Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 17 er samt sá að um leið og hlustend- ur beggja rása heyra að veður- fregnir eru byijaðar geta þeir valið um hvort þeir vilja hlusta á ýtar- lega eða stutta spá. Með því munu útvarpið og veðurstofan stórbæta þjónustu sína. Veðurfregnir í fréttatímum Hlustendur frétta á samtengd- um rásum Ríkisútvarpsins eru oft um 40.000 klukkan 8, 70-80.000 klukkan 12.20 og 50-60.000 klukkan 19. Það er því ómetanlegt að nú verða stuttar veðurspár og viðvaranir lesnar í öllum þessum fréttatímum, en ekki aðeins klukk- an 8 og 19 eins og nú þegar er komið í framkvæmd. Sérstaklega er þetta mikilvægt þegar ná þarf til sem allra flestra hlustenda, jafn- vel þeirra sem hafa sjálfir ekki áhuga á að stilla tæki sín á veður- fregnir en eru samt þakklátir fyrir viðvaranir. Hér er því um mikla framför að ræða í öryggismálum auk þæginda fyrir landsmenn. í töflunni yfir hlustendafjölda má sjá að þessar stuttu verðurfregnir í fréttalok kl. 12.45 og 19.30 verða fjölda manns ábending um að strax á eftir sé þess kostur að heyra ýtarlegri veðurfréttir á Rás 1, ekki síst ef ráða má af stormfregnum að veðurútlit sé tvísýnt. Viðbrögð hlustenda Senniiegt er að mörgum bregði í brún vegna þessara nýjunga. Það er skiljanlegur eiginleiki að vera vanafastur. Ég vil samt biðja menn að hafa nokkra þolinmæði meðan þeir eru að venjast þessari nýju tilhögun veðurfregna og líta for- dómalaust á kosti hennar og galla. Það er til stórbóta að hlustendur beggja rása fá nú auðveldan að- gang að hvort heldur ýtarlegri eða styttri veðurfregnum. Tímasetning veðurfregna verður reglubundnari en áður. Einnig má benda á þá viðleitni að gefa verðurfræðingum aukið svigrúm til að vinna sem best úr nýjustu verðurskeytum áður en spáin er send út. Það flýt- ir því í rauninni að koma þessum upplýsingum á famfæri því að ann- ars er hætt við að þær verði að nokkru leyti að bíða næsta veður- fregnatíma á eftir, þremur klukku- stundum síðar. En það þekkja sjó- menn að þriggja stunda fýrirvari um óveður getur skipt sköpum um hvort landi verður náð eða ekki. Auknar frásagnir af veðurathug- unum, auk spárinnar, gefa rauns- annari mynd en áður af gangi veðr- anna. Spá um fjórða dag fram í tímann er athyglisverður vottur Um framfarir í veðurfræði. Og með veðurspám í fréttatímum auk þjón- ustunnar á Rás 2 munu veður- fregnir má til margfalt fleiri lands- manna en áður. Fáar þjóðir eru eins háðar veðri og íslendingar. Sjósókn er hér svo mikil að hver íslendingur dregur að jafnaði 6.000 kg fisks á land á hveiju ári, líkt og Færeyingar, en 15 sinnum meira en Norðmenn og Sílebúar sen næstir okkur komast árið 1990. Það er því gífurlegt hagsmunamál að haga sjósókninni skynsamlega eftri veðri. Ekki þarf að lýsa því hvað bændur og ferða- menn eiga mikið undir veðrinu. Mannskaði á sjó af völdum illviðra er svo mikill að hann er hlutfalls- lega sambærilegur við manntjón í þeim löndum sem eru hijáðust af hinum skæðu fellibyljum hitabelt- isins, þó að sá munur sé á að hér eru dauðaslysin tiltölulega færri í hvert skipti en að sama skapi tíð- ari. Vetrarveður valda líka miklu tjóni mannslífa og fjármuna á landi, einkum í umferðinni. En æði oft eru þessi slys á sjó og landi afleiðing af því að menn bera ekki nóga virðingu fyrir ógnareðli nátt- úrunnar. Á því þarf að verða breyt- ing og ein leiðin til þess er að gefa meiri gaum að veðrabrigðum og bregðast við þeim á skynsam- legan hátt. Vonandi verður nýtt fyrirkomulag veðurfregna til að auðvelda fólki þær ákvarðanir, hjálpa því lítið eitt til að haga líf- inu í samræmi við umhverfi okkar. Höfundur er veðurstofusijóri Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson Islandsmót í einmenningi 23.