Morgunblaðið - 24.06.1992, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JUNI 1992
Aukið frelsi í flugmálum:
S AS segir reglur
EB ósanngjamar
Kaupmannahöfn, Lúxemborg. Reuter.
TALSMAÐUR skandínavíska flugfélagsins SAS sagði í gær að nýjar
reglur Evrópubandalagsins (EB) um aukið frelsi í flugmálum kæmu
sumum flugfélögum betur en öðrum. Helstu flugleiðir SAS yrðu opnar
fyrir samkeppni í byijun næsta árs, en mörg flugfélög annarra landa
hefðu aðlögunartíma til ársins 1997.
Samkvæmt reglunum á að af-
nema takmarkanir á áætlunarflugi
og fargjöldum innan aðildarríkja EB,
en innanlandsleiðir verða þó ekki
gefnar fijálsar fyrr en árið 1997.
Talsmaður SAS sagði að flugfélagið
hefði helst viljað að allar leiðir yrðu
gefnar fijálsar þegar í stað. Sam-
k'væmt reglum EB geta önnur flug-
félög flogið á milli Kaupmannahafn-
ar, Stokkhólms og Oslóar á næsta
ári, þar sem það teljast alþjóðlegar
leiðir, en SAS gæti ekki keppt á
leiðum eins og Berlín-Frankfurt eða
Róm-Mílanó fyrr en eftir fimm ár.
Sérfræðingar frá EB, sem staddir
voru í Lúxemborg í tengslum við
fund samgönguráðherra bandalags-
ins, sögðu í gær að mikil þrengsli á
flugvöllum og í lofthelgi bandalags-
ins vörpuðu skugga á setningu nýju
reglanna, sem eiga að leiða til lækk-
unar fargjalda og fjölgunar áætlun-
arleiða. „Ef ekkert er gert í þessum
málum verður aukið frelsi í flugmál-
um til lítils gagns, því flugfélögin
geta ekki nýtt sér það,“ sagði einn
sérfræðinganna.
Reuter
Fólk í biðröð við brauðbúð í miðborg Sarajevo. Onnur matvæli en brauð eru ófáanleg í borginni og
íbúarnir dvelja því sem næst allan daginn í neðanjarðarbyrgjum vegna stórskotaárása Serba. Þeir sem
hætta sér út í búð mega búast við árás hvenær sem er.
Ekkert lát á árásunum á Sarajevo:
Baker vill frekari refsiaðgerð-
ir vegna „viUimennsku“ Serba
Embættismenn SÞ úrkula vonar um að flugvöllurinn verði opnaður í bráð
Sariýevo, Washington, Belgrad, Lundúnum,
EMBÆTTISMENN Sameinuðu
þjóðanna kváðust í gær úrkula
vonar um að hægt yrði að
tryggja tveggja sólarhringa
vopnahlé svo koma mætti vist-
um til 300.000 íbúa Sarajevo,
sem eiga á hættu að verða
hungurmorða vegna umsáturs
Serba. Ekkert lát var á stór-
skota- og sprengjuvörpuárás-
um Serba á borgina. James
Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kvaðst ætla að
beita sér fyrir frekari refsiað-
gerðum gegn Serbum vegna
„villimennsku" og „ómennsku“
þeirra í Bosníu-Herzegovínu.
Lewis MacKenzie hershöfðingi,
helsti samningamaður Sameinuðu
þjóðanna í Sarajevo, fór í gær á
fund við serbneska leiðtoga utan
við bosnísku höfuðborgina til að
freista þess að semja við þá um
vopnahlé svo hægt verði að opna
flugvöllinn í borginni og koma
matvælum og lyfjum til borg-
arbúa. Serbnesku leiðtogarnir
hafa fallist á að láta flugvöllinn
af hendi til friðargæsluliða Sam-
einuðu þjóðanna.
MacKenzie sagði hins vegar um
helgina að friðargæsluliðarnir
gætu ekki opnað flugvöllinn nema
komið yrði á tveggja sólarhringa
vopnahléi. Hershöfðinginn sagði
áður en hann ræddi við serbnesku
leiðtogana að engar líkur væru á
að bardögunum linnti í bráð.
Talsmaður Carringtons lávarð-
ar, sem hefur reynt að koma á
friði í Bosníu-Herzegovínu fyrir
hönd Evrópubandalagsins, sagði
að forsetar Bosníu, Serbíu og Kró-
atíu hefðu samþykkt að efna til
friðarviðræðna í Strassborg á
morgun, fimmtudag. Hann sagði
þó líklegt að forseti Bosníu yrði
að senda fulltrúa sinn til viðræðn-
anna vegna bardaganna í
Sarajevo.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kvaðst ætla að
leggja til við forseta sinn að stjórn-
in beitti sér fyrir brottrekstri Serb-
íu úr alþjóðasamtökum og -stofn-
Novi Travnik. Reuter.
unum. Ráðherrann vill ennfremur
að stjórnin hafni júgóslavneska
sendiherranum í Washington og
einu ræðismannsskrifstofu Júgó-
slavíu í Bandaríkjunum verði lok-
að, en hún er í Chicago.
„Það er erfitt að trúa því að
hersveitir skuli enn þann dag í dag
hleypa af stórskotabyssum og
sprengjuvörpum á hvað sem fyrir
er í hjarta borgar, stökkva varnar-
lausum mönnum, konum og böm-
um á flótta og skjóta þau síðan,“
sagði Baker. „Þetta er ekkert ann-
að en villimennska og ómennska."
