Morgunblaðið - 24.06.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JUNI 1992
15
Aukaaðild að nýju stórríki?
Við skulum ekki villast inn í biðsal EB
eftir Ragnar Arnalds
í bæklingnum um EES, Evrópska
efnahagssvæðið, sem utanríkisráð-
herra lét dreifa á hvert heimili nú
fyrir skemmstu var hvergi minnst
á þá staðreynd, að aðild að EES
er aukaaðild að EB. Þess var heldur
ekki getið, að helsta markmið ís-
lendinga þegar samningaviðræður
hófust fyrir þremur árum var að
fá fríverslun með fisk en þetta
meginmarkmið náðist ekki. Áfram
verða talsverðir tollar á íslenskum
sjávarafurðum, þótt engir tollar séu
á iðnaðarvörum sem við flytjum frá
EB. Styrkjakerfi EB í sjávarútvegi
verður heldur ekki afnumið, eins
og við höfðum vonast til.
í upphafi viðræðnanna héldu
menn, að gera ætti viðskiptasamn-
ing milli EFTA og EB á jafnréttis-
grundvelli. Niðurstaðan varð allt
önnur. Þetta er ekki samningur
tveggja jafnrétthárra aðila, heldur
eru EFTA-ríkin að gerast aukaaðil-
arað nýju stórríki EB, enda er
samningurinn beinlínis byggður á
ákvæði Rómarsamnings um auka-
aðild að EB (238. gr.).
Áreiðanlega voru þeir ekki marg-
ir hér á landi sem óraði fyrir því,
að niðurstaðan yrði sú, að EFTA-
ríkin yfirtækju tvo þriðju af löggjöf
EB á einu bretti, en þessi nýja
EES-lögbók er meira en 10.000 síð-
ur miðað við uppsetningu í laga-
safni. Til samanburðar má nefna
að allt íslenska lagasafnið frá 1990
er 2770 bls.
Slík lögtaka erlends réttar á sér
að sjálfsögðu ekkert fordæmi í ís-
lenskri sögu síðan Járnsíða og Jóns-
bók voru lögteknar á 13. öld. En
þar að auki er fyrirsjáanlegt, gerist
Island aðili að EES, að Alþingi
neyðist til að halda áfram að sam-
þykkja tugi laga frá EB á hveiju
ári án þess að hafa nokkur áhrif á
efni þeirra. Sá sem ekki vill viður-
kenna, að með þessu er verulega
þrengt að íslensku löggjafarvaldi
er blindur maður.
Glansmyndin sem utanríkisráð-
herra dró upp af þessum samningi
í bæklingi sínum er því miður afar
villandi. Samningurinn hefur fjöl-
margar skuggahliðar sem mark-
visst er reynt að fela. Kostnaður
við EES verður miklu meiri en
nokkum óraði fyrir og augljóslega
það mikill, að væntanlegur hagnað-
ur af tollalækkunum mun nokkurn
veginn étast upp. Auk þess eru EB
færð þijú þúsund tonn af karfa sem
að sjálfsögðu eru mikill missir fyrir
þjóðarbúið. En verst er þó sú fyrir-
ætlan, að sjávarútvegssamningur-
inn verði endurskoðaður annað
hvort ár. Það táknar einfaldlega,
að íslendingar verða á komandi
ámm að heyja slag við EB um veið-
ar í ísl. landhelgi á tveggja ára
fresti.
„EES er anddyrið stóra!“
Alls staðar nema á íslandi er það
viðurkennt opinberlega, að EES er
fyrst og fremst millilending fyrir
ríki sem eru á leið inn í sjálft Evr-
ópubandalagið. Þijú EFTA-ríki,
Svíþjóð, Finnland og Austurríki,
hafa þegar sótt um aðild að EB og
önnur tvö, Noregur og Sviss, stefna
að því. Það er því öllum ljóst, að
EES, sem er aukaaðild EFTA-ríkj-
anna að EB, er nokkurs konar bið-
salur fyrir EFTA-ríkin, meðan þau
bíða eftir að fá fulla aðild að EB.
Meðan EFTA-ríkin doka við í
þessum biðsal, fer ný lagasetning
sem varðar samningssvið EES
þannig fram, eins og áður segir,
að lögin eru sett hjá EB en EFTA-
ríki verða síðan að lögfesta þau hjá
sér athugasemdalaust, ef þau ætla
að vera með í þessu samstarfi. Þau
ganga í klúbbinn sem aukaaðilar
með málfrelsi og tillögurétti, en séu
þau óánægð með þá ákvörðun sem
aðalfélagarnir í klúbbnum taka er
aðeins um tvennt að velja: að fara
eða hlýða.