-24. október Eins og kemur fram í útgefinni mótaskrá var ákveðið að endurvekja íslandsmótið í einmenningi á þessu hausti. Upphaflega var áætlað að hafa þetta mót 30. og 31. október en þar sem hætt var við að halda opið mót á Akureyri helgina á undan var ákveð- ið að færa þetta mót til um eina helgi. íslandsmótið í einmenningi 1992 verð- ur því haldið í Sigtúni 9, dagana 23. og 24. október nk. og árshátíðin fær- ist líka fram um eina helgi og verður laugardaginn 24. október í L.A. kaffi. Skráning er hafin á skrifstofu BSÍ, s. 91-689360 og eru allir sem ætla að taka þátt beðnir að skrá sig eins fljótt og hægt er. Skráningarfrestur er til föstudagsins 16. október. Allir þátttakendur fá síðan send kerfiskort með kerfinu sem verður spilað og þeim sagnavenjum sem nota má. Þátttöku- gjald er kl. 2.500 á mann. Keppnis- stjóri verður Kristján Hauksson og spilað verður í Sigtúni 9. Bridsfélag kvenna Nú er tveimur kvöldum af þremur lokið í mitchell-tvímenningnum og er staða efstu para þannig: Staðan eftir 2 lotur: Nína Hjaltadóttir - Lilja Petersen 534 Ólína Kjartansdóttir - Kristín Karlsdóttir 530 Gunnþórunn Erlingsdóttir - Ingunn Bemburg 494 Lilja Halldórsdóttir - Maria Haraldsdóttir 478 Margrét Margeirsdóttir - Júlíana ísebam 469 Áslaug Pétursdóttir—Sigríður Þorvarðardóttir 464 Sigriður Möller - Freyja Sveinsdóttir 460 AldaHansen-NannaAgústsdóttir 459 Úrslit í riðlunum síðasta kvöld urðu þannig: Norður/suður-riðill Gunnþórann Erlingsdóttir - Ingunn Bemburg 246 Margrét Margeirsdóttir — Júlíana ísebam 245 Erla Ellertsdóttir - Kristin Jónsdóttir 238 Austur/vestur-rióill . Áslaug Pétursdóttir - Sigriður Þorvarðardóttir 285 Nína Hjaltadóttir — Lilja Petersen 278 Ólína Kjartnadóttir - Kristín Karlsdóttir 245 Vetrarmitchell BSÍ Vetrarmitchell BSÍ var að venju föstudagskvöldið 25. sept. 24 pör mættu til leiks og efstir í N/S urðu: Gunnar Þórðarson -Guðmundur Gunnarsson 314 Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðars. 297 BaldurBjartmarsson-EyþórHauksson 295 María Ásmundsd. - Steinþór Ingimundars. 292 Efstir í A/V urðu: Þráinn Sigurðsson - Vilhjálmur Sigurðsson 340 PállÞórBergson-SvcinnÞorvaldsson 327 MagnúsSverrisson-GuðjónJónsson 313 Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 304 Vetrarmitchell er spilaður á hveiju föstudagskvöldi í Sigtúni 9 og hefst kl. 19.00. Skráning á staðnum og all- ir velkomnir. Bridsdeild Barðstrendingafélagsins Mánudaginn 28. sept. var spilaður tvímenningur í 2 riðlum. A-riðill, meðalskor 156: Haraldur Sverrisson - Leifur Kr. Jóhannesson 198 Sigurðurísaksson-EddaThorlacius 197 AntonSigurðsson-ÁmiMagnússon 179 Hannes Ingibergsson - Jónína Halldórsd. 179 B-riðill, meðalskor 84: Þórarinn Ámason - Gísli Víglundss. 99 Gunnar Pétursson - Allan Sveinbjömss. 95 Jón I. Jónsson - Gunnlaugur Gunnlaugss. 92 GuðbjörgJónsd.-DanHansson 91 Spilastjóri ísak Öm Sigurðsson. Ennþá geta pör komist að í Aðaltvímenning deildarinnar. Upplýs- ingar í síma 71374 á kvöldin. Bridsklúbbur Fél. eldri borgara Kópavogi Þriðjudaginn 29. september var spilaður tvímenningur og mættu 14 pör til leiks og urðu úrslit þessi: ÞorIeifurÞórarinss.-ÞórarinnÁmason 197 Hannes Alfonsson - Einar Elíasson 187 JónFriðriksson-EinarEysteinsson 174 Gunnþórann Erlingsd. - Þorsteinn Erlingss. 161 Næst verður spilað föstudaginn 2. október kl. 13, og þriðjudaginn 6. október kl. 19; á Digranesvegi 12. NÖATÚN 5 slátur í kassa .... ....kr./kg. 2.780,- 3 slátur í kassa. ....kr./kg 1.689,- (Aukavambir fyrirliggjandi) Ný lambalifur........kr/kg 299f- Ný lambasvið...............kr/k9 299f- '/1 og ’/2 lambaskrokkar af nýslátruðu Sagaðir að A At% ósk kaupanda kr./kg 2 kg rágmjöl..... ...kr./kg 89f- 2 kg haframjöl.......kr/kg 198f- ■L-'.UI NÓATÚN117 ® 61 70 00 ROFABÆ 39 ® 67 12 00 HAMRABORG KÓP. ® 4 38 88 LAUGAVEG1116 ® 2 34 56 ÞVERHOLTI MOS. ® 66 66 56 FURUGRUND KÓP ® 4 20 62 BYGGINGAVÖRU Tl LBOÐ ODG Þakstál kantað Verð áður m2 @ 920 Hilluefni hvítt 16 mm 250 x 60 cm 1.271 ▲ Parket eik natur ▲ Gólff lísar beige Jk. Eldhúsinnrétting ▲ Vinnupeysa m2@ 3.655 m2@ 2.367 123.540 4.410 Ú P ú 9 ú p ú P Tilboð Verð áður Tilboð 828 ▲ Vinnusamfestingur 1.410 1.160 1.144 ▲ Ljóskast. m. 1000 W peru 6.953 5.770 3.216 ▲ Búkki 855 691 1.775 ▲ Vasaljós 700 567 99.758 ▲ Ljósagafl f. kerrur 2.879 2.430 3.520 ▲ Saumur 3" galv. pk. @ 282 237 VERSLANIR SK IPTI BOIie 4:1 OO 0 GRÆNT NUMER 996 410 HRINGBRAUT g iffasKasaiis»?ö o HAFNARFIRÐI ■ tf tCTWOIimMlM—i BREIDDINNI IBSSi. 6 4 19 19 9 ú lp ú E 9 ú 9 Ú p Ú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.