Morgunblaðið - 24.06.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992
17
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Litlir leikhúsgestir við Vesturberg
Litla leikhúsið, en að því standa leikararnir Emil Gunnar Guðmunds-
son, Jón Hjartarson og Ragnheiður Tryggvadóttir, stendur um þess-
ar mundir fyrir sýningum á leikritinu „Stuttir fætur“ á gæsluvöllum
í Reykjavík. Þegar hefur leikritið verið sýnt á völlunum við Tungu-
veg og Vesturberg en í dag kl. 14 verður það sýnt á vellinum við
Arnarbakka. Á morgun verður það sýnt við Fífusel, á föstudaginn
við Fannafold, á mánudag við Frostaskjól, á þriðjudag við Malarás,
á miðvikudag við Rauðalæk, á fimmtudag á Njálsgötu og á föstudag-
inn í næstu viku verður það sýnt við Stakkahlíð. Allar sýningarnar
hefjast klukkan 14. Þessi mynd sýnir ánægða áhorfendur á gæsluvell-
inum við Vesturberg í gær.
Kór frá Silkeborg
í Norræna húsinu
KÓR FRÁ Silkeborg í Dan-
mörku mun byrja kvöldið á því
að syngja nokkur lög eftir nor-
ræn tónskáld og frumflytja verk
eftir Svend S. Schults við ljóð
Matthíasar Johannessens og
hefjast tónleikarnir kl. 19.30.
Opið hús hefst svo kl. 20.30.
Fyrirlesari er fil.dir. Árni Sigur-
jónsson. Fyrirlesturinn nefnist
Halldór Laxness. Eftir fyrirlestur-
inn verður kaffihlé og í kaffistofu
verður m.a. hægt að gæða sér á
ijómapönnukökum. Að loknu hléi
verður myndin Eldur í Heimaey
sýnd og er hún með norsku tali.
í bókasafni Norræna hússins
liggja frammi bækur um ísland
og þýðingar íslenskra bókmennta
á norrænum málum. Kaffistofa og
bókasafn eru opin til kl. 22.00 á
fímmtudagskvöldum í sumar.
Aðgangur er ókeypis að opnu
húsi og allir eru velkomnir.
Halldóra Jónsdóttir frá
Skeggjastöðum látin
Halldóra Jónsdóttir frá
Skeggjastöðum í Flóa er látin
103 ára að aldri. Hún var næst-
elst íslenskra kvenna. Halldóra
fæddist þann 17. ágúst árið 1888
á Skeggjastöðum, næstyngst 9
systkina.
Halldóra var dóttir Jóns Guð-
mundssonar bónda og Guðrúnar
Bjarnhéðinsdóttur frá Þjóðólfs-
haga.
Hún flutti til Reykjavíkur árið
1919 og vann við saumaskap
framan af. Halldóra bjó á Drop-
laugarstöðum sl. 10 ár.
Halldóra var ógift alla tíð og
eignaðist ekki börn.
12 mánaða fangelsi fyrir að
misnota 5 ára sljúpdóttur
NYLEGA var 47 ára gamall
maður dæmdur í sakadómi
Reykjavíkur til 12 mánaða fang-
elsisvistar fyrir að hafa fyrir
fjórum árum misnotað kynferð-
islega stjúpdóttur sína, sem þá
var fimm ára. Málið var kært á
síðasta ári eftir að uppkomin
dóttir mannsins greindi móður
telpunnar frá því að faðir henn-
ar hefði beitt hana kynferðisleg-
um þvingunum í æsku. I fram-
haldi af því ræddi móðirin við
dóttur sína og frásögn hennar
af atvikinu kom þá fram í fyrsta
skipti.
kvaðst hafa drukkið tvær flöskur
af vodka þetta kvöld og kvaðst
muna að telpan hafði legið nakin
í hjónarúminu þegar hann vaknaði
um morguninn. Hann kvaðst aldrei
hafa fundið til kynferðislegrar
löngunar til barna og kvaðst enga
skýringu hafa á ásökunum eldri
dóttur sinnar um kynferðislega
kúgun.