Ef einhver skyldi efast um að
þetta sé rétt, má vísa til viðtals sem
Franz Andriesen, forseti þeirrar
deildar EB sem fjallar um aðildar-
umsóknir, átti við fréttamann ríkis-
sjónvarpsins 22. maí sl. Andriesen
var spurður, hvort það sé rétt, að
EFTÁ-ríkin muni ekki hafa nein
raunveruleg áhrif á lagasetningu
innan EES í samanburði við EB-rík-
in. Hann svaraði: „Það er rétt. Og
það er með vilja gert... Þau eru
ekki með í Klúbbnum, svo að þau
geta ekki tekið þátt í að ákveða
reglur Klúbbsins .. .Ég held að rétt
sé að segja, að ef þið tengist stofn-
un eins og EB svo náið, að þið eruð
tilbúin að yfirtaka lagasetningu
þessarar stofnunar í framtíðinni,
Ragnar Arnalds
„Meirihluti Alþingis
getur ekki lögfest svo
örlagaríkan samning
og lögtekið 10.000 síðna
erlenda lögbók án þess
að ganga úr skugga um,
að það sé ekki gert í
andstöðu við vilja þjóð-
arinnar.“
án þess að hafa áhrif á þær ákvarð-
anir sem teknar eru, þá gæti verið
hagstætt að vera meðlimur í slíkum
klúbbi. Auðvitað! En þá ákvörðun
verða viðkomandi lönd að taka.“
Þarf nokkur að efast um, að
gangi ísland í EES verður strax á
eftir rekinn hörkuáróður fyrir því,
að betra sé fyrir íslendinga að eiga
þátt í setningu EB-laga með fullri
aðild fremur en að gleypa þau at-
hugasemdalaust sem áhrifalaus
aukaaðili og leppur EB. Síðan hlyti
sá þrýstingur að aukast um allan
helming, ef og þegar aðrar EFTA-
þjóðir ganga í EB. Auk þess yrði
þá stofnanaþáttur EES ófram-
kvæmanlegur, því að auðvitað
myndi ísland eitt ekki geta staðið
undir þeim kostnaði á móti EB.
Martin Bangemann, varaforseti
framkvæmdastjórnar EB var spurð-
ur af svissnesku tímariti (Le noveau
quotidien), hvort EES þjónaði ein-
Sljóm BSRB mótmælir
ábyrgðarleysi og vanefndum
ar í tengslum við kjarnasamninga
svo viðunandi sé; Barnageðdeild
Landsspítalans hafi ekki fengið fjár-
veitingar til að halda eðlilegum
rekstri eins og gefið hefði verið fyrir-
heit um, og niðurstaðan varðandi
Öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans í Hátúni hefði leitt af ser óafsak-
anlega flutninga á öldruðu og sjúku
fólki á milli sjúkrastofnana.
STJÓRN Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, telur að við-
brögð stjórnvalda við hugsanlegum aflasamdrætti óábyrg og að
grundvöllur núverandi tekjuskiptingar sé brostinn. Stjórnin mótmæl-
ir einnig meintum vanefndum rikissljórnarinnar og varar við áform-
um um frekari gjaldtöku á sjúklinga.
Stjórn BSRB telur að viðbrögð
stjórnvalda við hugsanlegum afla-
samdrætti óábyrg. í fréttatilkynn-
ingu frá BSRB segir m.a. að fari
svo að draga verði úr fiskveiðiheim-
ildum að því marki sem Alþjóðahaf-
rannsóknaráðið leggi til, sé ljóst að
grundvöllur núverandi tekjuskipt-
ingar á íslandi sé brostinn. „Á sam-
dráttartímum hefur samfélagið enn
síður en ellsfefni á að viðhalda rangl-
átri tekjuskiptingu sem byggir á því
að fjölmenn sveit manna dregur til
sín heilu og hálfu milljónirnar á
mánuði hveijum á meðan öðrum er
skammtað úr hnefa.“
í ályktun stjórnarinnar er ríkis-
stjórnin hvött til, í ljósi þeirra að-
stæðna sem kunna að skapast við
mikinn aflasamdrátt, að endurskoða
ýmis atriði í fyrri stefnu sinni. „Hvað
sem allri hugmyndafræði líður á rík-
isstjórnin nú að leggja einkavæðing-
aráform sín til hliðar. Einkavæðingin
bindur ijármagn sem ella gæti nýst
í tekju- og atvinnuskapandi starf-
semi í sjávarútvegi og öðrum grein-
um atvinnulífsins.
Stjórn BSRB segir ríkisstjórnina
ekki hafa staðið við yfirlýsingar sín-
TILLAGA frá Nýjum vettvangi
um að borgarstjórn feli fræðslu-
ráði að vinna að því að fá kennslu
eins og þá sem fram fer á barn-
fóstrunámskeiðum Rauða kross-
ins inn í grunnskóla borgarinnar,
var visað til skólamálaráðs til
nánari athugunar á fundi borg-
arstjórnar í síðustu viku.
Kristín Á. Olafsdóttir sem mælti
hveijum tilgangi lengur, úr því flest
EFTA-ríkin væru að sækja um fulla
aðild að EB. Hann svaraði: „Svo
talað sé táknrænt, þá er EES and-
dyrið að stóra, upplýsta veislusaln-
um, þar sem kvöldverðurinn mikli
verður framreiddur.“
Sjálfstæðið — dýrmætasta
auðlindin
Sjálfstæði þjóðarinnar er tví-
mælalaust mikilvægur aflgjafi sem
eykur landsmönnum kjark og þor.