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, kvaðst í gær harma
að geta ekkert gert til að stöðva
blóðsúthellingarnar í Sarajevo.
„Gagnslaus reiði er rétta lýsing-
in,“ sagði hann og bætti við að
það væri sorglegt að Evrópuband-
alaginu, Sameinuðu þjóðunum og
Ráðstefnunni um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu (RÖSE) skyldi ekki
hafa tekist að binda enda á stríðið
í Bosníu.
Eistland;
Rússar neita að
nota krónuna
EISTLENDIN G AR tóku um
helgina upp eigin gjaldmiðil sem
ber heitið króna (kroon) og á
sama tíma varð óleyfilegt að
nota rúbluna, gjaldmiðil Sovét-
ríkjanna fyrrverandi. Eru Eist-
lendingar fyrsta fyrrum sovét-
þjóðin sem losar sig við rúbluna.
Almenningur fékk að skipta
1.500 rúblum, eða sem svarar einu
meðalmánaðarkaupi, yfir í 150
krónur og greip um sig mikið kaup-
æði í landinu dagana fyrir gjaldmið-
ilsbreytinguna. Rússneskir her-
menn í Eistlandi fengu ekki að
skipta rúblum yfir í krónur og hafa
þeir mótmælt þeirri ákvörðun harð-
lega. Þá hafa Rússar sem eru í
meirihluta víðsvegar í Eistlandi
margir neitað að nota nýja gjald-
miðilinn og hefur enn verið stuðst
við rúbluna á mörkuðum í þeim
hluta landsins. Eistnesk stjórnvöld
ætla hins vegar að koma í veg fyr-
ir slíkt með lögregluaðgerðum.
Nasistaveiðarinn Simon Wiesenthal:
„ Aðeins hægt að sækja baltnesku
stríðsglæpamennina til sakau
NASISTAVEIÐARINN Simon Wiesenthal, sem enn rekur Upplýs-
ingaskrifstofu gyðinga í Vín þrátt fyrir að hann sé orðinn 84 ára
gamall, segir að hann muni breyta áherslum í starfi sínu á næst-
unni. Flestir þeir nasistar sem enn séu á lífi séu orðnir það gaml-
ir að þó að hægt væri að hafa uppi á þeim yrðu þeir aldrei dregn-
ir fyrir dómstóla. Þeir einu sem hugsanlega væru ekki orðnir
of gamlir væru sjálfboðaliðar frá Eystrasaltsríkjunum. Héðan í
frá skipti því mestu máli að reyna að finna morðingja morgun-
dagsins.
„Við höfum undanfarið fengið
nýjar upplýsingar um nasista úr
skjalasöfnum í kommúnistaríkj-
unum fyrrverandi í Austur-Evr-
ópu. Á grundvelli slíkra upplýs-
inga tókst mér í fyrra að hafa
uppi á fyrrum yfirmanni þýska
hernámsliðsins í Póllandi, Hans
Frank. Það kom í ljós að maður-
inn bjó á Kanaríeyjum. Á meðan
á stríðinu stóð drottnaði hann líkt
og kóngur í Póllandi," segir Wies-
enthal í viðtali við danska dag-
blaðið BT. „En þegar mér tókst
loks að finna hann var hann orð-
inn 91 ára gamall og það segir
sig sjálft að það er ekki hægt að
draga hann fyrir rétt. Öll vitni,
þau sem lifðu af, eru látin. Það
hefur liðið of langur tími.“
Wiesenthal segist telja að rétt-
arhöldin í Þýskalandi gegn Josef
Schwammberger hafi verið þau
síðustu gegn gömlum nasista.
Wiesenthal fann Schwammberg-
er, sem ber ábyrgð á dauða þús-
unda gyðinga, í Suður-Ameríku
árið 1972 en þá tókst honum að
komast undan og fannst ekki aft-
ur fyrr en fyrir þremur árum. „Nú
er maðurinn orðinn áttræður og
eftir örfá ár komast læknarnir að
þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt
að halda honum lengur í fang-
elsi,“ segir hann.
„Einu stríðsglæpamennirnir
sem enn eru á lífi og hugsanlega
eru ekki orðnir of gamlir til að
sækja til saka eru sjálfboðaliðarn-
ir frá Eystrasaltsríkjunum. Það
voru margir frá Eistlandi, Litháen
og Lettlandi sem tóku þátt í út-
rýmingarherferðinni.
Þetta voru ungir menn og sök
þeirra er meiri en nasistanna
sjálfra því þeir buðu sig fram af
fúsum og fijálsum vilja. Þeir
myrtu nágranna sína og skólafé-
laga og stálu eignum þeirra.“
Wiesenthal segir mikilvægast
nú fyrir sig að koma í veg fyrir
að nasisminn rísi upp á ný. Hann
Simon Wiesenthal á skrifstofu sinni.
segir stjórnmálamenn í Evrópu
vera skammsýna og einungis
hugsa fram að næstu kosningum.
Þeir vinni heldur ekki nógu mikið
með ungu fólki. Öfgamenn séu
hins vegar duglegir við að einbeita
sér að ungmennum. „í mínum
huga leikur enginn vafi á því að
besta vörnin gegn nýnasisma sé
að sjá til þess að unga fólkið hafi
atvinnu. Einungis fimm prósent
þeirra, sem gerast aðilar að svona
samtökum, hafa einhvern áhuga
á nasisma. Hinum 95% væri hægt
að bjarga ef þau hefðu eitthvað
fyrir stafni.“