Morgunblaðið - 24.06.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JUNI 1992
5
Morgunblaðið/Arni Helgason
Vestfirsku hrossin komu með Baldri til Stykkishólms á miðnætti á laugardag.
Stykkishólmur:
Á leið á hestamannamót
Stykkishólmi.
Breiðafjarðarferjan Baldur kom óvenju seint á laugardags-
kvöldið til Stykkishólms, eða ekki fyrr en um miðnætti. Astæðan
var sú að lengri tíma tók að koma hluta farþeganna um borð á
Brjánslæk á Barðaströnd.
Þetta er í fyrsta skipti sem
svona farþegar óska eftir fari yfir
Breiðafjörð. Hér var um að ræða
60 hross af Vestfjörðum, einkum
frá Þingeyri, sem eru á leið á
fjórðungsmót hestamanna sem
haldið verður á Kaldármelum í
Kolbeinsstaðahreppi um næstu
helgi. Eftir að hrossin voru komin
um borð fór lítið fyrir þeim, en
þau voru fljót að hlaupa í land
þegar til hafnar kom. Voru þau
hin hressustu eftir ferðina.
Hrossin og eigendur þeirra áðu
í Stykkishólmi um nóttina og dag-
inn eftir var haldið áleiðis að
Kaldármelum. Ekki er áætlað að
fara sömu leið til baka heldur
gefa sér tíma og fara landleiðina
í gegnum Dalina.
Undirbúningur fyrir Kaldár-
melamótið hefur staðið lengi og
er hann kominn á lokastig. Mikið
hefur verið gert til að bæta að-
stöðuna fyrir mótshaldið og hafa
margir hestamenn lagt fram
ómælda vinnu til að mótið geti
farið sem best fram.
Reiknað er með miklum fyölda
hesta og áhorfenda á mótið og
vona aðstandendur að gestir njóti
góðrar helgar á Kaldármelum.
- Arni.
Tveggja ára fangels-
isvist fyrir að mis-
nota 12-14 áratelpur
SAKADÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 43 ára mann, Hannes Odds-
son, til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að hafa á tímabilinu apríl til
ágúst 1991 haft í 5-6 skipti samfarir við tvær telpur, aðra tólf og hina
13 ára. Hann var einnig sakfelldur fyrir að hafa veitt telpunum tveim-
ur og fjórum öðrum, 12-14 ára, áfengi og sýnt þeim klámmyndir.
Lögreglumenn í lögreglustöðinni í
Breiðholti komust á snoðir um heim-
sóknir telpnanna til mannsins á
heimili hans við Laugaveg og í fram-
haldi af því var hann handtekinn og
úrskurðaður í gæsluvarðhald í sjö
daga. Telpumar 6 báru að hann hefði
veitt þeim áfengi og sýnt þeim klám-
myndir, einni 1 sinni, annarri 2,
tveimur 5-7 sinnum og tveimur
margsinnis. Hann hafi jafnframt 5-6
sinnum haft samfarir við þær tvær
síðasttöldu, sem voru þá 12 og 13
ára, að báðum viðstöddum, og eina
hinna, þá 14 ára, í eitt skipti.
Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa
veitt telpunum áfengi og að þær
hafi séð klámmyndir á myndbandi á
hemili hans en hann kvað þær hafa
haft frumkvæði að því. Hann neitaði
öllum ákærum um samræði við telp-
urnar en þær ásakanir þóttu sannað-
ar með framburði telpnanna, að
mati Arngríms ísbergs sakadómara.
í ákæru var maðurinn sakaður um
samræði við þijár stúlkur en var
sakfelldur fyrir brot gegn tveimur.
Varðandi þriðju stúlkuna, var ákæru
um samræði vísað frá dómi. Þar sem
sú var orðin 14 ára þegar brotin
voru framin, heyrðu brot mannsins
gagnvart henni undir annað laga-
ákvæði þar sem lagt er bann við að
tæla 14-16 ára ungmenni til samræð-
is. Frávísunin var byggð á því að í
ákæruskjalinu var orðið að tæla ekki
notað um brot mannsins gegn henni.
í dómi segir að þar sem aldrei megi
refsa mönnum fyrir aðra hegðun en
þau sem í ákæruskjali greini beri að
vísa þessu atriði frá dómi.
Sjö daga gæsluvarðhald sem mað-
urinn hafði sætt kemur til frádráttar
2 ára fangelsisvist hans en auk þess
var hann dæmdur til að greiða 200
þúsund krónur í málsvarnar- og sak-
sóknarlaun.
-----» » ♦----
Borgarráð:
Stjömuspeki-
stöðin styrkt
um 350 þús.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að
veita Gunnlaugi Guðmundssyni,
fyrir hönd Stjörnuspekistöðvar-
innar, 350 þúsund króna styrk,
vegna námskeiða hérlendis fyrir
útlendinga.
Styrkurinn er veittur til undirbún-
ings námskeiðanna, sem meðal ann-
ars byggja á íslenskum stjörnukorts-
forritum. I bókun atvinnumálanefnd-
ar segir: „Atvinnumálanefnd telur,
að hér sé á ferðinni athyglisverð til-
raun til þess að markaðssetja ísland
á nýstárlegan hátt og ná til nýs
markhóps á sviði ferðaþjónustu hér
á landi. Með hliðsjón af því samþykk-
ir nefndin að leggja til við borgar-
ráð, að Stjörnuspekistöðinni verði
veittur styrkur að fjárhæð kr.
350.000.“
VARI HF. - ÞÓRODDSTÖÐUM VIÐ SKÓGARHLÍÐ
UPPLÝSINGASÍMI 91-29399
ORLOFSVOKTUN
..fylgjast með gluggum
og hurðum...
..svara símanum þar sem símtals-
flutningur er mögulegur...
...og litma þóstkassann.
Öryggisþjónustan VARl býður í samvinnu við VISA Island nýja þjónustu við
VISA-korthafa - ORLOFSVÖKTUN.
Orlofsvöktun er samofið húsgæslukerfi og framkvæmd reglulegra nauðsynjaverka með
farandgæslu. Orlofsvöktun er fyrst og fremst hugsuð fyrir þá er hyggja á ferðalög eða
verða fjarverandi frá heimili sínu um lengri eða skemmri tíma af öðrum ástæðum.
Orlofsvöktun felur í sér þjófa-, vatns- og reykviðvörun, með bestu fáanlegum tækjum,
einnig eftirlit með rafmagni. Húsgæslukerfi þetta tengist öryggismiðstöð VARA og
vakir yfir heimili þínu allan sólarhringinn. Mönnuð farandgæsla tvisvar í viku er
innifalin í orlofsvöktun, en hægt er að fá fleiri eftirlitsferðir gegn aukagjaldi. Með
orlofsvöktun getur þú áhyggjulaust farið frá heimilinu því að öryggismiðstöð VARA
gerir strax viðeigandi ráðstafanir ef óboðinn gestur fer um heimiiið þitt, eldur kemur
upp eða vatn flæðir um gólf. Einnig sinna öryggisverðir VARA ýmsum
nauðsynjaverkum á heimilinu, svo sem að vökva bióm, tæma póstkassa, gefa
gæludýrum, skipta um spólu í símsvara eða annast símsvörun með símtalsflutningi þar
sem því verður við komið. Þegar orlofsvöktun lýkur stendur þér til boða
húsgæslukerfið með 10% afslætti.
Ver& frá 7.000,- kr.
Miðað við tveggja vikna vöktun.
Hafðu samband við öryggisráðgjafa VARA og
fáðu frekari upplýsingar um orlofsvöktunina.