En spurningin um sjálfstæði íslands
snýst ekki aðeins um metnað þjóð-
arinnar heldur engu síður um rétt
okkar til örlagaríkra ákvarðana
þegar mikið Iiggur'við.
Hvers vegna hefur íslenskt efna-
hagslíf þróast miklu hraðar undan-
farna áratugi en efnahagslíf
stærstu ríkja EB? Vegna þess að
sjálfstæð hagstjórn og sjálfstætt
lagasetningarvald hefur aftur og
aftur gert okkur kleift að bregðast
við aðstæðum út frá eigin hagsmun-
um.
Talsmenn aðildar að EES og EB
reyna oft að telja fólki trú um, að
ísland eigi á hættu að einangrast?
Þetta er ekkert annað en mjög
ósvífinn hræðsluáróður. íslendingar
verða að sjálfsögðu ekkert einangr-
aðri en verið hefur, þótt þeir láti
ekki lokka sig inn í nýtt stórríki.
Eða var stofnun lýðveldisins
1944 háskaleg einangrunarstefna?
Hefði íslendingum vegnað betur
sem fylki í Bandaríkjunum eða hluti
Stóra Bretlands? Uppbygging Flug-
leiða er dæmi um atvinnustarfsemi
sem aldrei hefði átt sér stað, ef
ísland hefði verið hluti af Breta-
veldi eða Bandaríkjunum. Annað
dæmi: íslendingar hefðu aldrei fært
út landhelgina fyrstir þjóða við
swcitchn
Norður-Atlantshaf, ef þeir hefðu
verið i EB.
Sjálfstætt ríki hefur óþjótandi
möguleika sem hverfa, þegar þjóðin
rennur inn í stærri heild. Sjálfstæði
þjóðarinnar er auður í sjálfu sér —
dýrmætasta auðlindin.
í andstöðu við vilja
þjóðarinnar?
Það er viðurkennt af öllum, að
EES-samningurinn er viðamesti og
örlagaríkasti samningur sem gerður
hefur verið fyrir hönd þjóðarinnar
um áratugaskeið.
Samningurinn gengur miklu
lengra en kjósendur óraði fyrir við
seinustu alþingiskosningar. Þjóðin
verður því að fá tækifæri til að fjalla
um samninginn í kosningum, áður
en hann er fullgiltur.
Þar að auki er á það bent af lög-
fræðingum, nú seinast á fundi Lög-
mannafélagsins 20. júní sl., að
EES-samningurinn gengur í ber-
högg við íslensku stjórnarskrána,
sem er á því byggð, að löggjafar-
vald, framkvæmdavald og dóms-
vald sé í höndum íslenskra stjórn-
valda. Það verður því að breyta
stjórnarskránni, ef á að lögfesta
þennan samning og til þess þarf
nýjar kosningar til Alþingis.
Skoðanakannanir hafa sýnt, að
a.m.k. helmingur kjósenda og
kannski verulegur meirihluti þeirra,
er á móti þessum samningi. Því
verður ekki trúað að óreyndu, að
ríkisstjórnin virði ekki leikreglur
lýðræðisins í þessu máli, jafnvel
þótt hún eigi það á hættu að verða
í minni hluta. Meirihluti Alþingis
getur ekki lögfest svo örlagaríkan
samning og lögtekið 10.000 síðna
erlenda lögbók án þess að ganga
úr skugga um, að það sé ekkert
gert í andstöðu við vilja þjóðarinnar.
Höfundur er alþingismaður
Alþýðubandalags fyrir
Norðurlandskjördæmi vestra.
1£
■U.,
Varað er við áformum um frekari
gjaldtöku af sjúklingum, t.a.m. þjón-
ustugjöld vegna hjartaaðgerða
þannig að hinir efnameiri greiði fyr-
ir aðgerðir að einhveiju marki.
Stjórn BSRB telur að fólki yrði
mismunað eftir efnahag og segir
m.a. fréttatilkynningu bandalagsins:
„BSRB hefur margoft bent á leiðir
til að skattleggja efnamikið fólk
áður en það verður sjúkt, svo sem
með hátekjuskatti og skatti á fjár-
magnstekjur, og er ástæða til að
minna á slíkar lausnir." (Úr fréttatil-
kynningu.)
A.' iLA. iL2L'\. JL A.AJ.
Nú er tækifærið að fá sér síma á tilboðsverði
SWATCH símarnir svara kröfum nútímans
10 mismunandi litir - Verö frá kr. 3.742
Umboðsmenn um allt land
Borg-arstjórn:
Barnfóstrunámskeið í
grunnskóla rædd nánar
fyrir tillögunni sagði að Rauði kross
íslands hefði undanfarin ár haldið
barnfóstrunámskeið sem sótt væru
af krökkum á aldrinum 11 til 13
ára. Hér væri um mjög mikilvæga
og vandaða kennslu að ræða, sem
ætti erindi til allra grunnskóla-
barna, en ekki einungis til þeirra
sem væru að búa sig undir barnfós-
trustarf.
HEKLA
LAUGAVEGI174
S 695500/695550