f * f * * * Rigning Slydda Snjókoma Skýjað Alskýjað V V V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og flaðrimar vindstyrk, heil fjööur er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Poka ■J. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Töluvert sandfok er nú á Mýrdalssandi og búast má við að það standi fram yfir miðnætti. Vegfarendur eru varaðir við að leggja ekki á sandinn meðan á þessu stendur. Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú færir, utan einstaka vegakafla á Vestfjörðum sem lokaðir eru vegna aurbleytu og sumstaðar eru sérstakar öxulþungatakmarkanir af þessum sökum. Á Norðausturlandi hafa hálendisvegir í öskju, Kverkfjöllum og Snæfelli verið opnaðir. Á Suöurlandi hefur verið opnað ( Jökulheima og Veiði- vötn. Þessar leiöir eru aðeins færar jeppum og stórum bílum. Þorska- fjarðarheiði á Vestfjöröum hefur nú verið opnuö fyrir alla umferð. Klæð- ingaflokkar eru nú að störfum víða um landið og að gefnu tilefni eru ökumenn beðnir um að virða sérstakar hraðatakmarkanir til þess að forða tjóni af völdum steinkasts. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 6 alakýjað Reykjavík 6 skúr Bergen 12 skýjað Heleinki 15 hálfskýjað Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Narssarssuaq 5 t>oka Nuuk 4 léttskýjað Osló 18 skýjað Stokkhólmur 18 skýjað Pórshöfn 11 rigning Algarve 20 skýjað Amsterdam 18 skýjað Barceiona 21 hálfskýjað Berlín 23 hátfskýjað Chicago 14 alskýjað Feneyjar 24 skýjað Frankfurt 21 skúr Glasgow vantar Hamborg 17 skýjað London 20 mistur Los Angeles 18 atskýjað Lúxemborg 23 skýjað Madrid 17 skýjað Malaga 22 skýjað Mallorca 23 léttskýjað Montreal 13 léttskýjað New York 14 lóttskýjað Orlando 25 skýjað Parla 10 skýjað Madeira 20 skýjað Róm vantar Vín 29 skýjað Washington 17 skýjað Winnipeg 12 léttskýjeð Fiskimjölsverksmiðjan að Kletti. Faxamjöl hf.: Óskar eftir að reka verksmiðjuna á Kletti á næstu loðnuvertíð FAXAMJÖL hf. hefur óskað eftir heimild borgaryfirvalda til að reka fiskimjölsverksmiðjuna að Kletti á næstu loðnuvertíð. Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi Nýs vettvangs, vakti athygli á að meginrök fyrir að heimila bæri starfsleyfi fiskimjölsverksmiðjunnar í Orfirisey væru að verksmiðjan að Kletti hætti starfsemi. Markús Örn Antonsson borgarsfjóri benti á að einungis væri farið fram á heimild .til reksturs á næstu loðnuvertíð. Erindinu var vísað til heil- brigðisnefndar Reykjavíkur. í erindi Faxamjöls hf. kemur fram, að afhenda átti Reykjavíkur- borg verksmiðjuna að Kletti til eign- ar um síðustu áramót. Er borgaryf- irvöldum þökkuð lipurð og stuðn- ingur við umsókn um starfsleyfi fyrir verksmiðju fyrirtækisins í Or- fírisey en sú verksmiðja hafí verið í rekstri allan sólarhringinn nánast alla daga vikunnar frá 5. mars síð- astliðnum. „Engan reyk leggur frá verksmiðjunni og enga lykt. Er ljóst að sú framkvæmd hefur tekist eins og best verður kosið." Óskað er eftir heimild til að reka verksmiðjuna að Kletti á næstu loðnuvertíð, þar sem mjög gott út- lit sé með stærð loðnustofnsins og horfur á vertíðinni góðar. Fyrirtæk- ið geri út loðnuskip og að það muni hjálpa skipunum verulega að geta landað afla sínum í Reykjavík. Tekj- ur Reykjavíkurborgar séu verulegar ekki síst Reykjavíkurhafnar og Rafmagnsveitu Reykjavíkur af rekstri verksmiðjunnar auk annarr- ar þjónustu við skipið. Þá horfí illa með atvinnu fyrir næstu mánuði en verksmiðjan veitir um 30 mönn- um atvinnu á vertíð, auk þeirrar óbeinu atvinnu sem hún skapar ýmsum þjónustufyrirtækjum. Fram komin ósk sé háð því að borgaryfirvöld telji ekki þörf á að rífa vérksmiðjuna á þessu ári. Ljóst sé að rekstur verksmiðjunnar sé þymir í augum margra vegna lykt- ar sem frá henni leggur á þeim dögum er vindátt er óhagstæð. „Kann það að hafa einhver áhrif á ákvörðun borgaryfírvalda. Hins vegar er um tiltölulega stuttan vinnslutíma að ræða eða 2 til 4 mánuði eftir því hvar veiðisvæðin liggja og á þeim tíma árs sem borg- arbúar verða minnst varir við lykt- ina.“ í bókun Ólínu segir, að rökin fyrir að heimild fyrir starfsleyfí Fiskimjölsverksmiðjunnar í Örfiris- ey hafí verið að verksmiðjan að Kletti hætti nokkurn veginn sam- tímis. Nú væru ijórir mánuðir liðnir frá því leigusamningur borgarinnar að Kletti rann út. „Mikinn ódaun leggur frá verksmiðjunni þegar hún er í gangi og ekki forsvaranlegt að láta hana starfa áfram. Með því að framlengja starfssamninginn myndi Reykjavíkurborg ganga á bak orða sina, svokölluð „atvinnusjónarmið" mega ekki réttlæta orðabrigð eða umhverfisspjöll." í svari borgarstjóra segir, að Faxamjöl fari einvörðungu fram á að reka verksmiðjuna á næstu loðnuvertíð. Um frekari rekstur sé ekki að ræða, því verksmiðjan verði rifín á næsta ári af skipulagsástæð- um. „í ljósi þess hve alvarlega horf- ir í atvinnumálum er eðlilegt að þessi beiðni sé tekin til jákvæðrar meðferðar hjá borgaryfírvöldum."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.