Morgunblaðið - 24.06.1992, Page 36

Morgunblaðið - 24.06.1992, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992 mnnmn 531 Hugsanlega er betra að fara sér hægt? HOGNI HREKKVÍSI irFi M V7W+. *Uá +11'1+ t, SKÆL FtR/NMf.. „NÚ FtohiLEGUR. F <S£/S/-/}£>/SKt. >' BRÉF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Lífríkið og græðgi mannsins Frá Bjarna Valdimarssyni: Fari Mammon flár úr skut, fyrr en sjór er rokinn. Annars stelur hann öllum hlut, í vertíðarlokin. Bólu-Hjálmar LÍFRÍKJUM Móður Jarðar er um megn að standa undir stofn- og reksturskostnaði á „Babels turni“. „Við viljum enga hvíta menn hér. Svarthæðir eru min eign. Reyni hvíti maðurinn að taka þær, mun ég berjast." Þannig mæltist Sitjandi bola, eða réttara sagt Tatanka Yot- anka. Ekkert „menntamannamál", engar málalengingar, ekkert „herra fundarstjóri, góðir fundarmenn, DRÁTTAVÉLA- EIGENDUR: Dráttarvélar og stórvirk vinnu- tæki eru hættuleg í meðförum, ef ekki er farið að öllu með gát. Hugsið ykkur tvisvar um áður en þið látið slík verkfæri í hend- ur á unglingum eða jafnvel börn- um. mig langar til að segja fáein orð, bla, bla, bla“ o.s.frv. Þetta minnir á að umhverfisspillandi siðmenning komst ekki á mótþróalaust. Reynd- ar kostaði hún mesta blóðbað mann- kynssögunnar og útrýmingu nokk- ur þúsund þjóða. Ferli þetta var hafið fyrr en skriður komst á við fund Kanaríeyja, síðan Hispanióia, og að lokum náðu ódæðin til allra heimsálfa. Þótt indíánar noti eintölu, var alltaf um sameign að ræða, en ekki einkaeign í nútíma skilningi. „Mun ég berjast." Enginn hafði vald til að senda annan til vígaferla. Sá sem vildi ganga til orrustu dansaði stríðsdans, sem kallaðist „að grafa upp stríðsexina", stuðningur ann- arra var tjáður með því að fleiri blönduðu sér í dansinn. Viðskipti voru algeng, en tungumál mörg, þess vegna notuðu menn táknmál, sem táknmál heyrnarskertra er komið frá. Heit skáta eru svo til orðrétt frá Cheyennum og Jam- borree er uppfært sambýlisform þeirra og hinna þjóðanna í Svart- hæðum. Persónuleg eign umhverf- isvænna þjóða var ekki meiri en svo að hún yrði látin í bát, borin á baki eða sett upp á drógar. í akuryrkju- samfélögum eins og í Andesfjöllum, fylgdi eins herbergis einbýlishús með (runawasi). Land til lífræns búskapar var aukið eða minnkað, eftir fjölskyldustærð. Það er fátækt þessarar tegundar sem Jesús hrós- aði, full af örlæti og gistivináttu. Ríka fólkið var samansaumað þá, eins og nú. Zúlúar í Suður-Afríku eru einnig vel máli farnir. Fundarsköp þeirra eru háþróuð og til eftirbreytni. Ræðustaður er húsgagnalaus pall- ur, sem nokkir sterkir menn standa umhverfis og neðan við. Um leið og maður tekur til máls, lyftir hann öðrum fæti og grípur um öklann. Enginn fundarstjóri með hamar eða bjöllu. Orðið er laust öðrum til handa um leið og taki um ökla er sleppt. Lokaorð eru sögð á meðan ræðumaður er ijarlægður styrkum höndum. íslensk fornrit bera með sér að mælgi voru skorður settar. Ókunn- ugt er mér hvernig þeir fóru að því. Mikhail Gorbatsjov flautaði ríkis- kapítalismann af, játaði mistök, og er maður að meiri. George Bush er heigull, þegar ekkert liggur ann- að fyrir en að veita einkagræðgi- skapítalisma náðarhöggið. Visthrun mun verða þung lexía. Lögspekingar gera einfalt mál flókið. Spánverjar bönnuðu þeim að fara í nýlendurnar í fyrstu, og þeim er oft ýtt til hliðar frá samn- ingaborði, þegar alvara kemst á að semja. Oft hefur fram komið að lög megi ekki vera orðfleiri en svo, að þau verði lærð utanbókar. Svonefnt Helgakver mun nálægt efri mörk- um um utanað lærðan orðaijölda. Hundruð þúsunda orða um hvernig rækta skuli jarðarber og tómata til sölu í Bandaríkjunum og Evrópu- bandalagi er víti að varast en ekki til eftirbreytni. Setjum íslandi fáorð nothæf umhverfislög. Nýting lífríkja skal vera endumýjanleg. Allur úrgangur skal fara mengunarlaust inn í hringrás náttúrunnar aftur. Endur- nýta skal þungmálma