Fyrir dóminn voru lögð gögn
um viðræður sálfræðinga við telp-
una, þar á meðal myndbandsupp-
taka af viðtali við hana. Á grund-
velli þeirra gagna var frásögn telp-
unnar lögð til grundvallar við sak-
fellingu mannsins enda þótti hún
fá að ýmsu leyti stoð í framburði
mannsins. Hann var sakfelldur
fyrir að hafa látið hana horfa með
sér á klámmynd og fyrir að hafa
við hana kynferðismök, en gögn
málsins þóttu ekki gefa tilefni til
sakfellingar fyrir samræði.
Auk 12 mánaða fangelsisvistar
var maðurinn dæmdur til að greiða
200 þúsund krónur í málsvarnar-
og saksóknarlaun.
Hann hefur áfrýjað dómi saka-
dóms, sem Arngrímur Isberg saka-
dómari kvað upp',' til Hæstaréttar.
Atvikið átti sér stað íyrir rúmum
ijórum árum á þáverandi heimili
mannsins og móður telpunnar úti
á landi. Móðirin var í Reykjavík
að ala barn og maðurinn gætti
telpunnar og tveggja systkina
hennar. Telpan bar að hún hefði
vaknað um miðja nót til að fara á
salerni og hefði þá stjúpfaðir henn-
ar sem sat frammi í stofu látið sig
horfa á klámmynd, síðan síðan
hafi hann leitað á hana, lagt hana
í rúm hjá sér og haft við hana
samfarir. Maðurinn hvorki játaði
né neitaði sakargiftum en kvaðst
ekki hafa trú á að telpan væri að
búa til það sem hún sagði. Hann
LISTAHÁTÍÐIN
LOFTÁRÁS Á
SEYÐISFJÖIH):
Dagskráin í dag
Gallerí Ingólfsstræti:
Tónleikar kl. 20.30. Sigrún
V. Gestsdóttir söngkona og
Einar Kristján Einarsson gítar-
leikari flytja lútusöngva eftir
J. Dowland og útsetningar á
frönskum trúbadorsöngvum
eftir F. Farkas.
Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari flytur Nocturne
ópus 9. nr. 1 í B-moll og ópus
9 nr. 2 í Es-dúr eftir Chopin
og Tunglskinssónötuna ópus
27 nr. 2 í Cís-moll eftir Beet-
hoven. Guðmundur Brynjólfs-
son, Svanhildur Eiríksdóttir og
Þórhallur Guðmundsson flytja
ljóð.
Héðinshúsið: Sólstöðusýn-
ing; fatahönnuðir, textíllist, hár
og förðun, tónlist og fleira.
tjóðdansasýning. tjóðdansafé-
lag íslands tekur sporið.
Djúpið: Gospeldjass kl.
21.30. Páll Pálsson, Óskar Ein-
arsson, Guðný Einarsdóttir,
Steingrímur Guðmundsson,
Hjalti Gunnlaugsson, Helga
Bolladóttir og íris Guðmunds-
dóttir.
STERKAR
ÞAKRENNUR
SEM ENDAST 0G ENDAST
PLASTHUÐ MEÐ LIT
GRUNNUR
BINDIGRUNNUR
VALSAÐ STÁL
GALVANHÚÐ
LP þakrennukerfið
sameinarkosti
ólíkraefna-kjarninn úrstáli,
húðað zinki og plasti.
STYRKURINN í stálinu
ENDINGIN í plastinu
HEILDARLAUSN
• Auðvelt í uppsetningu.
• Engin suða - ekkert lím.
• 4 litamöguleikar:
Rautt, svart, hvítt, brúnt.
• Ávallt til á lager.
• Verðið kemur þér á óvart.
Leitið upplýsinga hjá
sölumönnum okkar
BLIKKSMIÐJAN
SMIÐSHOFÐA 9
112 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-685699
KJÖLUR hf.
ÁRMÚLA30 S: 678890 - 678891
FYRIR SUMARBÚSTAÐINN