sem óhjá- kvæmilegt er að nota, til dæmis i rafhlöðum. Leggja umhverfisgjald á öll stór húsdýr, og stighækkandi eftir ijölda í einkaeign, til að tak- marka ijölda þeirra. Neytandi á engan rétt á vörum sem eru ódýrar af því að líftegund hefur verið mis- boðið. Fjórafalda verður rými á dýr í svonefndum verksmiðjubúum. Skömm er að hvernig farið er með jólatré og blómjurtir. Tímabært er að stofna Jurtavinafélag íslands. Lífrænir orku- og vélvana atvinnu- vegir þarfnast fleiri vinnandi handa, og vinnur það móti atvinnuleysi. Verkafólk á rétt á atvinnuvernd á meðan aðrir njóta hennar. Enginn virðist sjá athugavert við það, að námsmenn ryðjist inn á ofsetinn vinnumarkað á meðan þúsundir ganga atvinnulausar. BJARNI VALDIMARSSON Reykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði töldu íslendinga montna, hrokafulla uppskafninga, sem væru í raun að sálast úr minnimáttarkennd. Hér er sennilega um alþjóðlegan ósið að ræða en ekki séríslenskt fyrir- bæri, að þurfa svo mjög á því að halda að upphefja sig og sína þjóð á kostnað annarra. Kannski er það bara svo að þjóðernisvitund og þjóð- ernisremba, sem verður náttúrlega sérstaklega grasserandi þegar um íþróttir er að ræða, sé á tímum upplýsingar, ferðalaga, hruns hvers konar piúra og minnkandi veraldar að verða að úreltu fyrirbæri. xxx Heimir Karlsson, íþróttafrétta- maður Stöðvar 2, var við stjórnvölinn í þessari útsendingu en sér til liðs hafði hann fengið Einar Bollason, gamla körfuboltakempu. Það var gaman að heyra Einar lýsa eða öllu heldur öskra lýsingar á bandarísku snillingunum og tilþrif- um þeirra. Þar var enginn skortur á lýsingarorðum og innlifun Einars var svo einlæg að halda hefði mátt að allir leikmenn Chicago og Port- lands væru persónulegir vinir hans og kunningjar. Víkveiji skrifar A Stöð 2 gekk í það nokkur kvöld fyrr í mánuðinum að bjóða áhorfendum sínum upp á beina út- sendingu frá úrslitakeppni banda- ríska körfuboltans, NBA, þar sem NBA-meistarar síðasta árs, Chicago Bulls, kepptu við Portland í úrslitununum. Fyrir síðasta leikinn hafði Chicago unnið þijá leiki í úr- slitahrinunni en Portland tvo. Port- land varð því að sigra, ef um sjö- unda leik átti að vera að ræða. Víkveiji telur það lofsvert framtak hjá Stöð 2 að gefa áhorfendum sín- um kost á að fylgjast með í beinni útsendingu því besta sem gerist í körfubolta í öllum heiminum. Michael Jordan, aðalstjarna Chicago-liðsins er slíkur afburða- íþróttamaður og fæmi hans með körfuboltann, tækni og hittni, er svo ótrúleg að fremur má likja við list en íþrótt. Víkveiji hallast að því að menn þurfi ekki að vera miklir áhugamenn um körfubolta til þess að geta haft ánægju af því að horfa á hvers þessir úrvalsleikarar eru megnugir þegar körfuboltinn er annars vegar. Akveðinn hluti annars ágætrar þáttaraðar Stöðvar 2, Island á krossgötum, rifjaðist upp fyrir Víkverja þegar hann fylgdist með beinni útsendingu á Stöð 2 sunnu- dagskvöldið 14. júní sl. í úrslita- keppni bandaríska körfuboltans, þar sem Chicago og Portland leiddu saman hesta sína í sjötta leik. Chicago hafði betur í æsispennandi leik, þar sem Portland hafði haft undirtökin og forystuna allan leik- inn. Það sem vakti athygli Víkveija var að þulirnir, bæði þeir banda- rísku og íslensku, töluðu aldrei um keppnina án þess að tala um heims- meistarakeppni og það hveijir yrðu heimsmeistarar í körfubolta að leik loknum. Þetta var alls ekki heims- meistarakeppni, heldur NBA- keppnin, eða bandaríska úrvals- deildin í körfubolta. Þarna féllu bandarísku þulirnir í þá gryfju, sem fyrri daginn, að líta á Bandaríkin sem alheiminn og íslenskir starfs- bræður þeirra voru ekki lengi að apa ósómann eftir þeim. Hveijum þykir sinn fugl fagur — hvort sem hann er bandarískur eða íslenskur — sem kom rækilega fram í þáttun- um Island á krossgötum, þar sem ákveðnir viðmælendur stjórnandans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.